Guðmundur tekur við Melsungen Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2020 17:08 Guðmundur Guðmundsson er öllum hnútum kunnugur í þýsku 1. deildinni. vísir/epa Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, hefur verið ráðinn þjálfari Melsungen í Þýskalandi. Guðmundur er ráðinn til loka yfirstandandi leiktíðar en ef gagnkvæmur vilji er til þess þá er möguleiki á að hann geri svo samning til lengri tíma. Guðmundur mun áfram stýra íslenska landsliðinu samhliða nýja starfinu. Í yfirlýsingu frá HSÍ segir að Guðmundur hafi verið í samráði við sambandið allt frá því að viðræður við Melsungen hófust og að nýja starfið muni engin áhrif hafa á störf Guðmundar sem landsliðsþjálfari. Melsungen er sem stendur í 7. sæti efstu deildar Þýskalands með 28 stig eftir 23 leiki. Félagið greindi frá því í gær að Heiko Grimm hefði verið sagt upp störfum og að leit væri hafin að arftaka hans. „Okkur tókst að ráða reyndan þjálfara sem er vel þekktur í deildinni og með frábæran feril sem landsliðsþjálfari,“ sagði í yfirlýsingu Melsungen. Guðmundur þjálfaði síðast í Þýskalandi þegar hann stýrði Rhein-Neckar Löwen á árunum 2010-2014, en undir hans stjórn vann liðið EHF-keppnina árið 2013. Síðan þá hefur Guðmundur þjálfað landslið, fyrst Danmörku sem hann gerði að Ólympíumeistara 2016, svo Barein og loks Íslands frá árinu 2018. Axel Geerken, stjórnarmaður hjá Melsungen, segir að Guðmundur hafi ekki verið lengi að taka ákvörðun þegar til hans var leitað: „Hann var mjög ánægður með þetta og ákvað sig nánast á stundinni. Melsungen væri með spennandi hóp sem enn getur afrekað eitthvað á þessu tímabili. Hann hlakkaði til að snúa aftur í þýsku deildina,“ sagði Geerken í yfirlýsingu Melsungen. „Það er alls ekki sjálfgefið að fá þjálfara í þessum klassa. Sérstaklega á svona skömmum tíma. Það var auðvitað viss heppni fólgin í því. Við erum þeim mun ánægðari með afstöðu Guðmundar og vilja til að byrja með liðið á laugardaginn,“ sagði Geerken. Guðmundur verður formlega kynntur til leiks hjá Melsungen á blaðamannafundi á föstudaginn. Hann mun fylgjast með leik liðsins við Bergischer annað kvöld í sjónvarpi en Melsungen tekur svo á móti Bjerringbro-Silkeborg í EHF-keppninni á laugardagskvöld. Þýski handboltinn Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, hefur verið ráðinn þjálfari Melsungen í Þýskalandi. Guðmundur er ráðinn til loka yfirstandandi leiktíðar en ef gagnkvæmur vilji er til þess þá er möguleiki á að hann geri svo samning til lengri tíma. Guðmundur mun áfram stýra íslenska landsliðinu samhliða nýja starfinu. Í yfirlýsingu frá HSÍ segir að Guðmundur hafi verið í samráði við sambandið allt frá því að viðræður við Melsungen hófust og að nýja starfið muni engin áhrif hafa á störf Guðmundar sem landsliðsþjálfari. Melsungen er sem stendur í 7. sæti efstu deildar Þýskalands með 28 stig eftir 23 leiki. Félagið greindi frá því í gær að Heiko Grimm hefði verið sagt upp störfum og að leit væri hafin að arftaka hans. „Okkur tókst að ráða reyndan þjálfara sem er vel þekktur í deildinni og með frábæran feril sem landsliðsþjálfari,“ sagði í yfirlýsingu Melsungen. Guðmundur þjálfaði síðast í Þýskalandi þegar hann stýrði Rhein-Neckar Löwen á árunum 2010-2014, en undir hans stjórn vann liðið EHF-keppnina árið 2013. Síðan þá hefur Guðmundur þjálfað landslið, fyrst Danmörku sem hann gerði að Ólympíumeistara 2016, svo Barein og loks Íslands frá árinu 2018. Axel Geerken, stjórnarmaður hjá Melsungen, segir að Guðmundur hafi ekki verið lengi að taka ákvörðun þegar til hans var leitað: „Hann var mjög ánægður með þetta og ákvað sig nánast á stundinni. Melsungen væri með spennandi hóp sem enn getur afrekað eitthvað á þessu tímabili. Hann hlakkaði til að snúa aftur í þýsku deildina,“ sagði Geerken í yfirlýsingu Melsungen. „Það er alls ekki sjálfgefið að fá þjálfara í þessum klassa. Sérstaklega á svona skömmum tíma. Það var auðvitað viss heppni fólgin í því. Við erum þeim mun ánægðari með afstöðu Guðmundar og vilja til að byrja með liðið á laugardaginn,“ sagði Geerken. Guðmundur verður formlega kynntur til leiks hjá Melsungen á blaðamannafundi á föstudaginn. Hann mun fylgjast með leik liðsins við Bergischer annað kvöld í sjónvarpi en Melsungen tekur svo á móti Bjerringbro-Silkeborg í EHF-keppninni á laugardagskvöld.
Þýski handboltinn Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira