Fréttir Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Móðir sem dæmd var í átján ára fangelsi á dögunum fyrir að myrða sex ára son sinn og gera tilraun til að bana eldri syni sínum var þjökuð af alvarlegu þunglyndi en ekki geðveiki að mati dómkvaddra matsmanna. Hún tilkynnti lögreglu sjálf um andlát sonarins. Hinn sonurinn segir mömmu sína hafa spurt þegar hún reyndi að kæfa hann hvort hann vildi ekki deyja áður en hann næði tilteknum aldri því þá færi hann í „góða heiminn“. Innlent 12.11.2024 10:25 Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Lokað verður fyrir vatnið á Flateyri í dag á meðan hreinsun á vatnsbóli stendur yfir eftir skriðuföll næturinnar. Innlent 12.11.2024 10:24 Opna sundlaugina í Grindavík á ný Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð á ný eftir að hafa verið lokuð síðasta rúma árið vegna eldsumbrota og lokunar bæjarins. Fyrsti dagur opnunarinnar var í gær. Innlent 12.11.2024 10:15 Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Bandarískir flugmenn framkvæmdu í gær loftárásir á níu skotmörk tengd vígahópum á vegum íranska byltingarvarðarins í Sýrlandi. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna á svæðinu segja árásirnar hafa verið gerðar vegna ítrekaðra árása á bandaríska hermenn í austurhluta Sýrlands. Erlent 12.11.2024 09:51 Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Hlutfall fólks sem á það til að lesa skilaboð við akstur lækkar úr 40,1 prósent í 35,8 prósent á milli ára. Hlutfall þeirra sem á það til að skrifa skilaboð við akstur lækkar úr 31,8 prósent í 27,7 prósent. Innlent 12.11.2024 09:02 Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu Um það bil 75 prósent þolenda kynferðisofbeldis á Englandi og í Wales segja meðferð lögreglu á máli þeirra hafa valdið þeim andlegum skaða. Aðeins einn af hverjum tíu þolendum segist myndu tilkynna mál sitt að fenginni reynslu. Erlent 12.11.2024 08:36 Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Veðurstofan spáir suðvestan hvassviðri eða stormi víða með rigningu framan af degi en síðan skúrum en norðaustan- og austanlands verði allhvöss suðvestanátt og bjartviðri. Veður 12.11.2024 07:11 „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Gideon Saar, utanríkisráðherra Ísrael, sagði í gær að „ákveðinn árangur“ hefði náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon. Talsmenn Hezbollah staðfesta að viðræður eigi sér stað en segja engar ákveðnar tillögur liggja fyrir að svo stöddu. Erlent 12.11.2024 06:59 Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Vegurinn í Ísafjarðardjúpi lokaðist í nótt eftir að áin Rjúkandi í Hestfirði flæddi yfir veginn. Einnig féll aurskriða yfir veginn í sama firði, með þeim afleiðingum að nokkrir ökumenn komust ekki leiða sinna. Innlent 12.11.2024 06:38 Fjórir handteknir í tengslum við rán Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rán. Nokkrum var hins vegar sleppt eftir skamma stund en málið er í rannsókn. Innlent 12.11.2024 06:11 Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Rétt eftir klukkan ellefu í kvöld mældist hitinn á Akureyri í 22,3 gráðum og það um miðjan nóvember. Klukkan tíu var talan 21,4 gráður, og klukkutíma áður einni gráðu lægri. Veður 11.11.2024 23:24 Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum, segir það hafa verið nauðsynlegt að fletja kúrfuna í upphafi Covid-faraldurs. Ísland komi vel út í rannsóknum á umframdauðsföllum og sóttvarnaraðgerðir hafi verið síst meiri hérlendis en annars staðar. Innlent 11.11.2024 22:02 Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki. Innlent 11.11.2024 21:31 Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Hópur indverskra ferðamanna, sem fjallað hefur verið um að hafi valdið miklu fjaðrafoki með framferði sínu í Staðarskála í gær, var mættur á veitingastað í Reykjavík í gærkvöldi og olli ekki síður miklum usla. Innlent 11.11.2024 21:21 Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum. Innlent 11.11.2024 20:05 Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins. Innlent 11.11.2024 19:46 Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hann hafi sakað blaðamenn um að standa í hlerunum sem beindust að syni hans, Gunnari Bergmann Jónssyni. Hann setur þó spurningamerki við vinnubrögð blaðamanna. Innlent 11.11.2024 19:45 „Gæsahúð, án gríns“ Ný sýning verður opnuð á laugardaginn, degi íslenskrar tungu, í Eddu, húsi íslenskunnar, en þar munu sum af verðmætustu handritum Íslendinga vera til sýnis. Fréttastofa fékk forskot á sæluna þegar að handritin voru flutt á milli húsa í dag. Innlent 11.11.2024 19:02 Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Sonur Jóns Gunnarssonar á að hafa sagt á upptöku að faðir sinn hafi tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir að komast í aðstöðu til að veita veiðileyfi til Hvals hf. Þá hafi hann sagt að utanríkisráðherra muni undirrita útgáfu leyfisins vegna hagsmunatengsla forsætisráðherra. Innlent 11.11.2024 18:16 Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri. Innlent 11.11.2024 18:11 Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í þágu rannsóknar á alvarlegum ofbeldisbrotum. Innlent 11.11.2024 17:12 Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein. Innlent 11.11.2024 16:54 Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Yfirmenn rússneska hersins hafa safnað tugum þúsunda hermanna í Kúrsk-héraði í Rússlandi og eiga þeir að hefja umfangsmikla gagnsókn gegn Úkraínumönnum þar. Von er á umfangsmikilli sókn á næstu dögum. Erlent 11.11.2024 16:48 Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Oddvitar í Norðvesturkjördæmi koma saman á opnum fundi á Ísafirði í dag þar sem meðal annars verður rætt um samgönguinnviði og Vestfjarðarlínu. Innviðafélag Vestfjarða heldur fundinn þar sem farið verður yfir hvernig forsvarsmenn flokka bregðast við ákalli um stórátak í uppbyggingu samgönguinnviða. Innlent 11.11.2024 16:01 Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Enn eru þrjú börn inniliggjandi á Barnaspítalanum vegna E. coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði. Tvö eru á legudeild og eitt á gjörgæslu. Barnið er ekki í lífshættu að sögn Valtýs Stefánssonar Thors yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Sjóvá hafa borist tilkynningar og fyrirspurnir vegna veikindanna en Félagsstofnun stúdenta er bótaskyld vegna þeirra. Innlent 11.11.2024 15:57 Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Donald Trump, verðandi og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur valið Elise Stefanik til að verða sendiherra hans gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Stefanik situr í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og hefur lengi verið einn ötulasti stuðningsmaður Trumps þar og kom hún til greina sem varaforsetaefni hans. Erlent 11.11.2024 15:24 Ók á sjö kindur og drap þær Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu. Innlent 11.11.2024 15:07 Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11.11.2024 14:51 „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum. Innlent 11.11.2024 13:14 „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans. Innlent 11.11.2024 12:20 « ‹ 2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 334 ›
Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Móðir sem dæmd var í átján ára fangelsi á dögunum fyrir að myrða sex ára son sinn og gera tilraun til að bana eldri syni sínum var þjökuð af alvarlegu þunglyndi en ekki geðveiki að mati dómkvaddra matsmanna. Hún tilkynnti lögreglu sjálf um andlát sonarins. Hinn sonurinn segir mömmu sína hafa spurt þegar hún reyndi að kæfa hann hvort hann vildi ekki deyja áður en hann næði tilteknum aldri því þá færi hann í „góða heiminn“. Innlent 12.11.2024 10:25
Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Lokað verður fyrir vatnið á Flateyri í dag á meðan hreinsun á vatnsbóli stendur yfir eftir skriðuföll næturinnar. Innlent 12.11.2024 10:24
Opna sundlaugina í Grindavík á ný Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð á ný eftir að hafa verið lokuð síðasta rúma árið vegna eldsumbrota og lokunar bæjarins. Fyrsti dagur opnunarinnar var í gær. Innlent 12.11.2024 10:15
Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Bandarískir flugmenn framkvæmdu í gær loftárásir á níu skotmörk tengd vígahópum á vegum íranska byltingarvarðarins í Sýrlandi. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna á svæðinu segja árásirnar hafa verið gerðar vegna ítrekaðra árása á bandaríska hermenn í austurhluta Sýrlands. Erlent 12.11.2024 09:51
Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Hlutfall fólks sem á það til að lesa skilaboð við akstur lækkar úr 40,1 prósent í 35,8 prósent á milli ára. Hlutfall þeirra sem á það til að skrifa skilaboð við akstur lækkar úr 31,8 prósent í 27,7 prósent. Innlent 12.11.2024 09:02
Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu Um það bil 75 prósent þolenda kynferðisofbeldis á Englandi og í Wales segja meðferð lögreglu á máli þeirra hafa valdið þeim andlegum skaða. Aðeins einn af hverjum tíu þolendum segist myndu tilkynna mál sitt að fenginni reynslu. Erlent 12.11.2024 08:36
Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Veðurstofan spáir suðvestan hvassviðri eða stormi víða með rigningu framan af degi en síðan skúrum en norðaustan- og austanlands verði allhvöss suðvestanátt og bjartviðri. Veður 12.11.2024 07:11
„Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Gideon Saar, utanríkisráðherra Ísrael, sagði í gær að „ákveðinn árangur“ hefði náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon. Talsmenn Hezbollah staðfesta að viðræður eigi sér stað en segja engar ákveðnar tillögur liggja fyrir að svo stöddu. Erlent 12.11.2024 06:59
Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Vegurinn í Ísafjarðardjúpi lokaðist í nótt eftir að áin Rjúkandi í Hestfirði flæddi yfir veginn. Einnig féll aurskriða yfir veginn í sama firði, með þeim afleiðingum að nokkrir ökumenn komust ekki leiða sinna. Innlent 12.11.2024 06:38
Fjórir handteknir í tengslum við rán Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rán. Nokkrum var hins vegar sleppt eftir skamma stund en málið er í rannsókn. Innlent 12.11.2024 06:11
Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Rétt eftir klukkan ellefu í kvöld mældist hitinn á Akureyri í 22,3 gráðum og það um miðjan nóvember. Klukkan tíu var talan 21,4 gráður, og klukkutíma áður einni gráðu lægri. Veður 11.11.2024 23:24
Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum, segir það hafa verið nauðsynlegt að fletja kúrfuna í upphafi Covid-faraldurs. Ísland komi vel út í rannsóknum á umframdauðsföllum og sóttvarnaraðgerðir hafi verið síst meiri hérlendis en annars staðar. Innlent 11.11.2024 22:02
Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki. Innlent 11.11.2024 21:31
Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Hópur indverskra ferðamanna, sem fjallað hefur verið um að hafi valdið miklu fjaðrafoki með framferði sínu í Staðarskála í gær, var mættur á veitingastað í Reykjavík í gærkvöldi og olli ekki síður miklum usla. Innlent 11.11.2024 21:21
Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum. Innlent 11.11.2024 20:05
Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins. Innlent 11.11.2024 19:46
Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hann hafi sakað blaðamenn um að standa í hlerunum sem beindust að syni hans, Gunnari Bergmann Jónssyni. Hann setur þó spurningamerki við vinnubrögð blaðamanna. Innlent 11.11.2024 19:45
„Gæsahúð, án gríns“ Ný sýning verður opnuð á laugardaginn, degi íslenskrar tungu, í Eddu, húsi íslenskunnar, en þar munu sum af verðmætustu handritum Íslendinga vera til sýnis. Fréttastofa fékk forskot á sæluna þegar að handritin voru flutt á milli húsa í dag. Innlent 11.11.2024 19:02
Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Sonur Jóns Gunnarssonar á að hafa sagt á upptöku að faðir sinn hafi tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir að komast í aðstöðu til að veita veiðileyfi til Hvals hf. Þá hafi hann sagt að utanríkisráðherra muni undirrita útgáfu leyfisins vegna hagsmunatengsla forsætisráðherra. Innlent 11.11.2024 18:16
Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri. Innlent 11.11.2024 18:11
Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í þágu rannsóknar á alvarlegum ofbeldisbrotum. Innlent 11.11.2024 17:12
Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein. Innlent 11.11.2024 16:54
Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Yfirmenn rússneska hersins hafa safnað tugum þúsunda hermanna í Kúrsk-héraði í Rússlandi og eiga þeir að hefja umfangsmikla gagnsókn gegn Úkraínumönnum þar. Von er á umfangsmikilli sókn á næstu dögum. Erlent 11.11.2024 16:48
Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Oddvitar í Norðvesturkjördæmi koma saman á opnum fundi á Ísafirði í dag þar sem meðal annars verður rætt um samgönguinnviði og Vestfjarðarlínu. Innviðafélag Vestfjarða heldur fundinn þar sem farið verður yfir hvernig forsvarsmenn flokka bregðast við ákalli um stórátak í uppbyggingu samgönguinnviða. Innlent 11.11.2024 16:01
Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Enn eru þrjú börn inniliggjandi á Barnaspítalanum vegna E. coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði. Tvö eru á legudeild og eitt á gjörgæslu. Barnið er ekki í lífshættu að sögn Valtýs Stefánssonar Thors yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Sjóvá hafa borist tilkynningar og fyrirspurnir vegna veikindanna en Félagsstofnun stúdenta er bótaskyld vegna þeirra. Innlent 11.11.2024 15:57
Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Donald Trump, verðandi og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur valið Elise Stefanik til að verða sendiherra hans gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Stefanik situr í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og hefur lengi verið einn ötulasti stuðningsmaður Trumps þar og kom hún til greina sem varaforsetaefni hans. Erlent 11.11.2024 15:24
Ók á sjö kindur og drap þær Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu. Innlent 11.11.2024 15:07
Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11.11.2024 14:51
„Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum. Innlent 11.11.2024 13:14
„Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans. Innlent 11.11.2024 12:20