Erlent

Plúton hefur fundist í jarðvegi utan ofna

mótmæli í Þýskalandi Fyrir utan kanslarahöllina í Berlín hafa hópar mætt til að mótmæla kjarnorku.nordicphotos/AFP
mótmæli í Þýskalandi Fyrir utan kanslarahöllina í Berlín hafa hópar mætt til að mótmæla kjarnorku.nordicphotos/AFP
Kjarnorkuver í smíðum Í Finnlandi er verið að reisa eitt öruggasta kjarnorkuver heims í bænum Olkiluoto við strönd Eystrasalts.nordicphotos/AFP
Ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima verður æ hættulegra. Í gær fundust í fyrsta sinn merki um plúton í jarðvegi utan kjarnaofnanna, sem bendir til þess að alvarleg bráðnun hafi orðið í kjarna eins eða fleiri þeirra.

Magnið er reyndar sagt lítið og enn er vonast til að brátt muni takast að kæla niður ofnkjarnana svo þeir verði viðráðanlegir. Hættuleg geislun hefur enn ekki dreifst að ráði út fyrir nánasta nágrenni ofnanna.

Kjarnorkuslysið í Fukushima í Japan hefur hins vegar blásið nýju lífi í alla andstöðu við nýtingu kjarnorku víða um heim. Á Vesturlöndum og víðar hafa kjarnorkuandstæðingar haldið í mótmælagöngur og krafist þess að stjórnvöld leggi niður öll kjarnorkuver og hætti við áform um frekari uppbyggingu kjarnorkunýtingar.

Stjórnvöld víða um heim hafa einnig brugðist við með ýmsum hætti, jafnvel frestað áformum um frekari uppbyggingu eða hraðað áformum um að leggja niður kjarnorkuver.

Andstaðan hefur verið einna hörðust í Þýskalandi og nú um helgina kostaði það Kristilega demókrata, stjórnarflokk Angelu Merkel kanslara, þingmeirihluta í sambandslandinu Baden-Württemberg, þar sem flokkurinn hefur verið samfleytt við völd í nærri sextíu ár.

Sitt sýnist þó hverjum og margir hafa bent á að kjarnorkan er, þrátt fyrir þau skelfilegu áhrif sem kjarnorkuslys getur haft, samt sá orkugjafi sem einna umhverfisvænstur hlýtur að teljast.

Margir fara einnig ekki ofan af því að kjarnorkuvinnsla geti sömuleiðis verið nánast hættulaus ef rétt er að staðið.

Þannig halda Finnar ótrauðir áfram að reisa nýtt kjarnorkuver í Olkiluoto við strönd Eystrasalts. Reyndar eru það Frakkar sem tóku að sér að reisa kjarnorkuverið, sem sagt er verða það fullkomnasta og öruggasta sem risið hefur.

Veggirnir eru sagðir nógu þykkir til að þola flughrap, tækjabúnaðurinn á að þola finnska vetrarkuldann og eru öryggisráðstafanir byggðar á áratuga reynslu og tækniþróun.

„Við erum með svo mikið af varakerfum að slys á borð við það sem varð í Japan gæti ekki gerst," segir Juoni Silvennoinen, yfirmaður byggingarframkvæmdanna.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×