Féll tvívegis á lyfjaprófi en vann Bolt í sögulegu hlaupi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. ágúst 2017 20:56 Justin Gatlin er heimsmeistari í 100 m hlaupi, 35 ára gamall og eftir að hafa fallið tvívegis á lyfjaprófi. Vísir/Getty Bandaríkjamaðurinn Justin Gatlin kom öllum að óvörum með því að bera sigur úr býtum í 100 m hlaupi á HM í frjálsum í kvöld. Usain Bolt, sem var að hlaupa sitt síðasta 100 m hlaup á ferlinum, varð að sætta sig við brons. Gatlin hljóp á 9,92 sekúndum sem er besti tími ársins. Christian Coleman frá Bandaríkjunum varð annar á 9,94 sekúndum og Bolt kom þriðji í mark á 9,95 sekúndum. Eins og sjá má á tímunum munaði afar litlu á efstu þremur en Bolt átti erfitt start. Coleman byrjaði mjög vel en Gatlin átti magnaðan endasprett og skaust fram úr á lokametunum. Hann hljóp á áttundu braut en þeir Coleman og Bolt voru hlið við hlið, á fjórðu og fimmtu braut. Þrátt fyrir að Bolt hafi ekki verið upp á sitt besta í sumar og talsvert frá sínu besta þorðu fáir að spá því að hann myndi ekki vinna gull í greininni, enda sigursælasti hlaupari sögunnar. Heimsmetið hans, 9,58 sekúndur, sem hann setti á HM í Berlín fyrir átta árum síðan stendur enn. Síðan þá hefur Bolt unnið nánast öll gullverðlaun á stórmótum sem hafa verið í boði fyrir hann, í 100 og 200 m hlaupi. Hann varð þó af gullinu á HM í Suður-Kóreu árið 2011 vegna þjófstarts.Gatlin grét af gleði eftir sigurinn í kvöld.Vísir/AFPBolt hafði gefið út að hann muni hætta að keppa í frjálsíþróttum eftir HM í London og var því hlaupsins í kvöld beðið með mikilli eftirvæntingu. Hann mun hætta keppni í frjálsíþróttum eftir að hann keppir í 4x100 m boðhlaupi karla með liði Jamaíku. Það fer fram í næstu viku. Gatlin er 35 ára og fremur óvinsæll hvar sem hann keppir, þar sem hann féll á lyfjaprófi árið 2001 og svo aftur árið 2006. Hann fékk fjögurra ára bann í síðara skiptið og hóf aftur að keppa í ágúst 2010. Greinilegt var að titillinn í kvöld hafði mikla þýðingu fyrir hann og var Gatlin í tárum eftir sigurinn. Hann kraup hins vegar fyrir Bolt sem kveður frjálsíþróttirnar á næstu dögum, ef hann stendur við yfirlýsingar sínar. Gatlin varð síðast heimsmeistari í 100 m hlaupi á HM í Helsinki árið 2005. Hann vann silfur á HM í Peking fyrir tveimur árum sem og á HM í Moskvu árið 2013. Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Bolt fór áfram í úrslitin Usain Bolt fær tækifæri til að vinna enn einn heimsmeistaratitilinn í 100 m hlaupi karla. 5. ágúst 2017 19:00 Bolt örugglega áfram í undanúrslit Sprettharðasti maður heims var í engum vandræðum með sinn riðil í undanrásunum á HM í London. 4. ágúst 2017 20:10 Usain Bolt: Verða að hætta að nota ólögleg lyf því annars deyr sportið Kveðjumót Usain Bolt er að hefjast en hann er kominn til London þar sem Jamaíkamaðurinn mun á næstu dögum taka þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum. 2. ágúst 2017 09:00 Bolt hundóánægður með fyrsta hlaupið Segir frammistöðuna í 100 m hlaupi í gær hafa verið afar slæma hjá sér. 5. ágúst 2017 12:15 Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Messi: Þú ert hugleysingi „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjör og viðtöl: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Steig á tána á Mike Tyson Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sjá meira
