Erlent Vill að hetjan úr Hótel Rúanda verði dæmd í lífstíðarfangelsi Saksóknari í Rúanda hefur farið fram á að dómur yfir Paul Rusesabagina, hetjunni úr kvikmyndinni Hótel Rúanda, verði þyngdur í lífstíðardóm. Rusesabagina var dæmdur í 25 ára fangelsi í september fyrir hryðjuverk. Erlent 24.1.2022 11:06 Játaði að hafa rænt fjögurra ára ástralskri stúlku Ástralskur karlmauður á fertugsaldri hefur játað að hafa rænt fjögurra ára gamalli stúlku og halda henni fanginni í átján daga síðasta haust. Erlent 24.1.2022 10:39 Gagnrýnir valdaleysið og segir af sér sem forseti Armen Sarkissian, forseti Armeníu, sagði af sér embætti gær. Hann gagnrýndi meðal annars valdaleysi embættisins og óánægju með ákvarðanir teknar í tengslum við deilur landsins og Aserbaídsjans. Erlent 24.1.2022 10:38 Danski þjóðarflokkurinn kominn með nýjan formann Danski þingmaðurinn Morten Messerschmidt var í gær kjörinn formaður Danska þjóðarflokksins (d. Dansk Folkeparti). Hann tekur við stöðunni af Kristian Thulesen Dahl sem hætti í kjölfar bágrar niðurstöðu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í nóvember. Erlent 24.1.2022 08:04 Hefja réttarhöld yfir hinum lögreglumönnunum í máli George Floyd Búist er við því að réttarhöld yfir þremur bandarískum lögreglumönnum, sem ákærðir eru fyrir að hafa svipt George Floyd borgaralegum réttindum sínum daginn sem hann var myrtur af fjórða lögreglumanninum, hefjist í dag. Erlent 24.1.2022 07:46 Stjórnvöld segja valdarán ekki yfirvofandi Skothvellir heyrðust víða í nótt í Afríkuríkinu Búrkína Fasó. Meðal annars hefur skotum verið hleypt af í grennd við forsetahöll landsins en ríkisstjórnin segir þó að valdarán sé ekki yfirvofandi. Erlent 24.1.2022 07:14 Laumufarþegi lifði af langt ferðalag í lendingarbúnaði Lögreglan í Hollandi fann í gær laumufarþega um borð í flutningaþotu frá Cargolux sem hafði flogið frá Suður-Afríku til Schiphol flugvallar í Amsterdam með millilendingu í Nairóbí í Kenýa. Erlent 24.1.2022 07:00 Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið. Erlent 24.1.2022 06:45 Banna drónaflug eftir banvæna árás Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa bannað drónaflug til afþreyingar í landinu eftir að litlir drónar voru notaðir til að sprengja þrjá olíubíla í loft upp á dögunum. Erlent 23.1.2022 22:03 Farga milljónum bóluefnaskammta þrátt fyrir lágt bólusetningarhlutfall Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að ríki heims einblíni á að tryggja ríkisborgurum sínum örvunarskammta af bóluefninu gegn Covid-19. Frekar eigi að einblína á að tryggja öllum heimsbúum grunnbólusetningu til að stemma stigu við frekari þróun veirunnar. Erlent 23.1.2022 21:56 Endalok faraldursins í Evrópu séu í nánd Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að í mars muni sex af hverjum tíu Evrópubúum hafa smitast af kórónuveirunni. Því nálgist endalok faraldurs hennar í álfunni. Erlent 23.1.2022 19:42 Harðir bardagar eftir flótta ISIS-liða Harðir bardagar hafa geisað í norðausturhluta Sýrlands eftir að fjölda ISIS-liða tókst að strjúka úr fangelsi sem sýrlenskir Kúrdar hafa rekið. Fangelsið hýsti um það bil 3.500 ISIS-liða og hefur gert lengi en meðal fanganna voru nokkrir af leiðtogum Íslamska ríkisins. Erlent 23.1.2022 17:07 Forsætisráðherrann frestaði brúðkaupinu vegna Covid-19 Jacinda Arden, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur frestað brúðkaupi sínu í aðdraganda þess að ríkisstjórn hennar herðir sóttvarnarreglur. Ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er í töluverðri dreifingu á Nýja-Sjálandi þessa dagana. Erlent 23.1.2022 15:50 Einn hamstur reyndist með Covid Einn af 77 hömstrum sem íbúar Hong Kong skiluðu til lógunar á dögunum reyndist smitaður af Covid-19. Alls hefur rúmlega tvö þúsund hömstrum verið lógað í Hong Kong á undanförnum dögum eftir að nokkrir þeirra greindust smitaðir í gæludýrabúð. Erlent 23.1.2022 14:50 Franskur ævintýramaður fannst látinn við Asóreyjar Hinn 75 ára gamli ævintýramaður Jean-Jacques Savin fannst í gær látinn undan ströndum Asóreyja. Í byrjun árs lagði hann af stað á sérsmíðuðum bát sem hann ætlaði að róa yfir Atlantshafið. Erlent 23.1.2022 13:58 Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu heldur áfram en viðræður um spennuna í Austur-Evrópu virðast hafa skilað litlum árangri. Yfirvöld í Bretlandi saka Rússa um að ætla sér að gera innrás í Úkraínu og koma á laggirnar ríkisstjórn sem væri hliðholl Rússlandi. Erlent 23.1.2022 11:30 Drógu látinn mann inn á pósthús til að innheimta ellilífeyri hans Lögreglan á Írlandi hefur hafið rannsókn á atviki þar sem tveir menn drógu lík látins manns inn á pósthús í þeim tilgangi að fá ellilífeyri hans greiddan út. Erlent 22.1.2022 22:08 Vilja styrkja tengsl Bandaríkjanna og Íslands Bandarískir fulltrúadeildaþingmenn hafa lagt fram frumvarp sem þeir kalla Íslandsfrumvarpið. Því er ætlað að styrkja tengsl milli Bandaríkjanna og Íslands með því að heimila sérstök atvinnulandvistarleyfi fyrir Íslendinga. Erlent 22.1.2022 18:23 Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta Íbúar borgarinnar Kharkiv, sem er sú næst stærsta í Úkraínu, vonast eftir því besta en búa sig undir það versta. Borgin er í austurhluta landsins, skammt frá landamærum Rússlands þar sem tugir þúsunda hermanna eru staddir. Erlent 22.1.2022 16:12 Færeyingar ætla að afnema allar takmarkanir Færeyska stjórnin hefur sett fram áætlun um það hvenær búast megi við afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. Stefnt er að því að öllum takmörkunum verði aflétt fyrir 1. mars. Erlent 22.1.2022 15:01 Tongverjar staðráðnir í að klára enduruppbyggingu Hjálparstarf á Tonga er að taka á sig mynd en ríkisstjórn eyjaklasans segir drykkjarvatn í forgangi. Vika er liðin frá því að stærðarinnar sprengigos olli miklum skemmdum á eyjunum svo minnst þrír dóu og tvö þorp þurrkuðust út. Erlent 22.1.2022 11:44 Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra. Erlent 22.1.2022 09:53 Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. Erlent 21.1.2022 19:09 Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó. Erlent 21.1.2022 17:01 Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. Erlent 21.1.2022 13:19 Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag. Erlent 21.1.2022 11:27 Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli. Erlent 21.1.2022 10:23 Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið. Erlent 21.1.2022 07:07 Óttast að tugir séu látnir: Flutningabíll og mótorhjól skullu saman Talið er að tugir hafi látist þegar flutningabíll sprakk í loft upp í Gana í Vestur-Afríku fyrr í dag. Í bílnum voru sprengiefni sem nota átti við námugröft. Erlent 20.1.2022 23:08 „Það er ekkert sem kallast minniháttar innrás“ Forseti Úkraínu svaraði Bandaríkjaforseta fyrr í dag og segir að það sé ekkert sem hægt sé að kalla minniháttar árás; rétt eins og það séu engin minniháttar mannaföll eða lítilsháttar hryggð vegna ástvinamissis. Erlent 20.1.2022 21:48 « ‹ 314 315 316 317 318 319 320 321 322 … 334 ›
