Fréttir Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð Banaslys sem varð á Laugarvatnsvegi sumarið 2023 orsakaðist af því að bifhjólamaður missti stjórn á bifhjólinu þegar það fór að skjálfa og skakast á veginum. Þá var hann með ófullnægjandi hjálm og boltar í stýri hjólsins voru lausir. Innlent 7.10.2024 16:00 „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa brotið lög þegar hún frestaði brottvísun Yazans Tamimi í síðasta mánuði. Þá segir hún yfirlýsingar nýs formanns Vinstri grænna um að þingflokkur VG styðji ekki frekari breytingar á útlendingalögum ekki breyta neinu fyrir hana. Hún muni leggja fram þau mál sem eru á hennar þingmálaskrá. Innlent 7.10.2024 15:54 Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor Stúdentar í Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands stóðu fyrir verkfalli og mótmælum í hádeginu í dag. Gróflega áætlað voru um tvö hundruð manns samankomin til að krefjast þess að menntastofnanirnar skýrðu afstöðu sína. Innlent 7.10.2024 14:50 „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Fyrrverandi starfsmaður Pírata segir þingflokkinn hafa brotið á honum og átta öðrum Pírötum, með því að skoða, dreifa og taka fyrir einkasamtöl hópsins um stjórnmálaþátttöku innan Pírata. Hann var látinn taka pokann sinn eftir umdeildan aðalfund flokksins. Innlent 7.10.2024 14:30 Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma. Erlent 7.10.2024 14:16 Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Stóra rennibrautin í Laugardalslaug er nú lokuð þar sem unnið er að viðgerðum á rennibrautarturninum. Reiknað er með að hægt verði að opna rennibrautina á ný að tveimur vikum liðnum. Innlent 7.10.2024 14:00 Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Arna Stefanía Guðmundsdóttir, grunnskólakennari og íþróttakona, segir aldrei hafa verið eins mikilvægt að samfélagið meti kennara að verðleikum. Sjálf sé hún spurð að því hvert hún stefni í framtíðinni líkt og kennarastarfið sé tímabundið starf. Innlent 7.10.2024 13:58 Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Innviðaráðherra er bjartsýn á að framkvæmdir við Ölfusárbrú geti hafist á þessu ári. Að undanförnu hafi verið leitað leiða til að framkvæmdin standist forsendur fjárlaga þessa árs um að notendagjöld standi undir kostnaði við brúna. Innlent 7.10.2024 13:27 Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Eigandi hunds á höfuðborgarsvæðinu fór með hund upp í sveit og skaut hann. Eigandinn situr uppi með 230 þúsund króna sekt. Innlent 7.10.2024 13:15 Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Lögreglan á Suðurlandi hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum. Enn eru rúmar þrjár vikur í að notkun nagladekkja verði lögleg. Innlent 7.10.2024 12:20 Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Svandís Svavarsdóttir, nýr formaður Vinstri grænna, ætlar að ræða við formenn hinna ríkisstjórnarflokkanna vegna ályktunar sem samþykkt var á landsfundi VG um helgina. Afstaða landsfundar er sú að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok og kjósa eigi í vor. Innlent 7.10.2024 11:45 Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Lögregla fylgdi eftir ábendingum um að menn úr undirheimum hafi komið að andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg þann 15. september. Ekki er talið að nokkuð bendi til aðkomu annarra en föður stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana. Innlent 7.10.2024 11:40 Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Starfsmenn frá ÞG verktökum skoða nú frágang brunna við fjölda húsa sem verktakafyrirtækið hefur byggt síðustu ár. Annað hvort verði tyrft yfir eða skipt um lok og þyngri sett í stað stálloka sem nú eru. Tveggja ára drengur féll ofan í vatnsbrunn við heimili sitt Í Urriðaholti í Garðabæ á föstudag. Innlent 7.10.2024 11:11 Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Tæplega þrír af hverjum fjórum sögðust hafa meiri samúð með málstað Palestínumanna en Ísraela í skoðanakönnun sem stuðningsfélag Palestínu lét gera í síðasta mánuði. Þá sagðist meirihluti fylgjandi því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Innlent 7.10.2024 11:05 Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Ökumaður sem lést þegar sendibifreið hafnaði utan Reykjanesbrautar við Innri-Njarðvík í nóvember árið 2023 var ekki í belti og varð að hluta undir bifreiðinni. Hann var undir áhrifum fíkniefna þegar hann lést. Innlent 7.10.2024 10:30 Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bandaríkjamennirnir Victor Ambros og Gary Ruvkun deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár fyrir uppgötvunina á svonefndu miRNA og hlutverki þeirra í genastjórnun eftir umritun. Þeir störfuðu báðir hjá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum þegar þeir stunduðu rannsóknir sínar. Erlent 7.10.2024 09:40 Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Álíka margir eru hlynntir því að lögfesta svonefnda bókun 35 við EES-samninginn og eru henni andvígir í skoðanakönnun sem andstæðingar ESB-aðildar létu gera. Þegar aðeins er litið til þeirra sem taka einhvers konar afstöðu eru ívíð fleiri á móti en með. Innlent 7.10.2024 09:12 Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ekkert óvænt við samþykkt ályktunar á landsfundi Vinstri grænna um að ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé að nálgast leiðarlok var. Í ályktuninni segir meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor. Hún telur ekki ástæðu til að ræða ályktunina á fundi þingflokks Framsóknar. Innlent 7.10.2024 09:01 Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 7.10.2024 09:01 Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot. Erlent 7.10.2024 07:43 Víða bjart og fallegt sunnan- og vestantil Lægð suður í hafi og víðáttumikil hæð yfir Grænlandi beina nú norðaustlægum vindum yfir landið, sums staðar strekkingi, en annars yfirleitt mun hægari. Veður 7.10.2024 07:10 Holan alls ekki eina slysagildran Íbúi við lóð þar sem tveggja ára drengur féll ofan í holu í Urriðaholti á föstudag segir margt mjög ábótavant í frágangi hjá byggingarverktakanum sem reisti húsið. Hún furðar sig á að ekki hafi verið gerð úttekt á lóðinni til að koma í veg fyrir slys. Innlent 7.10.2024 07:05 Skipti öllu máli að telja drykkina Formaður Matthildarsamtaka um skaðaminnkun, segir áríðandi að tekist sé á við vímuefnanotkun í samfélaginu með raunsæi. Nýtt vettvangsteymi á vegum samtakanna veitti skaðaminnkunarþjónustu og sálrænan stuðning á tónlistarviðburðum í sumar. Innlent 7.10.2024 07:02 Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra hafa neitað skriflega að afhenda honum afrit af bréfum sem Guðlaugur Þór Þórðarson sendi ESA vegna bókunar 35. Innlent 7.10.2024 06:56 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Nóttin virðist hafa verið fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þrír gistu fangaklefa í morgunsárið. Innlent 7.10.2024 06:33 Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Eitt ár er liðið frá innrás Hamas-samtakanna í Ísrael, þegar tólf hundruð voru myrt og 250 teknir föngnum og færðir í böndum inn á Gasaströndina. Erlent 7.10.2024 06:29 Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Ekkert hefur heyrst til Esmail Qaani, yfirmanns Quds-sveitar íranska byltingarvarðarins, frá því að Ísraelar gerðu loftárásir á Beirút í síðustu viku. Erlent 6.10.2024 23:10 Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Þráinn Hafstein Kristjánsson, athafnamaður, tónlistarmaður og veitingastjóri, er látinn, 84 ára gamall. Hann lést 2. október síðastliðinn og verður jarðsettur þriðjudaginn 8. október í Steinbach í Manitoba. Innlent 6.10.2024 22:31 Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Auglýsing Sambíóanna hefur vakið athygli vegna fjölda fimm stjörnu dóma sem myndin Joker: Folie á Deux er sögð fá. Á síðum sem safna saman bíódómum hefur enginn gagnrýnandi gefið henni slíkan dóm. Rekstrarstjóri Sambíóanna veit ekki hvaðan stjörnurnar koma og gat ekki svarað fyrir auglýsinguna. Innlent 6.10.2024 21:32 Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Í næsta mánuði stendur til að taka í notkun nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Lögreglufulltrúi segir að með nýja kerfinu sé meðal annars vonandi hægt að ná betri tökum á skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Innlent 6.10.2024 21:28 « ‹ 52 53 54 55 56 57 58 59 60 … 334 ›
Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð Banaslys sem varð á Laugarvatnsvegi sumarið 2023 orsakaðist af því að bifhjólamaður missti stjórn á bifhjólinu þegar það fór að skjálfa og skakast á veginum. Þá var hann með ófullnægjandi hjálm og boltar í stýri hjólsins voru lausir. Innlent 7.10.2024 16:00
„Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa brotið lög þegar hún frestaði brottvísun Yazans Tamimi í síðasta mánuði. Þá segir hún yfirlýsingar nýs formanns Vinstri grænna um að þingflokkur VG styðji ekki frekari breytingar á útlendingalögum ekki breyta neinu fyrir hana. Hún muni leggja fram þau mál sem eru á hennar þingmálaskrá. Innlent 7.10.2024 15:54
Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor Stúdentar í Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands stóðu fyrir verkfalli og mótmælum í hádeginu í dag. Gróflega áætlað voru um tvö hundruð manns samankomin til að krefjast þess að menntastofnanirnar skýrðu afstöðu sína. Innlent 7.10.2024 14:50
„Þingflokkur Pírata braut á mér“ Fyrrverandi starfsmaður Pírata segir þingflokkinn hafa brotið á honum og átta öðrum Pírötum, með því að skoða, dreifa og taka fyrir einkasamtöl hópsins um stjórnmálaþátttöku innan Pírata. Hann var látinn taka pokann sinn eftir umdeildan aðalfund flokksins. Innlent 7.10.2024 14:30
Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma. Erlent 7.10.2024 14:16
Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Stóra rennibrautin í Laugardalslaug er nú lokuð þar sem unnið er að viðgerðum á rennibrautarturninum. Reiknað er með að hægt verði að opna rennibrautina á ný að tveimur vikum liðnum. Innlent 7.10.2024 14:00
Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Arna Stefanía Guðmundsdóttir, grunnskólakennari og íþróttakona, segir aldrei hafa verið eins mikilvægt að samfélagið meti kennara að verðleikum. Sjálf sé hún spurð að því hvert hún stefni í framtíðinni líkt og kennarastarfið sé tímabundið starf. Innlent 7.10.2024 13:58
Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Innviðaráðherra er bjartsýn á að framkvæmdir við Ölfusárbrú geti hafist á þessu ári. Að undanförnu hafi verið leitað leiða til að framkvæmdin standist forsendur fjárlaga þessa árs um að notendagjöld standi undir kostnaði við brúna. Innlent 7.10.2024 13:27
Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Eigandi hunds á höfuðborgarsvæðinu fór með hund upp í sveit og skaut hann. Eigandinn situr uppi með 230 þúsund króna sekt. Innlent 7.10.2024 13:15
Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Lögreglan á Suðurlandi hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum. Enn eru rúmar þrjár vikur í að notkun nagladekkja verði lögleg. Innlent 7.10.2024 12:20
Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Svandís Svavarsdóttir, nýr formaður Vinstri grænna, ætlar að ræða við formenn hinna ríkisstjórnarflokkanna vegna ályktunar sem samþykkt var á landsfundi VG um helgina. Afstaða landsfundar er sú að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok og kjósa eigi í vor. Innlent 7.10.2024 11:45
Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Lögregla fylgdi eftir ábendingum um að menn úr undirheimum hafi komið að andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg þann 15. september. Ekki er talið að nokkuð bendi til aðkomu annarra en föður stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana. Innlent 7.10.2024 11:40
Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Starfsmenn frá ÞG verktökum skoða nú frágang brunna við fjölda húsa sem verktakafyrirtækið hefur byggt síðustu ár. Annað hvort verði tyrft yfir eða skipt um lok og þyngri sett í stað stálloka sem nú eru. Tveggja ára drengur féll ofan í vatnsbrunn við heimili sitt Í Urriðaholti í Garðabæ á föstudag. Innlent 7.10.2024 11:11
Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Tæplega þrír af hverjum fjórum sögðust hafa meiri samúð með málstað Palestínumanna en Ísraela í skoðanakönnun sem stuðningsfélag Palestínu lét gera í síðasta mánuði. Þá sagðist meirihluti fylgjandi því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Innlent 7.10.2024 11:05
Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Ökumaður sem lést þegar sendibifreið hafnaði utan Reykjanesbrautar við Innri-Njarðvík í nóvember árið 2023 var ekki í belti og varð að hluta undir bifreiðinni. Hann var undir áhrifum fíkniefna þegar hann lést. Innlent 7.10.2024 10:30
Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bandaríkjamennirnir Victor Ambros og Gary Ruvkun deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár fyrir uppgötvunina á svonefndu miRNA og hlutverki þeirra í genastjórnun eftir umritun. Þeir störfuðu báðir hjá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum þegar þeir stunduðu rannsóknir sínar. Erlent 7.10.2024 09:40
Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Álíka margir eru hlynntir því að lögfesta svonefnda bókun 35 við EES-samninginn og eru henni andvígir í skoðanakönnun sem andstæðingar ESB-aðildar létu gera. Þegar aðeins er litið til þeirra sem taka einhvers konar afstöðu eru ívíð fleiri á móti en með. Innlent 7.10.2024 09:12
Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ekkert óvænt við samþykkt ályktunar á landsfundi Vinstri grænna um að ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé að nálgast leiðarlok var. Í ályktuninni segir meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor. Hún telur ekki ástæðu til að ræða ályktunina á fundi þingflokks Framsóknar. Innlent 7.10.2024 09:01
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 7.10.2024 09:01
Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot. Erlent 7.10.2024 07:43
Víða bjart og fallegt sunnan- og vestantil Lægð suður í hafi og víðáttumikil hæð yfir Grænlandi beina nú norðaustlægum vindum yfir landið, sums staðar strekkingi, en annars yfirleitt mun hægari. Veður 7.10.2024 07:10
Holan alls ekki eina slysagildran Íbúi við lóð þar sem tveggja ára drengur féll ofan í holu í Urriðaholti á föstudag segir margt mjög ábótavant í frágangi hjá byggingarverktakanum sem reisti húsið. Hún furðar sig á að ekki hafi verið gerð úttekt á lóðinni til að koma í veg fyrir slys. Innlent 7.10.2024 07:05
Skipti öllu máli að telja drykkina Formaður Matthildarsamtaka um skaðaminnkun, segir áríðandi að tekist sé á við vímuefnanotkun í samfélaginu með raunsæi. Nýtt vettvangsteymi á vegum samtakanna veitti skaðaminnkunarþjónustu og sálrænan stuðning á tónlistarviðburðum í sumar. Innlent 7.10.2024 07:02
Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra hafa neitað skriflega að afhenda honum afrit af bréfum sem Guðlaugur Þór Þórðarson sendi ESA vegna bókunar 35. Innlent 7.10.2024 06:56
Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Nóttin virðist hafa verið fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þrír gistu fangaklefa í morgunsárið. Innlent 7.10.2024 06:33
Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Eitt ár er liðið frá innrás Hamas-samtakanna í Ísrael, þegar tólf hundruð voru myrt og 250 teknir föngnum og færðir í böndum inn á Gasaströndina. Erlent 7.10.2024 06:29
Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Ekkert hefur heyrst til Esmail Qaani, yfirmanns Quds-sveitar íranska byltingarvarðarins, frá því að Ísraelar gerðu loftárásir á Beirút í síðustu viku. Erlent 6.10.2024 23:10
Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Þráinn Hafstein Kristjánsson, athafnamaður, tónlistarmaður og veitingastjóri, er látinn, 84 ára gamall. Hann lést 2. október síðastliðinn og verður jarðsettur þriðjudaginn 8. október í Steinbach í Manitoba. Innlent 6.10.2024 22:31
Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Auglýsing Sambíóanna hefur vakið athygli vegna fjölda fimm stjörnu dóma sem myndin Joker: Folie á Deux er sögð fá. Á síðum sem safna saman bíódómum hefur enginn gagnrýnandi gefið henni slíkan dóm. Rekstrarstjóri Sambíóanna veit ekki hvaðan stjörnurnar koma og gat ekki svarað fyrir auglýsinguna. Innlent 6.10.2024 21:32
Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Í næsta mánuði stendur til að taka í notkun nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Lögreglufulltrúi segir að með nýja kerfinu sé meðal annars vonandi hægt að ná betri tökum á skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Innlent 6.10.2024 21:28