Innlent Óttast að olíufélögin hækki álagningu Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að sterkt aðhald þurfi gagnvart því að tryggja að álagning á eldsneyti hækki ekki þegar bensín- og díselgjöld verða afnumin á næsta ári. Til stendur að leggja kílómetragjald á bensín- og díselbíla á næsta ári, en fella brott bensín- og olíugjöld sem greidd eru við kaup á jarðefnaeldsneyti. Í frumvarpsdrögunum stendur einnig til að hækka kolefnisgjaldið sem leggst á bensín- og díselbíla. Innlent 12.7.2024 21:22 Höfnin muni loka á útsýnið og valda hljóðmengun Íbúi í Hvaleyrarholti fordæmir áform Hafnarfjarðarbæjar og Carbfix um að reisa stærðarinnar höfn í Straumsvík. Hún segir þetta vera eins og að fá höfn í bakgarðinn og segir viðbrögð bæjarstjórnar gera lítið úr bæjarbúum. Innlent 12.7.2024 21:02 Fóstruðu þrastarunga í 15 daga í Hafnarfirði Þeir háma í sig tugi ánamaðka á dag þrastarungarnir, sem hafa verið í fóstri á heimili í Hafnarfirði síðustu daga eftir að mamma þeirra yfirgaf þá. Innlent 12.7.2024 20:05 Vona að gervigreindin komi að gagni við að finna mögulega lækningu Barátta Íslendinga fyrir fólk með mænuskaða hefur skilað árangri á alþjóðavettvangi. En betur má ef duga skal að sögn formanns Mænuskaðastofnunar Íslands, sem vonast til þess að gervigreind nýtist í leit að lækningu við mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, sem er bæði stofnandi og stjórnarformaður stofnunarinnar, hefur verið iðin við að senda bréf víða um heim, og hefur meðal annars fengið svar frá varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hvatti hana til dáða. Innlent 12.7.2024 19:37 Tvö hjólhýsi fokin af veginum á Norðurlandi vestra Ekkert hjólhýsaveður er á Norðurlandi vestra þessa dagana. Eitt hjólhýsi fauk af veginum þar í dag og annað í gær. Lögreglan á svæðinu hefur beðið ökumenn með vagna í eftirdragi að leita í var. Innlent 12.7.2024 19:12 Íslensk stökkbreyting þrefaldar áhættu á skjaldkirtilssjúkdómi Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólk þeirra hafa fundið erfðabreytileika í LAG-3 geninu sem meira en þrefaldar áhættuna á því að fá sjálfsónæmissjúkdóm í skjaldkirtil. Tveir erfðabreytileikar fundust sem auka áhættuna mest, og finnast þeir bara á Íslandi og í Finnlandi. Innlent 12.7.2024 18:48 Pínleg mistök Biden og móðurlausir þrastarungar í fóstri Þeim þingmönnum Demókrataflokksins fjölgar sem kalla eftir því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, stígi til hliðar í forsetakosningum. Hann segist ekki ætla fet þrátt fyrir pínleg mistök á blaðamannafundi í gær og slæma frammistöðu í kappræðum. Innlent 12.7.2024 18:01 Áminntur fyrir að hóta að afhjúpa meintan fíknivanda Lögmaður hefur verið áminntur og látinn greiða 150 þúsund króna sekt fyrir að hafa hótað að afhjúpa fíknivanda barnsmóður umbjóðanda síns. Innlent 12.7.2024 17:01 Laxinn bókstaflega gusast upp í Elliðaárnar Svavar Hávarðsson blaðamaður og kunnur veiðimaður var að fylgjast með löxum sem ganga upp Elliðaárnar og rak upp stór augu. Innlent 12.7.2024 15:49 Geta ekki sagt hvort Óskari hafi verið boðið starfið eða ekki Hafnarfjarðarbær segist ekki geta tjáð sig um mál einstaka starfsmanna, og því ekki geta staðfest eða hafnað því að Óskari Steini Ómarssyni hafi verið boðið starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum. Sjálfur segir Óskar að svo hafi verið, en ráðningin dregið til baka. Hann telur að pólitísk afskipti hafi spilað inn í. Innlent 12.7.2024 15:08 Ferjubilun sé hvítþvottur hjá Hrísey Seafood Forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni hafnar því algjörlega að samgöngur séu í lamasessi til og frá Hrísey. Verkefnastjóri Hríseyjar Seafood taldi lokun Matvælastofnunnar