Vill að hetjan úr Hótel Rúanda verði dæmd í lífstíðarfangelsi Saksóknari í Rúanda hefur farið fram á að dómur yfir Paul Rusesabagina, hetjunni úr kvikmyndinni Hótel Rúanda, verði þyngdur í lífstíðardóm. Rusesabagina var dæmdur í 25 ára fangelsi í september fyrir hryðjuverk. Erlent 24.1.2022 11:06
Játaði að hafa rænt fjögurra ára ástralskri stúlku Ástralskur karlmauður á fertugsaldri hefur játað að hafa rænt fjögurra ára gamalli stúlku og halda henni fanginni í átján daga síðasta haust. Erlent 24.1.2022 10:39
Gagnrýnir valdaleysið og segir af sér sem forseti Armen Sarkissian, forseti Armeníu, sagði af sér embætti gær. Hann gagnrýndi meðal annars valdaleysi embættisins og óánægju með ákvarðanir teknar í tengslum við deilur landsins og Aserbaídsjans. Erlent 24.1.2022 10:38
Danski þjóðarflokkurinn kominn með nýjan formann Danski þingmaðurinn Morten Messerschmidt var í gær kjörinn formaður Danska þjóðarflokksins (d. Dansk Folkeparti). Hann tekur við stöðunni af Kristian Thulesen Dahl sem hætti í kjölfar bágrar niðurstöðu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í nóvember. Erlent 24.1.2022 08:04
Hefja réttarhöld yfir hinum lögreglumönnunum í máli George Floyd Búist er við því að réttarhöld yfir þremur bandarískum lögreglumönnum, sem ákærðir eru fyrir að hafa svipt George Floyd borgaralegum réttindum sínum daginn sem hann var myrtur af fjórða lögreglumanninum, hefjist í dag. Erlent 24.1.2022 07:46
Stjórnvöld segja valdarán ekki yfirvofandi Skothvellir heyrðust víða í nótt í Afríkuríkinu Búrkína Fasó. Meðal annars hefur skotum verið hleypt af í grennd við forsetahöll landsins en ríkisstjórnin segir þó að valdarán sé ekki yfirvofandi. Erlent 24.1.2022 07:14
Laumufarþegi lifði af langt ferðalag í lendingarbúnaði Lögreglan í Hollandi fann í gær laumufarþega um borð í flutningaþotu frá Cargolux sem hafði flogið frá Suður-Afríku til Schiphol flugvallar í Amsterdam með millilendingu í Nairóbí í Kenýa. Erlent 24.1.2022 07:00
Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið. Erlent 24.1.2022 06:45
Banna drónaflug eftir banvæna árás Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa bannað drónaflug til afþreyingar í landinu eftir að litlir drónar voru notaðir til að sprengja þrjá olíubíla í loft upp á dögunum. Erlent 23.1.2022 22:03
Farga milljónum bóluefnaskammta þrátt fyrir lágt bólusetningarhlutfall Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að ríki heims einblíni á að tryggja ríkisborgurum sínum örvunarskammta af bóluefninu gegn Covid-19. Frekar eigi að einblína á að tryggja öllum heimsbúum grunnbólusetningu til að stemma stigu við frekari þróun veirunnar. Erlent 23.1.2022 21:56
Endalok faraldursins í Evrópu séu í nánd Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að í mars muni sex af hverjum tíu Evrópubúum hafa smitast af kórónuveirunni. Því nálgist endalok faraldurs hennar í álfunni. Erlent 23.1.2022 19:42
Harðir bardagar eftir flótta ISIS-liða Harðir bardagar hafa geisað í norðausturhluta Sýrlands eftir að fjölda ISIS-liða tókst að strjúka úr fangelsi sem sýrlenskir Kúrdar hafa rekið. Fangelsið hýsti um það bil 3.500 ISIS-liða og hefur gert lengi en meðal fanganna voru nokkrir af leiðtogum Íslamska ríkisins. Erlent 23.1.2022 17:07
Forsætisráðherrann frestaði brúðkaupinu vegna Covid-19 Jacinda Arden, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur frestað brúðkaupi sínu í aðdraganda þess að ríkisstjórn hennar herðir sóttvarnarreglur. Ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er í töluverðri dreifingu á Nýja-Sjálandi þessa dagana. Erlent 23.1.2022 15:50
