Erlent Vaktin: Von á hertum refsiaðgerðum síðar í vikunni Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur ítrekað ákall sitt eftir viðræðum við Vladimir Pútín Rússlandsforseta, sem hann segir lykilinn að því að binda enda á stríðið. Fulltrúar Rússlands segja samningaviðræður ekki enn komnar á það stig. Erlent 22.3.2022 14:00 Fangelsisvistin lengd um níu ár og Navalní færður í hámarksöryggisfangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi og verður færður í hámarksöryggisfangelsi. Hann var í morgun dæmdur sekur um stórfellt fjármálamisferli í tengslum við samtök hans gegn spillingu í Rússlandi sem yfirvöld hafa skilgreint sem öfgasamtök. Erlent 22.3.2022 13:10 Sjá engin ummerki um undiröldu gegn Pútín Vladimír Pútin, forseti Rússlands, getur enn reitt sig á hollustu hinnar pólitísku elítu í Rússlandi. Það er þrátt fyrir fordæmalausar refsiaðgerðir vegna innrásar Rússa í Úkraínu og að innrásin hafi verið fordæmd um mest allan heim. Erlent 22.3.2022 11:59 Leita að flugritum MU5735 í skógi vöxnu fjalllendi Viðbragðsaðilar hafa verið að í um sólarhring við að leita að líkum þeirra sem fórust í flugslysi í suðurhluta Kína í gærmorgun. Óvíst er hvað olli slysinu og er flugritanna enn leitað. Erlent 22.3.2022 09:49 Var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning barst Átján ára nemandinn, sem banaði tveimur konum í framhaldsskóla í sænsku borginni Malmö síðdegis í gær, var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning um árásina barst lögreglu. Erlent 22.3.2022 09:16 Navalní fundinn sekur um fjármálamisferli Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní, einn helsti gagnrýnandi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, var í morgun fundinn sekur um stórfellt fjármálamisferli. Erlent 22.3.2022 08:00 Búa sig undir mikið óveður Íbúar í Louisiana, Mississippi og Alabama í Bandaríkjunum hafa verið varaðir við miklu óveðri sem er að skella á ríkin eftir að hafa skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Texas. Óttast er að sterkir skýstrokkar myndist víða. Erlent 22.3.2022 07:21 Biden segir Pútín „kominn út í horn“ og hann íhugi notkun efnavopna Falskar ásakanir Rússa um að Úkraína hafi verið að þróa og búi að lífefna- og efnavopnum er „augljóst merki“ um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hyggist beita slíkum vopnum. Erlent 22.3.2022 06:30 Tvær konur látnar og átján ára nemandi handtekinn Lögreglan í Malmö segir tvær konur hafa látist í árás við framhaldsskóla fyrr í dag. Konurnar voru fluttar á sjúkrahús um klukkutíma eftir að lögregla fékk tilkynningu um málið en voru úrskurðaðar látnar í kjölfarið. Konurnar sem létust voru starfsmenn við skólann að sögn lögreglu. Erlent 21.3.2022 22:44 Einn handtekinn en ekki ljóst hvað átti sér stað Lögregla var með töluverðan viðbúnað við framhaldsskóla í Malmö í dag þar sem talið var að fjöldi nemenda hafi slasast. Að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT liggur ekki fyrir hvað átti sér stað við skólann. Aftonbladet hefur það eftir heimildum sínum að ungur maður vopnaður exi og hníf hafi verið að verki en lögregla hefur ekki gefið neitt út. Erlent 21.3.2022 17:50 Lýsir svakalegri sprengingu um fimmleytið Úkraínumenn höfnuðu í morgun kröfu Rússa um að leggja niður vopn í Mariupól og láta borgina af hendi. Minnst sex eru sagðir hafa látist í árás Rússa á verslunarmiðstöð í Kænugarði í nótt, þar sem útgöngubanni verður komið á í kvöld. Íslendingur í Kænugarði segir borgarbúa enn þá fulla baráttuanda, þrátt fyrir nær linnulausar sprengingar. Erlent 21.3.2022 13:00 Segja Rússa ætla að svelta Úkraínumenn til hlýðni Jack Watling, sérfræðingur hjá hugveitunni Royal United Services Institute í Lundúnum, segir átökin í Úkraínu vera að færast í annan fasa. Rússar muni einbeita sér að einni borg í einu og freista þess að svelta Úkraínumenn til hlýðni. Erlent 21.3.2022 11:01 Boeing 737-800 flugvélin hrapaði úr 30 þúsund feta hæð á tveimur mínútum Flugvél með 133 manns um borð hefur hrapað í Kína. AFP segir frá þessu, en óvíst er á þessari stundu um manntjón. Erlent 21.3.2022 08:31 Vaktin: Segjast hafa sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa „Það er ekki til umræðu að gefast upp, að leggja niður vopn. Við höfum þegar greint Rússum frá þessu. Í stað þess að eyða tíma í átta blaðsíðna bréfasendingar, opnið bara leið úr borginni.“ Erlent 21.3.2022 06:33 Hóta að draga þá sem ekki gefast upp í Maríupól fyrir herdómstól Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í kvöld út yfirlýsingu þar sem verjendum Maríupól var gert að leggja niður vopn og yfirgefa borgina. Þeir sem geri það ekki verði dregnir fyrir herdómstól í Rússlandi. Erlent 20.3.2022 23:53 „Ég vona að enginn muni nokkurn tímann sjá það sem ég sá“ Aðalræðismaður Grikklands í Úkraínu varð síðasti erindreki á vegum landa Evrópusambandsins til þess að yfirgefa Maríupól, úkraínsku borgina sem Rússaher situr nú um og hefur komið hvað verst út úr átökunum í landinu. Hann segist vona að enginn verði vitni að jafn miklum hryllingi og hann fékk þar að kynnast. Erlent 20.3.2022 23:31 Er Roman Abramovich portúgalskur gyðingur? Portúgölsk stjórnvöld rannsaka hvernig á því stendur að rússneska auðjöfrinum Roman Abramovich var veittur portúgalskur ríkisborgararéttur í fyrra. Rabbíni gyðinga í Porto hefur verið handtekinn vegna málsins. Erlent 20.3.2022 16:31 Vaktin: Krefjast uppgjafar Maríupól Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir umsátur Rússa um Maríupól og árásir þeirra á borgina „hrylling sem verður minnst um ókomnar aldir“. Rússar hafa lagt til flóttaleiðir frá borginni á morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 20.3.2022 16:30 Ungt fólk streymir frá Rússlandi Ungt fólk streymir frá Rússlandi í tuga þúsunda tali. Stór hluti þessa hóps er menntaður og hefur unnið í tæknigeira Rússlands. Mörg þeirra hafa farið til Armeníu. Erlent 20.3.2022 15:44 Ekki rannsakað sem hryðjuverk Sex eru látnir og tíu slasaðir eftir að bíl var ekið inn í hóp gangandi vegfarenda í La Louvière í Belgíu í morgun. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Erlent 20.3.2022 14:07 Segja Úkraínumenn hafa stöðvað Rússa Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað sókn Rússa og er útlit fyrir langvarandi átök sem einkennast af þrátefli með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu. Erlent 20.3.2022 12:03 Segja hundruð þúsunda föst í Mariupol þar sem lík hrannist upp á götum úti Björgunaraðgerðir í úkraínsku borginni Mariupol, í suðurhluta landsins, hafa gengið afar erfiðlega vegna stöðugra átaka víðsvegar um borgina. Talið er að um 300.000 manns séu föst í borginni, sem Rússar sitja um. Erlent 19.3.2022 23:31 Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður. Erlent 19.3.2022 17:01 Appelsínugulur Spánn: Mesta loftmengun á jörðinni Það eru víðar appelsínugular viðvaranir en hér á Íslandi þessi dægrin. Á austurströnd Spánar hefur fólk verið