Erlent Bosnía fær stöðu umsóknarríkis hjá ESB Bosnía hefur fengið formlega stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu. Þetta staðfestir Oliver Varhelyi, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá ESB í dag. Erlent 12.10.2022 13:19 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Þagga niður í óánægjuröddum með árásum á óbreytta borgara Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu síðustu daga, eða síðan Úkraínumenn náðu töluverðum og hröðum árangri í bæði suðurhluta og austurhluta landsins. Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað víðsvegar í landinu þar sem Rússar eru sagðir hafa gert gagnárás gegn Úkraínumönnum í austri og Úkraínumenn eru sagðir hafa frelsað nokkur þorp í Kherson-héraði. Erlent 12.10.2022 11:36 Fær tvo daga til viðbótar til að sauma saman nýja stjórn Forseti sænska þingsins hefur veitt Ulf Kristersson, formanni hægriflokksins Moderaterna, tveggja daga frest til að setja saman ríkisstjórn borgaralegra flokka. Tveggja vikna frestur, sem þingsforsetinn Andreas Norlén veitti Kristersson til stjórnarmyndunar í síðasta mánuði, rann út í dag. Erlent 12.10.2022 10:36 Forseti Perú ákærður fyrir spillingu Saksóknari í Perú hefur ákært forseta landsins, Pedro Castillo, fyrir spillingu. Samkvæmt ákærunni á forsetinn að tilheyra glæpasamtökum, en forsetinn sjálfur neitar sök í málinu. Erlent 12.10.2022 09:05 Adnan Syed hreinsaður af sök Hinn bandaríski Adnan Syed, sem hefur setið í fangelsi í 23 ár fyrir á morðið á fyrrverandi kærustu sinni, hefur verið hreinsaður af sök. Mál Syeds vakti heimsathygli í rannsóknarhlaðvarpinu Serial, sem kom út fyrir átta árum síðan. Erlent 12.10.2022 08:00 Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka. Erlent 12.10.2022 07:12 Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið. Erlent 12.10.2022 06:48 NASA tókst að stýra smástirni af braut en það kostaði 47 milljarða króna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur tilkynnt að tilraun á nýrri aðferð þeirra til þess að afstýra smástirnum sem séu á leið til Jarðar hafi tekist. Stofnunin framkvæmdi tilraunina sjálfa fyrir um tveimur vikum síðan og kostaði hún 325 milljónir Bandaríkjadala eða 47,5 milljarða króna. Erlent 11.10.2022 21:09 Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. Erlent 11.10.2022 19:46 Karl III verði krýndur næsta vor Karl III Bretlandskonungur verður krýndur þann 6. maí næstkomandi. Hann hefur sinnt embætti konungs frá andláti móður sinnar Elísabetar II Bretlandsdrottningar í september síðastliðnum. Erlent 11.10.2022 17:57 Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. Erlent 11.10.2022 13:59 Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins. Erlent 11.10.2022 13:01 Úkraínuforseti segir árásir Rússa sameina þjóðina Forseti Úkraínu segir að Rússum muni ekki takast að hræða Úkraínumenn til undirgefni með eldflaugaárásum á saklausan almenning og innviði samfélagsins. Árásirnar herði andstöðuna við innrás Rússa og sameini þjóðina enn frekar. Erlent 11.10.2022 11:22 Sögulegar sættir í landamæradeilu Ísraels og Líbanons Yair Lapid, forsætisráðherra Ísraels, segir að sögulegt samkomulag hafi náðst við Líbanon sem bindur enda á áratugalangar deilur ríkjanna um markalínur á sjó á milli nágrannaríkjanna tveggja. Ríkin hafa verið svarnir óvinir um árabil. Erlent 11.10.2022 10:52 Telja sig geta varist flugskeytum frá nágrönnum sínum Suðurkóreski herinn fullyrðir að hann sé fær um að koma auga á og stöðva flugskeyti sem Norðurkóreumenn hafa gert tilraunir með upp á síðkastið. Alvarleg hætta stafi engu að síður af kjarnorkubrölti nágrannanna í norðri. Erlent 