Tónlist

Gylfi Ægis með aukatónleika í kvöld

[email protected] skrifar
Gylfi hvetur sjómenn til að mæta í kvöld í Salinn í Kópavogi.
Gylfi hvetur sjómenn til að mæta í kvöld í Salinn í Kópavogi.
Þetta eru aukatónleikar í Salnum í Kópavogi klukkan 20 í kvöld. Afmælistónleikarnir mínir voru í salnum 12. nóvember síðastliðinn en eftir þá voru aukatónleikar settir á. Nú eru hátt í 200 miðar seldir en salurinn tekur 300 manns. Þannig að það eru nokkrir miðar eftir, segir Gylfi Ægisson söngvari og lagasmiður.

Ég hvet sjómenn til að mæta á tónleikana kvöld. Á afmælistónleikunum var troðfullt og mikið hlegið. Ég syng vinsælustu lögin mín, segi brandara og síðan koma leynigestir. Það verður líf og fjör, segir Gylfi kátur.

Kaupa miða hér (Salurinn.is) og Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×