Eyþór Aron skoraði fernu í risasigri Skagamanna í Unglingadeild UEFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2019 16:20 Eyþór Aron Wöhler er hér til hægri með Sigurði Þór Sigursteinssyni, framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA. Mynd/Heimasíða ÍA Skagamenn komust örugglega áfram í sextán liða úrslit Unglingadeild UEFA með 12-1 stórsigri á útivelli á móti Levadia Tallinn frá Eistlandi. Hetja dagsins var hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler sem var með tvær þrennur í leiknum. Skagamenn voru í fínum málum eftir fyrri leikinn upp á Skaga og unnu að lokum 16-1 samanlagt. Þessi 12-1 sigur er örugglega stærsti sigur íslensks knattspyrnuliðs í Evrópukeppni og hann var að vinnast á útivelli. Skagamenn hafa unnið 2. flokkinn undanfarin tvö sumur og þarna eru gríðarlega spennandi knattspyrnumenn að koma upp. Skagamenn mæta Derby County frá Englandi í næstu umferð en Derby vann öruggan sigur á Minsk frá Hvíta-Rússlandi í tveimur leikjum, samtals 9-2. Fyrri leikurinn upp á Akranesi fór 4-0 og þá var ÍA-liðið komið í 6-0 í hálfleik í seinni leiknum í dag. Eistarnir náðu að minnka muninn þegar Skagamenn voru búnir að skora ellefu mörk. Hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler fór á kostum og skoraði fernu í leiknum en hann var á yngsta ári í 2. flokknum í sumar. Öll fjögur mörkin hans komu á fyrstu 32 mínútum leiksins. Eyþór Aron átti einnig þrjár stoðsendingar á félaga sína samkvæmt beinni textalýsingu ÍATV sem þýðir að Eyþór kom að átta mörkum í þessum leik. Gísli Laxdal Unnarsson var líka á skotskónum og skoraði tvö mörk en hin mörk Skagamanna skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (úr víti), Elís Dofri G Gylfason, Aron Snær Ingason, Brynjar Snær Pálsson og varamaðurinn Aron Snær Guðjónsson, sem skoraði tvívegis á lokamínútunum. Mörk Skagamanna í fyrri leiknum skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (tvö mörk), Brynjar Snær Pálsson og Marteinn Theodórsson.Hér má nálgast tölfræði UEFA úr þessum ótrúlega leik.2. flokkur ÍA.Mynd/Heimasíða ÍA Fótbolti Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Fótbolti Elliði segir HM ekki í hættu Handbolti Fleiri fréttir Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjá meira
Skagamenn komust örugglega áfram í sextán liða úrslit Unglingadeild UEFA með 12-1 stórsigri á útivelli á móti Levadia Tallinn frá Eistlandi. Hetja dagsins var hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler sem var með tvær þrennur í leiknum. Skagamenn voru í fínum málum eftir fyrri leikinn upp á Skaga og unnu að lokum 16-1 samanlagt. Þessi 12-1 sigur er örugglega stærsti sigur íslensks knattspyrnuliðs í Evrópukeppni og hann var að vinnast á útivelli. Skagamenn hafa unnið 2. flokkinn undanfarin tvö sumur og þarna eru gríðarlega spennandi knattspyrnumenn að koma upp. Skagamenn mæta Derby County frá Englandi í næstu umferð en Derby vann öruggan sigur á Minsk frá Hvíta-Rússlandi í tveimur leikjum, samtals 9-2. Fyrri leikurinn upp á Akranesi fór 4-0 og þá var ÍA-liðið komið í 6-0 í hálfleik í seinni leiknum í dag. Eistarnir náðu að minnka muninn þegar Skagamenn voru búnir að skora ellefu mörk. Hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler fór á kostum og skoraði fernu í leiknum en hann var á yngsta ári í 2. flokknum í sumar. Öll fjögur mörkin hans komu á fyrstu 32 mínútum leiksins. Eyþór Aron átti einnig þrjár stoðsendingar á félaga sína samkvæmt beinni textalýsingu ÍATV sem þýðir að Eyþór kom að átta mörkum í þessum leik. Gísli Laxdal Unnarsson var líka á skotskónum og skoraði tvö mörk en hin mörk Skagamanna skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (úr víti), Elís Dofri G Gylfason, Aron Snær Ingason, Brynjar Snær Pálsson og varamaðurinn Aron Snær Guðjónsson, sem skoraði tvívegis á lokamínútunum. Mörk Skagamanna í fyrri leiknum skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (tvö mörk), Brynjar Snær Pálsson og Marteinn Theodórsson.Hér má nálgast tölfræði UEFA úr þessum ótrúlega leik.2. flokkur ÍA.Mynd/Heimasíða ÍA
Fótbolti Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Fótbolti Elliði segir HM ekki í hættu Handbolti Fleiri fréttir Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjá meira