11.10.2022 08:40 Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur. Erlent 11.10.2022 08:38 Tugir látnir eftir aurskriður í Venesúela Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 36 hafa fundist látnir og að 56 sé enn saknað eftir að aurskriður skullu á hús í bænum Las Tejerías. Erlent 11.10.2022 08:35 Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester. Erlent 11.10.2022 08:16 Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. Erlent 11.10.2022 07:49 Minnst fimmtán sprengjur féllu í Zaporizhzhia í nótt Minnst fimmtán sprengjur féllu í borginni Zaporizhzhia í suðurhluta Úkraínu í nótt. Að sögn varautanríkisráðherra landsins var sprengjunum beint að íbúðabyggingum, menntastofnunum og sjúkrahúsum. Erlent 11.10.2022 06:33 Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. Erlent 10.10.2022 22:23 Bandaríkjamenn aðstoða Úkraínu við loftvarnir Bandaríkjaforseti fordæmir eldflaugaárásir Rússa sem fram fóru í dag. Bandaríkjamenn halda áfram stuðningi og hyggjast gefa Úkraínumönnum háþróuð loftvarnarkerfi. Erlent 10.10.2022 21:33 Vesturlönd þurfi að bregðast við: „Það er strategískt verið að ráðast á saklausa borgara“ Utanríkisráðherra segir árásir Rússa á úkraínskar borgir í morgun skýrt dæmi um að átökin séu að stigmagnast. Ljóst sé að Rússar hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum á almenna borgara. Vesturlöndin þurfi að bregðast við en fórnarkostnaður þeirra sé sáralítill í samanburði við það sem úkraínska þjóðin sé að ganga í gegnum. Erlent 10.10.2022 21:16 Evrópusambandið framlengir vernd yfir Úkraínumönnum á flótta Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen lýsti fyrr í dag yfir andúð sinni vegna sprenginga Rússa í Úkraínu í morgun. Framkvæmdastjórnin hefur nú búið til gagnagrunn sem gerir þeim sem eru á flótta vegna stríðsins aukinn möguleika á því að finna sér vinnu. Einnig verði vernd yfir Úkraínumönnum á flótta endurnýjuð til ársins 2024. Erlent 10.10.2022 16:32 Fjölskylda Amini fær líflátshótanir Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini. Erlent 10.10.2022 16:01 Alþjóðasamfélagið lýsir yfir andúð sinni og segir árásina stríðsglæp Að minnsta kosti 11 eru látin og 64 særð eftir sprengingar Rússa í Úkraínu nú í morgun. Vladímír Pútín forseti Rússlands segir árásunum hafa verið beint að innviðum Úkraínu en það hafi verið gert til að svara sprengingar við Kertsj-brúna. Alþjóðasamfélagið hefur kallað aðgerðirnar stríðsglæp. Erlent 10.10.2022 14:55 Pútín og Selenskí saka hvor annan um hryðjuverk á víxl Sprengingar skóku Kænugarð og fleiri borgir í Úkraínu í morgun þar sem Rússar svöruðu fyrir árásina á Kerch brúna um helgina. Vólódimír Selenskí og Vladimír Putín saka hvor annan um hryðjuverk á víxl en Evrópusambandið hefur fordæmt árásirnar og leiðtogar G7 ríkjanna funda með Selenskí á morgun. Erlent 10.10.2022 12:39 Réttað yfir Weinstein vegna Óskarsmála Byrjað verður að velja kviðdómendur fyrir réttarhöld yfir Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandanum alræmda, í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Weinstein er ákærður fyrir að brjóta á fimm konum, meðal annars í kringum Óskarsverðlaunahátíð fyrir níu árum. Erlent 10.10.2022 11:20 Æfðu notkun kjarnavopna til að „gereyða“ óvinunum Stjórnvöld í Pjongjang í Norður-Kóreu staðfesta að nýlegar eldflaugatilraunir þeirra hafi verið æfing í notkun skammdrægra kjarnavopna gegn suður-kóreskum og bandarískum skotmörkum. Kim Jong-un, einræðisherra landsins, boðar frekari slíkar tilraunir. Erlent 10.10.2022 10:35 Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu. Erlent 10.10.2022 09:04 « ‹ 216 217 218 219 220 221 222 223 224 … 334 ›
