Tónlist Oasis aflýsir Kínaferð Rokkararnir í Oasis hafa aflýst fyrirhugaðri tónleikaferð til Kína í apríl sem hefði orðið sú fyrsta á ferli hljómsveitarinnar. Engar útskýringar hafa verið gefnar á þessari ákvörðun. Tónlist 3.3.2009 06:00 Killers kæra umboðsmann Rokkararnir í The Killers hafa höfðað mál gegn fyrrverandi umboðsmanni sínum, Braden Merrick. Krefjast þeir skaðabóta fyrir að hafa orðið af hundruðum milljóna króna vegna tónleika sem hefur verið frestað og annarra tekna af tónleikaferðum og varningi tengdum hljómsveitinni. Tónlist 25.2.2009 04:00 Besta hljómplata U2 í átján ár Tólfta hljóðversplata U2, No Line on the Horizon, fær fimm stjörnur hjá Dave Fricke, gagnrýnanda bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Hann segir plötuna þá bestu frá sveitinni í átján ár, eða síðan Achtung Baby kom út. Tónlist 24.2.2009 06:00 KK með endurvöktum Sextett Stórviðburður í íslensku poppi á sér stað í Fríkirkjunni á föstudagskvöldið þegar Sextett Ólafs Gauks kemur saman á ný. Tónleikarnir eru hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. „Við erum búin að vera í alltof langri pásu,“ segir Svanhildur Jakobsdóttir. Auk hennar eru Ólafur Gaukur og Karl Möller upprunalegir meðlimir í endurvakta bandinu, en lögin eru þau sömu, ógleymanlegir poppsmellir eins og „Segðu ekki nei“, „Þú ert minn súkkulaðiís“ og „Undarlegt með unga menn“, sem Rúnar Gunnarsson söng. Hann féll frá árið 1972 en KK kemur í staðinn. Tónlist 11.2.2009 05:30 Spilar fyrir milljónir Þjóðverja Tónlistarmaðurinn Pétur Ben kemur fram í vinsælasta tónlistarþætti þýska ríkissjónvarpsins, WDR, í lok næsta mánaðar. Milljónir manna horfa á þáttinn í hverri viku og því er um sérlega góða kynningu að ræða fyrir Pétur. Tónlist 11.2.2009 04:00 Metallica meðal stóru nafnanna á Sonisphere Bandaríska þungarokksveitin Metallica verður aðalnúmerið á nýrri tónlistarhátíð í Hertford-skíri á Englandi í sumar. Tónlist 9.2.2009 08:13 Rock spilar fyrir Kronik Um fimmtán ár eru liðin síðan hip hop-þátturinn Kronik fór fyrst í loftið og af því tilefni verður slegið til veislu á Tunglinu 28. febrúar. Taktsmiðurinn Pete Rock stígur þar á svið en hann á langan feril að baki í hip hop-bransanum. Rock kom fyrst fram á sjónar-sviðið ásamt félaga sínum CL Smooth og Tónlist 7.2.2009 06:00 Fjallabræður sigla til Færeyja Fjallabræður elska systur sínar og bræður í Færeyjum, eru stoltir af að verða fyrst íslenskra hljómsveita skráð á G-festival í ár og hafa gefið Færeyingum lag. Tónlist 7.2.2009 03:30 Papar neyddir til nafnabreytingar „Hljómsveitin Papar er ákveðið vörumerki sem maður á hlut í að hafa byggt upp. Einn daginn fór ég að fá símtöl og var spurður hvort ég væri að syngja hér og þar. Ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ segir Matthías Matthíasson, kenndur við Papa. Tónlist 6.2.2009 08:00 Popplandsliðið minnist Rúnars Synir Rúnars Júlíussonar skipuleggja nú stórtónleika í Laugardalshöll þar sem íslenska popplandsliðinu mun minnast fallins félaga. Lögin sem Rúnar söng verða flutt af stjörnum eins og Páli Óskari, KK og Björgvini Halldórssyni og hljómsveitum eins og Sálinni hans Jóns míns og Hjálmum. Tónlist 5.2.2009 08:00 Morrissey átti að herma eftir Sigur Rós Tónlistarmaðurinn Morrissey situr ásamt hljómsveit sinni nakinn fyrir innan í umslagi nýjustu smáskífu sinnar, I"m Throwing My Arms Around Paris. Tónlist 5.2.2009 07:00 Veðurguðirnir enda með plötu „Ég get nú ekki sagt að Idol hafi hjálpað mér mikið. Ég þurfti eiginlega að vinna mig út úr því. Menn komu til mín steinhissa eftir gigg og sögðu: Þetta var helvíti gott hjá þér, varst þú ekki í Idol? Eftir Idol gerðu eiginlega allir þær kröfur til manns að maður væri alveg vonlaus,“ segir Ingó í Veðurguðunum. Tónlist 5.2.2009 06:00 Minningartónleikar um Rúnar Minningartónleikar um Rúnar Júlíusson verða haldnir í Laugardalshöllinni 2. maí. Synir Rúnars, þeir Baldur og Júlíus, sjá um skipulagninguna í samvinnu við Bravo. Flestir forkólfar íslenskrar dægurlagamenningar hafa boðað komu sína. Tónlist 5.2.2009 06:00 Gaf út smáskífu í Danmörku Akureyrski tónlistarmaðurinn Rúnar Eff gaf nýverið út sína fyrstu smáskífu í Danmörku. Á henni er Aha-lagið Take on Me og You, sem bæði eru á fyrstu sólóplötu hans Farg. Tónlist 5.2.2009 06:00 Þrjár mínútur skipta öllu Það kemur í ljós á laugardaginn eftir rúmlega viku hvaða lag verður Eurovision-framlag Íslands í ár. Átta lög eru komin í úrslit eftir snarpa keppni. Hvaða lag er sigurstranglegast? Keppendur síðasta árs spáðu í spilin. „Þetta er alltaf eins, góð lög og svo nokkur örlítið slappari. Það er mikið af nýjum flytjendum núna, sem mér finnst gott. Tónlist 5.2.2009 06:00 Syngur eigið lag í Sesame Breski grínistinn Ricky Gervais ætlar að koma fram í bandaríska barnaþættinum Sesame Street. Í þættinum, sem verður tekinn upp í New York í næsta mánuði, mun Gervais syngja eigið lag með hjálp rauða skrímslisins Elmo. Tónlist 5.2.2009 06:00 Dönsku rokkararnir klikkuðu hvergi Dönsku rokkararnir í D-A-D voru trúir sjálfum sér og héldu kraftmikla og vel heppnaða tónleika á Nasa á laugardagskvöld síðasta. Einkum fór bassaleikarinn á kostum á sínum tveggja strengja bassa, ber að ofan uppi á hátalarastæðum og bassatrommu, í níðþröngum buxum með áletrunina „nasty“ á rassinum – sem hann var ekki að fela fyrir hljómleikagestum. Upp í hugann kom óhjákvæmilega „mockumentary“, myndin um Spinal Tap, og gestir voru vel með á nótunum. Tónlist 27.1.2009 04:30 Coldplay og Duffy líkleg til sigurs Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008. Tónlist 22.1.2009 04:15 Þriggja stjörnu diskórokk Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu. Tónlist 22.1.2009 03:30 D-A-D nýtir Íslandsferðina vel Danska rokksveitin D-A-D hyggst ekki sitja auðum höndum og eyða sínum tíma í einhverju vitleysu þegar þeir koma hingað til lands og spila á á Nasa. Þeir ætla sér að taka upp myndband við nýtt lag sveitarinnar og það staðfestir Finni Jóhannsson hjá True North fyrirtækinu sem mun aðstoða dönsku rokkarana við myndbandsgerðina. Tónlist 16.1.2009 04:30 Grapevine á Grand Fyrsta tölublað Grapevine með nýjum ritstjóra, Hauki S. Magnússyni, er komið á götuna. Til að fagna áfanganum verða haldnir ókeypis tónleikar á Grand Rokk í kvöld kl. 22. Hljómsveitirnar Agent Fresco, Reykjavík! og Sudden Weather Change koma fram, auk bandaríska