Drillo: Ótrúlegt að Ísland sé bara í 124. sæti á FIFA-listanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2011 22:45 Egil "Drillo" Olsen. Mynd/Anton
Íslenska landsliðið er neðar á FIFA-listanum en þjóðir eins og Færeyjar, Grenada, Liechtenstein og St. Kitts og Nevis. Það á Egil "Drillo" Olsen, þjálfari norska landsliðsins erfitt með að skilja. Noregur og Ísland mætast á Ullevaal í Osló á föstudagskvöldið og Drillo ræddi stöðu íslenska landsliðsins í viðtali við norska Dagblaðið. „Við höfum oft átt í miklum vandræðum með Ísland en það á ekki bara við okkur. Ég sá báða leiki Íslendinga á móti Dönum. Danir skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma og í fyrri hálfleik í leiknum á Íslandi þá var staðan 3-3 í færum. Danir skoruðu síðan mark með langskoti sem flestir markverðir hefðu tekið. Það eru enginn að rúlla íslenska liðinu upp og þó að þeir hafi tapað 0-4 í Ungverjaland þá var sá leikur jafn," sagði Egil "Drillo" Olsen og bætti við: „Ísland er ein af þessum knattspyrnuþjóðum sem eru miklu betri en staða þeirra á FIFA-listanum segir til um. Það þeir séu númer 124 á meðan að Færeyjar eru númer 111 er ótrúlegt, sérstaklega ef maður skoðar hvar færeysku leikmennirnir eru að spila," sagði Drillo. Egil "Drillo" Olsen hefur náð frábærum árangri eftir að hann tók aftur við norska landsliðinu en liðið hefur aðeins tapað 4 af 18 leikjum sínum undir hans stjórn (12 sigrar) og er komið alla leið upp í tólfta sæti á Styrkleikalista FIFA.
Íslenski boltinn Mest lesið Róbert Orri með sjálfsmark ársins: „Fáránlegt atvik“ Fótbolti Utan vallar: Tilviljanirnar verða vart ótrúlegri | Ég skammaðist mín Fótbolti „Aumkunarvert að tala um það jákvæða eftir 5-0 tap“ Fótbolti Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Handbolti Króatar og Danir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum Fótbolti Spilar heima á Tenerife í kvöld og bað um 45 miða Fótbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport Ágúst tekur við af Óskari hjá Val Handbolti „Gaman að vera ekki aumingi“ Körfubolti Tóku mynd af sér með Ronaldo eftir stórt tap: „Af hverju er það ekki í lagi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út Sjá meira