Tónlist Maðurinn sem uppgötvaði Bieber kveður bransann Umboðsmaðurinn Scooter Braun hefur ákveðið að segja skilið við tónlistarbransann. Braun er maðurinn sem uppgötvaði Justin Bieber og bauð honum samning hjá útgáfufyrirtæki. Þá hefur hann unnið með mörgum stærstu stjörnum tónlistarbransans, þar á meðal Kanye West, Ariönu Grande, David Guetta og Black Eyed Peas. Tónlist 17.6.2024 21:01 Öxar við ána nú til í salsaútgáfu Hljómsveitin Salsakommúnan gaf út ábreiðu af laginu Öxar við ána í salsa stíl í dag í tilefni þjóðhátíðardagsins. Tónlist 17.6.2024 15:04 Lofar svakalegri veislu „Ég lofa aldrei upp í ermina á mér en í þetta skipti ætla ég að gera það; þetta verður svakaleg veisla,“ segir Friðrik Dór tónlistarmaður sem heldur tvenna tónleika í Háskólabíói í kvöld. Tónlist 16.6.2024 09:29 „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ „Þegar mig langaði að gera eitthvað þá var aldrei sagt við mig finnst þér það nógu karlmannlegt eða er þetta ekki of kvenlegt? Það var bara ekki til. Og þegar ég sagði að ég ætlaði að fara að spila og syngja þá var ekki til að það væru einhverjar efasemdir eða að það væri ekki nógu flott,“ segir tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Jógvan Hansen. Hann ræddi við blaðamann um lífið og tilveruna. Tónlist 16.6.2024 07:01 Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki Dór gaf út á miðnætti þriðja hluta Til í allt, sem er nú orðið lengsta framhaldslagið í sögu íslenskrar popptónlistar. Með Frikka í för í þetta skiptið eru þeir Herra Hnetusmjör og Steindi jr. Frikki segir lagið eiga sérstakan stað í hjarta sér. Tónlist 14.6.2024 10:20 Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Friðrik Dór Jónsson segir að heimsmetið muni falla á miðnætti í kvöld þegar hann gefur út Til í allt part 3. Lagið verður þá lengsta framhaldslagið í sögu íslenskrar popptónlistar. Tónlist 13.6.2024 17:30 Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið Pródúserinn og plötusnúðurinn Arnar Ingi, betur þekktur sem Young Nazareth, hefur komið víða að í tónlistinni og er búsettur í Berlín um þessar mundir. Hann hefur unnið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins og er nú að fara að senda frá sér danslaga EP plötu undir eigin nafni. Tónlist 12.6.2024 20:00 „Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ „Við erum ótrúlega spennt að færa íslenskum hlustendum þessa nýju útvarpsstöð. Aukning á vinsældum country tónlistar bæði hér á landi um allan heim hefur verið eftirtektarverð og við teljum að Country Bylgjan muni mæta síaukinni eftirspurn hlustenda,“ segir Þórdís Valsdóttir, forstöðumaður útvarps hjá Sýn um splunkunýja útvarpsstöð sem fer í loftið á morgun og spilar eingöngu country tónlist. Tónlist 12.6.2024 14:01 Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Jólagestir Björgvins 2024 verða þeir síðustu þar sem Björgvin Halldórsson er gestgjafi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu en líkt og alþjóð veit hefur söngvarinn góðkunni verið andlit tónleikanna frá upphafi. Tónlist 12.6.2024 13:01 Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, prettyboijokkó, hélt útgáfutónleika í tilefni af plötunni PBT 2.0 við Reykjavíkurhöfn síðastliðið föstudagskvöld. Um er að ræða níu laga plötu sem kom út 24. maí síðastliðinn. Tónlist 10.6.2024 16:49 Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Rafpoppararnir í hljómsveitinni Númer 3 hafa snúið bökum saman með Króla en saman hafa þeir nú gefið út sumarsmellinn Bjór. Einn liðsmaður sveitarinnar segir Króla ekki hafa getað hugsað um annað en lagið eftir að hafa fengið að heyra það í fyrsta sinn. Tónlist 7.6.2024 15:30 Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Hressasta hljómsveit landsins, stöllurnar