Erlent Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Maður á þrítugsaldri lést af völdum sára sinna í nótt eftir að hafa verið stunginn í Amagerhverfi Kaupmannahafnar. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið 25 ára konu í tengslum við málið. Erlent 3.7.2024 09:10 Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu hafa fyrirskipað eyðingu þúsunda sýna gjafasæðis vegna hættu á því að ekki sé hægt að rekja uppruna þess. Umboðsmaður heilbrigðismála segir í nýrri skýrslu að ef ekki er hægt að auðkenna það missi foreldrar tækifæri á að fá að vita um ýmsar erfðafræðilegar og læknisfræðilegar upplýsingar auk þess sem það eykur líkurnar á sifjaspell. Erlent 3.7.2024 08:08 Beryl við það að skella á Jamaíku Fellybylurinn Beryl er nú við það að lenda á Jamaíka í Karíbahafi eftir að hafa farið yfir nokkrar smærri eyjar á leið sinni. Erlent 3.7.2024 07:52 Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Öldungadeildarþingmaðurinn Lloyd Doggett er fyrsti þingmaðurinn úr röðum Demókrata til þess að kalla eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar og hætti við forsetaframboð. Erlent 2.7.2024 23:49 Friðhelgin stórauki vald forsetans Dósent í stjórnmálafræði segir niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna, þess efnis að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti geti notið friðhelgi frá ákærum vegna embættisverka hans, munu hafa mikil áhrif á kosningabaráttuna framundan. Erlent 2.7.2024 23:10 Ákvörðun um refsingu Trump frestað Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að fresta ákvörðun um refsingu í máli Donald Trump fram í september á þessu ári. Trump var sakfelldur í málinu í maí á þessu ári fyrir skjalafals vegna mútugreiðslna til klámmyndaleikkonu. Erlent 2.7.2024 20:13 87 talin af vegna troðnings Minnst 87 krömdust til bana í troðningi á hindúískri helgiathöfn sem fór fram í Uttar Pradesh-ríki á Indlandi í dag. Troðningurinn átti sér stað í þorpi um 200 kílómetrum suðaustur af Nýju-Delí. Erlent 2.7.2024 13:35 Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Fellibylurinn Beryl sem fer nú yfir Karíbahafið hefur verið færður um flokk og settur í fimmta flokk og getur vindhraði því verið meiri en 157 mílur á klukkustund eða 70 metrar á sekúndu eða meira. Fellibylurinn er nú á leið yfir Jamaíka. Erlent 2.7.2024 08:59 Enn slasast tugir í ókyrrð Farþegaþotu sem var á leið frá Madríd á Spáni til Montevideo í Úrúgvæ var lent í Brasilíu í nótt eftir að tugir slösuðust um borð í mikilli ókyrrð. Erlent 2.7.2024 07:10 Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Búist er við því að Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands heimsæki Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í vikunni. Orban hefur verið sá leiðtogi innan Evrópusambandsins sem hefur haft mestar efasemdir um fjárstuðning sambandsins við Úkraínu í stríði þeirra við Rússland. Erlent 1.7.2024 23:50 Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Franska þjóðfylkingin vann stórsigur í fyrri umferð þingkosninga í gær. Stjórnmálafræðingur segir þetta merki um þróun mála á Vesturlöndum. Íslendingur búsettur í Frakklandi segir það nú í höndum Macron Frakklandsforseta hvort vinstri- og miðflokkar sameinist gegn þjóðfylkingunni. Erlent 1.7.2024 20:30 Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna eigi rétt á friðhelgi að hluta til, að minnsta kosti hvað við kemur það sem þeir gera í embætti forseta. Málið varðar friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta vegna háttsemi hans í kringum forsetakosningarnar 2020. Erlent 1.7.2024 15:43 Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Albanski rithöfundurinn Ismail Kadare er látinn. Hann er fæddur 1936 og lést 1. júlí á þessu ári. Kadare hefur verið talinn eitt helsta skáld og hugsuður 20. og 21. aldarinnar, en hann hefur barist mjög gegn alræði í skrifum sínum. Erlent 1.7.2024 10:17 Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Mörg þúsund strangtrúaðir gyðingar söfnuðust saman í Jerúsalem í nótt til þess að mótmæla úrskurði Hæstaréttar Ísraels þess efnis að þeir skuli nú gegna herþjónustu. Erlent 1.7.2024 08:42 Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Fellibylurinn Beryl er nú á leið yfir Karíbahafið. Fellibylurinn hefur verið flokkaður sem afar hættulegur, í flokki fjögur af fimm flokkum. Fellibyljastofnun Bandaríkjanna spáir mannskæðum