Tíska og hönnun

Hönnun Lindu eftirsótt

[email protected] skrifar
myndir/w og lindabjorgarnadottir.com
Scintilla, hönnun Lindu Bjargar Árnadóttur fagstjóra fatahönnunardeildar LHÍ, hefur ekki aðeins vakið athygli á Íslandi heldur einnig úti í hinum stóra heimi.

Í desemberhefti W tímaritsins er hönnun Lindu, munstraðar ullarábreiður, á meðal eftirsóttustu hönnunarhluta eins og sjá má á meðfylgjandi mynd - hér.

Scintilla er í ekki ómerkari félagsskap en heimsþekktra hönnunarhúsa eins og Balenciaga og Chanel og hönnuðarins Stellu McCartney.

Ég er mjög ánægð með þær vörur sem komnar eru. Nú ætla ég að fara að bæta við og stækka línuna auk þess sem ég er að vinna í því að koma vörunum í sölu á fleiri stöðum bæði hér heima og erlendis," lét Linda hafa eftir sér í viðtali við Fréttablaðið sumar 2010.

Scintillalimited.com

Lindabjorgarnadottir.com






Fleiri fréttir

Sjá meira


×