Körfubolti Áttundi í röð hjá Boston Boston Celtics halda fluginu áfram í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann sinn áttunda sigur í röð í gær með 105-95 sigri gegn Atlanta Hawks. Körfubolti 14.2.2022 07:31 Halldór eftir tap fyrir Njarðvík: Við vorum hér í kvöld með 7-8 einstaklinga á meðan þær voru með eitt grjóthart lið Halldór Karl Þórsson, þjálfari Fjölnis, var ómyrkur í máli eftir stórt tap hans stúlkna gegn Njarðvík á útivelli í kvöld. Hann vildi meina að í kvöld hefðu mætt einstaklingar til leiks hjá Fjölni, sem kann ekki góðri lukki að stýra þegar andstæðingarnir eru „grjóthart lið“ eins og hann komst sjálfur að orði: Körfubolti 13.2.2022 21:32 Körfuboltakvöld: Bestu tilþrif umferðarinnar Að venju var farið yfir bestu tilþrif umferðarinnar í Subway Körfuboltakvöldi. Troðslur, fallegar sendingar og skemmtileg skot fylla tilþrifin að þessu sinni. Þau má sjá í myndbandinu hér að neðan. Körfubolti 13.2.2022 21:27 Valencia tapaði fyrir Breogan Spænska úrvalsdeildarliðið Valencia Basket, sem Martin Hermannsson leikur með, þurfti að sætta sig við tap í deildinni í dag þegar að liðið lá á útivelli gegn Breogan. Lokatölur í leiknum urðu 99-82. Körfubolti 13.2.2022 18:26 Umfjöllun: Njarðvík - Fjölnir 82-55 | Njarðvík valtaði yfir Fjölni í Ljónagryfjunni Það var alvöru toppslagur í Njarðvík í kvöld þar sem heimakonur tóku á móti Fjölni. Fyrir leikinn voru liðin saman í 2. og 3. sæti bæði með 20 stig. Körfubolti 13.2.2022 18:00 Iva Georgieva sökuð um fjársvik | Leikur ekki aftur fyrir Breiðablik Búlgarinn Iva Georgieva hefur yfirgefið Breiðablik fyrir fullt og allt. Samningur Georgieva við félagið verður ekki framlengdur vegna mögulegra lögbrota. Körfubolti 13.2.2022 12:35 LeBron James bætti samanlagt stigamet Kareem Abdul-Jabbar í nótt Golden State Warriors vann tveggja stiga sigur á heimavelli gegn LA Lakers, 117-115. Þrátt fyrir að klikka á tveimur vítum til að jafna leikinn þegar 2,4 sekúndur voru eftir þá fær LeBron James allar fyrirsagnirnar eftir leikinn þar sem hann bætti samanlagt stigamet Kareem Abdul-Jabbar í leiknum. Körfubolti 13.2.2022 10:08 „Ragnar tók bara skrefið í það að verða frábær varnarmaður“ „Við ætlum að kíkja á Ragnar Örn Bragason, Breiðhyltinginn knáa sem er búinn að búa sér til heimili í Þorlákshöfn,“ sagði Sigurður Orri Kristjánsson í seinasta þætti af Subway Körfuboltakvöldi, en Ragnar átti stórgóðan leik í öruggum sigri Þórsara gegn Keflvíkingum í gærkvöldi. Körfubolti 12.2.2022 23:31 Tryggvi skoraði 13 í tapi Tryggvi Sbær Hlinason og félagar hans í Zaragoza máttu þola 21 stigs tap er liðið heimsótti Manresa í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 94-73, en Tryggvi skoraði 13 stig fyrir gestina. Körfubolti 12.2.2022 21:26 „Held að mörg lið öfundi KR af þessum strákum“ KR vann góðan sigur á Vestra í Subway-deild karla á dögunum. Ungir leikmenn liðsins stálu senunni og voru til tals í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi. Körfubolti 12.2.2022 12:31 LaVert sökkti sínum gömlu félögum | Stórleikur Jokic dugði ekki til Alls fóru sjö leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Caris LaVert sökkti sínum gömlu félögum í Indiana Pacers og Nikola Jokić átti enn einn stórleikinn en það dugði ekki til. Körfubolti 12.2.2022 10:31 Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 114-89 | Íslandsmeistararnir unnu stórsigur Þór Þorlákshöfn lyfti sér á topp Subway-deildar karla með öruggum 25 stiga sigri gegn Keflvíkingum í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Lokatölur urðu 114-89, en sigur heimamanna var nánast orðinn formsatriði í hálfleik. Körfubolti 