Umfjöllun: Skotland - Ísland 0-4 | Ísland með annan fótinn á EM Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. júní 2016 19:45 Harpa Þorsteinsdóttir hefur skorað sex mörk í undankeppninni. mynd/hilmar þór/ksí Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið í lokakeppni EM eftir stórsigur, 0-4, á Skotum í Falkirk í kvöld. Þarna mættust bestu lið riðilsins og þau voru bæði ósigruð. Eftir þennan leik er aðeins Ísland ósigrað og ekki heldur búið að fá á sig mark. Stelpunum dugar sigur gegn Makedóníu á þriðjudag til að gulltryggja EM-sætið. Makedónía er stigalaust í riðlinum og Ísland vann leikinn gegn þeim ytra, 0-4. Íslensku stelpurnar mættu gríðarlega ákveðnar til leiks og tóku völdin á vellinum strax í upphafi. Á 9. mínútu leiksins komst Ísland yfir. Hallbera Guðný Gísladóttir átti aukaspyrnu utan af kanti sem sigldi í gegnum allan pakkann í teignum og endaði í fjærhorninu. Okkar stúlkur efldust við markið og héldu áfram að sækja. Þær komust oft í ákjósanlegur stöður en lykilsendingar voru að klikka. Einfaldar sendingar inn fyrir vörn þegar komið var gott hlaup. Skotar gerðu sig einnig seka um slæm mistök er þær töpuðu boltanum fyrir framan eigið mark. Fanndís hefði getað refsað en skotið var ekki nógu gott. Sóknarþungi Skota var enginn og liðið átti ekki skot að marki Íslands í fyrri hálfleik. Er þær nálguðust teiginn þá var Glódís Perla Viggósdóttir mætt og hrifsaði til sín alla bolta. Hún kom bolta einnig vel í leik. Miklir yfirburðir hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik en munurinn aðeins eitt mark. Síðari hálfleikur byrjaði með látum og mínúta var liðin af hálfleiknum er Anna Björk fékk langbesta færi leiksins. Frír skalli um metra frá marki en Anna hitti ekki markið. Hrikalega illa farið með frábært færi. Skotum óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Læddist að manni sá grunur að íslenska liðinu myndi hefnast fyrir að nýta ekki færin sín í leiknum. Á 61. mínútu voru Skotar mjög nálægt því að jafna leikinn. Vantaði eitt skónúmer upp á að framherji þeirra skoraði. Það vakti stelpurnar. Aðeins mínútu síðar var staðan nefnilega orðin 2-0 fyrir Ísland. Hólmfríður með sendingu í miðjan teiginn þar sem Harpa skallaði boltann af krafti í netið. Aðeins þremur mínútum síðar kláraði íslenska liðið leikinn. Hallbera með hornspyrnu sem varmaðurinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skallaði inn fyrir marklínuna. Frábærlega gert. Þriðja markið á sjö mínútna kafla kom svo. Aftur var það skallamark og að þessu sinni var komið að Margréti Láru að stanga boltann í netið eftir sendingu Hörpu. Geggjaður sjö mínútna kafli sem gjörsamlega slátraði þessum leik. Leikur íslenska liðsins í kvöld var í einu orði sgt frábær. Liðið var gríðarlega vel skipulagt, gaf nánast engin færi á sér allan leikinn. Okkar stelpur voru sterkari, fljótari og miklu grimmari í alla bolta. Það var klassamunur á liðunum í þessum uppgjörsleik toppliðanna. Glódís Perla var besti maður íslenska liðsins en allar stelpurnar léku vel. Það var klassi, yfirvegun og öryggi yfir öllum aðgerðum Glódísar. Frábær og verður bara betri og betri. Ef að líkum lætur verður EM-hátíð í Dalnum eftir helgi og vonandi að fólk fjölmenni. EM 2017 í Hollandi Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið í lokakeppni EM eftir stórsigur, 0-4, á Skotum í Falkirk í kvöld. Þarna mættust bestu lið riðilsins og þau voru bæði ósigruð. Eftir þennan leik er aðeins Ísland ósigrað og ekki heldur búið að fá á sig mark. Stelpunum dugar sigur gegn Makedóníu á þriðjudag til að gulltryggja EM-sætið. Makedónía er stigalaust í riðlinum og Ísland vann leikinn gegn þeim ytra, 0-4. Íslensku stelpurnar mættu gríðarlega ákveðnar til leiks og tóku völdin á vellinum strax í upphafi. Á 9. mínútu leiksins komst Ísland yfir. Hallbera Guðný Gísladóttir átti aukaspyrnu utan af kanti sem sigldi í gegnum allan pakkann í teignum og endaði í fjærhorninu. Okkar stúlkur efldust við markið og héldu áfram að sækja. Þær komust oft í ákjósanlegur stöður en lykilsendingar voru að klikka. Einfaldar sendingar inn fyrir vörn þegar komið var gott hlaup. Skotar gerðu sig einnig seka um slæm mistök er þær töpuðu boltanum fyrir framan eigið mark. Fanndís hefði getað refsað en skotið var ekki nógu gott. Sóknarþungi Skota var enginn og liðið átti ekki skot að marki Íslands í fyrri hálfleik. Er þær nálguðust teiginn þá var Glódís Perla Viggósdóttir mætt og hrifsaði til sín alla bolta. Hún kom bolta einnig vel í leik. Miklir yfirburðir hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik en munurinn aðeins eitt mark. Síðari hálfleikur byrjaði með látum og mínúta var liðin af hálfleiknum er Anna Björk fékk langbesta færi leiksins. Frír skalli um metra frá marki en Anna hitti ekki markið. Hrikalega illa farið með frábært færi. Skotum óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Læddist að manni sá grunur að íslenska liðinu myndi hefnast fyrir að nýta ekki færin sín í leiknum. Á 61. mínútu voru Skotar mjög nálægt því að jafna leikinn. Vantaði eitt skónúmer upp á að framherji þeirra skoraði. Það vakti stelpurnar. Aðeins mínútu síðar var staðan nefnilega orðin 2-0 fyrir Ísland. Hólmfríður með sendingu í miðjan teiginn þar sem Harpa skallaði boltann af krafti í netið. Aðeins þremur mínútum síðar kláraði íslenska liðið leikinn. Hallbera með hornspyrnu sem varmaðurinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skallaði inn fyrir marklínuna. Frábærlega gert. Þriðja markið á sjö mínútna kafla kom svo. Aftur var það skallamark og að þessu sinni var komið að Margréti Láru að stanga boltann í netið eftir sendingu Hörpu. Geggjaður sjö mínútna kafli sem gjörsamlega slátraði þessum leik. Leikur íslenska liðsins í kvöld var í einu orði sgt frábær. Liðið var gríðarlega vel skipulagt, gaf nánast engin færi á sér allan leikinn. Okkar stelpur voru sterkari, fljótari og miklu grimmari í alla bolta. Það var klassamunur á liðunum í þessum uppgjörsleik toppliðanna. Glódís Perla var besti maður íslenska liðsins en allar stelpurnar léku vel. Það var klassi, yfirvegun og öryggi yfir öllum aðgerðum Glódísar. Frábær og verður bara betri og betri. Ef að líkum lætur verður EM-hátíð í Dalnum eftir helgi og vonandi að fólk fjölmenni.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira