Arsenal í Evrópuúrslitaleikjum: Nayim, misheppnuð víti og gleði og sorg á Parken Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. maí 2019 11:30 David Seaman niðurlútur eftir úrslitaleik Arsenal og Real Zaragoza í Evrópukeppni bikarhafa 1995. Seaman fékk á sig mark af löngu færi á lokamínútu framlengingarinnar. vísir/getty Arsenal mætir Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bakú í Aserbaídsjan í kvöld. Þetta er sjötti úrslitaleikur Arsenal í Evrópukeppni og sagan er ekki beint hliðholl Skyttunum þegar kemur að Evrópuúrslitaleikjum. Arsenal komst í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1979-80 þar sem liðið mætti Valencia á Heysel vellinum í Brüssel. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Valencia betur, 5-4. Liam Brady og Graham Rix klúðruðu sínum spyrnum fyrir Arsenal.Leikmenn Arsenal hughreysta Graham Rix sem klúðraði víti sínu í vítakeppninni gegn Valencia í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1980.vísir/gettyArsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1993-94. Andstæðingurinn var Parma frá Ítalíu og fór úrslitaleikurinn fram á Parken í Danmörku. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum. Það gerði Alan Smith með skoti á lofti frá vítateigslínu á 20. mínútu. Hann tryggði Skyttunum þar með eina Evróputitilinn í sögu félagsins.Alan Smith var hetja Arsenal gegn Parma í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1994.vísir/getty Arsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa árið eftir. Skytturnar mættu þá Real Zaragoza á Parc des Princes, heimavelli Paris Saint-Germain. Juan Esnáider kom Zaragoza yfir á 68. mínútu en níu mínútum síðar jafnaði John Hartson fyrir Arsenal. Leikurinn var framlengdur og allt benti til þess að úrslitin myndu ráðast á vítapunktinum. En á lokamínútu framlengingarinnar skoraði Nayim, fyrrverandi leikmaður Tottenham, sigurmark Zaragoza með skoti af rúmlega 35 metra færi sem sveif yfir David Seaman í marki Arsenal. Árið 2000 komst Arsenal í úrslit Evrópukeppni félagsliða þar sem liðið mætti Galatasary. Líkt og gegn Parma sex árum fyrr fór leikurinn fram á Parken í Kaupmannahöfn. Úrslitin réðust í vítakeppni sem Galatasary vann, 4-1. Tyrkirnir skoruðu úr öllum sínum spyrnum á meðan Davor Suker og Patrick Viera skutu í markrammann fyrir Arsenal. Árið 2006 komst Arsenal í fyrsta og eina sinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Á leið sinni í úrslitaleikinn héldu Skytturnar hreinu í tíu leikjum í röð. Úrslitaleikurinn, sem fór fram á Stade de France, byrjaði ekki vel fyrir Arsenal því á 18. mínútu var þýski markvörðurinn Jens Lehmann rekinn af velli fyrir brot á Samuel Eto'o. Hann varð þar með fyrsti leikmaðurinn sem var rekinn út af í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir liðsmuninn komst Arsenal yfir þegar Sol Campbell skoraði með skalla á 37. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik, Skyttunum í vil. Barcelona sótti stíft í seinni hálfleik og pressan bar loks árangur á 76. mínútu þegar Eto'o jafnaði. Fjórum mínútum síðar skoraði varamaðurinn Juliano Belletti sigurmarkið. Annar varamaður, Henrik Larsson, lagði bæði mörkin upp. Lokatölur 2-1, Barcelona í vil sem vann þarna Meistaradeildina í annað sinn í sögu félagsins. Leikur Chelsea og Arsenal hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Evrópudeild UEFA Tengdar fréttir Sagan á bak við framherjaparið sem gæti fært Arsenal Evróputitil í kvöld Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette mynda eitt öflugasta framherjapar fótboltaheimsins í dag. Arsenal treystir á þá og þeirra samstarf í Bakú í kvöld. 29. maí 2019 12:00 Lögreglan í Bakú stöðvaði stuðningsmenn í treyjum Mkhitaryan | Myndband Stuðningsmenn Arsenal voru stöðvaðir af lögreglunni í Bakú fyrir að vera í treyjum merktum Henrikh Mkhitaryan. 