Fréttir Albert neitaði sök Ákæra á hendur Alberti Guðmundssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, fyrir kynferðisbrot var þingfest í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Albert mætti ekki við þingfestinguna en samkvæmt heimildum Vísis neitaði verjandi hans sök fyrir hans hönd. Innlent 3.7.2024 12:55 Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp sem mun skoða fýsileika þess að stofnaður verði þjóðgarður í Þórsmörk. Ráðherranum líst vel á hugmyndina og segir ánægjulegt að sjá hvernig sveitarfélögin eru að taka við sér. Sveitarstjóri segir friðlýsingu bjóða tækifæri í uppbyggingu. Innlent 3.7.2024 12:37 Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Skort á heimilislæknum má meðal annars rekja til þess hversu margir þeirra eru að láta af störfum vegna aldurs og örar fjölgunar landsmanna, að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna. Af þessum sökum hafi ekki tekist að fullmanna heilsugæslustöðvar sem eigi að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Innlent 3.7.2024 11:53 Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest Sjómenn sem nú eru sambandslausir út á miðum eftir að RÚV hætti útsendingum gegnum gervihnött um mánaðamótin eru arfavitlausir vegna málsins, að sögn formanns Sjómannasambandsins. Ekkert samráð hafi verið haft við sjómenn. Menningarmálaráðherra hefur óskað eftir því við útvarpsstjóra að útsendingum verði haldið áfram til áramóta. Innlent 3.7.2024 11:42 Læknaskortur og sjávarháski Í hádegisfréttum verður rætt við formann félags íslenskra heimilislækna sem segir að skort á heimilislæknum megi meðal annars rekja til þess hversu margir séu að láta af störfum vegna aldurs. Innlent 3.7.2024 11:36 Ekki náttúruspjöll heldur forvarnir Fréttastofu barst í gær ábending um tilvik um náttúruspjöll á Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði. Þungarokkssveitin austfirska Chögma birti myndband á reikning sinn á samfélagsmiðilinn TikTok þar sem tveir meðlimir sveitarinnar sjást velta óstöðugum grjóthnullungum fram af klöpp sem hröpuðu og skullu í fjöruborðið með tilheyrandi látum. Innlent 3.7.2024 11:31 „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ „Ég kann ekki að gera árás með hníf. Ég er ekki ógnandi maður. Ég er bara venjulegur maður. Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál,“ sagði Mohamad Kourani fyrir dómi í dag en hann er meðal annars grunaður um að stinga tvo menn í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári. Innlent 3.7.2024 10:43 „Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Björk Úlfarsdóttir, umhverfis, gæða og nýsköpunarstjóri hjá Colas malbikunarfyrirtæki og formaður Félags kvenna í vegagerð segir klæðingu á vegi ekki alslæma en að malbikið sé betra. Klæðingu eigi að nota á umferðarminni vegi. Hún segir Vegagerðina ekki anna eftirspurn og viðhaldsskuldina aðeins aukast þegar hugsað er í skammtímalausnum. Innlent 3.7.2024 10:33 Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir sérdeilis ólíðandi að sjómenn þurfi að greiða afnotagjöld af RÚV ohf., en séu hins vegar sviptir möguleikum á að ná sjónvarps og útvarpssendingum. Innlent 3.7.2024 09:43 Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Maður á þrítugsaldri lést af völdum sára sinna í nótt eftir að hafa verið stunginn í Amagerhverfi Kaupmannahafnar. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið 25 ára konu í tengslum við málið. Erlent 3.7.2024 09:10 Faglært starfsfólk og eftirlit skorti í búsetuúrræðum fyrir börn Eftirlit umboðsmanns Alþingis með Klettabæ og Vinakoti, einkarekin búsetuúrræði fyrir börn, leiddi í ljós að fagfólk hefur takmarkaða aðkomu að umönnun barna sem fá þar þjónustu frá degi til dags. Innlent 3.7.2024 09:00 Skipverji á strandveiðibát í bráðri hættu Þyrla Landhelgisgæslunnar og þrír björgunarbátar voru kallaðir út um klukkan 23 í gærkvöldi vegna leka í strandveiðibáti. Einn var um borð og var hann fluttur á slysadeild Landspítalans vegna áverka. Viggó M. Sigurðsson, hjá aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar, segir að Landhelgisgæslan hafi metið það svo að hann hafi verið í bráðri hættu. Innlent 3.7.2024 08:41 Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu hafa fyrirskipað eyðingu þúsunda sýna gjafasæðis vegna hættu á því að ekki sé hægt að rekja uppruna þess. Umboðsmaður heilbrigðismála segir í nýrri skýrslu að ef ekki er hægt að auðkenna það missi foreldrar tækifæri á að fá að vita um ýmsar erfðafræðilegar og læknisfræðilegar upplýsingar auk þess sem það eykur líkurnar á sifjaspell. Erlent 3.7.2024 08:08 Beryl við það að skella á Jamaíku Fellybylurinn Beryl er nú við það að lenda á Jamaíka í Karíbahafi eftir að hafa farið yfir nokkrar smærri eyjar á leið sinni. Erlent 3.7.2024 07:52 Þrír af hverjum fjórum sitja eftir með sárt ennið Smiður og frændsystkini voru á meðal þeirra 75 sem tryggðu sér sæti á námsbekk í læknadeild Háskóla Íslands í vetur. Einn af hverjum fjórum próftökum fær pláss. Deildarforseti Læknadeildar vonast til að geta fjölgað læknanemum enn frekar á næstu árum. Innlent 3.7.2024 07:31 Skýjað út vikuna Veðurspá gerir ráð fyrir að vindur halli sér smám saman í norðaustanátt sem muni endast út vikuna. Skýjað verði í flestum landshlutum næstu vikuna, þótt vissulega sjáist til sólar inn á milli. Veður 3.7.2024 07:26 „Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Börnum á aldrinum 3 til 17 ára sem eiga foreldra sem hafa skilið stendur nú til boða nýtt úrræði á netinu þar sem þau geta fræðst um skilnað og áhrif þess á líf þeirra og tilfinningar. Um er að ræða 28 áfanga á netinu sem eru sérsniðin að aldri og flokkuð eftir þemum. Fjallað er um söknuð, samsettar fjölskyldur, hvernig eigi að bregðast við þegar foreldrar rífast, tilfinningar og réttindi barna. Innlent 3.7.2024 06:12 Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Öldungadeildarþingmaðurinn Lloyd Doggett er fyrsti þingmaðurinn úr röðum Demókrata til þess að kalla eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar og hætti við forsetaframboð. Erlent 2.7.2024 23:49 Friðhelgin stórauki vald forsetans Dósent í stjórnmálafræði segir niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna, þess efnis að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti geti notið friðhelgi frá ákærum vegna embættisverka hans, munu hafa mikil áhrif á kosningabaráttuna framundan. Erlent 2.7.2024 23:10 Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum sinnti í dag útkalli vegna göngumanns sem hafði dottið á Bláhnjúk skammt sunnan Landmannalauga. Innlent 2.7.2024 22:39 Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Íbúí í Vatnsholti í Reykjavík smitaðist af hermannaveiki og hefur heilbrigðiseftirlit borgarinnar gripið til aðgerða til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu. Innlent 2.7.2024 21:38 Ákvörðun um refsingu Trump frestað Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að fresta ákvörðun um refsingu í máli Donald Trump fram í september á þessu ári. Trump var sakfelldur í málinu í maí á þessu ári fyrir skjalafals vegna mútugreiðslna til klámmyndaleikkonu. Erlent 2.7.2024 20:13 Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur Formaður Framsóknarflokksins rekur lítið fylgi Framsóknarflokksins til stöðunnar í efnahagsmálum, en segist eiga von á að fylgið taki við sér með vetrinum. Prófessor í stjórnmálafræði segir fleira ráða fylgistapinu en mikil verðbólga og háir vextir. Innlent 2.7.2024 19:43 Íslandsbankahúsið rústir einar Íslandsbankahúsið á Kirkjusandi er rústir einar. Unnið hefur verið að niðurrifi hússins í rúma tvo mánuði. Innlent 2.7.2024 19:42 Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Slys varð á Norðurlandsvegi í Vatnsskarði í kvöld þegar jeppi hafnaði utanvegar. Þrír voru fluttir til aðhlynningar á Akureyri. Innlent 2.7.2024 19:18 Umræðan verði að vera málefnaleg Edda Sif Pind Aradóttir framkvæmdastjóri Carbfix segir eðlilegt að íbúar spyrji spurninga um verkefni fyrirtækisins í Straumsvík. Umræðan verði hins vegar að vera málefnaleg. Innlent 2.7.2024 18:20 Lítið fylgi Framsóknar og kynjaðar paprikur Formaður Framsóknarflokksins segir lítið fylgi flokksins mega rekja til stöðunnar í efnahagsmálum. Prófessor í stjórnmálafræði telur meira þarna að baki, sérstaklega þreytu almennings á að flokkar, sem illa nái saman, sitji saman við ríkisstjórnarborðið. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 2.7.2024 18:00 Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Guðmundur Erlendsson neyddist til nauðhemla á bifhjóli sínu er hann ók eftir þjóðvegi eitt um Langadal í átt að Akureyri á sunnudagskvöldið vegna bifreiðar á vegarhelmingi hans sem ók á móti honum úr gagnstæðri átt. Bifreiðin hafi þá ætlað að taka fram úr bílalest á hinum vegarhelmingnum. Innlent 2.7.2024 17:00 Landris nú hraðara en fyrir síðasta eldgos Kvikuflæði heldur áfram undir Svartsengi en hraði landriss mælist nú meiri en fyrir síðasta eldgos á Reykjanesinu sem hófst þann 29. maí og lauk 22. júní. Í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands kemur fram að líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum eða mánuðum. Innlent 2.7.2024 16:16 Hjálmar segist ekki kærður því það sé ekkert að kæra Hjálmar Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri BÍ segir stjórnina senda sér kaldar kveðjur við starfslokin. En fjallið hafi nú tekið joðsótt og það hafi fæðst mús. Innlent 2.7.2024 16:11 « ‹ 170 171 172 173 174 175 176 177 178 … 334 ›
Albert neitaði sök Ákæra á hendur Alberti Guðmundssyni, landsliðsmanni í knattspyrnu, fyrir kynferðisbrot var þingfest í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Albert mætti ekki við þingfestinguna en samkvæmt heimildum Vísis neitaði verjandi hans sök fyrir hans hönd. Innlent 3.7.2024 12:55
Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp sem mun skoða fýsileika þess að stofnaður verði þjóðgarður í Þórsmörk. Ráðherranum líst vel á hugmyndina og segir ánægjulegt að sjá hvernig sveitarfélögin eru að taka við sér. Sveitarstjóri segir friðlýsingu bjóða tækifæri í uppbyggingu. Innlent 3.7.2024 12:37
Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Skort á heimilislæknum má meðal annars rekja til þess hversu margir þeirra eru að láta af störfum vegna aldurs og örar fjölgunar landsmanna, að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna. Af þessum sökum hafi ekki tekist að fullmanna heilsugæslustöðvar sem eigi að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Innlent 3.7.2024 11:53
Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest Sjómenn sem nú eru sambandslausir út á miðum eftir að RÚV hætti útsendingum gegnum gervihnött um mánaðamótin eru arfavitlausir vegna málsins, að sögn formanns Sjómannasambandsins. Ekkert samráð hafi verið haft við sjómenn. Menningarmálaráðherra hefur óskað eftir því við útvarpsstjóra að útsendingum verði haldið áfram til áramóta. Innlent 3.7.2024 11:42
Læknaskortur og sjávarháski Í hádegisfréttum verður rætt við formann félags íslenskra heimilislækna sem segir að skort á heimilislæknum megi meðal annars rekja til þess hversu margir séu að láta af störfum vegna aldurs. Innlent 3.7.2024 11:36
Ekki náttúruspjöll heldur forvarnir Fréttastofu barst í gær ábending um tilvik um náttúruspjöll á Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði. Þungarokkssveitin austfirska Chögma birti myndband á reikning sinn á samfélagsmiðilinn TikTok þar sem tveir meðlimir sveitarinnar sjást velta óstöðugum grjóthnullungum fram af klöpp sem hröpuðu og skullu í fjöruborðið með tilheyrandi látum. Innlent 3.7.2024 11:31
„Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ „Ég kann ekki að gera árás með hníf. Ég er ekki ógnandi maður. Ég er bara venjulegur maður. Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál,“ sagði Mohamad Kourani fyrir dómi í dag en hann er meðal annars grunaður um að stinga tvo menn í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári. Innlent 3.7.2024 10:43
„Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Björk Úlfarsdóttir, umhverfis, gæða og nýsköpunarstjóri hjá Colas malbikunarfyrirtæki og formaður Félags kvenna í vegagerð segir klæðingu á vegi ekki alslæma en að malbikið sé betra. Klæðingu eigi að nota á umferðarminni vegi. Hún segir Vegagerðina ekki anna eftirspurn og viðhaldsskuldina aðeins aukast þegar hugsað er í skammtímalausnum. Innlent 3.7.2024 10:33
Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir sérdeilis ólíðandi að sjómenn þurfi að greiða afnotagjöld af RÚV ohf., en séu hins vegar sviptir möguleikum á að ná sjónvarps og útvarpssendingum. Innlent 3.7.2024 09:43
Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Maður á þrítugsaldri lést af völdum sára sinna í nótt eftir að hafa verið stunginn í Amagerhverfi Kaupmannahafnar. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið 25 ára konu í tengslum við málið. Erlent 3.7.2024 09:10
Faglært starfsfólk og eftirlit skorti í búsetuúrræðum fyrir börn Eftirlit umboðsmanns Alþingis með Klettabæ og Vinakoti, einkarekin búsetuúrræði fyrir börn, leiddi í ljós að fagfólk hefur takmarkaða aðkomu að umönnun barna sem fá þar þjónustu frá degi til dags. Innlent 3.7.2024 09:00
Skipverji á strandveiðibát í bráðri hættu Þyrla Landhelgisgæslunnar og þrír björgunarbátar voru kallaðir út um klukkan 23 í gærkvöldi vegna leka í strandveiðibáti. Einn var um borð og var hann fluttur á slysadeild Landspítalans vegna áverka. Viggó M. Sigurðsson, hjá aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar, segir að Landhelgisgæslan hafi metið það svo að hann hafi verið í bráðri hættu. Innlent 3.7.2024 08:41
Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu hafa fyrirskipað eyðingu þúsunda sýna gjafasæðis vegna hættu á því að ekki sé hægt að rekja uppruna þess. Umboðsmaður heilbrigðismála segir í nýrri skýrslu að ef ekki er hægt að auðkenna það missi foreldrar tækifæri á að fá að vita um ýmsar erfðafræðilegar og læknisfræðilegar upplýsingar auk þess sem það eykur líkurnar á sifjaspell. Erlent 3.7.2024 08:08
Beryl við það að skella á Jamaíku Fellybylurinn Beryl er nú við það að lenda á Jamaíka í Karíbahafi eftir að hafa farið yfir nokkrar smærri eyjar á leið sinni. Erlent 3.7.2024 07:52
Þrír af hverjum fjórum sitja eftir með sárt ennið Smiður og frændsystkini voru á meðal þeirra 75 sem tryggðu sér sæti á námsbekk í læknadeild Háskóla Íslands í vetur. Einn af hverjum fjórum próftökum fær pláss. Deildarforseti Læknadeildar vonast til að geta fjölgað læknanemum enn frekar á næstu árum. Innlent 3.7.2024 07:31
Skýjað út vikuna Veðurspá gerir ráð fyrir að vindur halli sér smám saman í norðaustanátt sem muni endast út vikuna. Skýjað verði í flestum landshlutum næstu vikuna, þótt vissulega sjáist til sólar inn á milli. Veður 3.7.2024 07:26
„Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Börnum á aldrinum 3 til 17 ára sem eiga foreldra sem hafa skilið stendur nú til boða nýtt úrræði á netinu þar sem þau geta fræðst um skilnað og áhrif þess á líf þeirra og tilfinningar. Um er að ræða 28 áfanga á netinu sem eru sérsniðin að aldri og flokkuð eftir þemum. Fjallað er um söknuð, samsettar fjölskyldur, hvernig eigi að bregðast við þegar foreldrar rífast, tilfinningar og réttindi barna. Innlent 3.7.2024 06:12
Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Öldungadeildarþingmaðurinn Lloyd Doggett er fyrsti þingmaðurinn úr röðum Demókrata til þess að kalla eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar og hætti við forsetaframboð. Erlent 2.7.2024 23:49
Friðhelgin stórauki vald forsetans Dósent í stjórnmálafræði segir niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna, þess efnis að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti geti notið friðhelgi frá ákærum vegna embættisverka hans, munu hafa mikil áhrif á kosningabaráttuna framundan. Erlent 2.7.2024 23:10
Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum sinnti í dag útkalli vegna göngumanns sem hafði dottið á Bláhnjúk skammt sunnan Landmannalauga. Innlent 2.7.2024 22:39
Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Íbúí í Vatnsholti í Reykjavík smitaðist af hermannaveiki og hefur heilbrigðiseftirlit borgarinnar gripið til aðgerða til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu. Innlent 2.7.2024 21:38
Ákvörðun um refsingu Trump frestað Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að fresta ákvörðun um refsingu í máli Donald Trump fram í september á þessu ári. Trump var sakfelldur í málinu í maí á þessu ári fyrir skjalafals vegna mútugreiðslna til klámmyndaleikkonu. Erlent 2.7.2024 20:13
Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur Formaður Framsóknarflokksins rekur lítið fylgi Framsóknarflokksins til stöðunnar í efnahagsmálum, en segist eiga von á að fylgið taki við sér með vetrinum. Prófessor í stjórnmálafræði segir fleira ráða fylgistapinu en mikil verðbólga og háir vextir. Innlent 2.7.2024 19:43
Íslandsbankahúsið rústir einar Íslandsbankahúsið á Kirkjusandi er rústir einar. Unnið hefur verið að niðurrifi hússins í rúma tvo mánuði. Innlent 2.7.2024 19:42
Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Slys varð á Norðurlandsvegi í Vatnsskarði í kvöld þegar jeppi hafnaði utanvegar. Þrír voru fluttir til aðhlynningar á Akureyri. Innlent 2.7.2024 19:18
Umræðan verði að vera málefnaleg Edda Sif Pind Aradóttir framkvæmdastjóri Carbfix segir eðlilegt að íbúar spyrji spurninga um verkefni fyrirtækisins í Straumsvík. Umræðan verði hins vegar að vera málefnaleg. Innlent 2.7.2024 18:20
Lítið fylgi Framsóknar og kynjaðar paprikur Formaður Framsóknarflokksins segir lítið fylgi flokksins mega rekja til stöðunnar í efnahagsmálum. Prófessor í stjórnmálafræði telur meira þarna að baki, sérstaklega þreytu almennings á að flokkar, sem illa nái saman, sitji saman við ríkisstjórnarborðið. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 2.7.2024 18:00
Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Guðmundur Erlendsson neyddist til nauðhemla á bifhjóli sínu er hann ók eftir þjóðvegi eitt um Langadal í átt að Akureyri á sunnudagskvöldið vegna bifreiðar á vegarhelmingi hans sem ók á móti honum úr gagnstæðri átt. Bifreiðin hafi þá ætlað að taka fram úr bílalest á hinum vegarhelmingnum. Innlent 2.7.2024 17:00
Landris nú hraðara en fyrir síðasta eldgos Kvikuflæði heldur áfram undir Svartsengi en hraði landriss mælist nú meiri en fyrir síðasta eldgos á Reykjanesinu sem hófst þann 29. maí og lauk 22. júní. Í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands kemur fram að líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum eða mánuðum. Innlent 2.7.2024 16:16
Hjálmar segist ekki kærður því það sé ekkert að kæra Hjálmar Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri BÍ segir stjórnina senda sér kaldar kveðjur við starfslokin. En fjallið hafi nú tekið joðsótt og það hafi fæðst mús. Innlent 2.7.2024 16:11