í Heimilistónum blása til sumarkjólaballs í Gamla bíó í kvöld. Þar verða ýmsir leynigestir en vinkonurnar nefna sérstaklega eitt leynivopn sem mikil leynd hvílir yfir. Þær segjast aldrei hafa verið betri, segjast alls ekki vera eins og þær léku sig í Iceguys þáttunum og heita því að House mix af Kúst og fæjó sé í bígerð. Tónlist 7.6.2024 07:01 Yo-Yo Ma kemur til landsins Yo-Yo Ma, einn frægasti tónlistarmaður heims, er væntanlegur til landsins. Hann mun leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu og á sérstökum dúótónleikum í Eldborg með breska píanistanum Kathryn Stott í október. Tónlist 5.6.2024 11:46 „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ „Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum. Tónlist 5.6.2024 11:31 Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Gervispilanir á streymisveitum á borð við Spotify koma niður á tekjuöflun íslenskra tónlistarmanna. Vandamálið er áberandi á topplista Spotify á Íslandi, þar sem algjörlega óþekktir erlendir listamenn skjóta reglulega upp kollinum með grunsamlega mikið streymi. Tónlist 5.6.2024 07:00 Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Ofurtvíeykið Bríet og Birnir fögnuðu útgáfu plötunnar 1000 orð með trylltu teiti á skemmtistaðnum AUTO síðastliðið föstudagskvöld. Margt var um manninn og virtist stemningin sjóðheit. Tónlist 4.6.2024 20:01 Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Matthías Eyfjörð er maðurinn að baki einum óvæntasta smelli ársins, laginu Halla T House Mix því sem Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands steig trylltan dans við með stuðningsmönnum sínum þegar hún mætti í hús í kosningateiti sitt í Grósku um helgina. Lagið var spilað oft og mörgum sinnum í teiti Höllu af plötusnúðnum Danna Deluxe og hefur slegið í gegn. Líklegt má þykja að það verði spilað oft og mörgum sinnum næstu árin nú þegar ljóst er að Halla er næsti forseti. Tónlist 4.6.2024 09:01 Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Það gat verið erfitt að horfa til baka sem þolandi ofbeldis og nýta mína persónulega reynslu til að semja fyrir leikhúsið,“ segir tónlistarkonan Gugusar um lagið Merki sem hún var að senda frá sér. Lagið er úr sýningu Þjóðleikhússins Orð gegn orði sem hefur slegið í gegn. Tónlist 3.6.2024 14:26 „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02 „Aldrei verið jafn stolt af mér“ „Ég trúi ekki að þetta ævilanga markmið sé loksins komið út,“ segir tónlistarkonan María Agnesardóttir eða MAIAA eins og hún kallar sig. MAIAA var að senda frá sér plötu og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lag sitt Lovesick. Tónlist 31.5.2024 11:32 Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði Páll Óskar og Skrattar leiða saman hesta sína og koma í fyrsta sinn fram saman á sviði, sem og í sitthvoru lagi, á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina, 2-4 ágúst. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. Tónlist 30.5.2024 14:28 „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta „Margir eru búnir að spyrja hvort við séum hætt saman út af þessu lagi en svo er ekki,“ segir tónlistarkonan Sigga Ózk sem var að senda frá sér popplagið BOY BOY. Blaðamaður ræddi við Siggu Ózk sem frumsýnir sömuleiðis hér myndband við lagið. Tónlist 30.5.2024 08:00 Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Feðgarnir og nafnarnir Þórhallur Þórhallsson og Laddi gefa í dag út sitt fyrsta lag saman. Að sögn Þórhalls er lagið á léttum nótum um íslensku gaslýsinguna sem felst í voninni um almennilegt sumar. Sumarlagið í ár að sögn Ladda. Tónlist 30.5.2024 07:01 Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA Listahátíðin LungA verður haldin í síðasta sinn í sumar, 15. - 21. júlí, á Seyðisfirði en 24 ár eru liðin frá því að hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur tilkynnt flesta tónlistarmenn sem fram koma í ár en þar á meðal verður palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad sem vakti mikla athygli í Söngvakeppninni í ár. Tónlist 28.5.2024 14:20 „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Mínusmenn blása til útgáfuveislu næstkomandi fimmtudag í plötuversluninni Smekkleysu í tilefni af endurútgáfu platnanna Halldór Laxness og Jesus Christ. Sveitin mun troða upp ásamt amerísku rokksveitinni The Messthetics ásamt tveimur meðlimum goðsagnakenndu sveitarinnar Fugazi. Tónlist 28.5.2024 14:12 Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónlistarkonan María Agnesardóttir, jafnan þekkt sem MAIAA, hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi. Hún fagnaði nýrri EP plötu með pompi og prakt í skvísupartýi á Prikinu síðastliðinn föstudag þar sem þemað var stelpukraftur eða „girlpower“. Tónlist 27.5.2024 11:31 Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri. Tónlist 26.5.2024 10:07 Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er ávallt kallaður, gaf út nýtt lag á væntanlegri plötu, sem ber nafnið Í bríaríi. Hann lýsir laginu sem gleðilegu sumarrokki en það fjallar um sanna atburði sem gerðust á Norðurlandi. Tónlist 17.5.2024 10:00 Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn. Tónlist 16.5.2024 11:59 „Þægileg blanda af von og trega“ „Þetta er svona lag þar sem bassalínan rífur í hálsmálið á þér og spyr spurninga. Þægileg blanda af von og trega,“ segir tónlistarmaðurinn Jónfrí um nýtt lag sem hann og Ólafur Bjarki voru að senda frá sér. Lagið heitir Gott og vel og voru þeir sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem er frumsýnt í spilaranum hér fyrir neðan. Tónlist 14.5.2024 11:30 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 226 ›
Maðurinn sem uppgötvaði Bieber kveður bransann Umboðsmaðurinn Scooter Braun hefur ákveðið að segja skilið við tónlistarbransann. Braun er maðurinn sem uppgötvaði Justin Bieber og bauð honum samning hjá útgáfufyrirtæki. Þá hefur hann unnið með mörgum stærstu stjörnum tónlistarbransans, þar á meðal Kanye West, Ariönu Grande, David Guetta og Black Eyed Peas. Tónlist 17.6.2024 21:01
Öxar við ána nú til í salsaútgáfu Hljómsveitin Salsakommúnan gaf út ábreiðu af laginu Öxar við ána í salsa stíl í dag í tilefni þjóðhátíðardagsins. Tónlist 17.6.2024 15:04
Lofar svakalegri veislu „Ég lofa aldrei upp í ermina á mér en í þetta skipti ætla ég að gera það; þetta verður svakaleg veisla,“ segir Friðrik Dór tónlistarmaður sem heldur tvenna tónleika í Háskólabíói í kvöld. Tónlist 16.6.2024 09:29
„Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ „Þegar mig langaði að gera eitthvað þá var aldrei sagt við mig finnst þér það nógu karlmannlegt eða er þetta ekki of kvenlegt? Það var bara ekki til. Og þegar ég sagði að ég ætlaði að fara að spila og syngja þá var ekki til að það væru einhverjar efasemdir eða að það væri ekki nógu flott,“ segir tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Jógvan Hansen. Hann ræddi við blaðamann um lífið og tilveruna. Tónlist 16.6.2024 07:01
Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki Dór gaf út á miðnætti þriðja hluta Til í allt, sem er nú orðið lengsta framhaldslagið í sögu íslenskrar popptónlistar. Með Frikka í för í þetta skiptið eru þeir Herra Hnetusmjör og Steindi jr. Frikki segir lagið eiga sérstakan stað í hjarta sér. Tónlist 14.6.2024 10:20
Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Friðrik Dór Jónsson segir að heimsmetið muni falla á miðnætti í kvöld þegar hann gefur út Til í allt part 3. Lagið verður þá lengsta framhaldslagið í sögu íslenskrar popptónlistar. Tónlist 13.6.2024 17:30
Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið Pródúserinn og plötusnúðurinn Arnar Ingi, betur þekktur sem Young Nazareth, hefur komið víða að í tónlistinni og er búsettur í Berlín um þessar mundir. Hann hefur unnið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins og er nú að fara að senda frá sér danslaga EP plötu undir eigin nafni. Tónlist 12.6.2024 20:00
„Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ „Við erum ótrúlega spennt að færa íslenskum hlustendum þessa nýju útvarpsstöð. Aukning á vinsældum country tónlistar bæði hér á landi um allan heim hefur verið eftirtektarverð og við teljum að Country Bylgjan muni mæta síaukinni eftirspurn hlustenda,“ segir Þórdís Valsdóttir, forstöðumaður útvarps hjá Sýn um splunkunýja útvarpsstöð sem fer í loftið á morgun og spilar eingöngu country tónlist. Tónlist 12.6.2024 14:01
Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Jólagestir Björgvins 2024 verða þeir síðustu þar sem Björgvin Halldórsson er gestgjafi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu en líkt og alþjóð veit hefur söngvarinn góðkunni verið andlit tónleikanna frá upphafi. Tónlist 12.6.2024 13:01
Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, prettyboijokkó, hélt útgáfutónleika í tilefni af plötunni PBT 2.0 við Reykjavíkurhöfn síðastliðið föstudagskvöld. Um er að ræða níu laga plötu sem kom út 24. maí síðastliðinn. Tónlist 10.6.2024 16:49
Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Rafpoppararnir í hljómsveitinni Númer 3 hafa snúið bökum saman með Króla en saman hafa þeir nú gefið út sumarsmellinn Bjór. Einn liðsmaður sveitarinnar segir Króla ekki hafa getað hugsað um annað en lagið eftir að hafa fengið að heyra það í fyrsta sinn. Tónlist 7.6.2024 15:30
Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Hressasta hljómsveit landsins, stöllurnar í Heimilistónum blása til sumarkjólaballs í Gamla bíó í kvöld. Þar verða ýmsir leynigestir en vinkonurnar nefna sérstaklega eitt leynivopn sem mikil leynd hvílir yfir. Þær segjast aldrei hafa verið betri, segjast alls ekki vera eins og þær léku sig í Iceguys þáttunum og heita því að House mix af Kúst og fæjó sé í bígerð. Tónlist 7.6.2024 07:01
Yo-Yo Ma kemur til landsins Yo-Yo Ma, einn frægasti tónlistarmaður heims, er væntanlegur til landsins. Hann mun leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu og á sérstökum dúótónleikum í Eldborg með breska píanistanum Kathryn Stott í október. Tónlist 5.6.2024 11:46
„Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ „Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum. Tónlist 5.6.2024 11:31
Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Gervispilanir á streymisveitum á borð við Spotify koma niður á tekjuöflun íslenskra tónlistarmanna. Vandamálið er áberandi á topplista Spotify á Íslandi, þar sem algjörlega óþekktir erlendir listamenn skjóta reglulega upp kollinum með grunsamlega mikið streymi. Tónlist 5.6.2024 07:00
Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Ofurtvíeykið Bríet og Birnir fögnuðu útgáfu plötunnar 1000 orð með trylltu teiti á skemmtistaðnum AUTO síðastliðið föstudagskvöld. Margt var um manninn og virtist stemningin sjóðheit. Tónlist 4.6.2024 20:01
Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Matthías Eyfjörð er maðurinn að baki einum óvæntasta smelli ársins, laginu Halla T House Mix því sem Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands steig trylltan dans við með stuðningsmönnum sínum þegar hún mætti í hús í kosningateiti sitt í Grósku um helgina. Lagið var spilað oft og mörgum sinnum í teiti Höllu af plötusnúðnum Danna Deluxe og hefur slegið í gegn. Líklegt má þykja að það verði spilað oft og mörgum sinnum næstu árin nú þegar ljóst er að Halla er næsti forseti. Tónlist 4.6.2024 09:01
Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Það gat verið erfitt að horfa til baka sem þolandi ofbeldis og nýta mína persónulega reynslu til að semja fyrir leikhúsið,“ segir tónlistarkonan Gugusar um lagið Merki sem hún var að senda frá sér. Lagið er úr sýningu Þjóðleikhússins Orð gegn orði sem hefur slegið í gegn. Tónlist 3.6.2024 14:26
„Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02
„Aldrei verið jafn stolt af mér“ „Ég trúi ekki að þetta ævilanga markmið sé loksins komið út,“ segir tónlistarkonan María Agnesardóttir eða MAIAA eins og hún kallar sig. MAIAA var að senda frá sér plötu og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lag sitt Lovesick. Tónlist 31.5.2024 11:32
Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði Páll Óskar og Skrattar leiða saman hesta sína og koma í fyrsta sinn fram saman á sviði, sem og í sitthvoru lagi, á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina, 2-4 ágúst. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. Tónlist 30.5.2024 14:28
„BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta „Margir eru búnir að spyrja hvort við séum hætt saman út af þessu lagi en svo er ekki,“ segir tónlistarkonan Sigga Ózk sem var að senda frá sér popplagið BOY BOY. Blaðamaður ræddi við Siggu Ózk sem frumsýnir sömuleiðis hér myndband við lagið. Tónlist 30.5.2024 08:00
Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Feðgarnir og nafnarnir Þórhallur Þórhallsson og Laddi gefa í dag út sitt fyrsta lag saman. Að sögn Þórhalls er lagið á léttum nótum um íslensku gaslýsinguna sem felst í voninni um almennilegt sumar. Sumarlagið í ár að sögn Ladda. Tónlist 30.5.2024 07:01
Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA Listahátíðin LungA verður haldin í síðasta sinn í sumar, 15. - 21. júlí, á Seyðisfirði en 24 ár eru liðin frá því að hún var fyrst haldin. Hátíðin hefur tilkynnt flesta tónlistarmenn sem fram koma í ár en þar á meðal verður palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad sem vakti mikla athygli í Söngvakeppninni í ár. Tónlist 28.5.2024 14:20
„Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Mínusmenn blása til útgáfuveislu næstkomandi fimmtudag í plötuversluninni Smekkleysu í tilefni af endurútgáfu platnanna Halldór Laxness og Jesus Christ. Sveitin mun troða upp ásamt amerísku rokksveitinni The Messthetics ásamt tveimur meðlimum goðsagnakenndu sveitarinnar Fugazi. Tónlist 28.5.2024 14:12
Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónlistarkonan María Agnesardóttir, jafnan þekkt sem MAIAA, hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi. Hún fagnaði nýrri EP plötu með pompi og prakt í skvísupartýi á Prikinu síðastliðinn föstudag þar sem þemað var stelpukraftur eða „girlpower“. Tónlist 27.5.2024 11:31
Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri. Tónlist 26.5.2024 10:07
Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er ávallt kallaður, gaf út nýtt lag á væntanlegri plötu, sem ber nafnið Í bríaríi. Hann lýsir laginu sem gleðilegu sumarrokki en það fjallar um sanna atburði sem gerðust á Norðurlandi. Tónlist 17.5.2024 10:00
Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn. Tónlist 16.5.2024 11:59
„Þægileg blanda af von og trega“ „Þetta er svona lag þar sem bassalínan rífur í hálsmálið á þér og spyr spurninga. Þægileg blanda af von og trega,“ segir tónlistarmaðurinn Jónfrí um nýtt lag sem hann og Ólafur Bjarki voru að senda frá sér. Lagið heitir Gott og vel og voru þeir sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem er frumsýnt í spilaranum hér fyrir neðan. Tónlist 14.5.2024 11:30