Bandaríkjamaðurinn Justin Gatlin kom öllum að óvörum með því að bera sigur úr býtum í 100 m hlaupi á HM í frjálsum í kvöld. Usain Bolt, sem var að hlaupa sitt síðasta 100 m hlaup á ferlinum, varð að sætta sig við brons. Gatlin hljóp á 9,92 sekúndum sem er besti tími ársins. Christian Coleman frá Bandaríkjunum varð annar á 9,94 sekúndum og Bolt kom þriðji í mark á 9,95 sekúndum. Eins og sjá má á tímunum munaði afar litlu á efstu þremur en Bolt átti erfitt start. Coleman byrjaði mjög vel en Gatlin átti magnaðan endasprett og skaust fram úr á lokametunum. Hann hljóp á áttundu braut en þeir Coleman og Bolt voru hlið við hlið, á fjórðu og fimmtu braut. Þrátt fyrir að Bolt hafi ekki verið upp á sitt besta í sumar og talsvert frá sínu besta þorðu fáir að spá því að hann myndi ekki vinna gull í greininni, enda sigursælasti hlaupari sögunnar. Heimsmetið hans, 9,58 sekúndur, sem hann setti á HM í Berlín fyrir átta árum síðan stendur enn. Síðan þá hefur Bolt unnið nánast öll gullverðlaun á stórmótum sem hafa verið í boði fyrir hann, í 100 og 200 m hlaupi. Hann varð þó af gullinu á HM í Suður-Kóreu árið 2011 vegna þjófstarts.Gatlin grét af gleði eftir sigurinn í kvöld.Vísir/AFPBolt hafði gefið út að hann muni hætta að keppa í frjálsíþróttum eftir HM í London og var því hlaupsins í kvöld beðið með mikilli eftirvæntingu. Hann mun hætta keppni í frjálsíþróttum eftir að hann keppir í 4x100 m boðhlaupi karla með liði Jamaíku. Það fer fram í næstu viku. Gatlin er 35 ára og fremur óvinsæll hvar sem hann keppir, þar sem hann féll á lyfjaprófi árið 2001 og svo aftur árið 2006. Hann fékk fjögurra ára bann í síðara skiptið og hóf aftur að keppa í ágúst 2010. Greinilegt var að titillinn í kvöld hafði mikla þýðingu fyrir hann og var Gatlin í tárum eftir sigurinn. Hann kraup hins vegar fyrir Bolt sem kveður frjálsíþróttirnar á næstu dögum, ef hann stendur við yfirlýsingar sínar. Gatlin varð síðast heimsmeistari í 100 m hlaupi á HM í Helsinki árið 2005. Hann vann silfur á HM í Peking fyrir tveimur árum sem og á HM í Moskvu árið 2013.
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Bolt fór áfram í úrslitin Usain Bolt fær tækifæri til að vinna enn einn heimsmeistaratitilinn í 100 m hlaupi karla. 5. ágúst 2017 19:00 Bolt örugglega áfram í undanúrslit Sprettharðasti maður heims var í engum vandræðum með sinn riðil í undanrásunum á HM í London. 4. ágúst 2017 20:10 Usain Bolt: Verða að hætta að nota ólögleg lyf því annars deyr sportið Kveðjumót Usain Bolt er að hefjast en hann er kominn til London þar sem Jamaíkamaðurinn mun á næstu dögum taka þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum. 2. ágúst 2017 09:00 Bolt hundóánægður með fyrsta hlaupið Segir frammistöðuna í 100 m hlaupi í gær hafa verið afar slæma hjá sér. 5. ágúst 2017 12:15 Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Messi: Þú ert hugleysingi „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjör og viðtöl: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Steig á tána á Mike Tyson Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sjá meira
Bolt fór áfram í úrslitin Usain Bolt fær tækifæri til að vinna enn einn heimsmeistaratitilinn í 100 m hlaupi karla. 5. ágúst 2017 19:00
Bolt örugglega áfram í undanúrslit Sprettharðasti maður heims var í engum vandræðum með sinn riðil í undanrásunum á HM í London. 4. ágúst 2017 20:10
Usain Bolt: Verða að hætta að nota ólögleg lyf því annars deyr sportið Kveðjumót Usain Bolt er að hefjast en hann er kominn til London þar sem Jamaíkamaðurinn mun á næstu dögum taka þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum. 2. ágúst 2017 09:00
Bolt hundóánægður með fyrsta hlaupið Segir frammistöðuna í 100 m hlaupi í gær hafa verið afar slæma hjá sér. 5. ágúst 2017 12:15