Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Landsréttur staðfesti dóm yfir karlmanni í dag sem varðar fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og peningaþvætti. Móðir hans hafði verið sakfelld í héraði í málinu en lést á síðasta ári. Landsréttur vísaði sakargiftum hennar frá dómi. Innlent 17.5.2024 16:22 Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Árni Þór Sigurðsson fyrrverandi sendiherra, Guðný Sverrisdóttir fyrrverandi sveitarstjóri og Gunnar Einarsson fyrrverandi bæjarstjóri munu taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór verður formaður nefndarinnar. Innlent 17.5.2024 16:19 Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu „Þetta er bara mitt „identity“. Þetta er minn karakter. Ég hef verið kallaður þetta í sautján ár,“ segir Rúnar Hroði Geirmundsson um ákvörðun Mannanafnanefndar að úrskurða að leyfa ekki fólki að bera nafnið Hroði. Innlent 17.5.2024 15:38 Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Ríkisstjórnin leggur til stuðningslán til grindvískra heimila og fyrirækja í Grindavík að viðbættum viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta. Innlent 17.5.2024 15:29 Skipið leggur úr höfn Fraktskipið Longdawn sem lenti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu úti fyrir Garðskaga í fyrrinótt hefur lagt úr höfn í Vestmannaeyjum á leið sinni til Rotterdam. Farbanns er krafist yfir skipstjóra skipsins og stýrimanni. Innlent 17.5.2024 15:23 „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Karl Erlendsson, eldri borgari, telur Sigurð Ágúst Sigurðsson formann FEB skjóta vel yfir markið þegar hann heldur því fram að eldri borgarar á landsbyggðinni vilji leggja undir sig Landsamband eldri borgara. Innlent 17.5.2024 15:05 Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá „Þetta er fyrsta steypan hér við Fjarðarhornsá í Kollafirði. Brúin verður vonandi komin í gagnið 1. desember,“ segir Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar við brúna. Innlent 17.5.2024 14:42 Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju „Mér finnst mjög mikilvægt að forseti sýni frumkvæði á sviði utanríkismála en auðvitað verður það að gerast innan ramma utanríkisstefnunnar og í samráði við stjórnvöld, sitjandi ríkisstjórn á hverjum tíma.“ Innlent 17.5.2024 14:05 Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Landspítali tók á móti 4.500 fleiri sjúklingum á árinu 2023 en árið á undan. Það jafngildi því að spítalinn sinni tólf fleiri einstaklingum á degi hverjum en árið áður. Innlent 17.5.2024 14:01 Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Inga Fjóla Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Kóraskóla hefur verið ráðin skólastjóri Kóraskóla. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Kópavogs frá því í gær en mikil ólga hefur verið meðal kennara í skólanum vegna ráðningu skólastjóra. Innlent 17.5.2024 13:50 Bein útsending: Ársfundur Landspítala Ársfundur Landspítala fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Fundurinn stendur milli klukkan 14 og 16 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Innlent 17.5.2024 13:30 Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir mikilvægt að forseti Íslands sé aldrei meðvirkur með ráðandi öflum. Alþingi megi aldrei upplifa það að afgreiðsla laga á Bessastöðum sé eins og sjálfsafgreiðsla á bensínstöð. Innlent 17.5.2024 13:24 Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Hörpu í dag. Á fundinum verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra. Málefni Grindavíkur verða til umræðu. Innlent 17.5.2024 12:44 Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. Innlent 17.5.2024 11:59 Slökktu eld á Seltjarnarnesi Slökkviliðið sinnir nú útkalli við Skólabraut á Seltjarnarnesi, en þar var eldur í tveggja hæða húsi með kjallara. Innlent 17.5.2024 11:56 Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Kristinn Hallgrímsson lögmaður hjá ARTA lögmönnum hefur sent bæjarstjórn Ölfuss bréf þar sem hann varar hana við hugsanlegu umboðsleysi stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista við efnisölu (KSDA). Innlent 17.5.2024 11:51 Fara fram á farbann Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt verða leiddir fyrir dómara í hádeginu. Lögreglan á Suðurnesjum fer fram á að mennirnir verði úrskurðaðir í farbann, en ekki gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er tvíþætt, annarsvegar á tildrögum slyssins og þess sem gerðist eftir á. Innlent 17.5.2024 11:33 Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Í hádegisfréttum fjöllum við um sjóslysið við Garðskagavita þar sem talið er að flutningaskip hafi siglt á strandveiðibát. Innlent 17.5.2024 11:33 Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu. Innlent 17.5.2024 11:30 Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar. Konráð hefur undanfarið unnið sem aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrún R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Innlent 17.5.2024 11:27 Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ „Nú er til dæmis mál sem brennur mjög augljóslega á ungu fólki í dag og ætti ekki að hafa farið framhjá neinum; umhverfis- og loftslagsmálin. Ég er búinn að vera að standa í þessari kosningabaráttu núna í einhverjar vikur og ég hef aldrei verið spurður út í það.“ Innlent 17.5.2024 10:30 Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu Innlent 17.5.2024 10:28 Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38 Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum. Innlent 17.5.2024 09:27 „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Móðir sem missti son sinn nýlega þegar hann fyrirfór sér í fangelsi á Íslandi segist vona að andlát hans muni hafa áhrif á breytingar til hins betra á geðheilbrigði fanga og þjónustu fyrir þá. Hún skorar á yfirvöld að efla geðheilsuteymi fanga og styrkja betur við starf Afstöðu – félags fanga á Íslandi. Innlent 17.5.2024 09:02 Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17.5.2024 08:26 Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar. Innlent 17.5.2024 08:00 Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf. Innlent 17.5.2024 07:01 Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu „Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok. Innlent 17.5.2024 06:40 Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum. Innlent 17.5.2024 06:01 « ‹ 176 177 178 179 180 181 182 183 184 … 334 ›
Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Landsréttur staðfesti dóm yfir karlmanni í dag sem varðar fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og peningaþvætti. Móðir hans hafði verið sakfelld í héraði í málinu en lést á síðasta ári. Landsréttur vísaði sakargiftum hennar frá dómi. Innlent 17.5.2024 16:22
Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Árni Þór Sigurðsson fyrrverandi sendiherra, Guðný Sverrisdóttir fyrrverandi sveitarstjóri og Gunnar Einarsson fyrrverandi bæjarstjóri munu taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór verður formaður nefndarinnar. Innlent 17.5.2024 16:19
Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu „Þetta er bara mitt „identity“. Þetta er minn karakter. Ég hef verið kallaður þetta í sautján ár,“ segir Rúnar Hroði Geirmundsson um ákvörðun Mannanafnanefndar að úrskurða að leyfa ekki fólki að bera nafnið Hroði. Innlent 17.5.2024 15:38
Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Ríkisstjórnin leggur til stuðningslán til grindvískra heimila og fyrirækja í Grindavík að viðbættum viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta. Innlent 17.5.2024 15:29
Skipið leggur úr höfn Fraktskipið Longdawn sem lenti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu úti fyrir Garðskaga í fyrrinótt hefur lagt úr höfn í Vestmannaeyjum á leið sinni til Rotterdam. Farbanns er krafist yfir skipstjóra skipsins og stýrimanni. Innlent 17.5.2024 15:23
„Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Karl Erlendsson, eldri borgari, telur Sigurð Ágúst Sigurðsson formann FEB skjóta vel yfir markið þegar hann heldur því fram að eldri borgarar á landsbyggðinni vilji leggja undir sig Landsamband eldri borgara. Innlent 17.5.2024 15:05
Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá „Þetta er fyrsta steypan hér við Fjarðarhornsá í Kollafirði. Brúin verður vonandi komin í gagnið 1. desember,“ segir Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar við brúna. Innlent 17.5.2024 14:42
Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju „Mér finnst mjög mikilvægt að forseti sýni frumkvæði á sviði utanríkismála en auðvitað verður það að gerast innan ramma utanríkisstefnunnar og í samráði við stjórnvöld, sitjandi ríkisstjórn á hverjum tíma.“ Innlent 17.5.2024 14:05
Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Landspítali tók á móti 4.500 fleiri sjúklingum á árinu 2023 en árið á undan. Það jafngildi því að spítalinn sinni tólf fleiri einstaklingum á degi hverjum en árið áður. Innlent 17.5.2024 14:01
Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Inga Fjóla Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Kóraskóla hefur verið ráðin skólastjóri Kóraskóla. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Kópavogs frá því í gær en mikil ólga hefur verið meðal kennara í skólanum vegna ráðningu skólastjóra. Innlent 17.5.2024 13:50
Bein útsending: Ársfundur Landspítala Ársfundur Landspítala fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Fundurinn stendur milli klukkan 14 og 16 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Innlent 17.5.2024 13:30
Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir mikilvægt að forseti Íslands sé aldrei meðvirkur með ráðandi öflum. Alþingi megi aldrei upplifa það að afgreiðsla laga á Bessastöðum sé eins og sjálfsafgreiðsla á bensínstöð. Innlent 17.5.2024 13:24
Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Hörpu í dag. Á fundinum verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra. Málefni Grindavíkur verða til umræðu. Innlent 17.5.2024 12:44
Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. Innlent 17.5.2024 11:59
Slökktu eld á Seltjarnarnesi Slökkviliðið sinnir nú útkalli við Skólabraut á Seltjarnarnesi, en þar var eldur í tveggja hæða húsi með kjallara. Innlent 17.5.2024 11:56
Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Kristinn Hallgrímsson lögmaður hjá ARTA lögmönnum hefur sent bæjarstjórn Ölfuss bréf þar sem hann varar hana við hugsanlegu umboðsleysi stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista við efnisölu (KSDA). Innlent 17.5.2024 11:51
Fara fram á farbann Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt verða leiddir fyrir dómara í hádeginu. Lögreglan á Suðurnesjum fer fram á að mennirnir verði úrskurðaðir í farbann, en ekki gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er tvíþætt, annarsvegar á tildrögum slyssins og þess sem gerðist eftir á. Innlent 17.5.2024 11:33
Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Í hádegisfréttum fjöllum við um sjóslysið við Garðskagavita þar sem talið er að flutningaskip hafi siglt á strandveiðibát. Innlent 17.5.2024 11:33
Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu. Innlent 17.5.2024 11:30
Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar. Konráð hefur undanfarið unnið sem aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrún R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Innlent 17.5.2024 11:27
Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ „Nú er til dæmis mál sem brennur mjög augljóslega á ungu fólki í dag og ætti ekki að hafa farið framhjá neinum; umhverfis- og loftslagsmálin. Ég er búinn að vera að standa í þessari kosningabaráttu núna í einhverjar vikur og ég hef aldrei verið spurður út í það.“ Innlent 17.5.2024 10:30
Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu Innlent 17.5.2024 10:28
Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38
Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum. Innlent 17.5.2024 09:27
„Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Móðir sem missti son sinn nýlega þegar hann fyrirfór sér í fangelsi á Íslandi segist vona að andlát hans muni hafa áhrif á breytingar til hins betra á geðheilbrigði fanga og þjónustu fyrir þá. Hún skorar á yfirvöld að efla geðheilsuteymi fanga og styrkja betur við starf Afstöðu – félags fanga á Íslandi. Innlent 17.5.2024 09:02
Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17.5.2024 08:26
Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar. Innlent 17.5.2024 08:00
Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf. Innlent 17.5.2024 07:01
Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu „Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok. Innlent 17.5.2024 06:40
Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum. Innlent 17.5.2024 06:01