eiga rót sína að rekja til lélegra ferjusamgangna. Innlent 12.7.2024 14:39 Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga. Áætlað er að í þessu nýja borgarhverfi rísi allt að átta þúsund íbúðir og að þar geti búið allt að tuttugu þúsund borgarbúar. Innlent 12.7.2024 14:08 Klessti bíl og eigandinn kom í jakka einum fata á vettvang Maður sem ók bíl undir áhrifum áfengis, klessti honum á kyrrstæðan aftanívagn, og kom sér af vettvangi hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Honum er gert að greiða 240 þúsund króna sekt til ríkissjóðs eða sæta átján daga fangelsi. Jafnframt var hann sviptur ökuréttindum. Innlent 12.7.2024 14:03 Stappað á tjaldsvæðum og vörur hverfa úr hillum Mikið blíðviðri er á Austurlandi í dag en snemma í morgun mældist hitastig á þó nokkrum stöðum um 20 gráður. Tjaldsvæði fyrir austan hafa verið fljót að fyllast en að sögn staðarhaldara komast færri að en vilja. Svo virðist sem fólk streymi hreinlega austur frá öllum landshlutum. Innlent 12.7.2024 12:08 Freista þess að spá um sólstorma með loftbelgnum yfir Íslandi Loftbelgurinn sem sást á sveimi yfir Austurlandi í gær er á vegum samstarfsverkefnis bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og hinnar þýsku Max Planck-stofnunar. Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar eins og hann er iðulega kallaður, segir belginn vera tilraun til að skilja betur hvernig sólin okkar virkar og hvernig hægt sé að spá fyrir um svokallaða sólstorma. Eitthvað sem gæti verið gífurlega dýrmætt. Innlent 12.7.2024 12:06 Þrefalt hærri vextir geri samkeppnina erfiða Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir að háir vextir Seðlabanka Íslands fæli ferðamenn frá landinu. Að minnsta kosti 10 prósent samdráttur er hjá bílaleigunni í sumar miðað við sama tíma í fyrra. Innlent 12.7.2024 11:54 Lokun Hríseyjar seafood: Fiskur gleymdist þegar ferjan bilaði Verkefnastjóri hjá Hrísey Seafood segir lokun Matvælastofnunar á fiskvinnslunni í síðustu viku eiga rót sína að rekja til samgangna til eyjunnar sem séu í lamasessi. Fiskvinnslan opnar aftur í dag eftir „gott samstarf“ við Mast. Innlent 12.7.2024 11:12 Skipstjórinn dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að skilja skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Innlent 12.7.2024 11:08 Manndrápsmálið á Akureyri komið til saksóknara Mál manns sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar þessa árs er komið á borð héraðssaksóknara. Innlent 12.7.2024 11:03 Viðar „Enski“ Skjóldal látinn Viðar Skjóldal, sem lengi var ein helsta Snapchat-stjarna landsins og betur þekktur undir nafninu „Enski“, andaðist á Spáni hvar hann hafði verið búsettur ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum undanfarið. Innlent 12.7.2024 10:41 Bíða eftir niðurstöðum blóðsýnatöku Lögregla bíður eftir niðurstöðum blóðsýnis sem tekið var úr manninum sem ók yfir umferðareyju í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku. Málið er fullrannsakað að öðru leyti og það skýrist um mánaðamótin hvort gefin verði út ákæra vegna málsins. Innlent 12.7.2024 10:13 „Þeir voru hissa að þarna hafi einhver komið lifandi út“ Betur fór en á horfðist þegar vörubíll hafnaði á hvolfi á vegakafla í Gatnabrún í Mýrdalshreppi í gær. Ökumannshús bílsins féll saman. Innlent 12.7.2024 09:20 Stefndi í slagsmál ungmenna Lögreglu var tilkynnt um hópamyndun við verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem tilkynnti sagði að það hafi verið að stefna í slagsmál. En þegar lögreglu bar að garði voru flestir farnir. Innlent 12.7.2024 08:47 Mál mannsins á þingpöllunum komið til saksóknara Máli íraksks flóttamanns sem var með háreysti á þingpöllum Algingis og steig yfir