Erlent

Hundruð manna enn í rústum húsa

Gerónýtt heimili Hjónin Murray og Kelly James fyrir utan heimili sitt í Christchurch daginn eftir jarðskjálftann.nordicphotos/AFP
Gerónýtt heimili Hjónin Murray og Kelly James fyrir utan heimili sitt í Christchurch daginn eftir jarðskjálftann.nordicphotos/AFP
Nokkrum hundruðum manna hefur verið bjargað á lífi úr rústum húsa í Christchurch á Nýja-Sjálandi en um 300 manns var enn saknað í gær, daginn eftir að 6,3 stiga jarðskjálfti reið þar yfir. Að minnsta kosti 75 manns eru látnir.

Hundruð hermanna, lögreglumanna og hjálparstarfsmanna hafa leitað í rústunum í örvæntingarfullu kapphlaupi við tímann, sem stundum hefur skilað óvæntum árangri.

Mikill fögnuður braust þannig út í gær þegar björgunarmenn náðu Ann Bodkin út úr rústum háhýsis eftir mikið erfiði, því hún lá grafin innan um steypuklumpa og snúin málmstykki. Eiginmaður hennar hafði beðið milli vonar og ótta meðan unnið var að björgun hennar.

Svo hittist á að um leið og hún var laus úr rústunum brutust geislar sólarinnar út úr skýjunum, en þungbúið hafði verið fram að því. Varð þá Bob Parker, borgarstjóra í Christchurch, að orði: „Þeir náðu Ann út úr byggingunni og Guð kveikti ljósin.“

Verr fór annars staðar í borginni þar sem fimmtán ára tvíburar, Lizzy og Kent, biðu fyrir utan Canterbury-sjónvarpsstöðina, sjö hæða byggingu þar sem móðir þeirra vann við morgunþátt. Húsið hrundi í jarðskjálftanum en þau reyndu hvað þau gátu að halda í vonina meðan björgunarfólk kannaði aðstæður.

Þá kom lögreglukona út úr rústunum, kraup fyrir framan tvíburana og sagði enga von lengur til þess að neinn fyndist á lífi í rústunum.

Fimmtán starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar voru í húsinu og þar voru einnig tíu japanskir skiptinemar ásamt kennurum í tungumálaskóla sem einnig var til húsa í byggingunni.

Heilu hverfi borgarinnar eru í rúst eftir jarðskjálftann. Að kvöldi þriðjudags var ákveðið að leggja á útgöngubann yfir nóttina, bæði til þess að tryggja að fólk færi sér ekki að voða á hættulegum stöðum og til þess að koma í veg fyrir þjófnaði.

Nokkrir hafa verið handteknir fyrir innbrot og þjófnaði.

Hætta þótti á að ein hæsta bygging borgarinnar, hið 27 hæða Hotel Grand Chancellor, myndi hrynja og var ákveðið að rýma hótelið og næstu tvær húsaraðirnar í kringum það.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×