Tíska og hönnun

Íslensk bikiní fyrir alla

Hera Guðmundsdóttir segir viðbrögð manna við sundfatnaðinum hafa komið sér og Steinunni Björgu Hrólfsdóttur skemmtilega á óvart.
Hera Guðmundsdóttir segir viðbrögð manna við sundfatnaðinum hafa komið sér og Steinunni Björgu Hrólfsdóttur skemmtilega á óvart. Fréttablaðið/Arnþór

„Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt í sumar og datt í hug að hanna saman sundboli. Okkur fannst alveg sérstakt að ekki væri þegar til íslenskt sundfatamerki þar sem sundið er svo stór partur af íþróttaiðkun landans," segir Hera Guðmundsdóttir sem er annar hluti hönnunartvíeykisins LAUG.

Hera og Steinunn Björg Hrólfsdóttir, hinn helmingur tvíeykisins, luku nýverið fyrsta ári við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands.

Segir Hera að viðbrögð kvenna við línunni hafi komið þeim stöllum skemmtilega á óvart. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og fólk hefur sýnt þessu mikinn áhuga. Við erum þessa stundina að leita að saumakonu til að aðstoða okkur við að koma sundbolunum í framleiðslu og vonandi gerist það á næstu vikum."

Sundfötin hafa sterka skírskotun í tísku sjötta áratugarins.

Sundfatnaðurinn hefur sterka skírskotun í tísku sjöunda áratugarins og eru buxurnar hærri upp í mittið en hefur viðgengist undanfarin ár.

„Bolirnir eiga að klæða alla. Þeir eru hvorki of flegnir né of berir og í raun eru þetta bara falleg stykki sem gaman er að sýna sig í," segir Hera.

Myndir/María Guðrún Rúnarsdóttir
Hægt er að leggja inn pöntun til stúlknanna með því að senda fyrirspurn á netfangið [email protected].

- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×