Maldini kæmist ekki í lið í MLS 27. mars 2008 16:40 Ruud Gullit skefur ekki af því NordcPhotos/GettyImages
Ruud Gullit hefur skotið föstum skotum að fyrrum liði sínu AC Milan á Ítalíu og segir það orðið allt of gamalt. Hann segir fyrirliða þess og fyrrum félaga sinn Paolo Maldini svo gamlan að hann kæmist ekki einu sinni í lið í Bandaríkjunum. Gullit var partur af gullaldarliði Milan á níunda og tíunda áratugnum sem almennt er talið eitt besta félagslið allra tíma. Gullit er nú framkvæmdastjóri hjá David Beckham og félögum í LA Galaxy í Los Angeles. "Milan er gamalt lið í dag og menn verða að fara að gera breytingar þar á bæ," sagði Gullit í samtali við Gazzetta dello Sport á Ítalíu. "Það kom mér alls ekki á óvart að sjá liðið slegið út úr Meistaradeildinni og Milan hefur alls ekki verið að spila vel," sagði Gullit og lét vaða á goðsögnina Paolo Maldini í leiðinni. "Maldini er fertugur og er orðinn of gamall til að spila, meira að segja hérna í Bandaríkjunum. Ég mundi frekar taka Gattuso með mér hingað til Bandaríkjanna," sagði Gullit. Hann segir ítalska boltann líka eiga undir högg að sækja. "Inter er í mínum huga allt of hægfara lið og allt of fyrirsjáanlegt. Ítalski boltinn virðist vera spilaður á hálfum hraða þessa dagana," sagði Gullit.
Ítalski boltinn Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Dagskráin: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira