Kári Árnason bestur í Astana | Einkunnir íslenska liðsins 28. mars 2015 17:13 Kári Árnason var frábær í vörninni. vísir/getty Kári Árnason var besti leikur íslenska liðsins í 3-0 sigrinum á Kasakstan í undankeppni EM 2016 í dag, en hann spilaði frábærlega í vörninni. Hann fær átta í einkunn fyrir sína frammistöðu líkt og Jóhann Berg, Eiður Smári og Birkir Bjarnason sem spiluðu einnig allir mjög vel. Hér að neðan má sjá einkunnir Vísis fyrir leikinn í Astana.Einkunnir íslensku strákanna:Hannes Þór Halldórsson 7 Öruggur í sínum aðgerðum og ekki að sjá hann hefur ekki spilað „alvöru“ leik á árinu. Varði allt sem á markið kom og sparkaði vel út undir pressu Kasaka.Birkir Már Sævarsson 7 Traustur í varnarleiknum og átti góða spretti til baka þegar Kasakar sóttu hratt. Stöðvaði margar skyndisóknir. Fínn fram á við, náði ágætlega saman við Jóhann Berg og átti 2-3 góðar fyrirgjafir.Kári Árnason 8 Mjög góður leikur hjá miðverðinum. Var látinn bera upp boltann frá endalínu í fyrri hálfleik til að spila í gegnum pressu heimamanna. Kom spilinu í gang með góðum sendingum. Ógnarsterkur í loftinu og í heildina besti varnarmaður Íslands í dag.Ragnar Sigurðsson 7 Sterkur í loftinu líkt og Kári. Las margar sendingar vel hjá Kasökum og gerði Hannesi lífið auðveldara.Ari Freyr Skúlason 6 Ágætur fram á við með góðar sendingar en lenti stundum í vandræðum í vörninni. Missti menn framhjá sér og braut klaufalega sem skiluðu föstum leikatriðum fyrir Kasakstan. Eitt brotið hans leiddi næstum til marks Kasakstan sem hefði komið því inn í leikinn.Jóhann Berg Guðmundsson 8 Kom virkilega sprækur inn og greinilega ólmur í að sýna sig og sanna. Heimir og Lars lásu þetta alveg rétt með að láta Jóhann byrja. Var sérstaklega frískur í fyrri hálfleik og lagði upp fyrsta markið eftir að vinna boltann sjálfur.Gylfi Þór Sigurðsson 7 Ekki sami stjörnuleikurinn frá Gylfa Þór og í öðrum leikjum í undankeppninni en gæði hans eru slík að það skiptir ekki öllu máli. Átti í smá vandræðum með móttökur alveg í byrjun leiksins en komst fljótlega betur í takt við leikinn og dreifði spilinu vel. Tengdi vel við Eið Smára. Þeim leiðist ekki að spila saman.Aron Einar Gunnarsson 7 Var meira með boltann en oft áður. Þurfti að rekja hann langar vegalengdir í fyrri hálfleik sérstaklega þegar Kasakarnir stilltu upp í tíu manna varnarleik. Fór vel með boltann, sendingar góðar og var á réttum stað á okkar vallarhelmingi. Fór meiddur af velli.Birkir Bjarnason 8 Mjög góður leikur hjá Birki sem hljóp úr sér lungun frá fyrstu mínútu. Gerði meira en það; komst vel inn í spilið, skilaði sendingum frábærlega frá sér og skoraði tvö mörk.Eiður Smári Guðjohnsen 8 Það þarf ekkert að taka fram hversu miklir töfrar eru í þessum fótum. Kasakarnir gátu ekki hirt af honum boltann sama hversu margir reyndu í einu. Róaði leik liðsins þegar það þurfti en sprengdi svo upp vörn heimamanna með eitruðum sendingum. Skoraði fyrsta markið með frábærri afgreiðslu.Kolbeinn Sigþórsson 5 Ekki góður leikur hjá framherjanum. Var aldrei í takt við leikinn, fékk boltann í hælana og skilaði varla sendingu frá sér til að byrja með. Sterkur í loftinu en hann getur mun betur.Varamenn:Jón Daði Böðvarsson fyrir Kolbein Sigþórsson (70.) 