Fréttir Með mörg þúsund evrur af illa fengnu fé Kona hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir peningaþvætti. Innlent 23.9.2024 15:57 Íslendingur í Ísrael óskaði eftir aðstoð utanríkisráðuneytisins Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hefur nýlega borist ein beiðni um aðstoð frá íslenskum ríkisborgara í Ísrael. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa íslensk stjórnvöld áhyggjur af stigmögnun átaka á svæðinu og hvetja til stillingar. Innlent 23.9.2024 15:56 Brotist inn í tvær verslanir sömu nóttina Brotist var inn í verslanir Elko í Lindum og Skeifunni í nótt og farsímum stolið. Unnið er að því að komast að fjölda þeirra síma sem voru teknir, og að gera þá óvirka. Framkvæmdastjórinn segir engan símaskort í uppsiglingu þrátt fyrir innbrotið. Innlent 23.9.2024 15:39 Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst. Innlent 23.9.2024 15:05 Vetrarfærð á fjallvegum norðaustanlands Það mun ganga í strekkings norðlæga átt í nótt og fer að snjóa á fjallvegum um norðaustanvert landið eftir hádegi á morgun. Innlent 23.9.2024 14:26 Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Karlmaður sem var handtekinn við golfvöll Donalds Trump fyrr í þessum mánuði skrifaði skilaboð til vinar síns um að hann ætlaði sér að myrða fyrrverandi forsetann. Þá hélt hann lista yfir viðburði þar sem Trump yrði viðstaddur. Erlent 23.9.2024 14:18 Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Fimm konur sem starfa eða starfað hafa hjá Icelandair segjast hafa verið beittar ofbeldi af hálfu samstarfsmanns þeirra hjá félaginu. Ein þeirra hefur lagt fram kæru á hendur manninum, Sóloni Guðmundssyni, fyrir nauðgun. Innlent 23.9.2024 13:11 Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, ásamt lögreglumanni af Vestfjörðum, kanna nú hvort hvítabirni sé að finna í Jökulfjörðum eða á Hornströndum. Engar vísbendingar eru um að fleiri dýr en það sem fellt var fyrir helgi hafi komið til landsins, en lögreglustjórinn á Vestfjörðum segir gott að leita af sér allan grun. Innlent 23.9.2024 12:29 Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Lögreglan á Suðurlandi skilaði rannsókn á andláti manns í sumarbústað í Kiðjabergi í vor á borð Héraðsaksóknara á föstudag. Einn er með réttarstöðu sakbornings í málinu grunaður um að hafa orðið manninum að bana. Innlent 23.9.2024 12:20 Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Fjórir hlutu heldur þunga fangelsisdóma á dögunum fyrir innflutning mikils magns amfetamínsbasa. Höfuðpaurinn í málinu fékk viðskiptavini sína til þess að sækja fyrir sig flöskur sem innihéldu efnin. Fólkið var talið hafa mátt vita að flöskurnar innihéldu eiturlyf, enda hafi maðurinn verið eiturlyfjasali þess. Innlent 23.9.2024 12:04 Ungmenni í viðkvæmri stöðu hagnýtt í afbrot hér á landi Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir lítinn hóp ungmenna í viðkvæmri stöðu hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Fylgjast þurfi sérstaklega með þessum hópi og nálgast ungmennin með fjölbreyttum leiðum. Innlent 23.9.2024 12:00 Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Norðurlönd og Eystrasaltsríkin finna mjög mikið fyrir ógninni frá Rússlandi og standa þétt saman í öryggis- og varnarmálum, að sögn Diljar Mist Einarsdóttur alþingismanns. Þessi ríki þekki það á eigin skinni að verja þurfi friðinn með kjafti og klóm. Innlent 23.9.2024 11:54 Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar, tíu ára stúlku sem fannst látin sunnudagskvöldið 15. september, hafa efnt til söfnunar fyrir móður stúlkunnar á þessum erfiðu tímum. Innlent 23.9.2024 11:46 Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Hundrað eru sagðir fallnir og hundruð særðir í hörðum árásum Ísraelshers á Líbanon. Ísraelsher hefur sagt íbúum í Suður-Líbanon að forða sér búi þeir nærri athafnasvæðum Hezbollah-samtakanna. Fólksflótti er skollinn á frá höfuðborginni Beirút. Erlent 23.9.2024 11:42 Lögreglan segir hóp ungmenna hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi Í hádegisfréttum verður meðal annars rætt við bankastjóra Landsbankans en bankinn hækkaði vexti í morgun líkt og hinir bankarnir