Eins og þegar Barcelona og Real Madrid koma saman Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2016 06:00 Íris Mist Magnúsdóttir Mynd/FSÍ Íris Mist Magnúsdóttir fór fyrir besta fimleikaliði Evrópu um nokkurra ára skeið. Hún varð tvöfaldur Evrópumeistari í hópfimleikum með Gerplu, tilnefnd sem íþróttamaður ársins og svo mætti áfram telja. Þrjú ár eru liðin frá því Íris hætti sjálf að keppa. Hún er samt enn viðloðandi hópfimleikana og ber núna hinn virðulega titil landsliðsþjálfari. „Ég er að þjálfa kvennaliðið í dag. Ég byrjaði að þjálfa meistaraflokkinn í Gerplu fyrir rúmu ári og fékk svo þann heiður að vera boðin landsliðsþjálfarastaða hjá kvennaliðinu sem er algjört draumalið, þar er ekkert nema eintómir snillingar og fagmenn,“ sagði Íris þegar blaðamaður Fréttablaðsins hitti hana að máli á liðshótelinu í slóvensku borginni Maribor þar sem EM í hópfimleikum fer fram.Fáir æfa jafn mikið Íris var 26 ára þegar hún lagði fimleikabúninginn á hilluna. Aðspurð af hverju hún og fleiri fimleikakonur hætti svona snemma, miðað við margar aðrar íþróttir, segir hún að æfingaálagið taki sinn toll. „Það æfa fáir jafn mikið og við og þú ert fljótari að verða saddur. Ég var sátt þegar ég hætti þótt ég héldi að ég gæti aldrei fengið nóg. Þú þarft að hafa svo rosalega mikla ástríðu fyrir þessu til að vera tilbúin að æfa 3-4 klukkutíma á dag.“Hársbreidd frá þriðja gullinu í röð Ísland, eða öllu heldur Gerpla, varð Evrópumeistari árin 2010 og 2012. Fyrir tveimur árum var EM haldið á Íslandi en þá þurftu stelpurnar að sætta sig við silfrið. En af hverju gekk gullið Íslandi úr greipum 2014? „Út af því að ég var ekki í liðinu,“ sagði Íris og skellti upp úr. „Þetta var ótrúlega hörð barátta milli Svía og Íslendinga 2014. Svíarnir áttu bara betri dag en bæði lið voru frábær.“ Það má til sanns vegar færa. Ísland fékk 23,216 stig fyrir gólfæfingarnar sem er met. Á endanum munaði aðeins 0,684 stigum á sænska liðinu og því íslenska.Tveir turnar Eins og áður sagði varð Gerpla Evrópumeistari 2010 og 2012 en í ár, líkt og 2014, sendir Ísland sameiginlegt lið til keppni. Uppistaðan í landsliðinu er úr tveimur félögum, Gerplu og Stjörnunni. „Ég keppti bara fyrir Gerplu og hef aldrei sjálf verið hluti af landsliði. Þetta er auðvitað öðruvísi upplifun, hún er ekkert betri eða verri, hún er bara öðruvísi. Svo fer þetta eftir liðunum, hvernig þau ná að tengja,“ sagði Íris sem segir það íþróttinni til góðs að hafa tvö svona sterk félagslið hérna heima. Það hjálpi landsliðinu. „Við æfum mikið saman, alveg í þrjá mánuði, þannig að þetta verður svolítið eins og félagslið. Landsliðið er eins og sambland af Barcelona og Real Madrid,“ bætti Íris við í léttum dúr en spænska fótboltalandsliðið er aðallega skipað leikmönnum frá þessum tveimur risafélögum.Einbeitum okkur að okkur sjálfum Erfitt er að hafa bein áhrif á frammistöðu andstæðingsins í hópfimleikum, öfugt við margar hópíþróttir. „Við einbeitum okkur aðallega að okkur sjálfum. Við breytum ekkert miklu þótt við sjáum andstæðinginn,“ sagði Íris og bætti við því að lið geri aldrei róttækar breytingar á sínum æfingum, jafnvel þótt andstæðingurinn bryddi upp á einhverju óvæntu. „Það er meira ef þau gera auðveldari æfingar, þá lækkum við kannski erfiðleikastigið og gerum auðveldara og öruggara í stað þess að spila út okkar helstu trompum,“ sagði Íris en einkunnin er sambland af erfiðleikastigi og framkvæmd æfinganna. Fjórir verðlaunapeningar Ísland sendir fjögur lið til keppni á EM; stúlknalið, kvennalið og blandað lið í unglinga- og fullorðinsflokki. Íris segir að markmiðið sé skýrt. „Það er að koma með fjóra verðlaunapeninga heim,“ sagði Íris sem fylgist með af hliðarlínunni þegar kvennaliðið stígur á svið í undankeppninni í dag. Fimleikar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Messi: Þú ert hugleysingi „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjör og viðtöl: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Steig á tána á Mike Tyson Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sjá meira