varað við að vera mikið á ferli utandyra í liðinni viku, af því að himinninn er bókstaflega appelsínugulur og loftgæðin eru talin hættuleg. Ástæðan er rauðleitur sandur frá Afríku sem þyrlast inn yfir strendur Spánar. Erlent 19.3.2022 16:30 Vaktin: Pútín sagður búinn að sætta sig við að geta ekki velt Selenskí úr sessi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum. Úkraínumenn hafa ítrekað að forgangskröfur þeirra séu varanlegt vopnahlé og brotthvarf Rússa frá Úkraínu. Erlent 19.3.2022 16:20 Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi. Erlent 19.3.2022 13:41 Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug í fyrsta sinn í átökum Rússar segjast hafa skotið ofurhljóðfrárri eldflaug á vopnageymslu í vesturhluta Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar segjast hafa notað slíkt vopn í átökum en eldflaugar þessar eru hannaðar til að ferðast á margföldum hljóðhraða og komast hjá eldflaugavörnum. Erlent 19.3.2022 09:29 Fjórir látnir eftir að herþyrla hrapaði í NATO-æfingu Fjórir bandarískir hermenn létust þegar bandarísk herþyrla sem tók þátt í NATO-æfingunni Cold Response hrapaði í Norðurlandi í Noregi í gær. Erlent 19.3.2022 08:58 „Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum, án tafar. „Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala. Það er kominn tími til að endurheimta landyfirráð Úkraínu og réttlæti henni til handa.“ Erlent 19.3.2022 07:07 Einkaþota óligarka á meðal hátt í hundrað kyrrsettra véla Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kyrrsett hátt í hundrað flugvélar með tengsl við Rússland. Þeirra á meðal er flugvél í eigu óligarkans og milljarðamæringsins Rómans Abramóvítsj. Erlent 18.3.2022 23:31 « ‹ 296 297 298 299 300 301 302 303 304 … 334 ›
Vaktin: Von á hertum refsiaðgerðum síðar í vikunni Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur ítrekað ákall sitt eftir viðræðum við Vladimir Pútín Rússlandsforseta, sem hann segir lykilinn að því að binda enda á stríðið. Fulltrúar Rússlands segja samningaviðræður ekki enn komnar á það stig. Erlent 22.3.2022 14:00
Fangelsisvistin lengd um níu ár og Navalní færður í hámarksöryggisfangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi og verður færður í hámarksöryggisfangelsi. Hann var í morgun dæmdur sekur um stórfellt fjármálamisferli í tengslum við samtök hans gegn spillingu í Rússlandi sem yfirvöld hafa skilgreint sem öfgasamtök. Erlent 22.3.2022 13:10
Sjá engin ummerki um undiröldu gegn Pútín Vladimír Pútin, forseti Rússlands, getur enn reitt sig á hollustu hinnar pólitísku elítu í Rússlandi. Það er þrátt fyrir fordæmalausar refsiaðgerðir vegna innrásar Rússa í Úkraínu og að innrásin hafi verið fordæmd um mest allan heim. Erlent 22.3.2022 11:59
Leita að flugritum MU5735 í skógi vöxnu fjalllendi Viðbragðsaðilar hafa verið að í um sólarhring við að leita að líkum þeirra sem fórust í flugslysi í suðurhluta Kína í gærmorgun. Óvíst er hvað olli slysinu og er flugritanna enn leitað. Erlent 22.3.2022 09:49
Var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning barst Átján ára nemandinn, sem banaði tveimur konum í framhaldsskóla í sænsku borginni Malmö síðdegis í gær, var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning um árásina barst lögreglu. Erlent 22.3.2022 09:16
Navalní fundinn sekur um fjármálamisferli Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní, einn helsti gagnrýnandi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, var í morgun fundinn sekur um stórfellt fjármálamisferli. Erlent 22.3.2022 08:00