11.2.2022 22:35 Hjalti: „Við vorum bara hálf gjaldþrota“ Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflvíkinga, var dapur í bragði eftir stórt tap sinna manna gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 114-89 og Hjalti talaði um hálfgert gjaldþrot hjá sínu liði. Körfubolti 11.2.2022 22:15 Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Grindavík 104-92 | Gott gengi Blika heldur áfram Breiðablik er áfram á sigurbraut í Subway-deild karla í körfubolta. Að þessu sinni var það Grindavík sem lá í valnum, lokatölur í Smáranum 104-92. Blikar eru svo sannarlega komnir í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 11.2.2022 21:32 „Maður getur alltaf gefið á Everage þegar þig vantar stig“ Hilmar Pétursson, leikmaður Breiðabliks, átti afar góðan leik í 12 stiga sigri Breiðabliks á Grindavík í kvöld, 104-92. Hilmar gerði 26 stig ásamt því að gefa 5 stoðsendingar og taka 3 fráköst. Alls 31 framlagspunktar hjá Hilmari en hann þakkar varnarleik og skotnýtingu, sérstaklega Everage Lee Richardson, fyrir sigurinn í kvöld. Körfubolti 11.2.2022 21:00 Doncic fór hamförum og hjó nærri meti Nowitzkis Luka Doncic héldu engin bönd þegar Dallas Mavericks sigraði Los Angeles Clippers, 112-105, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 11.2.2022 08:31 Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 74-78 | Endurkomusigur hjá Stjörnunni gegn Valsmönnum Það var hörkuleikur í Origo-höllinni í kvöld þar sem mættust stálin stinn, Valur og Stjarnan. Leikurinn var jafn framan af en eftir sterkan 3. leikhluta heimamanna þar var allt útlit fyrir Valssigur. Stjörnumenn voru þó ekki af baki dottnir, skelltu í lás í fjórða leikhluta og unnu góðan sigur, 74-78. Körfubolti 10.2.2022 23:14 Finnur Freyr: Þegar allt kemur til alls þá voru það við sem koðnuðum niður Finnur Freyr þjálfari Vals var auðsýnilega ósáttur með niðurstöðu leiksins og frammistöðu síns liðs, en hans menn hreinlega koðnuðu niður undir lokin eftir að hafa komist tíu stigum yfir. Valsmenn skoruðu aðeins sjö stig síðustu tíu mínúturnar eftir góða fyrstu þrjá leikhluta þar sem allt leit út fyrir að heimamenn myndu sigla sigri í höfn. Körfubolti 10.2.2022 22:49 Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Njarðvík 84-96 | Fjórði sigurleikur Njarðvíkur í röð Njarðvíkingar unnu sinn fjórða leik í röð er liðið vann góðan tólf stiga útisigur gegn Tindastól í kvöld, 84-95. Tapið var jafnframt fjórða tap Tindastóls í röð. Körfubolti 10.2.2022 22:23 Logi: „Ég á nokkrar fjalir í þessu húsi“ Logi Gunnarsson, leikmaður Njarðvíkur, var ánægður með sigur sinna manna í kvöld og sagði að sínir með hefðu staðist prófið á erfiðum útivelli. Körfubolti 10.2.2022 21:17 Leik lokið: KR - Vestri 106-79 | KR-ingar tóku mikilvæg stig í baráttunni um sæti í úrslitakeppni KR-ingar unnu öruggan 27 stiga sigur er liðið tók á móti nýliðum Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 106-79, en með sigrinum eru KR-ingar nánast endanlega búnir að slíta sig frá fallbaráttunni. Körfubolti 10.2.2022 20:51 ÍR-ingar ekki í vandræðum með botnliðið ÍR vann öruggan 37 stiga sigur er liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 108-71. Körfubolti 10.2.2022 20:37 Harden fer til Philadelphia í skiptum fyrir Simmons Félagsskiptaglugginn í NBA-deildinni lokaði í kvöld, en stærstu skiptin áttu sér stað aðeins nokkrum klukkustundum áður en glugginn lokaði. Körfubolti 10.2.2022 20:16 Fyrsti heimaleikur Stólanna í 56 daga og sá fyrsti eftir 43 stiga tap Tindastóll tekur á móti Njarðvík í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld en það er óhætt að segja að þetta sér langþráður heimaleikur fyrir Sauðkrækinga. Körfubolti 10.2.2022 16:00 Vandræðalegt tap hjá Lakers Los Angeles Lakers mátti þola neyðarlegt tap fyrir Portland Trail Blazers, 107-105, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 10.2.2022 08:01 Umfjöllun og viðtöl: Valur - Keflavík 84-73 | Öruggur Valssigur í Origo-höllinni í kvöld Það var töluvert undir í Origo-höllinni í kvöld þar sem Valskonur tóku á móti Keflavík. Valur í hörkubaráttu um toppsætið í deildinni og Keflavík enn með annað augað á síðasta sætinu í úrslitakeppninni. Valskonur höfðu að lokum sanngjarnan og öruggan sigur 84-73 en sigurinn var í raun aldrei í hættu. Körfubolti 9.2.2022 23:24 „Lögðum mikið upp úr því að koma tilbúnar til leiks“ Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Vals, var að vonum sáttur með sigur liðsins gegn Keflavík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 9.2.2022 22:48 Martin og félagar halda í við toppliðið eftir endurkomusigur Martin Hermannsson og félagar hans í Valenca unnu mikilvægan sex stiga sigur er liðið tók á móti Virtus Bologna í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 83-77, eftir að Martin og félagar voru ellefu stigum undir fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 9.2.2022 22:37 Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Njarðvík 76-70 | Botnliðið hafði betur gegn toppliðinu Breiðablik fór með sigur af hólmi gegn toppliði Njarðvíkur í Subway-deild kvenna í dag en lokatölur voru 76-70. Körfubolti 9.2.2022 22:22 Sara Rún stigahæst í naumum sigri Sara Rún Hinriksdóttir, landsliðskona í körfubolta, var stigahæsti leikmaður vallarins er Phoenix Constanta vann nauman útisigur gegn Targu Mures í rúmensku deildinni í körfubolta í dag. Lokatölur urðu 56-49, en Sara skoraði 16 stig. Körfubolti 9.2.2022 17:48 « ‹ 146 147 148 149 150 151 152 153 154 … 334 ›
Áttundi í röð hjá Boston Boston Celtics halda fluginu áfram í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann sinn áttunda sigur í röð í gær með 105-95 sigri gegn Atlanta Hawks. Körfubolti 14.2.2022 07:31
Halldór eftir tap fyrir Njarðvík: Við vorum hér í kvöld með 7-8 einstaklinga á meðan þær voru með eitt grjóthart lið Halldór Karl Þórsson, þjálfari Fjölnis, var ómyrkur í máli eftir stórt tap hans stúlkna gegn Njarðvík á útivelli í kvöld. Hann vildi meina að í kvöld hefðu mætt einstaklingar til leiks hjá Fjölni, sem kann ekki góðri lukki að stýra þegar andstæðingarnir eru „grjóthart lið“ eins og hann komst sjálfur að orði: Körfubolti 13.2.2022 21:32
Körfuboltakvöld: Bestu tilþrif umferðarinnar Að venju var farið yfir bestu tilþrif umferðarinnar í Subway Körfuboltakvöldi. Troðslur, fallegar sendingar og skemmtileg skot fylla tilþrifin að þessu sinni. Þau má sjá í myndbandinu hér að neðan. Körfubolti 13.2.2022 21:27
Valencia tapaði fyrir Breogan Spænska úrvalsdeildarliðið Valencia Basket, sem Martin Hermannsson leikur með, þurfti að sætta sig við tap í deildinni í dag þegar að liðið lá á útivelli gegn Breogan. Lokatölur í leiknum urðu 99-82. Körfubolti 13.2.2022 18:26
Umfjöllun: Njarðvík - Fjölnir 82-55 | Njarðvík valtaði yfir Fjölni í Ljónagryfjunni Það var alvöru toppslagur í Njarðvík í kvöld þar sem heimakonur tóku á móti Fjölni. Fyrir leikinn voru liðin saman í 2. og 3. sæti bæði með 20 stig. Körfubolti 13.2.2022 18:00
Iva Georgieva sökuð um fjársvik | Leikur ekki aftur fyrir Breiðablik Búlgarinn Iva Georgieva hefur yfirgefið Breiðablik fyrir fullt og allt. Samningur Georgieva við félagið verður ekki framlengdur vegna mögulegra lögbrota. Körfubolti 13.2.2022 12:35