vindi og mögulega flóðbylgjum þar sem rignir mikið. Beryl er fyrsti fellibylur tímabilsins. Svo stór fellibylur hefur ekki sést svo snemma síðan árið 2005. Erlent 1.7.2024 07:58 Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Eldflaug sem skotið var á loft fyrir slysni við æfingu hrapaði til jarðar rétt fyrir utan borg í Kína í gær og sprakk. Engan sakaði samkvæmt fyrstu rannsókn á vettvangi en stærðarinnar sprenging var á svæðinu. Erlent 1.7.2024 07:35 Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Ný könnun sem gerð var á meðal almennings í Bandaríkjunum bendir til þess að 72 prósent allra skráðra kjósenda telji að Joe Biden forseti hafi ekki vitsmunalega getu til þess að sinna embættinu. Erlent 1.7.2024 06:56 Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Bandalag vinstri flokka og miðjuflokkar Macrons Frakklandsforseta hvetja kjósendur til að kjósa taktískt gegn öfgahægriflokknum frönsku Þjóðfylkingunni í seinni umferð þingkosninganna sem fer fram í næstu viku. Útlit er fyrir stórsigur Þjóðfylkingarinnar ef marka má fyrstu tölur eftir fyrri umferð kosninganna. Erlent 30.6.2024 23:37 „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin er stærsti flokkur Frakklands með 34 prósenta fylgi samkvæmt útgönguspám sem birtar voru fyrr í kvöld. Prófessor og sérfræðingur í málefnum Frakklands segir ástæðu til að hafa áhyggjur af því að flokkur með blendna afstöðu til mannréttinda gæti náð völdum. Erlent 30.6.2024 19:30 Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Samkvæmt útgönguspám í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi leiðir Franska þjóðfylkingin með 34 prósenta fylgi. Erlent 30.6.2024 18:09 Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Félögunum Jakobi Magnússyni og Kolbeini Tuma var heldur betur brugðið í brún þegar þeir vöknuðu á tjaldstæðinu við Hróarskeldu í morgun og allt var á floti. Þeir hafi vaknað, stigið út, og drullan hafi náð upp að hnjám. Þetta var „kyngimagnað“ segja þeir. Erlent 30.6.2024 17:39 „Fólk er einfaldlega hrætt“ Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hún kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til. Erlent 30.6.2024 13:51 Leitin að Slater blásin af Allsherjarleit að breska táningnum Jay Slater, sem hófst í gær, hefur verið blásin af. Hans hefur verið saknað á spænsku eyjunni Tenerife síðan 17. júní. Erlent 30.6.2024 09:34 Frakkar ganga að kjörborðinu Kosningar, sem gætu orðið sögulegar, eru hafnar í Frakklandi. Aldrei áður hefur flokkur lengst til hægri verið líklegri til þess að bera sigur úr býtum í kosningum þar í landi. Erlent 30.6.2024 08:43 Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Skoðanakannanir í Frakklandi benda allar til þess að Franska þjóðfylkingin, harðlínu-hægri flokkur Marine le Pen og Jordan Bardella, muni sigla heim stórsigri í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi á morgun. Erlent 29.6.2024 23:45 Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Fjölmiðlar vestanhafs eru enn undirlagðir áhyggjuröddum af frammistöðu Joes Biden Bandaríkjaforseta í kappræðum hans og Donalds Trump í fyrrinótt. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 voru birt viðtöl við bandaríska kjósendur, sem líst illa á stöðuna. Erlent 29.6.2024 23:18 Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Tuttugu og tveggja ára gamall maður var tekinn af lífi í Norður Kóreu á opinberum vettvangi, fyrir að hafa hlustað á 70 lög frá Suður-Kóreu, horft á þrjár myndir þaðan og að hafa dreift þeim. Þetta var árið 2022. Erlent 29.6.2024 20:07 Efna til allsherjarleitar að Slater Allsherjarleit að Bretanum Jay Slater, sem hefur verið týndur á Kanaríeyjunni Tenerife í tæpar tvær vikur, fer fram í dag. Sjálfboðaliðar víða af eyjunni hafa verið kallaðir út til að aðstoða við leitina. Erlent 29.6.2024 09:49 Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Allir 28 sakborningar í peningaþvættismáli sem tengist Panamaskjölunum hafa verið sýknaðir. Þeirra á meðal eru þeir Jurgen Mossack og Ramón Fonseca Mora, eigendur lögmannstofunnar alræmdu Mossack Fonseca. Fonseca lést í maí síðastliðnum. Erlent 29.6.2024 09:19 Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að aldur Joe Bidens mótframbjóðanda hans, sé ekki vandamálið, heldur „algjört vanhæfi“ hans. Trump ávarpaði stuðningsmenn sína í Virgina-ríki í dag. Erlent 29.6.2024 00:04 « ‹ 35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 334 ›
Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Maður á þrítugsaldri lést af völdum sára sinna í nótt eftir að hafa verið stunginn í Amagerhverfi Kaupmannahafnar. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið 25 ára konu í tengslum við málið. Erlent 3.7.2024 09:10
Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu hafa fyrirskipað eyðingu þúsunda sýna gjafasæðis vegna hættu á því að ekki sé hægt að rekja uppruna þess. Umboðsmaður heilbrigðismála segir í nýrri skýrslu að ef ekki er hægt að auðkenna það missi foreldrar tækifæri á að fá að vita um ýmsar erfðafræðilegar og læknisfræðilegar upplýsingar auk þess sem það eykur líkurnar á sifjaspell. Erlent 3.7.2024 08:08
Beryl við það að skella á Jamaíku Fellybylurinn Beryl er nú við það að lenda á Jamaíka í Karíbahafi eftir að hafa farið yfir nokkrar smærri eyjar á leið sinni. Erlent 3.7.2024 07:52
Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Öldungadeildarþingmaðurinn Lloyd Doggett er fyrsti þingmaðurinn úr röðum Demókrata til þess að kalla eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar og hætti við forsetaframboð. Erlent 2.7.2024 23:49
Friðhelgin stórauki vald forsetans Dósent í stjórnmálafræði segir niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna, þess efnis að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti geti notið friðhelgi frá ákærum vegna embættisverka hans, munu hafa mikil áhrif á kosningabaráttuna framundan. Erlent 2.7.2024 23:10
Ákvörðun um refsingu Trump frestað Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að fresta ákvörðun um refsingu í máli Donald Trump fram í september á þessu ári. Trump var sakfelldur í málinu í maí á þessu ári fyrir skjalafals vegna mútugreiðslna til klámmyndaleikkonu. Erlent 2.7.2024 20:13
87 talin af vegna troðnings Minnst 87 krömdust til bana í troðningi á hindúískri helgiathöfn sem fór fram í Uttar Pradesh-ríki á Indlandi í dag. Troðningurinn átti sér stað í þorpi um 200 kílómetrum suðaustur af Nýju-Delí. Erlent 2.7.2024 13:35
Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Fellibylurinn Beryl sem fer nú yfir Karíbahafið hefur verið færður um flokk og settur í fimmta flokk og getur vindhraði því verið meiri en 157 mílur á klukkustund eða 70 metrar á sekúndu eða meira. Fellibylurinn er nú á leið yfir Jamaíka. Erlent 2.7.2024 08:59
Enn slasast tugir í ókyrrð Farþegaþotu sem var á leið frá Madríd á Spáni til Montevideo í Úrúgvæ var lent í Brasilíu í nótt eftir að tugir slösuðust um borð í mikilli ókyrrð. Erlent 2.7.2024 07:10
Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Búist er við því að Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands heimsæki Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í vikunni. Orban hefur verið sá leiðtogi innan Evrópusambandsins sem hefur haft mestar efasemdir um fjárstuðning sambandsins við Úkraínu í stríði þeirra við Rússland. Erlent 1.7.2024 23:50
Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Franska þjóðfylkingin vann stórsigur í fyrri umferð þingkosninga í gær. Stjórnmálafræðingur segir þetta merki um þróun mála á Vesturlöndum. Íslendingur búsettur í Frakklandi segir það nú í höndum Macron Frakklandsforseta hvort vinstri- og miðflokkar sameinist gegn þjóðfylkingunni. Erlent 1.7.2024 20:30
Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna eigi rétt á friðhelgi að hluta til, að minnsta kosti hvað við kemur það sem þeir gera í embætti forseta. Málið varðar friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta vegna háttsemi hans í kringum forsetakosningarnar 2020. Erlent 1.7.2024 15:43
Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Albanski rithöfundurinn Ismail Kadare er látinn. Hann er fæddur 1936 og lést 1. júlí á þessu ári. Kadare hefur verið talinn eitt helsta skáld og hugsuður 20. og 21. aldarinnar, en hann hefur barist mjög gegn alræði í skrifum sínum. Erlent 1.7.2024 10:17
Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Mörg þúsund strangtrúaðir gyðingar söfnuðust saman í Jerúsalem í nótt til þess að mótmæla úrskurði Hæstaréttar Ísraels þess efnis að þeir skuli nú gegna herþjónustu. Erlent 1.7.2024 08:42
Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Fellibylurinn Beryl er nú á leið yfir Karíbahafið. Fellibylurinn hefur verið flokkaður sem afar hættulegur, í flokki fjögur af fimm flokkum. Fellibyljastofnun Bandaríkjanna spáir mannskæðum vindi og mögulega flóðbylgjum þar sem rignir mikið. Beryl er fyrsti fellibylur tímabilsins. Svo stór fellibylur hefur ekki sést svo snemma síðan árið 2005. Erlent 1.7.2024 07:58
Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Eldflaug sem skotið var á loft fyrir slysni við æfingu hrapaði til jarðar rétt fyrir utan borg í Kína í gær og sprakk. Engan sakaði samkvæmt fyrstu rannsókn á vettvangi en stærðarinnar sprenging var á svæðinu. Erlent 1.7.2024 07:35
Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Ný könnun sem gerð var á meðal almennings í Bandaríkjunum bendir til þess að 72 prósent allra skráðra kjósenda telji að Joe Biden forseti hafi ekki vitsmunalega getu til þess að sinna embættinu. Erlent 1.7.2024 06:56
Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Bandalag vinstri flokka og miðjuflokkar Macrons Frakklandsforseta hvetja kjósendur til að kjósa taktískt gegn öfgahægriflokknum frönsku Þjóðfylkingunni í seinni umferð þingkosninganna sem fer fram í næstu viku. Útlit er fyrir stórsigur Þjóðfylkingarinnar ef marka má fyrstu tölur eftir fyrri umferð kosninganna. Erlent 30.6.2024 23:37
„Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin er stærsti flokkur Frakklands með 34 prósenta fylgi samkvæmt útgönguspám sem birtar voru fyrr í kvöld. Prófessor og sérfræðingur í málefnum Frakklands segir ástæðu til að hafa áhyggjur af því að flokkur með blendna afstöðu til mannréttinda gæti náð völdum. Erlent 30.6.2024 19:30
Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Samkvæmt útgönguspám í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi leiðir Franska þjóðfylkingin með 34 prósenta fylgi. Erlent 30.6.2024 18:09
Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Félögunum Jakobi Magnússyni og Kolbeini Tuma var heldur betur brugðið í brún þegar þeir vöknuðu á tjaldstæðinu við Hróarskeldu í morgun og allt var á floti. Þeir hafi vaknað, stigið út, og drullan hafi náð upp að hnjám. Þetta var „kyngimagnað“ segja þeir. Erlent 30.6.2024 17:39
„Fólk er einfaldlega hrætt“ Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hún kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til. Erlent 30.6.2024 13:51
Leitin að Slater blásin af Allsherjarleit að breska táningnum Jay Slater, sem hófst í gær, hefur verið blásin af. Hans hefur verið saknað á spænsku eyjunni Tenerife síðan 17. júní. Erlent 30.6.2024 09:34
Frakkar ganga að kjörborðinu Kosningar, sem gætu orðið sögulegar, eru hafnar í Frakklandi. Aldrei áður hefur flokkur lengst til hægri verið líklegri til þess að bera sigur úr býtum í kosningum þar í landi. Erlent 30.6.2024 08:43
Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Skoðanakannanir í Frakklandi benda allar til þess að Franska þjóðfylkingin, harðlínu-hægri flokkur Marine le Pen og Jordan Bardella, muni sigla heim stórsigri í fyrri umferð þingkosninganna í Frakklandi á morgun. Erlent 29.6.2024 23:45
Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Fjölmiðlar vestanhafs eru enn undirlagðir áhyggjuröddum af frammistöðu Joes Biden Bandaríkjaforseta í kappræðum hans og Donalds Trump í fyrrinótt. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 voru birt viðtöl við bandaríska kjósendur, sem líst illa á stöðuna. Erlent 29.6.2024 23:18
Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Tuttugu og tveggja ára gamall maður var tekinn af lífi í Norður Kóreu á opinberum vettvangi, fyrir að hafa hlustað á 70 lög frá Suður-Kóreu, horft á þrjár myndir þaðan og að hafa dreift þeim. Þetta var árið 2022. Erlent 29.6.2024 20:07
Efna til allsherjarleitar að Slater Allsherjarleit að Bretanum Jay Slater, sem hefur verið týndur á Kanaríeyjunni Tenerife í tæpar tvær vikur, fer fram í dag. Sjálfboðaliðar víða af eyjunni hafa verið kallaðir út til að aðstoða við leitina. Erlent 29.6.2024 09:49
Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Allir 28 sakborningar í peningaþvættismáli sem tengist Panamaskjölunum hafa verið sýknaðir. Þeirra á meðal eru þeir Jurgen Mossack og Ramón Fonseca Mora, eigendur lögmannstofunnar alræmdu Mossack Fonseca. Fonseca lést í maí síðastliðnum. Erlent 29.6.2024 09:19
Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að aldur Joe Bidens mótframbjóðanda hans, sé ekki vandamálið, heldur „algjört vanhæfi“ hans. Trump ávarpaði stuðningsmenn sína í Virgina-ríki í dag. Erlent 29.6.2024 00:04