Tónlist

Sólargeisli frá honum KK

Melódikka, kassagítar og þvottabretti KK skemmti gestum sínum ásamt snillingunum Jóni Ólafssyni og Ásgeiri Óskarssyni.
Melódikka, kassagítar og þvottabretti KK skemmti gestum sínum ásamt snillingunum Jóni Ólafssyni og Ásgeiri Óskarssyni. MYND/valli

Nýjasta plata hins ástsæla tónlistarmanns KK – Svona eru menn – er komin út. Þjófstartað var á Kaffi Rosenberg á mánudag.

Til útgáfuteitis KK var ýmsum vinum og velunnurum, ásamt þeim sem komu að gerð plötunnar, boðið. KK tróð upp ásamt Jóni Ólafssyni og Ásgeiri Óskarssyni. Viðstaddir fengu forsmekkinn af efni plötunnar sem er meðal annars sérstök að því leytinu til að Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi gefur út plötuna auk þess sem hann myndskreytir bækling sem fylgir disknum með ljósmyndum sínum.

Jóhann Páll, sem lét sig gerð plötunnar varða á framleiðslustigi, er að vonum ánægður með sinn mann: „Svona eru menn er að mínu viti einlægasta og hreinræktaðasta plata KK til þessa. Hann stendur og fellur algjörlega með sjálfum sér á plötunni og tekst það einstaklega vel.

Yrkisefnin spilla ekki á erfiðum tímum. Ég er sannfærður um að diskurinn verður sannkallaður sólageisli sem lýsir upp myrkvaðar sálir Íslendinga nú um stundir.“

KK heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld til að fagna plötunni. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.

[email protected]

umboðsmaðurinn og markaðsstjórinn Palli Papi, til hægri, er umboðsmaður KK (sem og reyndar Bubba) og hann mætti að sjálfsögðu ásamt Heiðari Inga Svanssyni, markaðsstjóra Forlagsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×