LeBron James bætti samanlagt stigamet Kareem Abdul-Jabbar í nótt Golden State Warriors vann tveggja stiga sigur á heimavelli gegn LA Lakers, 117-115. Þrátt fyrir að klikka á tveimur vítum til að jafna leikinn þegar 2,4 sekúndur voru eftir þá fær LeBron James allar fyrirsagnirnar eftir leikinn þar sem hann bætti samanlagt stigamet Kareem Abdul-Jabbar í leiknum. Körfubolti 13.2.2022 10:08
„Ragnar tók bara skrefið í það að verða frábær varnarmaður“ „Við ætlum að kíkja á Ragnar Örn Bragason, Breiðhyltinginn knáa sem er búinn að búa sér til heimili í Þorlákshöfn,“ sagði Sigurður Orri Kristjánsson í seinasta þætti af Subway Körfuboltakvöldi, en Ragnar átti stórgóðan leik í öruggum sigri Þórsara gegn Keflvíkingum í gærkvöldi. Körfubolti 12.2.2022 23:31
Tryggvi skoraði 13 í tapi Tryggvi Sbær Hlinason og félagar hans í Zaragoza máttu þola 21 stigs tap er liðið heimsótti Manresa í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 94-73, en Tryggvi skoraði 13 stig fyrir gestina. Körfubolti 12.2.2022 21:26
„Held að mörg lið öfundi KR af þessum strákum“ KR vann góðan sigur á Vestra í Subway-deild karla á dögunum. Ungir leikmenn liðsins stálu senunni og voru til tals í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi. Körfubolti 12.2.2022 12:31
LaVert sökkti sínum gömlu félögum | Stórleikur Jokic dugði ekki til Alls fóru sjö leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Caris LaVert sökkti sínum gömlu félögum í Indiana Pacers og Nikola Jokić átti enn einn stórleikinn en það dugði ekki til. Körfubolti 12.2.2022 10:31
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 114-89 | Íslandsmeistararnir unnu stórsigur Þór Þorlákshöfn lyfti sér á topp Subway-deildar karla með öruggum 25 stiga sigri gegn Keflvíkingum í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Lokatölur urðu 114-89, en sigur heimamanna var nánast orðinn formsatriði í hálfleik. Körfubolti 11.2.2022 22:35
Hjalti: „Við vorum bara hálf gjaldþrota“ Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflvíkinga, var dapur í bragði eftir stórt tap sinna manna gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 114-89 og Hjalti talaði um hálfgert gjaldþrot hjá sínu liði. Körfubolti 11.2.2022 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Grindavík 104-92 | Gott gengi Blika heldur áfram Breiðablik er áfram á sigurbraut í Subway-deild karla í körfubolta. Að þessu sinni var það Grindavík sem lá í valnum, lokatölur í Smáranum 104-92. Blikar eru svo sannarlega komnir í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 11.2.2022 21:32
„Maður getur alltaf gefið á Everage þegar þig vantar stig“ Hilmar Pétursson, leikmaður Breiðabliks, átti afar góðan leik í 12 stiga sigri Breiðabliks á Grindavík í kvöld, 104-92. Hilmar gerði 26 stig ásamt því að gefa 5 stoðsendingar og taka 3 fráköst. Alls 31 framlagspunktar hjá Hilmari en hann þakkar varnarleik og skotnýtingu, sérstaklega Everage Lee Richardson, fyrir sigurinn í kvöld. Körfubolti 11.2.2022 21:00
Doncic fór hamförum og hjó nærri meti Nowitzkis Luka Doncic héldu engin bönd þegar Dallas Mavericks sigraði Los Angeles Clippers, 112-105, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 11.2.2022 08:31
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 74-78 | Endurkomusigur hjá Stjörnunni gegn Valsmönnum Það var hörkuleikur í Origo-höllinni í kvöld þar sem mættust stálin stinn, Valur og Stjarnan. Leikurinn var jafn framan af en eftir sterkan 3. leikhluta heimamanna þar var allt útlit fyrir Valssigur. Stjörnumenn voru þó ekki af baki dottnir, skelltu í lás í fjórða leikhluta og unnu góðan sigur, 74-78. Körfubolti 10.2.2022 23:14