hafa þegar gert. Innlent 23.9.2024 11:37 Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað í ágúst er á viðkvæmu stigi en miðar vel, að sögn yfirlögregluþjóns. Lögregla bíður þess að fá niðurstöður rannsókna á rafrænum gögnum og lífsýnum. Innlent 23.9.2024 11:33 Fylgjast grannt með ungmennum á Laufskálaréttarballi Lögreglan á Norðurlandi vestra mun viðhafa strangt eftirlit með ungmennum á svokölluðu Laufskálaréttarballi á Sauðárkróki um helgina. Öll tilvik „þar sem bersýnilega er um að ræða áhættuhegðun ungmenna“ verða tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. Innlent 23.9.2024 11:12 Bein útsending: Hnattrænar áskoranir Norðurlanda Pallborð um hnattrænar áskoranir og öryggis- og varnarsamstarf með þátttöku formanna utanríkisnefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Innlent 23.9.2024 11:03 Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, þakkaði starfsmönnum vopnaverksmiðju í Pennsylvaníu fyrir skotfæri sem þeir framleiða fyrir Úkraínuher í heimsókn í gær. Pennsylvanía gæti ráðið úrslitum um hver verður næsti forseti Bandaríkjanna. Erlent 23.9.2024 10:47 Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun „Þau vilja fá að vita hvað sonur þeirra á að hafa gert,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir, talsmaður fjölskyldu Sólons Guðmundssonar flugmanns. Fjölskyldan sem hefur óskað eftir lögreglurannsókn á því hvernig andlát Sólons bar að. Innlent 23.9.2024 10:36 Synjanir farið úr tíu prósentum upp í tæp sextíu á tveimur árum Útlendingastofnun hefur hafnað 1435 umsóknum um alþjóðlega vernd það sem af er ári. Það eru um 56 prósent þeirra umsókna sem stofnunin hefur afgreitt á árinu, sem eru 2551. Innlent 23.9.2024 10:27 Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur stigið fram og greint frá því að hann sé maðurinn sem var handtekinn á Suðurlandsvegi í gær, þar sem hann gekk nakinn í veg fyrir bíla. Innlent 23.9.2024 10:21 Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Edmundo González, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa flúið land þegar hann fékk upplýsingar um að öryggssveitir Maduro forseta ætluðu að taka hann höndum. Hann hefði getað verið handtekinn og pyntaður. Erlent 23.9.2024 09:01 Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Fimmtán manns hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir að lest rakst á kerru sem dráttarbíll var með í eftirdragi skammt frá bænum Köping í Svíþjóð í morgun. Um 170 manns voru um borð í lestinni. Erlent 23.9.2024 08:48 Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Flestir háttsettir starfsmenn framboðs Mark Robinson til ríkisstjóra Norður-Karólínu eru sagðir hafa sagt upp störfum í gær, eftir að CNN greindi frá því að aðstoðarríkisstjórinn hefði haft uppi óviðurkvæmileg uppmæli á klámsíðu. Erlent 23.9.2024 08:23 Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Fjórir eru látnir og átján særðir eftir skotárás sem gerð var í borginni Birmingham í Alabamaríki í Bandaríkjunum um helgina. Erlent 23.9.2024 08:09 Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Einn af hverjum fimm Íslendingum nefnir að Danmörk yrði fyrir valinu ef þeir gæti flutt til hvaða lands sem er. Innlent 23.9.2024 08:02 Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Maður sem er nýbúinn fá þjálfun í skyndihjálp bjargaði lífi félaga síns þegar hann fór í hjartastopp á Old boys fótboltaæfingu hjá Þrótti nú í ágúst. Stuttu síðar nýtti hann aftur þekkingu sína þegar annar leikamaður meiddist illa á æfingu. Félagar hans hafa ákveðið að tilnefna hann skyndihjálparmann ársins. Innlent 23.9.2024 08:01 Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Ísraelsher hefur hvatt íbúa í þorpum í suðurhluta Líbanon, sem kunna að búa nærri byggingum eða svæðum þar sem Hezbollah er með hernaðarinnviði, til að forða sér. Erlent 23.9.2024 07:12 Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Útlit er fyrir áframhaldandi rólegheit í veðrinu í dag þar sem spáð er hægviðri og léttskýjuðu víða um land. Þó má gera ráð fyrir skýjuðu veðri og að líkur séu á smá súld af og til við suðurströndina. Veður 23.9.2024 07:09 « ‹ 71 72 73 74 75 76 77 78 79 … 334 ›