Bosnía fær stöðu umsóknarríkis hjá ESB Bosnía hefur fengið formlega stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu. Þetta staðfestir Oliver Varhelyi, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá ESB í dag. Erlent 12.10.2022 13:19
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Þagga niður í óánægjuröddum með árásum á óbreytta borgara Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu síðustu daga, eða síðan Úkraínumenn náðu töluverðum og hröðum árangri í bæði suðurhluta og austurhluta landsins. Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað víðsvegar í landinu þar sem Rússar eru sagðir hafa gert gagnárás gegn Úkraínumönnum í austri og Úkraínumenn eru sagðir hafa frelsað nokkur þorp í Kherson-héraði. Erlent 12.10.2022 11:36
Fær tvo daga til viðbótar til að sauma saman nýja stjórn Forseti sænska þingsins hefur veitt Ulf Kristersson, formanni hægriflokksins Moderaterna, tveggja daga frest til að setja saman ríkisstjórn borgaralegra flokka. Tveggja vikna frestur, sem þingsforsetinn Andreas Norlén veitti Kristersson til stjórnarmyndunar í síðasta mánuði, rann út í dag. Erlent 12.10.2022 10:36
Forseti Perú ákærður fyrir spillingu Saksóknari í Perú hefur ákært forseta landsins, Pedro Castillo, fyrir spillingu. Samkvæmt ákærunni á forsetinn að tilheyra glæpasamtökum, en forsetinn sjálfur neitar sök í málinu. Erlent 12.10.2022 09:05
Adnan Syed hreinsaður af sök Hinn bandaríski Adnan Syed, sem hefur setið í fangelsi í 23 ár fyrir á morðið á fyrrverandi kærustu sinni, hefur verið hreinsaður af sök. Mál Syeds vakti heimsathygli í rannsóknarhlaðvarpinu Serial, sem kom út fyrir átta árum síðan. Erlent 12.10.2022 08:00
Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka. Erlent 12.10.2022 07:12
Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið. Erlent 12.10.2022 06:48
NASA tókst að stýra smástirni af braut en það kostaði 47 milljarða króna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur tilkynnt að tilraun á nýrri aðferð þeirra til þess að afstýra smástirnum sem séu á leið til Jarðar hafi tekist. Stofnunin framkvæmdi tilraunina sjálfa fyrir um tveimur vikum síðan og kostaði hún 325 milljónir Bandaríkjadala eða 47,5 milljarða króna. Erlent 11.10.2022 21:09
Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. Erlent 11.10.2022 19:46
Karl III verði krýndur næsta vor Karl III Bretlandskonungur verður krýndur þann 6. maí næstkomandi. Hann hefur sinnt embætti konungs frá andláti móður sinnar Elísabetar II Bretlandsdrottningar í september síðastliðnum. Erlent 11.10.2022 17:57
Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. Erlent 11.10.2022 13:59
Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins. Erlent 11.10.2022 13:01
Úkraínuforseti segir árásir Rússa sameina þjóðina Forseti Úkraínu segir að Rússum muni ekki takast að hræða Úkraínumenn til undirgefni með eldflaugaárásum á saklausan almenning og innviði samfélagsins. Árásirnar herði andstöðuna við innrás Rússa og sameini þjóðina enn frekar. Erlent 11.10.2022 11:22
Sögulegar sættir í landamæradeilu Ísraels og Líbanons Yair Lapid, forsætisráðherra Ísraels, segir að sögulegt samkomulag hafi náðst við Líbanon sem bindur enda á áratugalangar deilur ríkjanna um markalínur á sjó á milli nágrannaríkjanna tveggja. Ríkin hafa verið svarnir óvinir um árabil. Erlent 11.10.2022 10:52
Telja sig geta varist flugskeytum frá nágrönnum sínum Suðurkóreski herinn fullyrðir að hann sé fær um að koma auga á og stöðva flugskeyti sem Norðurkóreumenn hafa gert tilraunir með upp á síðkastið. Alvarleg hætta stafi engu að síður af kjarnorkubrölti nágrannanna í norðri. Erlent 11.10.2022 08:40
Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur. Erlent 11.10.2022 08:38
Tugir látnir eftir aurskriður í Venesúela Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 36 hafa fundist látnir og að 56 sé enn saknað eftir að aurskriður skullu á hús í bænum Las Tejerías. Erlent 11.10.2022 08:35
Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester. Erlent 11.10.2022 08:16
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. Erlent 11.10.2022 07:49
Minnst fimmtán sprengjur féllu í Zaporizhzhia í nótt Minnst fimmtán sprengjur féllu í borginni Zaporizhzhia í suðurhluta Úkraínu í nótt. Að sögn varautanríkisráðherra landsins var sprengjunum beint að íbúðabyggingum, menntastofnunum og sjúkrahúsum. Erlent 11.10.2022 06:33
Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. Erlent 10.10.2022 22:23
Bandaríkjamenn aðstoða Úkraínu við loftvarnir Bandaríkjaforseti fordæmir eldflaugaárásir Rússa sem fram fóru í dag. Bandaríkjamenn halda áfram stuðningi og hyggjast gefa Úkraínumönnum háþróuð loftvarnarkerfi. Erlent 10.10.2022 21:33
Vesturlönd þurfi að bregðast við: „Það er strategískt verið að ráðast á saklausa borgara“ Utanríkisráðherra segir árásir Rússa á úkraínskar borgir í morgun skýrt dæmi um að átökin séu að stigmagnast. Ljóst sé að Rússar hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum á almenna borgara. Vesturlöndin þurfi að bregðast við en fórnarkostnaður þeirra sé sáralítill í samanburði við það sem úkraínska þjóðin sé að ganga í gegnum. Erlent 10.10.2022 21:16
Evrópusambandið framlengir vernd yfir Úkraínumönnum á flótta Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen lýsti fyrr í dag yfir andúð sinni vegna sprenginga Rússa í Úkraínu í morgun. Framkvæmdastjórnin hefur nú búið til gagnagrunn sem gerir þeim sem eru á flótta vegna stríðsins aukinn möguleika á því að finna sér vinnu. Einnig verði vernd yfir Úkraínumönnum á flótta endurnýjuð til ársins 2024. Erlent 10.10.2022 16:32
Fjölskylda Amini fær líflátshótanir Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini. Erlent 10.10.2022 16:01
Alþjóðasamfélagið lýsir yfir andúð sinni og segir árásina stríðsglæp Að minnsta kosti 11 eru látin og 64 særð eftir sprengingar Rússa í Úkraínu nú í morgun. Vladímír Pútín forseti Rússlands segir árásunum hafa verið beint að innviðum Úkraínu en það hafi verið gert til að svara sprengingar við Kertsj-brúna. Alþjóðasamfélagið hefur kallað aðgerðirnar stríðsglæp. Erlent 10.10.2022 14:55
Pútín og Selenskí saka hvor annan um hryðjuverk á víxl Sprengingar skóku Kænugarð og fleiri borgir í Úkraínu í morgun þar sem Rússar svöruðu fyrir árásina á Kerch brúna um helgina. Vólódimír Selenskí og Vladimír Putín saka hvor annan um hryðjuverk á víxl en Evrópusambandið hefur fordæmt árásirnar og leiðtogar G7 ríkjanna funda með Selenskí á morgun. Erlent 10.10.2022 12:39
Réttað yfir Weinstein vegna Óskarsmála Byrjað verður að velja kviðdómendur fyrir réttarhöld yfir Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandanum alræmda, í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Weinstein er ákærður fyrir að brjóta á fimm konum, meðal annars í kringum Óskarsverðlaunahátíð fyrir níu árum. Erlent 10.10.2022 11:20
Æfðu notkun kjarnavopna til að „gereyða“ óvinunum Stjórnvöld í Pjongjang í Norður-Kóreu staðfesta að nýlegar eldflaugatilraunir þeirra hafi verið æfing í notkun skammdrægra kjarnavopna gegn suður-kóreskum og bandarískum skotmörkum. Kim Jong-un, einræðisherra landsins, boðar frekari slíkar tilraunir. Erlent 10.10.2022 10:35
Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu. Erlent 10.10.2022 09:04