handrið þeirra í mars á síðasta ári hefur verið vísað til héraðssaksóknara. Innlent 12.7.2024 07:18 Loftbelgur frá NASA svífur yfir Austurlandi Loftbelgur hefur sést svífa í háloftunum yfir Austurlandi í dag og margar kenningar hafa fæðst um hvaða fljúgandi furðuhlutur þetta sé. Sumir hafa haldið að um sé að ræða kínverskan eða rússneskan njósnabelg en aðrir einkennilega blöðrulaga ský. Sannleikurinn er sá að belgurinn er rannsóknarloftbelgur frá bandarísku heimvísindastofnuninni NASA. Innlent 11.7.2024 23:30 Sjá fyrir endann á tvöföldun Reykjanesbrautar að flugstöð Hringtorg víkja fyrir mislægum gatnamótum á Reykjanesbrautinni til að stuðla að öryggi íbúa og vegfarenda. Með fyrirhuguðum framkvæmdum verður brautin tvöfölduð frá höfuðborgarsvæðinu og alla leið að Keflavíkurflugvelli. Innlent 11.7.2024 21:00 Má ekki hleypa köttum inn í sameiginlegt þvottahús Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans. Innlent 11.7.2024 20:22 Biden lýsti aðdáun á Íslandi og hrósar framlagi til NATO Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Síðasti dagur 75 ára afmælis- og leiðtogafundar NATO er í dag en eftirvænting ríkir fyrir blaðamannafundi sem Biden hefur boðað síðar í kvöld. Innlent 11.7.2024 20:02 Lúsmý verði bráðlega komið um allt land Gísli Már Gíslason, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus í dýrafræði við HÍ, segir lúsmýið munu brátt hafa breitt úr sér um allt land. Lúsmýið hafi greinst nýverið á Austfjörðum þar sem það hafði ekki greinst áður. Hann segir lúsmýið komið til að vera á Íslandi öllu nema yst á annesjum. Innlent 11.7.2024 20:02 Svikahrappar reyna að gabba lögregluna Óprúttinn aðili gerði í dag tilraun til að gabba lögregluna á Suðurnesjum með póstsvindli svokölluðu sem herjað hefur á landsmenn í auknum mæli undanfarin ár. Innlent 11.7.2024 18:58 « ‹ 118 119 120 121 122 123 124 125 126 … 334 ›
Óttast að olíufélögin hækki álagningu Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að sterkt aðhald þurfi gagnvart því að tryggja að álagning á eldsneyti hækki ekki þegar bensín- og díselgjöld verða afnumin á næsta ári. Til stendur að leggja kílómetragjald á bensín- og díselbíla á næsta ári, en fella brott bensín- og olíugjöld sem greidd eru við kaup á jarðefnaeldsneyti. Í frumvarpsdrögunum stendur einnig til að hækka kolefnisgjaldið sem leggst á bensín- og díselbíla. Innlent 12.7.2024 21:22
Höfnin muni loka á útsýnið og valda hljóðmengun Íbúi í Hvaleyrarholti fordæmir áform Hafnarfjarðarbæjar og Carbfix um að reisa stærðarinnar höfn í Straumsvík. Hún segir þetta vera eins og að fá höfn í bakgarðinn og segir viðbrögð bæjarstjórnar gera lítið úr bæjarbúum. Innlent 12.7.2024 21:02
Fóstruðu þrastarunga í 15 daga í Hafnarfirði Þeir háma í sig tugi ánamaðka á dag þrastarungarnir, sem hafa verið í fóstri á heimili í Hafnarfirði síðustu daga eftir að mamma þeirra yfirgaf þá. Innlent 12.7.2024 20:05
Vona að gervigreindin komi að gagni við að finna mögulega lækningu Barátta Íslendinga fyrir fólk með mænuskaða hefur skilað árangri á alþjóðavettvangi. En betur má ef duga skal að sögn formanns Mænuskaðastofnunar Íslands, sem vonast til þess að gervigreind nýtist í leit að lækningu við mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, sem er bæði stofnandi og stjórnarformaður stofnunarinnar, hefur verið iðin við að senda bréf víða um heim, og hefur meðal annars fengið svar frá varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hvatti hana til dáða. Innlent 12.7.2024 19:37
Tvö hjólhýsi fokin af veginum á Norðurlandi vestra Ekkert hjólhýsaveður er á Norðurlandi vestra þessa dagana. Eitt hjólhýsi fauk af veginum þar í dag og annað í gær. Lögreglan á svæðinu hefur beðið ökumenn með vagna í eftirdragi að leita í var. Innlent 12.7.2024 19:12