Íris Mist Magnúsdóttir fór fyrir besta fimleikaliði Evrópu um nokkurra ára skeið. Hún varð tvöfaldur Evrópumeistari í hópfimleikum með Gerplu, tilnefnd sem íþróttamaður ársins og svo mætti áfram telja. Þrjú ár eru liðin frá því Íris hætti sjálf að keppa. Hún er samt enn viðloðandi hópfimleikana og ber núna hinn virðulega titil landsliðsþjálfari. „Ég er að þjálfa kvennaliðið í dag. Ég byrjaði að þjálfa meistaraflokkinn í Gerplu fyrir rúmu ári og fékk svo þann heiður að vera boðin landsliðsþjálfarastaða hjá kvennaliðinu sem er algjört draumalið, þar er ekkert nema eintómir snillingar og fagmenn,“ sagði Íris þegar blaðamaður Fréttablaðsins hitti hana að máli á liðshótelinu í slóvensku borginni Maribor þar sem EM í hópfimleikum fer fram.Fáir æfa jafn mikið Íris var 26 ára þegar hún lagði fimleikabúninginn á hilluna. Aðspurð af hverju hún og fleiri fimleikakonur hætti svona snemma, miðað við margar aðrar íþróttir, segir hún að æfingaálagið taki sinn toll. „Það æfa fáir jafn mikið og við og þú ert fljótari að verða saddur. Ég var sátt þegar ég hætti þótt ég héldi að ég gæti aldrei fengið nóg. Þú þarft að hafa svo rosalega mikla ástríðu fyrir þessu til að vera tilbúin að æfa 3-4 klukkutíma á dag.“Hársbreidd frá þriðja gullinu í röð Ísland, eða öllu heldur Gerpla, varð Evrópumeistari árin 2010 og 2012. Fyrir tveimur árum var EM haldið á Íslandi en þá þurftu stelpurnar að sætta sig við silfrið. En af hverju gekk gullið Íslandi úr greipum 2014? „Út af því að ég var ekki í liðinu,“ sagði Íris og skellti upp úr. „Þetta var ótrúlega hörð barátta milli Svía og Íslendinga 2014. Svíarnir áttu bara betri dag en bæði lið voru frábær.“ Það má til sanns vegar færa. Ísland fékk 23,216 stig fyrir gólfæfingarnar sem er met. Á endanum munaði aðeins 0,684 stigum á sænska liðinu og því íslenska.Tveir turnar Eins og áður sagði varð Gerpla Evrópumeistari 2010 og 2012 en í ár, líkt og 2014, sendir Ísland sameiginlegt lið til keppni. Uppistaðan í landsliðinu er úr tveimur félögum, Gerplu og Stjörnunni. „Ég keppti bara fyrir Gerplu og hef aldrei sjálf verið hluti af landsliði. Þetta er auðvitað öðruvísi upplifun, hún er ekkert betri eða verri, hún er bara öðruvísi. Svo fer þetta eftir liðunum, hvernig þau ná að tengja,“ sagði Íris sem segir það íþróttinni til góðs að hafa tvö svona sterk félagslið hérna heima. Það hjálpi landsliðinu. „Við æfum mikið saman, alveg í þrjá mánuði, þannig að þetta verður svolítið eins og félagslið. Landsliðið er eins og sambland af Barcelona og Real Madrid,“ bætti Íris við í léttum dúr en spænska fótboltalandsliðið er aðallega skipað leikmönnum frá þessum tveimur risafélögum.Einbeitum okkur að okkur sjálfum Erfitt er að hafa bein áhrif á frammistöðu andstæðingsins í hópfimleikum, öfugt við margar hópíþróttir. „Við einbeitum okkur aðallega að okkur sjálfum. Við breytum ekkert miklu þótt við sjáum andstæðinginn,“ sagði Íris og bætti við því að lið geri aldrei róttækar breytingar á sínum æfingum, jafnvel þótt andstæðingurinn bryddi upp á einhverju óvæntu. „Það er meira ef þau gera auðveldari æfingar, þá lækkum við kannski erfiðleikastigið og gerum auðveldara og öruggara í stað þess að spila út okkar helstu trompum,“ sagði Íris en einkunnin er sambland af erfiðleikastigi og framkvæmd æfinganna. Fjórir verðlaunapeningar Ísland sendir fjögur lið til keppni á EM; stúlknalið, kvennalið og blandað lið í unglinga- og fullorðinsflokki. Íris segir að markmiðið sé skýrt. „Það er að koma með fjóra verðlaunapeninga heim,“ sagði Íris sem fylgist með af hliðarlínunni þegar kvennaliðið stígur á svið í undankeppninni í dag.
Fimleikar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Messi: Þú ert hugleysingi „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Uppgjör og viðtöl: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Steig á tána á Mike Tyson Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“ Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Höttur fær Frakka til að fylla skarð Karlovic Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sjá meira