Búa sig undir mikið óveður Íbúar í Louisiana, Mississippi og Alabama í Bandaríkjunum hafa verið varaðir við miklu óveðri sem er að skella á ríkin eftir að hafa skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Texas. Óttast er að sterkir skýstrokkar myndist víða. Erlent 22.3.2022 07:21
Biden segir Pútín „kominn út í horn“ og hann íhugi notkun efnavopna Falskar ásakanir Rússa um að Úkraína hafi verið að þróa og búi að lífefna- og efnavopnum er „augljóst merki“ um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hyggist beita slíkum vopnum. Erlent 22.3.2022 06:30
Tvær konur látnar og átján ára nemandi handtekinn Lögreglan í Malmö segir tvær konur hafa látist í árás við framhaldsskóla fyrr í dag. Konurnar voru fluttar á sjúkrahús um klukkutíma eftir að lögregla fékk tilkynningu um málið en voru úrskurðaðar látnar í kjölfarið. Konurnar sem létust voru starfsmenn við skólann að sögn lögreglu. Erlent 21.3.2022 22:44
Einn handtekinn en ekki ljóst hvað átti sér stað Lögregla var með töluverðan viðbúnað við framhaldsskóla í Malmö í dag þar sem talið var að fjöldi nemenda hafi slasast. Að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT liggur ekki fyrir hvað átti sér stað við skólann. Aftonbladet hefur það eftir heimildum sínum að ungur maður vopnaður exi og hníf hafi verið að verki en lögregla hefur ekki gefið neitt út. Erlent 21.3.2022 17:50
Lýsir svakalegri sprengingu um fimmleytið Úkraínumenn höfnuðu í morgun kröfu Rússa um að leggja niður vopn í Mariupól og láta borgina af hendi. Minnst sex eru sagðir hafa látist í árás Rússa á verslunarmiðstöð í Kænugarði í nótt, þar sem útgöngubanni verður komið á í kvöld. Íslendingur í Kænugarði segir borgarbúa enn þá fulla baráttuanda, þrátt fyrir nær linnulausar sprengingar. Erlent 21.3.2022 13:00
Segja Rússa ætla að svelta Úkraínumenn til hlýðni Jack Watling, sérfræðingur hjá hugveitunni Royal United Services Institute í Lundúnum, segir átökin í Úkraínu vera að færast í annan fasa. Rússar muni einbeita sér að einni borg í einu og freista þess að svelta Úkraínumenn til hlýðni. Erlent 21.3.2022 11:01
Boeing 737-800 flugvélin hrapaði úr 30 þúsund feta hæð á tveimur mínútum Flugvél með 133 manns um borð hefur hrapað í Kína. AFP segir frá þessu, en óvíst er á þessari stundu um manntjón. Erlent 21.3.2022 08:31
Vaktin: Segjast hafa sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa „Það er ekki til umræðu að gefast upp, að leggja niður vopn. Við höfum þegar greint Rússum frá þessu. Í stað þess að eyða tíma í átta blaðsíðna bréfasendingar, opnið bara leið úr borginni.“ Erlent 21.3.2022 06:33
Hóta að draga þá sem ekki gefast upp í Maríupól fyrir herdómstól Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í kvöld út yfirlýsingu þar sem verjendum Maríupól var gert að leggja niður vopn og yfirgefa borgina. Þeir sem geri það ekki verði dregnir fyrir herdómstól í Rússlandi. Erlent 20.3.2022 23:53
„Ég vona að enginn muni nokkurn tímann sjá það sem ég sá“ Aðalræðismaður Grikklands í Úkraínu varð síðasti erindreki á vegum landa Evrópusambandsins til þess að yfirgefa Maríupól, úkraínsku borgina sem Rússaher situr nú um og hefur komið hvað verst út úr átökunum í landinu. Hann segist vona að enginn verði vitni að jafn miklum hryllingi og hann fékk þar að kynnast. Erlent 20.3.2022 23:31
Er Roman Abramovich portúgalskur gyðingur? Portúgölsk stjórnvöld rannsaka hvernig á því stendur að rússneska auðjöfrinum Roman Abramovich var veittur portúgalskur ríkisborgararéttur í fyrra. Rabbíni gyðinga í Porto hefur verið handtekinn vegna málsins. Erlent 20.3.2022 16:31
Vaktin: Krefjast uppgjafar Maríupól Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir umsátur Rússa um Maríupól og árásir þeirra á borgina „hrylling sem verður minnst um ókomnar aldir“. Rússar hafa lagt til flóttaleiðir frá borginni á morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 20.3.2022 16:30
Ungt fólk streymir frá Rússlandi Ungt fólk streymir frá Rússlandi í tuga þúsunda tali. Stór hluti þessa hóps er menntaður og hefur unnið í tæknigeira Rússlands. Mörg þeirra hafa farið til Armeníu. Erlent 20.3.2022 15:44
Ekki rannsakað sem hryðjuverk Sex eru látnir og tíu slasaðir eftir að bíl var ekið inn í hóp gangandi vegfarenda í La Louvière í Belgíu í morgun. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Erlent 20.3.2022 14:07
Segja Úkraínumenn hafa stöðvað Rússa Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað sókn Rússa og er útlit fyrir langvarandi átök sem einkennast af þrátefli með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu. Erlent 20.3.2022 12:03
Segja hundruð þúsunda föst í Mariupol þar sem lík hrannist upp á götum úti Björgunaraðgerðir í úkraínsku borginni Mariupol, í suðurhluta landsins, hafa gengið afar erfiðlega vegna stöðugra átaka víðsvegar um borgina. Talið er að um 300.000 manns séu föst í borginni, sem Rússar sitja um. Erlent 19.3.2022 23:31
Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður. Erlent 19.3.2022 17:01
Appelsínugulur Spánn: Mesta loftmengun á jörðinni Það eru víðar appelsínugular viðvaranir en hér á Íslandi þessi dægrin. Á austurströnd Spánar hefur fólk verið varað við að vera mikið á ferli utandyra í liðinni viku, af því að himinninn er bókstaflega appelsínugulur og loftgæðin eru talin hættuleg. Ástæðan er rauðleitur sandur frá Afríku sem þyrlast inn yfir strendur Spánar. Erlent 19.3.2022 16:30
Vaktin: Pútín sagður búinn að sætta sig við að geta ekki velt Selenskí úr sessi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum. Úkraínumenn hafa ítrekað að forgangskröfur þeirra séu varanlegt vopnahlé og brotthvarf Rússa frá Úkraínu. Erlent 19.3.2022 16:20
Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi. Erlent 19.3.2022 13:41
Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug í fyrsta sinn í átökum Rússar segjast hafa skotið ofurhljóðfrárri eldflaug á vopnageymslu í vesturhluta Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar segjast hafa notað slíkt vopn í átökum en eldflaugar þessar eru hannaðar til að ferðast á margföldum hljóðhraða og komast hjá eldflaugavörnum. Erlent 19.3.2022 09:29
Fjórir látnir eftir að herþyrla hrapaði í NATO-æfingu Fjórir bandarískir hermenn létust þegar bandarísk herþyrla sem tók þátt í NATO-æfingunni Cold Response hrapaði í Norðurlandi í Noregi í gær. Erlent 19.3.2022 08:58
„Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum, án tafar. „Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala. Það er kominn tími til að endurheimta landyfirráð Úkraínu og réttlæti henni til handa.“ Erlent 19.3.2022 07:07
Einkaþota óligarka á meðal hátt í hundrað kyrrsettra véla Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kyrrsett hátt í hundrað flugvélar með tengsl við Rússland. Þeirra á meðal er flugvél í eigu óligarkans og milljarðamæringsins Rómans Abramóvítsj. Erlent 18.3.2022 23:31