Tíska og hönnun

Kaupendur hanna fötin

Bræðurnir Sigurður og Leifur Árnasynir hafa stofnað fyrirtækið Arnasons.com sem býður upp á fríar heima- og fyrirtækjakynningar í sumar.
Bræðurnir Sigurður og Leifur Árnasynir hafa stofnað fyrirtækið Arnasons.com sem býður upp á fríar heima- og fyrirtækjakynningar í sumar. Fréttablaðið/Haraldur
„Viðtökurnar eru frábærar," segir Sigurður Árnason sem stofnaði á dögunum fyrirtækið Arnasons.com með bróður sínum Leifi Árnasyni. Fyrirtækið er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi að sögn Sigurðar. Það heldur úti heimasíðunni www.arnasons.com þar sem hægt er að panta sérsaumuð jakkaföt á karlmenn og dragtir fyrir konur. Fötin eru sniðin eftir máli hvers og eins og saumuð úr ítölsku hágæðaefni.

Sigurður segir að viðskiptavinir muni hanna föt sín sjálfir. „Við byrjum á að spyrja fólk hvernig jakkaföt það vill," útskýrir Sigurður og bætir við að eftir að viðskiptavinurinn hefur valið tegund jakkafatanna séu nánari smáatriði skoðuð. „Þá spyrjum við hversu margar tölur eigi að vera á jakkafötunum, hvort setja eigi vasa á fötin og hvernig kraginn eigi að vera. Svo velur fólk efni eftir að það hefur skoðað sýnishorn. Að lokum er fólk mælt."

Hugmyndin að stofnun fyrirtækisins kviknaði í samræðum þeirra bræðra um jakkaföt. „Leifur bróðir minn var að klára master í frumkvöðlafræði í Kaupmannahöfn og ég bjó í London og var í jakkafötum alla daga," upplýsir Sigurður sem segir að þeir hafi rætt hversu dýrt væri að kaupa jakkaföt á þá tvo. „Við ákváðum þess vegna að byrja að láta sauma föt á okkur í Asíu. Þannig þróaðist þetta."

Sigurður segir að markhópur fyrirtækisins séu karlmenn á aldrinum þrjátíu til fimmtíu ára þótt einnig sé boðið upp á dragtir fyrir konur. „Við miðum á karlmenn sem hafa mikla skoðun á fötum og eru meðvitaðir um tískuna," segir Sigurður en einnig er horft til karlmanna sem passa ekki í venjulegar stærðir.

Fyrirtækið hóf starfsemi á Íslandi í maí en útrás til Skandinavíu og Englands er á prjónunum. „Ég er búinn að fara tvisvar til London og í bæði skiptin fékk ég fullt af pöntunum," segir Sigurður en stílistar verða ráðnir í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og London sem taka mál af viðskiptavinunum.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×