Íslensk stökkbreyting þrefaldar áhættu á skjaldkirtilssjúkdómi Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólk þeirra hafa fundið erfðabreytileika í LAG-3 geninu sem meira en þrefaldar áhættuna á því að fá sjálfsónæmissjúkdóm í skjaldkirtil. Tveir erfðabreytileikar fundust sem auka áhættuna mest, og finnast þeir bara á Íslandi og í Finnlandi. Innlent 12.7.2024 18:48
Pínleg mistök Biden og móðurlausir þrastarungar í fóstri Þeim þingmönnum Demókrataflokksins fjölgar sem kalla eftir því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, stígi til hliðar í forsetakosningum. Hann segist ekki ætla fet þrátt fyrir pínleg mistök á blaðamannafundi í gær og slæma frammistöðu í kappræðum. Innlent 12.7.2024 18:01
Áminntur fyrir að hóta að afhjúpa meintan fíknivanda Lögmaður hefur verið áminntur og látinn greiða 150 þúsund króna sekt fyrir að hafa hótað að afhjúpa fíknivanda barnsmóður umbjóðanda síns. Innlent 12.7.2024 17:01
Laxinn bókstaflega gusast upp í Elliðaárnar Svavar Hávarðsson blaðamaður og kunnur veiðimaður var að fylgjast með löxum sem ganga upp Elliðaárnar og rak upp stór augu. Innlent 12.7.2024 15:49
Geta ekki sagt hvort Óskari hafi verið boðið starfið eða ekki Hafnarfjarðarbær segist ekki geta tjáð sig um mál einstaka starfsmanna, og því ekki geta staðfest eða hafnað því að Óskari Steini Ómarssyni hafi verið boðið starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum. Sjálfur segir Óskar að svo hafi verið, en ráðningin dregið til baka. Hann telur að pólitísk afskipti hafi spilað inn í. Innlent 12.7.2024 15:08
Ferjubilun sé hvítþvottur hjá Hrísey Seafood Forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni hafnar því algjörlega að samgöngur séu í lamasessi til og frá Hrísey. Verkefnastjóri Hríseyjar Seafood taldi lokun Matvælastofnunnar eiga rót sína að rekja til lélegra ferjusamgangna. Innlent 12.7.2024 14:39
Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga. Áætlað er að í þessu nýja borgarhverfi rísi allt að átta þúsund íbúðir og að þar geti búið allt að tuttugu þúsund borgarbúar. Innlent 12.7.2024 14:08
Klessti bíl og eigandinn kom í jakka einum fata á vettvang Maður sem ók bíl undir áhrifum áfengis, klessti honum á kyrrstæðan aftanívagn, og kom sér af vettvangi hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Honum er gert að greiða 240 þúsund króna sekt til ríkissjóðs eða sæta átján daga fangelsi. Jafnframt var hann sviptur ökuréttindum. Innlent 12.7.2024 14:03
Stappað á tjaldsvæðum og vörur hverfa úr hillum Mikið blíðviðri er á Austurlandi í dag en snemma í morgun mældist hitastig á þó nokkrum stöðum um 20 gráður. Tjaldsvæði fyrir austan hafa verið fljót að fyllast en að sögn staðarhaldara komast færri að en vilja. Svo virðist sem fólk streymi hreinlega austur frá öllum landshlutum. Innlent 12.7.2024 12:08
Freista þess að spá um sólstorma með loftbelgnum yfir Íslandi Loftbelgurinn sem sást á sveimi yfir Austurlandi í gær er á vegum samstarfsverkefnis bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og hinnar þýsku Max Planck-stofnunar. Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar eins og hann er iðulega kallaður, segir belginn vera tilraun til að skilja betur hvernig sólin okkar virkar og hvernig hægt sé að spá fyrir um svokallaða sólstorma. Eitthvað sem gæti verið gífurlega dýrmætt. Innlent 12.7.2024 12:06
Þrefalt hærri vextir geri samkeppnina erfiða Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir að háir vextir Seðlabanka Íslands fæli ferðamenn frá landinu. Að minnsta kosti 10 prósent samdráttur er hjá bílaleigunni í sumar miðað við sama tíma í fyrra. Innlent 12.7.2024 11:54