29. maí 2019 07:30 Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Arsenal mætir Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bakú í Aserbaídsjan í kvöld. Þetta er sjötti úrslitaleikur Arsenal í Evrópukeppni og sagan er ekki beint hliðholl Skyttunum þegar kemur að Evrópuúrslitaleikjum. Arsenal komst í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1979-80 þar sem liðið mætti Valencia á Heysel vellinum í Brüssel. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Valencia betur, 5-4. Liam Brady og Graham Rix klúðruðu sínum spyrnum fyrir Arsenal.Leikmenn Arsenal hughreysta Graham Rix sem klúðraði víti sínu í vítakeppninni gegn Valencia í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1980.vísir/gettyArsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1993-94. Andstæðingurinn var Parma frá Ítalíu og fór úrslitaleikurinn fram á Parken í Danmörku. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum. Það gerði Alan Smith með skoti á lofti frá vítateigslínu á 20. mínútu. Hann tryggði Skyttunum þar með eina Evróputitilinn í sögu félagsins.Alan Smith var hetja Arsenal gegn Parma í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1994.vísir/getty Arsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa árið eftir. Skytturnar mættu þá Real Zaragoza á Parc des Princes, heimavelli Paris Saint-Germain. Juan Esnáider kom Zaragoza yfir á 68. mínútu en níu mínútum síðar jafnaði John Hartson fyrir Arsenal. Leikurinn var framlengdur og allt benti til þess að úrslitin myndu ráðast á vítapunktinum. En á lokamínútu framlengingarinnar skoraði Nayim, fyrrverandi leikmaður Tottenham, sigurmark Zaragoza með skoti af rúmlega 35 metra færi sem sveif yfir David Seaman í marki Arsenal. Árið 2000 komst Arsenal í úrslit Evrópukeppni félagsliða þar sem liðið mætti Galatasary. Líkt og gegn Parma sex árum fyrr fór leikurinn fram á Parken í Kaupmannahöfn. Úrslitin réðust í vítakeppni sem Galatasary vann, 4-1. Tyrkirnir skoruðu úr öllum sínum spyrnum á meðan Davor Suker og Patrick Viera skutu í markrammann fyrir Arsenal. Árið 2006 komst Arsenal í fyrsta og eina sinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Á leið sinni í úrslitaleikinn héldu Skytturnar hreinu í tíu leikjum í röð. Úrslitaleikurinn, sem fór fram á Stade de France, byrjaði ekki vel fyrir Arsenal því á 18. mínútu var þýski markvörðurinn Jens Lehmann rekinn af velli fyrir brot á Samuel Eto'o. Hann varð þar með fyrsti leikmaðurinn sem var rekinn út af í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir liðsmuninn komst Arsenal yfir þegar Sol Campbell skoraði með skalla á 37. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik, Skyttunum í vil. Barcelona sótti stíft í seinni hálfleik og pressan bar loks árangur á 76. mínútu þegar Eto'o jafnaði. Fjórum mínútum síðar skoraði varamaðurinn Juliano Belletti sigurmarkið. Annar varamaður, Henrik Larsson, lagði bæði mörkin upp. Lokatölur 2-1, Barcelona í vil sem vann þarna Meistaradeildina í annað sinn í sögu félagsins. Leikur Chelsea og Arsenal hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Evrópudeild UEFA Tengdar fréttir Sagan á bak við framherjaparið sem gæti fært Arsenal Evróputitil í kvöld Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette mynda eitt öflugasta framherjapar fótboltaheimsins í dag. Arsenal treystir á þá og þeirra samstarf í Bakú í kvöld. 29. maí 2019 12:00 Lögreglan í Bakú stöðvaði stuðningsmenn í treyjum Mkhitaryan | Myndband Stuðningsmenn Arsenal voru stöðvaðir af lögreglunni í Bakú fyrir að vera í treyjum merktum Henrikh Mkhitaryan. 29. maí 2019 07:30 Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Sagan á bak við framherjaparið sem gæti fært Arsenal Evróputitil í kvöld Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette mynda eitt öflugasta framherjapar fótboltaheimsins í dag. Arsenal treystir á þá og þeirra samstarf í Bakú í kvöld. 29. maí 2019 12:00
Lögreglan í Bakú stöðvaði stuðningsmenn í treyjum Mkhitaryan | Myndband Stuðningsmenn Arsenal voru stöðvaðir af lögreglunni í Bakú fyrir að vera í treyjum merktum Henrikh Mkhitaryan. 29. maí 2019 07:30