Griezmann skaut Frökkum í úrslitaleikinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júlí 2016 21:00 Antoine Griezmann fagnar marki sínu ásamt Paul Pogba. vísir/epa Það verður Frakkland sem mætir Portúgal í úrslitaleik EM 2016 á Stade de France á sunnudagskvöldið. Þetta var ljóst eftir 2-0 sigur Frakka á heimsmeisturum Þjóðverja í Marseille í kvöld. Antoine Griezmann var hetja Frakka en hann skoraði bæði mörkin og er nú komin með sex mörk í heildina á EM. Frakkar byrjuðu leikinn af miklum krafti og Manuel Neuer þurfti að taka á honum stóra sínum til að verja frá Griezmann á 7. mínútu. Eftir þessa góðu byrjun franska liðsins tók það þýska yfir og stjórnaði ferðinni það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Emre Can komst næst því að skora en Hugo Lloris varði vel frá honum eftir 14 mínútna leik. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks breyttist leikurinn þegar ítalski dómarinn Nicola Rizzoli dæmdi vítaspyrnu á Bastian Schweinsteiger fyrir að handleika boltann innan vítateigs. Griezmann fór á punktinn og skoraði af öryggi. Hann var svo aftur á ferðinni á 72. mínútu. Þjóðverjar töpuðu þá boltanum inni í eigin vítateig, Paul Pogba sendi fyrir frá vinstri, Neuer sló boltann frá en ekki nógu langt og Griezmann nýtti sér það og skoraði sitt annað mark. Þjóðverjar fengu færi til að minnka muninn eftir þetta en tókst ekki að skora. Bestu færin féllu Joshua Kimmich í skaut; hann átti hörkuskot í stöngina tveimur mínútum eftir seinna mark Griezmann og svo varði Lloris stórkostlega skalla frá honum í uppbótartíma. Heimsmeistarnir náðu hins vegar ekki að skora og Frakkar fögnuðu 2-0 sigri og sæti í úrslitaleiknum. EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Leik lokið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Körfubolti Fleiri fréttir Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Sjá meira
Það verður Frakkland sem mætir Portúgal í úrslitaleik EM 2016 á Stade de France á sunnudagskvöldið. Þetta var ljóst eftir 2-0 sigur Frakka á heimsmeisturum Þjóðverja í Marseille í kvöld. Antoine Griezmann var hetja Frakka en hann skoraði bæði mörkin og er nú komin með sex mörk í heildina á EM. Frakkar byrjuðu leikinn af miklum krafti og Manuel Neuer þurfti að taka á honum stóra sínum til að verja frá Griezmann á 7. mínútu. Eftir þessa góðu byrjun franska liðsins tók það þýska yfir og stjórnaði ferðinni það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Emre Can komst næst því að skora en Hugo Lloris varði vel frá honum eftir 14 mínútna leik. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks breyttist leikurinn þegar ítalski dómarinn Nicola Rizzoli dæmdi vítaspyrnu á Bastian Schweinsteiger fyrir að handleika boltann innan vítateigs. Griezmann fór á punktinn og skoraði af öryggi. Hann var svo aftur á ferðinni á 72. mínútu. Þjóðverjar töpuðu þá boltanum inni í eigin vítateig, Paul Pogba sendi fyrir frá vinstri, Neuer sló boltann frá en ekki nógu langt og Griezmann nýtti sér það og skoraði sitt annað mark. Þjóðverjar fengu færi til að minnka muninn eftir þetta en tókst ekki að skora. Bestu færin féllu Joshua Kimmich í skaut; hann átti hörkuskot í stöngina tveimur mínútum eftir seinna mark Griezmann og svo varði Lloris stórkostlega skalla frá honum í uppbótartíma. Heimsmeistarnir náðu hins vegar ekki að skora og Frakkar fögnuðu 2-0 sigri og sæti í úrslitaleiknum.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Leik lokið: Njarðvík-ÍR 96-101 | Fyrsti sigur ÍR-inga kom suður með sjó Körfubolti Fleiri fréttir Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Sjá meira