Lokun Hríseyjar seafood: Fiskur gleymdist þegar ferjan bilaði Verkefnastjóri hjá Hrísey Seafood segir lokun Matvælastofnunar á fiskvinnslunni í síðustu viku eiga rót sína að rekja til samgangna til eyjunnar sem séu í lamasessi. Fiskvinnslan opnar aftur í dag eftir „gott samstarf“ við Mast. Innlent 12.7.2024 11:12
Skipstjórinn dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að skilja skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Innlent 12.7.2024 11:08
Manndrápsmálið á Akureyri komið til saksóknara Mál manns sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar þessa árs er komið á borð héraðssaksóknara. Innlent 12.7.2024 11:03
Viðar „Enski“ Skjóldal látinn Viðar Skjóldal, sem lengi var ein helsta Snapchat-stjarna landsins og betur þekktur undir nafninu „Enski“, andaðist á Spáni hvar hann hafði verið búsettur ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum undanfarið. Innlent 12.7.2024 10:41
Bíða eftir niðurstöðum blóðsýnatöku Lögregla bíður eftir niðurstöðum blóðsýnis sem tekið var úr manninum sem ók yfir umferðareyju í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku. Málið er fullrannsakað að öðru leyti og það skýrist um mánaðamótin hvort gefin verði út ákæra vegna málsins. Innlent 12.7.2024 10:13
„Þeir voru hissa að þarna hafi einhver komið lifandi út“ Betur fór en á horfðist þegar vörubíll hafnaði á hvolfi á vegakafla í Gatnabrún í Mýrdalshreppi í gær. Ökumannshús bílsins féll saman. Innlent 12.7.2024 09:20
Stefndi í slagsmál ungmenna Lögreglu var tilkynnt um hópamyndun við verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem tilkynnti sagði að það hafi verið að stefna í slagsmál. En þegar lögreglu bar að garði voru flestir farnir. Innlent 12.7.2024 08:47
Mál mannsins á þingpöllunum komið til saksóknara Máli íraksks flóttamanns sem var með háreysti á þingpöllum Algingis og steig yfir handrið þeirra í mars á síðasta ári hefur verið vísað til héraðssaksóknara. Innlent 12.7.2024 07:18
Loftbelgur frá NASA svífur yfir Austurlandi Loftbelgur hefur sést svífa í háloftunum yfir Austurlandi í dag og margar kenningar hafa fæðst um hvaða fljúgandi furðuhlutur þetta sé. Sumir hafa haldið að um sé að ræða kínverskan eða rússneskan njósnabelg en aðrir einkennilega blöðrulaga ský. Sannleikurinn er sá að belgurinn er rannsóknarloftbelgur frá bandarísku heimvísindastofnuninni NASA. Innlent 11.7.2024 23:30
Sjá fyrir endann á tvöföldun Reykjanesbrautar að flugstöð Hringtorg víkja fyrir mislægum gatnamótum á Reykjanesbrautinni til að stuðla að öryggi íbúa og vegfarenda. Með fyrirhuguðum framkvæmdum verður brautin tvöfölduð frá höfuðborgarsvæðinu og alla leið að Keflavíkurflugvelli. Innlent 11.7.2024 21:00
Má ekki hleypa köttum inn í sameiginlegt þvottahús Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans. Innlent 11.7.2024 20:22
Biden lýsti aðdáun á Íslandi og hrósar framlagi til NATO Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Síðasti dagur 75 ára afmælis- og leiðtogafundar NATO er í dag en eftirvænting ríkir fyrir blaðamannafundi sem Biden hefur boðað síðar í kvöld. Innlent 11.7.2024 20:02
Lúsmý verði bráðlega komið um allt land Gísli Már Gíslason, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus í dýrafræði við HÍ, segir lúsmýið munu brátt hafa breitt úr sér um allt land. Lúsmýið hafi greinst nýverið á Austfjörðum þar sem það hafði ekki greinst áður. Hann segir lúsmýið komið til að vera á Íslandi öllu nema yst á annesjum. Innlent 11.7.2024 20:02
Svikahrappar reyna að gabba lögregluna Óprúttinn aðili gerði í dag tilraun til að gabba lögregluna á Suðurnesjum með póstsvindli svokölluðu sem herjað hefur á landsmenn í auknum mæli undanfarin ár. Innlent 11.7.2024 18:58