tónskáldssins Nico Muhly, sem gaf út plötuna Mothertongue í fyrra og hefur dvalið hér langdvölum. Dj Sveppi P verður við fóninn svo ein mínúta fari ekki til spillis. Tónlist 16.1.2009 03:45 Undirbýr sólóplötu Corey Taylor, forsprakki grímurokkaranna í Slipknot, er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu. „Ég finn að ég þarf að gera þessa plötu," sagði Taylor í viðtali við Billboard. „Ég er þannig náungi að ef ég get ekki gert hana þá heldur það aftur af mér í öðru sem ég geri." Tónlist 15.1.2009 06:00 Kvennagrúppa spilar Kvennagrúppan Trio Nordica hefur um fimmtán ára skeið haldið saman og spilað margbreytilega tónlist fyrir landann og erlenda áheyrendur, tekið upp hljómplötur og gefið út. Á sunnudaginn koma þær fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju. Tónlist 15.1.2009 06:00 Bretar hrifnir af Hjaltalín Breskir gagnrýnendur eru ákaflega hrifnir af plötu íslensku hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Gagnrýnandi Guardian, Michael Hann, biður hlustendur um að standast þá freistingu að líkja hljómsveitinni við Sigur Rós, tónlist þeirra eigi fátt ef eitthvað sameiginlegt. Hann fer síðan fögrum orðum um plötuna og hrósar söngvaranum, Högna Egilssyni. „Hann er ekki fullkominn söngvari en það er einmitt þessi ófullkomleiki sem kemur í veg fyrir að platan lendi í sætabrauðsflokknum,“ skrifar Hann. Tónlist 13.1.2009 08:00 Tíunda sólóplatan Gítarleikari Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, gefur út sína tíundu sólóplötu 26. janúar. Platan nefnist The Empyrean og koma þar við sögu Flea, bassaleikari Red Hot, og Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths. Tónlist 13.1.2009 04:15 Nýtt lag frá Lifun Hljómsveitin Lifun vakti athygli síðasta sumar með laginu „Hörku djöfuls fanta ást“ eftir Björgvin Ívar Baldursson við texta Bjartmars Guðlaugssonar. Björgvin er sonarsonur Rúnars Júlíussonar. Tónlist 13.1.2009 03:30 Tónlistarárið mikla hafið Fjöldi hljómsveita verður á faraldsfæti árið 2009 og ætlar sér stóra hluti úti í hinum stóra heimi. Lay Low, Emilíana Torrini, Hjaltalín og Gus Gus verða öll áberandi. Tónlist 12.1.2009 06:00 Búlgaríuplata tafðist í kreppu Fyrsta plata hljómsveitar Hauks Gröndals, Narodna Muzika, tafðist í framleiðslu erlendis á síðasta ári og kom því ekki út fyrr en rétt fyrir jólin. „Svona þjóðlagamúsík er maður ekki að fara að selja eins og Bubbi Morthens hér á landi. Þeir eru ekki að setja þig í rosalegan forgang,“ segir hann og játar að vera pínulítið svekktur. Tónlist 12.1.2009 03:00 Plata með Timbaland Chris Cornell, fyrrum söngvari Soundgarden og Audioslave, hefur tekið upp nýja sólóplötu með hjálp upptökustjórans Timbaland. Platan nefnist Scream og kemur út 9. mars. Tónlist 11.1.2009 06:00 Fjórir trommarar á plötu Ske Fjórir trommarar spila inn á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Ske sem er væntanleg á næstu vikum. Aðaltrommari Ske og sá sem kemur mest við sögu á plötunni er Englendingurinn Paul Maguire sem hefur spilað með hljómsveitinni The La"s. Hinir þrír eru Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson og Kjartan Gunnarsson. Tónlist 11.1.2009 06:00 « ‹ 175 176 177 178 179 180 181 182 183 … 226 ›
Oasis aflýsir Kínaferð Rokkararnir í Oasis hafa aflýst fyrirhugaðri tónleikaferð til Kína í apríl sem hefði orðið sú fyrsta á ferli hljómsveitarinnar. Engar útskýringar hafa verið gefnar á þessari ákvörðun. Tónlist 3.3.2009 06:00
Killers kæra umboðsmann Rokkararnir í The Killers hafa höfðað mál gegn fyrrverandi umboðsmanni sínum, Braden Merrick. Krefjast þeir skaðabóta fyrir að hafa orðið af hundruðum milljóna króna vegna tónleika sem hefur verið frestað og annarra tekna af tónleikaferðum og varningi tengdum hljómsveitinni. Tónlist 25.2.2009 04:00
Besta hljómplata U2 í átján ár Tólfta hljóðversplata U2, No Line on the Horizon, fær fimm stjörnur hjá Dave Fricke, gagnrýnanda bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Hann segir plötuna þá bestu frá sveitinni í átján ár, eða síðan Achtung Baby kom út. Tónlist 24.2.2009 06:00
KK með endurvöktum Sextett Stórviðburður í íslensku poppi á sér stað í Fríkirkjunni á föstudagskvöldið þegar Sextett Ólafs Gauks kemur saman á ný. Tónleikarnir eru hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. „Við erum búin að vera í alltof langri pásu,“ segir Svanhildur Jakobsdóttir. Auk hennar eru Ólafur Gaukur og Karl Möller upprunalegir meðlimir í endurvakta bandinu, en lögin eru þau sömu, ógleymanlegir poppsmellir eins og „Segðu ekki nei“, „Þú ert minn súkkulaðiís“ og „Undarlegt með unga menn“, sem Rúnar Gunnarsson söng. Hann féll frá árið 1972 en KK kemur í staðinn. Tónlist 11.2.2009 05:30
Spilar fyrir milljónir Þjóðverja Tónlistarmaðurinn Pétur Ben kemur fram í vinsælasta tónlistarþætti þýska ríkissjónvarpsins, WDR, í lok næsta mánaðar. Milljónir manna horfa á þáttinn í hverri viku og því er um sérlega góða kynningu að ræða fyrir Pétur. Tónlist 11.2.2009 04:00
Metallica meðal stóru nafnanna á Sonisphere Bandaríska þungarokksveitin Metallica verður aðalnúmerið á nýrri tónlistarhátíð í Hertford-skíri á Englandi í sumar. Tónlist 9.2.2009 08:13
Rock spilar fyrir Kronik Um fimmtán ár eru liðin síðan hip hop-þátturinn Kronik fór fyrst í loftið og af því tilefni verður slegið til veislu á Tunglinu 28. febrúar. Taktsmiðurinn Pete Rock stígur þar á svið en hann á langan feril að baki í hip hop-bransanum. Rock kom fyrst fram á sjónar-sviðið ásamt félaga sínum CL Smooth og Tónlist 7.2.2009 06:00
Fjallabræður sigla til Færeyja Fjallabræður elska systur sínar og bræður í Færeyjum, eru stoltir af að verða fyrst íslenskra hljómsveita skráð á G-festival í ár og hafa gefið Færeyingum lag. Tónlist 7.2.2009 03:30
Papar neyddir til nafnabreytingar „Hljómsveitin Papar er ákveðið vörumerki sem maður á hlut í að hafa byggt upp. Einn daginn fór ég að fá símtöl og var spurður hvort ég væri að syngja hér og þar. Ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ segir Matthías Matthíasson, kenndur við Papa. Tónlist 6.2.2009 08:00
Popplandsliðið minnist Rúnars Synir Rúnars Júlíussonar skipuleggja nú stórtónleika í Laugardalshöll þar sem íslenska popplandsliðinu mun minnast fallins félaga. Lögin sem Rúnar söng verða flutt af stjörnum eins og Páli Óskari, KK og Björgvini Halldórssyni og hljómsveitum eins og Sálinni hans Jóns míns og Hjálmum. Tónlist 5.2.2009 08:00
Morrissey átti að herma eftir Sigur Rós Tónlistarmaðurinn Morrissey situr ásamt hljómsveit sinni nakinn fyrir innan í umslagi nýjustu smáskífu sinnar, I"m Throwing My Arms Around Paris. Tónlist 5.2.2009 07:00
Veðurguðirnir enda með plötu „Ég get nú ekki sagt að Idol hafi hjálpað mér mikið. Ég þurfti eiginlega að vinna mig út úr því. Menn komu til mín steinhissa eftir gigg og sögðu: Þetta var helvíti gott hjá þér, varst þú ekki í Idol? Eftir Idol gerðu eiginlega allir þær kröfur til manns að maður væri alveg vonlaus,“ segir Ingó í Veðurguðunum. Tónlist 5.2.2009 06:00
Minningartónleikar um Rúnar Minningartónleikar um Rúnar Júlíusson verða haldnir í Laugardalshöllinni 2. maí. Synir Rúnars, þeir Baldur og Júlíus, sjá um skipulagninguna í samvinnu við Bravo. Flestir forkólfar íslenskrar dægurlagamenningar hafa boðað komu sína. Tónlist 5.2.2009 06:00
Gaf út smáskífu í Danmörku Akureyrski tónlistarmaðurinn Rúnar Eff gaf nýverið út sína fyrstu smáskífu í Danmörku. Á henni er Aha-lagið Take on Me og You, sem bæði eru á fyrstu sólóplötu hans Farg. Tónlist 5.2.2009 06:00
Þrjár mínútur skipta öllu Það kemur í ljós á laugardaginn eftir rúmlega viku hvaða lag verður Eurovision-framlag Íslands í ár. Átta lög eru komin í úrslit eftir snarpa keppni. Hvaða lag er sigurstranglegast? Keppendur síðasta árs spáðu í spilin. „Þetta er alltaf eins, góð lög og svo nokkur örlítið slappari. Það er mikið af nýjum flytjendum núna, sem mér finnst gott. Tónlist 5.2.2009 06:00
Syngur eigið lag í Sesame Breski grínistinn Ricky Gervais ætlar að koma fram í bandaríska barnaþættinum Sesame Street. Í þættinum, sem verður tekinn upp í New York í næsta mánuði, mun Gervais syngja eigið lag með hjálp rauða skrímslisins Elmo. Tónlist 5.2.2009 06:00
Dönsku rokkararnir klikkuðu hvergi Dönsku rokkararnir í D-A-D voru trúir sjálfum sér og héldu kraftmikla og vel heppnaða tónleika á Nasa á laugardagskvöld síðasta. Einkum fór bassaleikarinn á kostum á sínum tveggja strengja bassa, ber að ofan uppi á hátalarastæðum og bassatrommu, í níðþröngum buxum með áletrunina „nasty“ á rassinum – sem hann var ekki að fela fyrir hljómleikagestum. Upp í hugann kom óhjákvæmilega „mockumentary“, myndin um Spinal Tap, og gestir voru vel með á nótunum. Tónlist 27.1.2009 04:30
Coldplay og Duffy líkleg til sigurs Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008. Tónlist 22.1.2009 04:15
Þriggja stjörnu diskórokk Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu. Tónlist 22.1.2009 03:30
D-A-D nýtir Íslandsferðina vel Danska rokksveitin D-A-D hyggst ekki sitja auðum höndum og eyða sínum tíma í einhverju vitleysu þegar þeir koma hingað til lands og spila á á Nasa. Þeir ætla sér að taka upp myndband við nýtt lag sveitarinnar og það staðfestir Finni Jóhannsson hjá True North fyrirtækinu sem mun aðstoða dönsku rokkarana við myndbandsgerðina. Tónlist 16.1.2009 04:30
Grapevine á Grand Fyrsta tölublað Grapevine með nýjum ritstjóra, Hauki S. Magnússyni, er komið á götuna. Til að fagna áfanganum verða haldnir ókeypis tónleikar á Grand Rokk í kvöld kl. 22. Hljómsveitirnar Agent Fresco, Reykjavík! og Sudden Weather Change koma fram, auk bandaríska tónskáldssins Nico Muhly, sem gaf út plötuna Mothertongue í fyrra og hefur dvalið hér langdvölum. Dj Sveppi P verður við fóninn svo ein mínúta fari ekki til spillis. Tónlist 16.1.2009 03:45
