Erlent

Efasemdir um kjarnorku fá byr undir báða vængi á ný

Sprengingin í kjarnaofni 3 Sprengingar hafa orðið í tveimur kjarnaofnum í Fukushima. nordicphotos/AFP
Sprengingin í kjarnaofni 3 Sprengingar hafa orðið í tveimur kjarnaofnum í Fukushima. nordicphotos/AFP
Efasemdir um hvort skynsamlegt sé að nota kjarnorku hafa fengið byr undir báða vængi í kjölfar jarðskjálftanna í Japan, þar sem kjarnorkuverið í Fukushima laskaðist illa og hætta á alvarlegri mengun hefur ekki verið útilokuð.

Bæði þýsk og svissnesk stjórnvöld hafa, í ljósi atburðanna í Japan, frestað öllum ákvörðunum um frekari uppbyggingu kjarnorkuvera. Í Frakklandi og Bandaríkjunum hefur umræðan um kjarnorkuver einnig breyst skyndilega í ljósi nýjustu atburða. Í Svíþjóð og Finnlandi hefur slysið í Fukushima einnig kynt undir gagnrýni á kjarnorkustefnu stjórnvalda.

Sérfræðingar telja reyndar litlar sem engar líkur á því að slysið og mengunin verði af sömu stærðargráðu og í Tsjernóbyl árið 1986 þegar geislamengun barst yfir stór svæði í Sovétríkjunum og Evrópu og kostaði tugi manna lífið auk þess að hafa skelfileg áhrif á heilsufar fjölda fólks í næsta nágrenni og jafnvel víðar.

Nær sé að bera slysið í Fukushima saman við kjarnorkuslysið á Three Mile Island í Bandaríkjunum árið 1979, enda hafi orsökin þá verið svipuð: bilun í kælikerfi. Kjarnaofnarnir í Tsjernóbyl hafi auk þess verið allt annarrar gerðar en ofnarnir í Fukushima og öryggisatriði ekki í jafn góðu lagi.

Í Japan eru nú starfrækt 54 kjarnorkuver. Frá þeim koma 30 prósent af allri raforku, sem notuð er í landinu. Áform hafa verið um að auka þessa hlutdeild upp í 40 prósent á næstu árum, en vera má að þau áform verði nú endurskoðuð.

Kjarnorkuverið í Fukushima var tekið í notkun árið 1966. Þar eru nú starfræktir sex kjarnaofnar, en tveir í viðbót eru í smíðum. Af ofnunum sex voru þrír í notkun þegar jarðskjálftinn reið yfir en hinir þrír voru ekki í notkun vegna viðhaldsvinnu.

Yukio Edano, talsmaður japönsku stjórnarinnar, sagði síðdegis í gær að allt benti til þess að eldsneytisstangirnar í öllum þremur kjarnaofnunum væru byrjaðar að bráðna. Hve alvarlegt það verður fer eftir því hve vel gengur að kæla niður ofnana.

Kælikerfi ofnanna þriggja eyðilagðist í jarðskjálftanum. Brugðið var á það ráð að dæla sjó inn á ofnana til að kæla þá, sem hefur dregið úr hættunni en þó gengið brösuglega.

Sprenging varð í kjarnaofni númer 1 á laugardag, síðan í ofni númer 3 í gær og veruleg hætta virtist á sprengingu í þeim þriðja, ofni númer 2.

„Tekist hefur að ná að minnsta kosti einhverjum stöðugleika í bili í ofnum 1 og 3,“ sagði Ryohei Shiomi frá kjarnorku- og iðnstofnun Japans í gær.

„Öll okkar athygli og allt okkar starf beinist nú að ofni 2.“

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×