Með mörg þúsund evrur af illa fengnu fé Kona hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir peningaþvætti. Innlent 23.9.2024 15:57
Íslendingur í Ísrael óskaði eftir aðstoð utanríkisráðuneytisins Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hefur nýlega borist ein beiðni um aðstoð frá íslenskum ríkisborgara í Ísrael. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa íslensk stjórnvöld áhyggjur af stigmögnun átaka á svæðinu og hvetja til stillingar. Innlent 23.9.2024 15:56
Brotist inn í tvær verslanir sömu nóttina Brotist var inn í verslanir Elko í Lindum og Skeifunni í nótt og farsímum stolið. Unnið er að því að komast að fjölda þeirra síma sem voru teknir, og að gera þá óvirka. Framkvæmdastjórinn segir engan símaskort í uppsiglingu þrátt fyrir innbrotið. Innlent 23.9.2024 15:39
Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst. Innlent 23.9.2024 15:05
Vetrarfærð á fjallvegum norðaustanlands Það mun ganga í strekkings norðlæga átt í nótt og fer að snjóa á fjallvegum um norðaustanvert landið eftir hádegi á morgun. Innlent 23.9.2024 14:26
Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Karlmaður sem var handtekinn við golfvöll Donalds Trump fyrr í þessum mánuði skrifaði skilaboð til vinar síns um að hann ætlaði sér að myrða fyrrverandi forsetann. Þá hélt hann lista yfir viðburði þar sem Trump yrði viðstaddur. Erlent 23.9.2024 14:18
Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Fimm konur sem starfa eða starfað hafa hjá Icelandair segjast hafa verið beittar ofbeldi af hálfu samstarfsmanns þeirra hjá félaginu. Ein þeirra hefur lagt fram kæru á hendur manninum, Sóloni Guðmundssyni, fyrir nauðgun. Innlent 23.9.2024 13:11
Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, ásamt lögreglumanni af Vestfjörðum, kanna nú hvort hvítabirni sé að finna í Jökulfjörðum eða á Hornströndum. Engar vísbendingar eru um að fleiri dýr en það sem fellt var fyrir helgi hafi komið til landsins, en lögreglustjórinn á Vestfjörðum segir gott að leita af sér allan grun. Innlent 23.9.2024 12:29
Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Lögreglan á Suðurlandi skilaði rannsókn á andláti manns í sumarbústað í Kiðjabergi í vor á borð Héraðsaksóknara á föstudag. Einn er með réttarstöðu sakbornings í málinu grunaður um að hafa orðið manninum að bana. Innlent 23.9.2024 12:20
Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Fjórir hlutu heldur þunga fangelsisdóma á dögunum fyrir innflutning mikils magns amfetamínsbasa. Höfuðpaurinn í málinu fékk viðskiptavini sína til þess að sækja fyrir sig flöskur sem innihéldu efnin. Fólkið var talið hafa mátt vita að flöskurnar innihéldu eiturlyf, enda hafi maðurinn verið eiturlyfjasali þess. Innlent 23.9.2024 12:04
Ungmenni í viðkvæmri stöðu hagnýtt í afbrot hér á landi Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir lítinn hóp ungmenna í viðkvæmri stöðu hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Fylgjast þurfi sérstaklega með þessum hópi og nálgast ungmennin með fjölbreyttum leiðum. Innlent 23.9.2024 12:00
Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Norðurlönd og Eystrasaltsríkin finna mjög mikið fyrir ógninni frá Rússlandi og standa þétt saman í öryggis- og varnarmálum, að sögn Diljar Mist Einarsdóttur alþingismanns. Þessi ríki þekki það á eigin skinni að verja þurfi friðinn með kjafti og klóm. Innlent 23.9.2024 11:54
Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar, tíu ára stúlku sem fannst látin sunnudagskvöldið 15. september, hafa efnt til söfnunar fyrir móður stúlkunnar á þessum erfiðu tímum. Innlent 23.9.2024 11:46
Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Hundrað eru sagðir fallnir og hundruð særðir í hörðum árásum Ísraelshers á Líbanon. Ísraelsher hefur sagt íbúum í Suður-Líbanon að forða sér búi þeir nærri athafnasvæðum Hezbollah-samtakanna. Fólksflótti er skollinn á frá höfuðborginni Beirút. Erlent 23.9.2024 11:42
Lögreglan segir hóp ungmenna hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi Í hádegisfréttum verður meðal annars rætt við bankastjóra Landsbankans en bankinn hækkaði vexti í morgun líkt og hinir bankarnir hafa þegar gert. Innlent 23.9.2024 11:37
Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað í ágúst er á viðkvæmu stigi en miðar vel, að sögn yfirlögregluþjóns. Lögregla bíður þess að fá niðurstöður rannsókna á rafrænum gögnum og lífsýnum. Innlent 23.9.2024 11:33
Fylgjast grannt með ungmennum á Laufskálaréttarballi Lögreglan á Norðurlandi vestra mun viðhafa strangt eftirlit með ungmennum á svokölluðu Laufskálaréttarballi á Sauðárkróki um helgina. Öll tilvik „þar sem bersýnilega er um að ræða áhættuhegðun ungmenna“ verða tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. Innlent 23.9.2024 11:12
Bein útsending: Hnattrænar áskoranir Norðurlanda Pallborð um hnattrænar áskoranir og öryggis- og varnarsamstarf með þátttöku formanna utanríkisnefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Innlent 23.9.2024 11:03
Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, þakkaði starfsmönnum vopnaverksmiðju í Pennsylvaníu fyrir skotfæri sem þeir framleiða fyrir Úkraínuher í heimsókn í gær. Pennsylvanía gæti ráðið úrslitum um hver verður næsti forseti Bandaríkjanna. Erlent 23.9.2024 10:47
Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun „Þau vilja fá að vita hvað sonur þeirra á að hafa gert,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir, talsmaður fjölskyldu Sólons Guðmundssonar flugmanns. Fjölskyldan sem hefur óskað eftir lögreglurannsókn á því hvernig andlát Sólons bar að. Innlent 23.9.2024 10:36
Synjanir farið úr tíu prósentum upp í tæp sextíu á tveimur árum Útlendingastofnun hefur hafnað 1435 umsóknum um alþjóðlega vernd það sem af er ári. Það eru um 56 prósent þeirra umsókna sem stofnunin hefur afgreitt á árinu, sem eru 2551. Innlent 23.9.2024 10:27
Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur stigið fram og greint frá því að hann sé maðurinn sem var handtekinn á Suðurlandsvegi í gær, þar sem hann gekk nakinn í veg fyrir bíla. Innlent 23.9.2024 10:21
Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Edmundo González, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa flúið land þegar hann fékk upplýsingar um að öryggssveitir Maduro forseta ætluðu að taka hann höndum. Hann hefði getað verið handtekinn og pyntaður. Erlent 23.9.2024 09:01
Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Fimmtán manns hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir að lest rakst á kerru sem dráttarbíll var með í eftirdragi skammt frá bænum Köping í Svíþjóð í morgun. Um 170 manns voru um borð í lestinni. Erlent 23.9.2024 08:48
Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Flestir háttsettir starfsmenn framboðs Mark Robinson til ríkisstjóra Norður-Karólínu eru sagðir hafa sagt upp störfum í gær, eftir að CNN greindi frá því að aðstoðarríkisstjórinn hefði haft uppi óviðurkvæmileg uppmæli á klámsíðu. Erlent 23.9.2024 08:23
Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Fjórir eru látnir og átján særðir eftir skotárás sem gerð var í borginni Birmingham í Alabamaríki í Bandaríkjunum um helgina. Erlent 23.9.2024 08:09
Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Einn af hverjum fimm Íslendingum nefnir að Danmörk yrði fyrir valinu ef þeir gæti flutt til hvaða lands sem er. Innlent 23.9.2024 08:02
Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Maður sem er nýbúinn fá þjálfun í skyndihjálp bjargaði lífi félaga síns þegar hann fór í hjartastopp á Old boys fótboltaæfingu hjá Þrótti nú í ágúst. Stuttu síðar nýtti hann aftur þekkingu sína þegar annar leikamaður meiddist illa á æfingu. Félagar hans hafa ákveðið að tilnefna hann skyndihjálparmann ársins. Innlent 23.9.2024 08:01
Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Ísraelsher hefur hvatt íbúa í þorpum í suðurhluta Líbanon, sem kunna að búa nærri byggingum eða svæðum þar sem Hezbollah er með hernaðarinnviði, til að forða sér. Erlent 23.9.2024 07:12
Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Útlit er fyrir áframhaldandi rólegheit í veðrinu í dag þar sem spáð er hægviðri og léttskýjuðu víða um land. Þó má gera ráð fyrir skýjuðu veðri og að líkur séu á smá súld af og til við suðurströndina. Veður 23.9.2024 07:09