Berglind Björg skoraði fyrsta landsliðsmarkið í öruggum sigri á Slóvakíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2017 16:54 Berglind kom inn á sem varamaður í hálfleik og skoraði annað mark íslenska liðsins á 78. mínútu. vísir/anton Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta bar sigurorð af því slóvakíska, 0-2, í vináttulandsleik í Senec í Slóvakíu í dag. Elín Metta Jensen og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. Þetta var fyrsta landsliðsmark þeirrar síðarnefndu. Íslenska liðið var sterkari aðilinn í leiknum í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir kom sér í dauðafæri strax á 7. mínútu en markvörður Slóvakíu varði. Á 19. mínútu léku herbergisfélagarnir Hallbera Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir vel saman á vinstri kantinum, sú fyrrnefnda sendi boltann inn á vítateiginn þar sem Elín Metta kom á ferðinni og skoraði. Þetta var fimmta mark Valskonunnar fyrir íslenska landsliðið. Staðan í hálfleik var 0-1. Freyr Alexandersson breytti um leikkerfi í hálfleik, fór úr 3-4-3 í 4-2-3-1, og skipti Berglindi Björgu og Elísu Viðarsdóttur inn á fyrir Rakel Hönnudóttur og Önnu Björk Kristjánsdóttur. Íslenska liðið skapaði ekki mikið framan af seinni hálfleik en á 70. mínútu komst Fanndís í gott færi en skaut framhjá. Átta mínútum síðar komst varamaðurinn Agla María Albertsdóttir, sem spilaði sinn fyrsta landsleik í dag, inn fyrir vörn Slóvakíu en markvörðurinn varði í horn. Katrín Ásbjörnsdóttir tók hornspyrnuna og sendi á kollinn á Berglindi Björgu sem skallaði boltann í netið og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og væntanlega þungu fargi af henni létt. Fleiri urðu mörkin ekki og öruggur 0-2 sigur Íslands staðreynd. Íslenska liðið heldur nú til Hollands þar sem það mætir heimakonum 11. apríl næstkomandi.Byrjunarlið Íslands var þannig skipað:Mark: Guðbjörg GunnarsdóttirVörn: Anna Björk Kristjánsdóttir (46. Elísa Viðarsdóttir), Sif Atladóttir og Glódís Perla ViggósdóttirMiðja: Rakel Hönnudóttir (46. Berglind Björg Þorvaldsdóttir), Sara Björk Gunnarsdóttir (87. Málfríður Erna Sigurðardóttir), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir.Sókn: Elín Metta Jensen (70. Guðmunda Brynja Óladóttir), Margrét Lára Viðarsdóttir (70. Katrín Ásbjörnsdóttir) og Fanndís Friðriksdóttir (70. Agla María Albertsdóttir). EM 2017 í Hollandi Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta bar sigurorð af því slóvakíska, 0-2, í vináttulandsleik í Senec í Slóvakíu í dag. Elín Metta Jensen og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. Þetta var fyrsta landsliðsmark þeirrar síðarnefndu. Íslenska liðið var sterkari aðilinn í leiknum í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir kom sér í dauðafæri strax á 7. mínútu en markvörður Slóvakíu varði. Á 19. mínútu léku herbergisfélagarnir Hallbera Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir vel saman á vinstri kantinum, sú fyrrnefnda sendi boltann inn á vítateiginn þar sem Elín Metta kom á ferðinni og skoraði. Þetta var fimmta mark Valskonunnar fyrir íslenska landsliðið. Staðan í hálfleik var 0-1. Freyr Alexandersson breytti um leikkerfi í hálfleik, fór úr 3-4-3 í 4-2-3-1, og skipti Berglindi Björgu og Elísu Viðarsdóttur inn á fyrir Rakel Hönnudóttur og Önnu Björk Kristjánsdóttur. Íslenska liðið skapaði ekki mikið framan af seinni hálfleik en á 70. mínútu komst Fanndís í gott færi en skaut framhjá. Átta mínútum síðar komst varamaðurinn Agla María Albertsdóttir, sem spilaði sinn fyrsta landsleik í dag, inn fyrir vörn Slóvakíu en markvörðurinn varði í horn. Katrín Ásbjörnsdóttir tók hornspyrnuna og sendi á kollinn á Berglindi Björgu sem skallaði boltann í netið og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og væntanlega þungu fargi af henni létt. Fleiri urðu mörkin ekki og öruggur 0-2 sigur Íslands staðreynd. Íslenska liðið heldur nú til Hollands þar sem það mætir heimakonum 11. apríl næstkomandi.Byrjunarlið Íslands var þannig skipað:Mark: Guðbjörg GunnarsdóttirVörn: Anna Björk Kristjánsdóttir (46. Elísa Viðarsdóttir), Sif Atladóttir og Glódís Perla ViggósdóttirMiðja: Rakel Hönnudóttir (46. Berglind Björg Þorvaldsdóttir), Sara Björk Gunnarsdóttir (87. Málfríður Erna Sigurðardóttir), Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir.Sókn: Elín Metta Jensen (70. Guðmunda Brynja Óladóttir), Margrét Lára Viðarsdóttir (70. Katrín Ásbjörnsdóttir) og Fanndís Friðriksdóttir (70. Agla María Albertsdóttir).
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira