ISIS lýsir yfir ábyrgð Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. nóvember 2015 11:36 128 létust og minnst 200 særðust, þar af 99 alvarlega í árásunum í gær. Vísir/Getty ISIS hefur lýst yfir ábyrgð á hendur sér vegna hryðjuverkaárásanna í Frakklandi í gærkvöldi. Samtökin segja að Frakkland sé helsta skotmark ISIS og að árásirnar í gær séu einungis „upphaf óveðursins.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ISIS sem birt var undir nafni samtakanna fyrir skömmu. Í henni segir að árásirnar séu svar ISIS vegna móðgana á hendur spámannsins Múhameðs og loftárása Frakka á landssvæði undir tangarhaldi ISIS. Jafnframt kemur fram að árásarstaðirnar hafi verið sérvaldir fyrirfram. Í yfirlýsingunni segir að tónleikagestir í Bataclan-tónlistarhúsinu, þar sem tæplega hundrað manns létust, og gestir á kaffi- og veitingahúsum í grennd, þar sem um þrátíu létust, hafi verið „skurðgoðadýrkendur í siðspilltri veislu“. Einnig hafi verið ákveðið hafi verið að ráðast á Stade de France-leikvanginn vegna þess að Francois Hollande Frakklandsforseti hafi verið viðstaddur landsleik Frakka og Þjóðverja sem þar fór fram. Samtökin segjast með árásunum hafa ráðist á „höfuðborg viðurstyggðar og spillingar.“ 128 létust og minnst 200 særðust, þar af 99 alvarlega, eftir samhæfðar sprengju- og skotárásir í París í gærkvöldi. Francois Hollande Frakklandsforseti sagði fyrr í dag að ISIS stæði á bak við hryðjuverkaárásirnar í París sem samtökin hafa nú lýst sig ábyrg fyrir. Hryðjuverk í París Tengdar fréttir Allt að hundrað létust í gíslatökunni í tónlistarhúsinu í París Vitni sá framan í einn árásarmanninn en var einn þeirra sem náði að flýja af vettvangi. 14. nóvember 2015 00:34 Samúðarkveðja forseta Íslands: Árás á siðmenningu okkar tíma Forseti Íslands hefur í dag sent forseta Frakklands François Hollande samúðarkveðju frá sér og íslensku þjóðinni vegna hinnar hræðilegu hryðjuverkaárásar í París. 14. nóvember 2015 10:38 Horreur: Forsíður frönsku blaðanna Frönsk dagblöð eru á einu máli. 14. nóvember 2015 10:12 Hollande:Árásirnar eru stríðsyfirlýsing af hálfu ISIS Frakklandsforseti segir að ISIS standi á bak við hryðjuverkaárásirnar í París. Búið er að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg í Frakklandi. 14. nóvember 2015 10:21 Harpa böðuð frönsku fánalitunum næstu daga Reykvíkingar og aðrir gestir borgarinnar geta horft á upplýsta Hörpu innan nokkurra klukkustunda. 14. nóvember 2015 11:26 Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Fleiri fréttir Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Sjá meira
ISIS hefur lýst yfir ábyrgð á hendur sér vegna hryðjuverkaárásanna í Frakklandi í gærkvöldi. Samtökin segja að Frakkland sé helsta skotmark ISIS og að árásirnar í gær séu einungis „upphaf óveðursins.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ISIS sem birt var undir nafni samtakanna fyrir skömmu. Í henni segir að árásirnar séu svar ISIS vegna móðgana á hendur spámannsins Múhameðs og loftárása Frakka á landssvæði undir tangarhaldi ISIS. Jafnframt kemur fram að árásarstaðirnar hafi verið sérvaldir fyrirfram. Í yfirlýsingunni segir að tónleikagestir í Bataclan-tónlistarhúsinu, þar sem tæplega hundrað manns létust, og gestir á kaffi- og veitingahúsum í grennd, þar sem um þrátíu létust, hafi verið „skurðgoðadýrkendur í siðspilltri veislu“. Einnig hafi verið ákveðið hafi verið að ráðast á Stade de France-leikvanginn vegna þess að Francois Hollande Frakklandsforseti hafi verið viðstaddur landsleik Frakka og Þjóðverja sem þar fór fram. Samtökin segjast með árásunum hafa ráðist á „höfuðborg viðurstyggðar og spillingar.“ 128 létust og minnst 200 særðust, þar af 99 alvarlega, eftir samhæfðar sprengju- og skotárásir í París í gærkvöldi. Francois Hollande Frakklandsforseti sagði fyrr í dag að ISIS stæði á bak við hryðjuverkaárásirnar í París sem samtökin hafa nú lýst sig ábyrg fyrir.
Hryðjuverk í París Tengdar fréttir Allt að hundrað létust í gíslatökunni í tónlistarhúsinu í París Vitni sá framan í einn árásarmanninn en var einn þeirra sem náði að flýja af vettvangi. 14. nóvember 2015 00:34 Samúðarkveðja forseta Íslands: Árás á siðmenningu okkar tíma Forseti Íslands hefur í dag sent forseta Frakklands François Hollande samúðarkveðju frá sér og íslensku þjóðinni vegna hinnar hræðilegu hryðjuverkaárásar í París. 14. nóvember 2015 10:38 Horreur: Forsíður frönsku blaðanna Frönsk dagblöð eru á einu máli. 14. nóvember 2015 10:12 Hollande:Árásirnar eru stríðsyfirlýsing af hálfu ISIS Frakklandsforseti segir að ISIS standi á bak við hryðjuverkaárásirnar í París. Búið er að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg í Frakklandi. 14. nóvember 2015 10:21 Harpa böðuð frönsku fánalitunum næstu daga Reykvíkingar og aðrir gestir borgarinnar geta horft á upplýsta Hörpu innan nokkurra klukkustunda. 14. nóvember 2015 11:26 Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Fleiri fréttir Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Sjá meira
Allt að hundrað létust í gíslatökunni í tónlistarhúsinu í París Vitni sá framan í einn árásarmanninn en var einn þeirra sem náði að flýja af vettvangi. 14. nóvember 2015 00:34
Samúðarkveðja forseta Íslands: Árás á siðmenningu okkar tíma Forseti Íslands hefur í dag sent forseta Frakklands François Hollande samúðarkveðju frá sér og íslensku þjóðinni vegna hinnar hræðilegu hryðjuverkaárásar í París. 14. nóvember 2015 10:38
Hollande:Árásirnar eru stríðsyfirlýsing af hálfu ISIS Frakklandsforseti segir að ISIS standi á bak við hryðjuverkaárásirnar í París. Búið er að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg í Frakklandi. 14. nóvember 2015 10:21
Harpa böðuð frönsku fánalitunum næstu daga Reykvíkingar og aðrir gestir borgarinnar geta horft á upplýsta Hörpu innan nokkurra klukkustunda. 14. nóvember 2015 11:26