Ancelotti: Pérez bað mig um að breyta hlutverki Bale Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2016 22:45 Ancelotti vildi ekki breyta leikkerfi Real Madrid til að þóknast Bale. vísir/getty Carlo Ancelotti, fyrrverandi knattspyrnustjóri Real Madrid, segir í nýrri bók sinni að Florentino Pérez, forseti félagsins, hafi þrýst á hann að breyta hlutverki Gareth Bale hjá Madrídarliðinu. Waleverjinn var keyptur til Real Madrid fyrir metfé sumarið 2013 en á sínu fyrsta tímabili á Spáni vann hann spænsku bikarkeppnina og Meistaradeild Evrópu. Ancelotti notaði Bale langoftast á hægri kantinum en Bale og umboðsmaður hans, John Barnett, hafa lýst því yfir að hann vilji frekar spila fyrir aftan fremsta mann, sem svokölluð tía. „Einn morguninn fékk ég símtal frá framkvæmdastjóra Madrid [José Ángel Sánchez] sem tjáði mér að forsetinn vildi tala við mig eftir æfinguna. Þetta var mjög óvenjulegt,“ segir Ancelotti í bókinni Quiet Leadership: Winning Hearts, Minds and Matches. „Þegar ég hitti forsetann sagði hann mér að umboðsmaður Bale hefði komið til hans og viljað tala um stöðu leikmannsins. Hann sagði forsetanum að Bale væri ósáttur með sitt hlutverk og vildi spila meira miðsvæðis.“ Ancelotti segist hafa tjáð bæði Pérez og Bale að hann gæti ekki breytt leikkerfi Real Madrid bara til að þóknast einum leikmanni. Bale fékk tækifæri í draumastöðunni sinni undir stjórn Rafa Benítez en eftir að hann var rekinn og Zinedine Zidane tók við var Walesverjinn færður aftur út á hægri kantinn. Bale skoraði 19 mörk í 23 leikjum með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í vetur. Hann á hins vegar enn eftir að komast á blað í Meistaradeildinni en fær tækifæri til að bæta úr því í úrslitaleiknum gegn Atlético Madrid á San Siro 28. maí næstkomandi. Spænski boltinn Mest lesið Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Fótbolti Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður Fótbolti Sir Mo Farah elti uppi þjófa sem stálu símanum hans Sport Tyson eftir tapið gegn Paul: „Ég dó næstum því í júní“ Sport Markvörður Bayern með krabbamein Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: England - Írland | Heimir gæti gert enskum grikk Glódís kom Bæjurum á bragðið með hörkuskalla Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Birkir Valur yfirgefur HK Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Markvörður Bayern með krabbamein Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecilía hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Sjá meira
Carlo Ancelotti, fyrrverandi knattspyrnustjóri Real Madrid, segir í nýrri bók sinni að Florentino Pérez, forseti félagsins, hafi þrýst á hann að breyta hlutverki Gareth Bale hjá Madrídarliðinu. Waleverjinn var keyptur til Real Madrid fyrir metfé sumarið 2013 en á sínu fyrsta tímabili á Spáni vann hann spænsku bikarkeppnina og Meistaradeild Evrópu. Ancelotti notaði Bale langoftast á hægri kantinum en Bale og umboðsmaður hans, John Barnett, hafa lýst því yfir að hann vilji frekar spila fyrir aftan fremsta mann, sem svokölluð tía. „Einn morguninn fékk ég símtal frá framkvæmdastjóra Madrid [José Ángel Sánchez] sem tjáði mér að forsetinn vildi tala við mig eftir æfinguna. Þetta var mjög óvenjulegt,“ segir Ancelotti í bókinni Quiet Leadership: Winning Hearts, Minds and Matches. „Þegar ég hitti forsetann sagði hann mér að umboðsmaður Bale hefði komið til hans og viljað tala um stöðu leikmannsins. Hann sagði forsetanum að Bale væri ósáttur með sitt hlutverk og vildi spila meira miðsvæðis.“ Ancelotti segist hafa tjáð bæði Pérez og Bale að hann gæti ekki breytt leikkerfi Real Madrid bara til að þóknast einum leikmanni. Bale fékk tækifæri í draumastöðunni sinni undir stjórn Rafa Benítez en eftir að hann var rekinn og Zinedine Zidane tók við var Walesverjinn færður aftur út á hægri kantinn. Bale skoraði 19 mörk í 23 leikjum með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í vetur. Hann á hins vegar enn eftir að komast á blað í Meistaradeildinni en fær tækifæri til að bæta úr því í úrslitaleiknum gegn Atlético Madrid á San Siro 28. maí næstkomandi.
Spænski boltinn Mest lesið Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Fótbolti Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður Fótbolti Sir Mo Farah elti uppi þjófa sem stálu símanum hans Sport Tyson eftir tapið gegn Paul: „Ég dó næstum því í júní“ Sport Markvörður Bayern með krabbamein Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: England - Írland | Heimir gæti gert enskum grikk Glódís kom Bæjurum á bragðið með hörkuskalla Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Birkir Valur yfirgefur HK Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Markvörður Bayern með krabbamein Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecilía hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Sjá meira