Þórður Rafn: Nú er einn titill eftir Rafnar Orri Gunnarsson skrifar 8. apríl 2010 22:31 Þórður Rafn Guðmundsson átti góðan leik. Mynd/Heimasíða Hauka „
Ég var ánægður með fyrri hálfleikinn í kvöld. Svo breyttist þetta mikið í seinni hálfleik og virtist sem að menn væru orðnir saddir og farnir að hugsa um að fagna bikarnum í leikslok. Annars veit ég það ekki, það leit allavega þannig út," sagði Þórður Rafn Guðmundsson, leikmaður Hauka, eftir leikinn gegn Akureyri í kvöld. Haukar fögnuðu deildarmeistaratitlinum og þar sem Akureyri sigraði leikinn gátu þeir líka fagnað þar sem þeir tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni. Þórður Rafn átti góðan leik fyrir Hauka í kvöld, markahæstur í liði heimamanna með sjö mörk. Það voru margir af lykilmönnum liðsins hvíldir og hann segir að það sé mikilvægt að nýta öll tækifæri sem gefast inn á vellinum. „Ég var ánægður með mína frammistöðu í dag og maður verður að vera klár þegar tækifærin gefast. En það er auðvitað alltaf leiðinlegt að tapa. Þeir breyttu vörninni í seinni hálfleik og tóku mig út, það var erfitt að aðlagast því. En nú er það bara úrslitakeppnin og mér líst bara vel þetta. Þetta er þriðja árið mitt í meistaraflokk og úrslitakeppnin er það allra skemmtilegasta. Núna er einn titill eftir og við ætlum okkur að klára það," sagði hinn ungi og efnilegi Þórður Rafn eftir að hafa tekið á móti verðlaunum sínum í kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum Fótbolti Hringir og hringir en fær alltaf nei Fótbolti Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Enski boltinn Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Enski boltinn Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Borce Ilievski snýr aftur í Breiðholtið og tekur við ÍR Körfubolti Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Handbolti „Þessi strákur er bara algjört grín“ Sport San Marínó vann aftur og komst upp Fótbolti Króatar og Danir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum Fótbolti Fleiri fréttir Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Sjá meira