Einn hamstur reyndist með Covid Einn af 77 hömstrum sem íbúar Hong Kong skiluðu til lógunar á dögunum reyndist smitaður af Covid-19. Alls hefur rúmlega tvö þúsund hömstrum verið lógað í Hong Kong á undanförnum dögum eftir að nokkrir þeirra greindust smitaðir í gæludýrabúð. Erlent 23.1.2022 14:50
Franskur ævintýramaður fannst látinn við Asóreyjar Hinn 75 ára gamli ævintýramaður Jean-Jacques Savin fannst í gær látinn undan ströndum Asóreyja. Í byrjun árs lagði hann af stað á sérsmíðuðum bát sem hann ætlaði að róa yfir Atlantshafið. Erlent 23.1.2022 13:58
Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu heldur áfram en viðræður um spennuna í Austur-Evrópu virðast hafa skilað litlum árangri. Yfirvöld í Bretlandi saka Rússa um að ætla sér að gera innrás í Úkraínu og koma á laggirnar ríkisstjórn sem væri hliðholl Rússlandi. Erlent 23.1.2022 11:30
Drógu látinn mann inn á pósthús til að innheimta ellilífeyri hans Lögreglan á Írlandi hefur hafið rannsókn á atviki þar sem tveir menn drógu lík látins manns inn á pósthús í þeim tilgangi að fá ellilífeyri hans greiddan út. Erlent 22.1.2022 22:08
Vilja styrkja tengsl Bandaríkjanna og Íslands Bandarískir fulltrúadeildaþingmenn hafa lagt fram frumvarp sem þeir kalla Íslandsfrumvarpið. Því er ætlað að styrkja tengsl milli Bandaríkjanna og Íslands með því að heimila sérstök atvinnulandvistarleyfi fyrir Íslendinga. Erlent 22.1.2022 18:23
Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta Íbúar borgarinnar Kharkiv, sem er sú næst stærsta í Úkraínu, vonast eftir því besta en búa sig undir það versta. Borgin er í austurhluta landsins, skammt frá landamærum Rússlands þar sem tugir þúsunda hermanna eru staddir. Erlent 22.1.2022 16:12
Færeyingar ætla að afnema allar takmarkanir Færeyska stjórnin hefur sett fram áætlun um það hvenær búast megi við afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. Stefnt er að því að öllum takmörkunum verði aflétt fyrir 1. mars. Erlent 22.1.2022 15:01
Tongverjar staðráðnir í að klára enduruppbyggingu Hjálparstarf á Tonga er að taka á sig mynd en ríkisstjórn eyjaklasans segir drykkjarvatn í forgangi. Vika er liðin frá því að stærðarinnar sprengigos olli miklum skemmdum á eyjunum svo minnst þrír dóu og tvö þorp þurrkuðust út. Erlent 22.1.2022 11:44
Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra. Erlent 22.1.2022 09:53
Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. Erlent 21.1.2022 19:09
Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó. Erlent 21.1.2022 17:01
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. Erlent 21.1.2022 13:19
Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag. Erlent 21.1.2022 11:27
Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli. Erlent 21.1.2022 10:23
Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið. Erlent 21.1.2022 07:07
Óttast að tugir séu látnir: Flutningabíll og mótorhjól skullu saman Talið er að tugir hafi látist þegar flutningabíll sprakk í loft upp í Gana í Vestur-Afríku fyrr í dag. Í bílnum voru sprengiefni sem nota átti við námugröft. Erlent 20.1.2022 23:08
„Það er ekkert sem kallast minniháttar innrás“ Forseti Úkraínu svaraði Bandaríkjaforseta fyrr í dag og segir að það sé ekkert sem hægt sé að kalla minniháttar árás; rétt eins og það séu engin minniháttar mannaföll eða lítilsháttar hryggð vegna ástvinamissis. Erlent 20.1.2022 21:48