Undirbýr sólóplötu Corey Taylor, forsprakki grímurokkaranna í Slipknot, er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu. „Ég finn að ég þarf að gera þessa plötu," sagði Taylor í viðtali við Billboard. „Ég er þannig náungi að ef ég get ekki gert hana þá heldur það aftur af mér í öðru sem ég geri." Tónlist 15.1.2009 06:00
Kvennagrúppa spilar Kvennagrúppan Trio Nordica hefur um fimmtán ára skeið haldið saman og spilað margbreytilega tónlist fyrir landann og erlenda áheyrendur, tekið upp hljómplötur og gefið út. Á sunnudaginn koma þær fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju. Tónlist 15.1.2009 06:00
Bretar hrifnir af Hjaltalín Breskir gagnrýnendur eru ákaflega hrifnir af plötu íslensku hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Gagnrýnandi Guardian, Michael Hann, biður hlustendur um að standast þá freistingu að líkja hljómsveitinni við Sigur Rós, tónlist þeirra eigi fátt ef eitthvað sameiginlegt. Hann fer síðan fögrum orðum um plötuna og hrósar söngvaranum, Högna Egilssyni. „Hann er ekki fullkominn söngvari en það er einmitt þessi ófullkomleiki sem kemur í veg fyrir að platan lendi í sætabrauðsflokknum,“ skrifar Hann. Tónlist 13.1.2009 08:00
Tíunda sólóplatan Gítarleikari Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, gefur út sína tíundu sólóplötu 26. janúar. Platan nefnist The Empyrean og koma þar við sögu Flea, bassaleikari Red Hot, og Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths. Tónlist 13.1.2009 04:15
Nýtt lag frá Lifun Hljómsveitin Lifun vakti athygli síðasta sumar með laginu „Hörku djöfuls fanta ást“ eftir Björgvin Ívar Baldursson við texta Bjartmars Guðlaugssonar. Björgvin er sonarsonur Rúnars Júlíussonar. Tónlist 13.1.2009 03:30
Tónlistarárið mikla hafið Fjöldi hljómsveita verður á faraldsfæti árið 2009 og ætlar sér stóra hluti úti í hinum stóra heimi. Lay Low, Emilíana Torrini, Hjaltalín og Gus Gus verða öll áberandi. Tónlist 12.1.2009 06:00
Búlgaríuplata tafðist í kreppu Fyrsta plata hljómsveitar Hauks Gröndals, Narodna Muzika, tafðist í framleiðslu erlendis á síðasta ári og kom því ekki út fyrr en rétt fyrir jólin. „Svona þjóðlagamúsík er maður ekki að fara að selja eins og Bubbi Morthens hér á landi. Þeir eru ekki að setja þig í rosalegan forgang,“ segir hann og játar að vera pínulítið svekktur. Tónlist 12.1.2009 03:00
Plata með Timbaland Chris Cornell, fyrrum söngvari Soundgarden og Audioslave, hefur tekið upp nýja sólóplötu með hjálp upptökustjórans Timbaland. Platan nefnist Scream og kemur út 9. mars. Tónlist 11.1.2009 06:00
Fjórir trommarar á plötu Ske Fjórir trommarar spila inn á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Ske sem er væntanleg á næstu vikum. Aðaltrommari Ske og sá sem kemur mest við sögu á plötunni er Englendingurinn Paul Maguire sem hefur spilað með hljómsveitinni The La"s. Hinir þrír eru Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson og Kjartan Gunnarsson. Tónlist 11.1.2009 06:00