Fréttir Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir mikilvægt að forseti Íslands sé aldrei meðvirkur með ráðandi öflum. Alþingi megi aldrei upplifa það að afgreiðsla laga á Bessastöðum sé eins og sjálfsafgreiðsla á bensínstöð. Innlent 17.5.2024 13:24 Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Hörpu í dag. Á fundinum verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra. Málefni Grindavíkur verða til umræðu. Innlent 17.5.2024 12:44 Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir Rússa ekki stefna að því að hernema Kharkív en hersveitir landsins hafa sótt fram í héraðinu undanfarna daga. Erlent 17.5.2024 12:36 Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. Innlent 17.5.2024 11:59 Slökktu eld á Seltjarnarnesi Slökkviliðið sinnir nú útkalli við Skólabraut á Seltjarnarnesi, en þar var eldur í tveggja hæða húsi með kjallara. Innlent 17.5.2024 11:56 Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Kristinn Hallgrímsson lögmaður hjá ARTA lögmönnum hefur sent bæjarstjórn Ölfuss bréf þar sem hann varar hana við hugsanlegu umboðsleysi stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista við efnisölu (KSDA). Innlent 17.5.2024 11:51 Fara fram á farbann Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt verða leiddir fyrir dómara í hádeginu. Lögreglan á Suðurnesjum fer fram á að mennirnir verði úrskurðaðir í farbann, en ekki gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er tvíþætt, annarsvegar á tildrögum slyssins og þess sem gerðist eftir á. Innlent 17.5.2024 11:33 Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Í hádegisfréttum fjöllum við um sjóslysið við Garðskagavita þar sem talið er að flutningaskip hafi siglt á strandveiðibát. Innlent 17.5.2024 11:33 Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu. Innlent 17.5.2024 11:30 Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar. Konráð hefur undanfarið unnið sem aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrún R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Innlent 17.5.2024 11:27 Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. Erlent 17.5.2024 11:03 Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ „Nú er til dæmis mál sem brennur mjög augljóslega á ungu fólki í dag og ætti ekki að hafa farið framhjá neinum; umhverfis- og loftslagsmálin. Ég er búinn að vera að standa í þessari kosningabaráttu núna í einhverjar vikur og ég hef aldrei verið spurður út í það.“ Innlent 17.5.2024 10:30 Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu Innlent 17.5.2024 10:28 Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38 Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum. Innlent 17.5.2024 09:27 „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Móðir sem missti son sinn nýlega þegar hann fyrirfór sér í fangelsi á Íslandi segist vona að andlát hans muni hafa áhrif á breytingar til hins betra á geðheilbrigði fanga og þjónustu fyrir þá. Hún skorar á yfirvöld að efla geðheilsuteymi fanga og styrkja betur við starf Afstöðu – félags fanga á Íslandi. Innlent 17.5.2024 09:02 Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17.5.2024 08:26 Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar. Innlent 17.5.2024 08:00 Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél Dálítil lægð mjakast nú til austurs skammt fyrir norðan land í dag og verður áttin því suðvestlæg á landinu í dag. Veður 17.5.2024 07:13 Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf. Innlent 17.5.2024 07:01 Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Lögregla á Frakklandi skaut mann til bana í dag sem er sagður hafa freistað þess að kveikja í bænahúsi gyðinga í borginni Rouen. Maðurinn var vopnaður eggvopni og var skotinn þegar hann færði sig í átt að lögreglu. Erlent 17.5.2024 07:00 Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu „Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok. Innlent 17.5.2024 06:40 Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Stjórnvöld á Spáni hafa neitað skipi um leyfi til að leggja að bryggju þar sem um borð eru vopn á leið til Ísrael. Utanríkisráðherra landsins segir þetta í samræmi við afstöðu Spánar. Erlent 17.5.2024 06:39 Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum. Innlent 17.5.2024 06:01 Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segir vanvirðingu þegar talað er um fóstur eða barn í móðurkviði sem frumuklasa. Umhugsunarefni sé hve margar fóstureyðingar séu framkvæmdar hér á landi árlega. Fullt af fólki væri tilbúið að veita þeim börnum sem fæddust gott líf. Innlent 16.5.2024 22:49 Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir málsatvik úti fyrir Garðskagavita í nótt að skýrast. Skipstjóri og stýrimaður muni dvelja í fangelsi til morguns hið minnsta. Þeir voru um borð í fraktskipi sem sigldi á fiskibát með þeim afleiðingum að sjómaður lenti í lífsháska. Innlent 16.5.2024 21:45 Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Eldur kviknaði í fólksbíl á gatnamótum Dalbrautar og Sæbrautar nú í kvöld. Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins fljótt og engum sögum fer af því að ökumann bílsins hafi sakað. Innlent 16.5.2024 21:35 Einhver í herberginu segi ekki satt Halla Tómasdóttir segir augljóst að einhver þeirra sex forsetaefna sem tóku þátt í kappræðum á Stöð 2 í kvöld hafi tröll á sínum snærum sem ati aðra auri. Einhver þeirra sé því ekki að segja satt. Innlent 16.5.2024 21:03 „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Frambjóðendur til forseta lýstu almennt andstöðu við vopnakaup fyrir Úkraínu í kappræðum á Stöð 2 í kvöld. Þeir lögðu áherslu á hlutleysis- og friðarstefnu en fyrrverandi forsætisráðherra benti á að Íslandi væri þó ekki hlutlaus þjóð. Innlent 16.5.2024 20:52 Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og tæplega þrefaldar fylgi sitt. Innlent 16.5.2024 18:32 « ‹ 232 233 234 235 236 237 238 239 240 … 334 ›
Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir mikilvægt að forseti Íslands sé aldrei meðvirkur með ráðandi öflum. Alþingi megi aldrei upplifa það að afgreiðsla laga á Bessastöðum sé eins og sjálfsafgreiðsla á bensínstöð. Innlent 17.5.2024 13:24
Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Hörpu í dag. Á fundinum verða forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og matvælaráðherra. Málefni Grindavíkur verða til umræðu. Innlent 17.5.2024 12:44
Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir Rússa ekki stefna að því að hernema Kharkív en hersveitir landsins hafa sótt fram í héraðinu undanfarna daga. Erlent 17.5.2024 12:36
Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal. Innlent 17.5.2024 11:59
Slökktu eld á Seltjarnarnesi Slökkviliðið sinnir nú útkalli við Skólabraut á Seltjarnarnesi, en þar var eldur í tveggja hæða húsi með kjallara. Innlent 17.5.2024 11:56
Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Kristinn Hallgrímsson lögmaður hjá ARTA lögmönnum hefur sent bæjarstjórn Ölfuss bréf þar sem hann varar hana við hugsanlegu umboðsleysi stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista við efnisölu (KSDA). Innlent 17.5.2024 11:51
Fara fram á farbann Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt verða leiddir fyrir dómara í hádeginu. Lögreglan á Suðurnesjum fer fram á að mennirnir verði úrskurðaðir í farbann, en ekki gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er tvíþætt, annarsvegar á tildrögum slyssins og þess sem gerðist eftir á. Innlent 17.5.2024 11:33
Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Í hádegisfréttum fjöllum við um sjóslysið við Garðskagavita þar sem talið er að flutningaskip hafi siglt á strandveiðibát. Innlent 17.5.2024 11:33
Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu. Innlent 17.5.2024 11:30
Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar. Konráð hefur undanfarið unnið sem aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrún R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Innlent 17.5.2024 11:27
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. Erlent 17.5.2024 11:03
Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ „Nú er til dæmis mál sem brennur mjög augljóslega á ungu fólki í dag og ætti ekki að hafa farið framhjá neinum; umhverfis- og loftslagsmálin. Ég er búinn að vera að standa í þessari kosningabaráttu núna í einhverjar vikur og ég hef aldrei verið spurður út í það.“ Innlent 17.5.2024 10:30
Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu Innlent 17.5.2024 10:28
Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38
Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum. Innlent 17.5.2024 09:27
„Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Móðir sem missti son sinn nýlega þegar hann fyrirfór sér í fangelsi á Íslandi segist vona að andlát hans muni hafa áhrif á breytingar til hins betra á geðheilbrigði fanga og þjónustu fyrir þá. Hún skorar á yfirvöld að efla geðheilsuteymi fanga og styrkja betur við starf Afstöðu – félags fanga á Íslandi. Innlent 17.5.2024 09:02
Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17.5.2024 08:26
Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar. Innlent 17.5.2024 08:00
Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél Dálítil lægð mjakast nú til austurs skammt fyrir norðan land í dag og verður áttin því suðvestlæg á landinu í dag. Veður 17.5.2024 07:13
Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf. Innlent 17.5.2024 07:01
Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Lögregla á Frakklandi skaut mann til bana í dag sem er sagður hafa freistað þess að kveikja í bænahúsi gyðinga í borginni Rouen. Maðurinn var vopnaður eggvopni og var skotinn þegar hann færði sig í átt að lögreglu. Erlent 17.5.2024 07:00
Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu „Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok. Innlent 17.5.2024 06:40
Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Stjórnvöld á Spáni hafa neitað skipi um leyfi til að leggja að bryggju þar sem um borð eru vopn á leið til Ísrael. Utanríkisráðherra landsins segir þetta í samræmi við afstöðu Spánar. Erlent 17.5.2024 06:39
Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum. Innlent 17.5.2024 06:01
Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segir vanvirðingu þegar talað er um fóstur eða barn í móðurkviði sem frumuklasa. Umhugsunarefni sé hve margar fóstureyðingar séu framkvæmdar hér á landi árlega. Fullt af fólki væri tilbúið að veita þeim börnum sem fæddust gott líf. Innlent 16.5.2024 22:49
Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir málsatvik úti fyrir Garðskagavita í nótt að skýrast. Skipstjóri og stýrimaður muni dvelja í fangelsi til morguns hið minnsta. Þeir voru um borð í fraktskipi sem sigldi á fiskibát með þeim afleiðingum að sjómaður lenti í lífsháska. Innlent 16.5.2024 21:45
Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Eldur kviknaði í fólksbíl á gatnamótum Dalbrautar og Sæbrautar nú í kvöld. Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins fljótt og engum sögum fer af því að ökumann bílsins hafi sakað. Innlent 16.5.2024 21:35
Einhver í herberginu segi ekki satt Halla Tómasdóttir segir augljóst að einhver þeirra sex forsetaefna sem tóku þátt í kappræðum á Stöð 2 í kvöld hafi tröll á sínum snærum sem ati aðra auri. Einhver þeirra sé því ekki að segja satt. Innlent 16.5.2024 21:03
„Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Frambjóðendur til forseta lýstu almennt andstöðu við vopnakaup fyrir Úkraínu í kappræðum á Stöð 2 í kvöld. Þeir lögðu áherslu á hlutleysis- og friðarstefnu en fyrrverandi forsætisráðherra benti á að Íslandi væri þó ekki hlutlaus þjóð. Innlent 16.5.2024 20:52
Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og tæplega þrefaldar fylgi sitt. Innlent 16.5.2024 18:32