Íslenski boltinn

Laust sæti í 3. deild karla í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Á heimasíðu KSÍ er auglýst eftir liði til að spila í 3. deild karla í sumar en lið Snæfells í Stykkishólmi hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni.

Áhugasömum félögum er bent á að hafa samband við Birki Sveinsson, mótastjóra KSÍ, [email protected]. Viðkomandi félag kæmi þá í stað Snæfells í C riðil 3. deildar karla.

Í riðlinum eru Skallagrímur, KV (Knattspyrnufélag Vesturbæjar), Hvíti riddarinn, KFG (Knattspyrnufélag Garðabæjar) og Berserkir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×