Innlent

Sjávarútvegurinn er að staðna

Jóhann Jónasson
Jóhann Jónasson
Afli dreginn upp Framkvæmdastjóri 3X Technology segir sjávarútvegsfyrirtæki ekki hafa fjárfest í nýrri tækni og tækjabúnaði síðan um mitt ár 2007 þegar þorskkvóti var skorinn niður um 30 prósent. Óvissa bætir ekki ástandið, segir hann.Fréttablaðið/Jón Sigurður
Fyrirtæki í sjávarútvegi fjárfesta ekki lengur í nýrri íslenskri tækni. Framkvæmdastjóri 3X Technology á Ísafirði segir orðið ómögulegt að vinna hér.

„Það er sárara en tárum taki að íslenskur sjávarútvegur er að tapa forskoti sínu því tækniframfarir í sjávarútvegi eru að færast úr landi," segir Jóhann Jónasson, framkvæmdastjóri 3X Technology á Ísafirði.

Þetta er í samræmi við athugun Íslenska sjávarklasans á veltu tæknifyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi.

Vinna við verkefnið hefur leitt í ljós að um sjötíu tæknifyrirtæki fluttu út tækjabúnað eða vörur tengdar sjávar-útvegi fyrir rúma sextán milljarða króna í fyrra. Áætlað er að hann aukist um fjóra milljarða á þessu ári, eða um 25 prósent.

Á sama tíma nam veltan á innanlandsmarkaði ellefu milljörðum króna í fyrra. Búist er við lítils háttar samdrætti í ár. Ekki er gert ráð fyrir að eftirspurn aukist á innanlandsmarkaði á næstunni þrátt fyrir uppsafnaða endurnýjunarþörf hjá sjávarútvegsfyrirtækjum.

Tæknifyrirtækið 3X Technology hefur þróað tækjalausnir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki víða um heim frá 1994 og hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands fyrir fimm árum fyrir að hafa náð árangri í sölu og markaðssetningu á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum fyrir matvælaiðnað.

Jóhann bendir á að frá því um mitt ár 2007 þegar þorskkvótinn var skorinn niður um þrjátíu prósent hafi ríkt stöðnun í sjávarútvegi. Óvissa um fiskveiðistjórnunarkerfið bæti ekki ástandið.

„Það er ekki búist við að nokkuð gerist hér næstu árin. Maður myndi vilja vinna heima en það er ljóst að af því verður ekki," segir Jóhann sem staddur var í skosku hálöndunum í vikubyrjun þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. „Við erum að ná okkur í verkefni þar," segir hann. [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×