Finnur Freyr: Þegar allt kemur til alls þá voru það við sem koðnuðum niður Finnur Freyr þjálfari Vals var auðsýnilega ósáttur með niðurstöðu leiksins og frammistöðu síns liðs, en hans menn hreinlega koðnuðu niður undir lokin eftir að hafa komist tíu stigum yfir. Valsmenn skoruðu aðeins sjö stig síðustu tíu mínúturnar eftir góða fyrstu þrjá leikhluta þar sem allt leit út fyrir að heimamenn myndu sigla sigri í höfn. Körfubolti 10.2.2022 22:49
Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Njarðvík 84-96 | Fjórði sigurleikur Njarðvíkur í röð Njarðvíkingar unnu sinn fjórða leik í röð er liðið vann góðan tólf stiga útisigur gegn Tindastól í kvöld, 84-95. Tapið var jafnframt fjórða tap Tindastóls í röð. Körfubolti 10.2.2022 22:23
Logi: „Ég á nokkrar fjalir í þessu húsi“ Logi Gunnarsson, leikmaður Njarðvíkur, var ánægður með sigur sinna manna í kvöld og sagði að sínir með hefðu staðist prófið á erfiðum útivelli. Körfubolti 10.2.2022 21:17
Leik lokið: KR - Vestri 106-79 | KR-ingar tóku mikilvæg stig í baráttunni um sæti í úrslitakeppni KR-ingar unnu öruggan 27 stiga sigur er liðið tók á móti nýliðum Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 106-79, en með sigrinum eru KR-ingar nánast endanlega búnir að slíta sig frá fallbaráttunni. Körfubolti 10.2.2022 20:51
ÍR-ingar ekki í vandræðum með botnliðið ÍR vann öruggan 37 stiga sigur er liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 108-71. Körfubolti 10.2.2022 20:37
Harden fer til Philadelphia í skiptum fyrir Simmons Félagsskiptaglugginn í NBA-deildinni lokaði í kvöld, en stærstu skiptin áttu sér stað aðeins nokkrum klukkustundum áður en glugginn lokaði. Körfubolti 10.2.2022 20:16
Fyrsti heimaleikur Stólanna í 56 daga og sá fyrsti eftir 43 stiga tap Tindastóll tekur á móti Njarðvík í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld en það er óhætt að segja að þetta sér langþráður heimaleikur fyrir Sauðkrækinga. Körfubolti 10.2.2022 16:00
Vandræðalegt tap hjá Lakers Los Angeles Lakers mátti þola neyðarlegt tap fyrir Portland Trail Blazers, 107-105, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 10.2.2022 08:01
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Keflavík 84-73 | Öruggur Valssigur í Origo-höllinni í kvöld Það var töluvert undir í Origo-höllinni í kvöld þar sem Valskonur tóku á móti Keflavík. Valur í hörkubaráttu um toppsætið í deildinni og Keflavík enn með annað augað á síðasta sætinu í úrslitakeppninni. Valskonur höfðu að lokum sanngjarnan og öruggan sigur 84-73 en sigurinn var í raun aldrei í hættu. Körfubolti 9.2.2022 23:24
„Lögðum mikið upp úr því að koma tilbúnar til leiks“ Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari Vals, var að vonum sáttur með sigur liðsins gegn Keflavík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 9.2.2022 22:48
Martin og félagar halda í við toppliðið eftir endurkomusigur Martin Hermannsson og félagar hans í Valenca unnu mikilvægan sex stiga sigur er liðið tók á móti Virtus Bologna í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 83-77, eftir að Martin og félagar voru ellefu stigum undir fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 9.2.2022 22:37
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Njarðvík 76-70 | Botnliðið hafði betur gegn toppliðinu Breiðablik fór með sigur af hólmi gegn toppliði Njarðvíkur í Subway-deild kvenna í dag en lokatölur voru 76-70. Körfubolti 9.2.2022 22:22
Sara Rún stigahæst í naumum sigri Sara Rún Hinriksdóttir, landsliðskona í körfubolta, var stigahæsti leikmaður vallarins er Phoenix Constanta vann nauman útisigur gegn Targu Mures í rúmensku deildinni í körfubolta í dag. Lokatölur urðu 56-49, en Sara skoraði 16 stig. Körfubolti 9.2.2022 17:48