Rúnar Alex: Viðurkenni að ég var svekktur Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. apríl 2017 11:30 Rúnar Alex Rúnarsson heldur einum af landsliðsmarkvörðum Svía á bekknum hjá Nordsjælland. vísir/getty Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta, viðurkennir að hann var ekki alveg nógu sáttur með að vera ekki í síðasta landsliðshópi Íslands sem mætti Kósóvó í undankeppni HM 2018 og Írlandi í vináttuleik ytra. Rúnar Alex var fastamaður í U21 árs landsliðinu í síðustu undankeppni en er nú gengin upp úr því. Hann var í fyrsta sinn valinn í A-landsliðshópinn í byrjun árs fyrir Kínabikarinn en á eftir að spila sinn fyrsta landsleik. „Auðvitað langar mig að vera í landsliðinu. Það er alveg klárt en maður þarf að sýna skilning á því að það eru þrír góðir markverðir sem eru líka allir að spila með sínum liðum. Það er því kannski ekki nein ástæða til að vera breyta til nema hugsandi um framtíðina. Þegar kallið kemur verð ég tilbúinn,“ sagði Rúnar Alex í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina. Allir þrír markverðir íslenska liðsins; Hannes Þór Halldórsson, Ögmundur Kristinsson og Ingvar Jónsson, eru byrjunarliðsmenn en munurinn á þeim tveimur síðastnefndu og Rúnari er að hann var byrjaður að spila deildarleiki með Nordsjælland þegar Ögmundur og Ingvar voru enn þá á undirbúningstímabilinu. Deildirnar í Noregi og Svíþjóð fóru af stað um helgina og stóð Ögmundur vaktina í marki Hammarby að vanda og Ingvar Jónsson byrjaði fyrsta leik fyrir nýliða Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni. Seinni hluti dönsku deildarinnar hófst aftur á móti um miðjan febrúar og var Rúnar búinn að spila alla leiki liðsins fram að landsleikjavikunni. Hann hefur staðið sig frábærlega en Nordsjælland er búið að vinna fjóra af sex fyrstu leikjunum eftir vetrarfríið.„Ég skal viðurkenna það að ég var svekktur. Ég var búinn að spila fimm leiki í deildinni og svo var ég búinn að vera á erfiðu undirbúningstímabilinu þar sem ég spilaði sex leiki,“ sagði Rúnar Alex sem sýnir ákvörðun Heimis Hallgrímssonar þó skilning. „Mér fannst ég líka standa mig vel úti í Kína og bjóst því alveg eins við því að verða valinn og var því svekktur. En ég þarf bara að sýna því skilning að það ekkert biluð ástæða fyrir því að vera að gera breytingar,“ sagði Rúnar Alex Rúnarsson. Allt viðtalið má heyra hér að neðan en það hefst á 1:25:36 Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta, viðurkennir að hann var ekki alveg nógu sáttur með að vera ekki í síðasta landsliðshópi Íslands sem mætti Kósóvó í undankeppni HM 2018 og Írlandi í vináttuleik ytra. Rúnar Alex var fastamaður í U21 árs landsliðinu í síðustu undankeppni en er nú gengin upp úr því. Hann var í fyrsta sinn valinn í A-landsliðshópinn í byrjun árs fyrir Kínabikarinn en á eftir að spila sinn fyrsta landsleik. „Auðvitað langar mig að vera í landsliðinu. Það er alveg klárt en maður þarf að sýna skilning á því að það eru þrír góðir markverðir sem eru líka allir að spila með sínum liðum. Það er því kannski ekki nein ástæða til að vera breyta til nema hugsandi um framtíðina. Þegar kallið kemur verð ég tilbúinn,“ sagði Rúnar Alex í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina. Allir þrír markverðir íslenska liðsins; Hannes Þór Halldórsson, Ögmundur Kristinsson og Ingvar Jónsson, eru byrjunarliðsmenn en munurinn á þeim tveimur síðastnefndu og Rúnari er að hann var byrjaður að spila deildarleiki með Nordsjælland þegar Ögmundur og Ingvar voru enn þá á undirbúningstímabilinu. Deildirnar í Noregi og Svíþjóð fóru af stað um helgina og stóð Ögmundur vaktina í marki Hammarby að vanda og Ingvar Jónsson byrjaði fyrsta leik fyrir nýliða Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni. Seinni hluti dönsku deildarinnar hófst aftur á móti um miðjan febrúar og var Rúnar búinn að spila alla leiki liðsins fram að landsleikjavikunni. Hann hefur staðið sig frábærlega en Nordsjælland er búið að vinna fjóra af sex fyrstu leikjunum eftir vetrarfríið.„Ég skal viðurkenna það að ég var svekktur. Ég var búinn að spila fimm leiki í deildinni og svo var ég búinn að vera á erfiðu undirbúningstímabilinu þar sem ég spilaði sex leiki,“ sagði Rúnar Alex sem sýnir ákvörðun Heimis Hallgrímssonar þó skilning. „Mér fannst ég líka standa mig vel úti í Kína og bjóst því alveg eins við því að verða valinn og var því svekktur. En ég þarf bara að sýna því skilning að það ekkert biluð ástæða fyrir því að vera að gera breytingar,“ sagði Rúnar Alex Rúnarsson. Allt viðtalið má heyra hér að neðan en það hefst á 1:25:36
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira