Tíska og hönnun

Spennandi tækifæri

Herborg Eðvaldsdóttir.
Herborg Eðvaldsdóttir. Fréttablaðið/Stefán
Þetta verður skemmtileg upplifun,“ segir Herborg Eðvaldsdóttir, einn þriggja nemenda Myndlistaskólans í Reykjavík sem valdir voru í starfsnám í postulínsverksmiðjunni Kahla í Þýskalandi. Tilkynnt var um valið á alþjóðlegu sýningunni DMY í Berlín á dögunum, þar sem sjö nemendur skólans sýndu verk sín.

„Við fáum fullan aðgang að verkstæðum, efnum og sérfræðingum verksmiðjunnar í þrjár vikur. Það hljómar ekki langur tími en ofnarnir eru öflugir og vinnuferlið gengur hraðar en hér,“ segir Herborg. Hún segir spennandi að fá að kynnast starfsemi svo stórrar verksmiðju og að starfsnámið geti opnað ýmsa möguleika í framtíðinni.

Herborg sýndi samsettan blómavasa í Berlín. „Ég var orðin leið á að leita eftir vasa sem hentaði undir blómvendi. Ég gerði því vasa sem hægt er að stækka og minnka eða raða saman eins og skúlptúr. Eins er hægt að snúa stykkjunum við og nota sem kertastjaka,“ segir Herborg, sem sér sjálf um framleiðslu vasans. „Ég er að koma mér upp vinnuaðstöðu og kemst vonandi af stað í haust. Draumurinn er auðvitað að láta fjöldaframleiða hann.“

Nánar má kynna sér verk nemendanna á síðunni atriptothefactory.com.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×