6 Kom inn á og djöflaðist í framlínunni. Vann nokkur skallaeinvígi en mátti losa boltann fyrr á samherja þegar það bauðst. Átti sendinguna á Birki í þriðja markinu.Emil Hallfreðsson fyrir Aron Einar Gunnarsson (72.) -Alfreð Finnbogason fyrir Eiðs Smára Guðjohnsen (83.) - EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Átján leikir og yfir 2.000 dagar frá síðasta landsliðsmarki Eiðs Smára Markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi bætti 25. landsliðsmarkinu í sarpinn í Astana í dag. 28. mars 2015 16:08 Þrjú mörk og þrjú stig í Astana Ísland komst upp að hlið Tékklands á toppi A-riðils í undankeppni EM 2016 með öruggum 0-3 sigri á Kasakstan í Astana í dag. Birkir Bjarnason skoraði tvö marka Íslands og Eiður Smári Guðjohnsen eitt. 28. mars 2015 17:15 Sjáðu mörkin sem strákarnir okkar skoruðu í Astana Birkir Bjarnason skoraði tvívegis og Eiður Smári Guðjohnsen bætti við markametið sitt. 28. mars 2015 17:02 Twitter logar eftir mark Eiðs Samskiptavefurinn Twitter gjörsamlega logaði eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir gegn Kazakstan, en leikið er ytra. Markið kom eftir tuttugu mínútna leik, en staðan í leiknum er 1-0 þegar þetta er skrifað. 28. mars 2015 15:31 Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Kári Árnason var besti leikur íslenska liðsins í 3-0 sigrinum á Kasakstan í undankeppni EM 2016 í dag, en hann spilaði frábærlega í vörninni. Hann fær átta í einkunn fyrir sína frammistöðu líkt og Jóhann Berg, Eiður Smári og Birkir Bjarnason sem spiluðu einnig allir mjög vel. Hér að neðan má sjá einkunnir Vísis fyrir leikinn í Astana.Einkunnir íslensku strákanna:Hannes Þór Halldórsson 7 Öruggur í sínum aðgerðum og ekki að sjá hann hefur ekki spilað „alvöru“ leik á árinu. Varði allt sem á markið kom og sparkaði vel út undir pressu Kasaka.Birkir Már Sævarsson 7 Traustur í varnarleiknum og átti góða spretti til baka þegar Kasakar sóttu hratt. Stöðvaði margar skyndisóknir. Fínn fram á við, náði ágætlega saman við Jóhann Berg og átti 2-3 góðar fyrirgjafir.Kári Árnason 8 Mjög góður leikur hjá miðverðinum. Var látinn bera upp boltann frá endalínu í fyrri hálfleik til að spila í gegnum pressu heimamanna. Kom spilinu í gang með góðum sendingum. Ógnarsterkur í loftinu og í heildina besti varnarmaður Íslands í dag.Ragnar Sigurðsson 7 Sterkur í loftinu líkt og Kári. Las margar sendingar vel hjá Kasökum og gerði Hannesi lífið auðveldara.Ari Freyr Skúlason 6 Ágætur fram á við með góðar sendingar en lenti stundum í vandræðum í vörninni. Missti menn framhjá sér og braut klaufalega sem skiluðu föstum leikatriðum fyrir Kasakstan. Eitt brotið hans leiddi næstum til marks Kasakstan sem hefði komið því inn í leikinn.Jóhann Berg Guðmundsson 8 Kom virkilega sprækur inn og greinilega ólmur í að sýna sig og sanna. Heimir og Lars lásu þetta alveg rétt með að láta Jóhann byrja. Var sérstaklega frískur í fyrri hálfleik og lagði upp fyrsta markið eftir að vinna boltann sjálfur.Gylfi Þór Sigurðsson 7 Ekki sami stjörnuleikurinn frá Gylfa Þór og í öðrum leikjum í undankeppninni en gæði hans eru slík að það skiptir ekki öllu máli. Átti í smá vandræðum með móttökur alveg í byrjun leiksins en komst fljótlega betur í takt við leikinn og dreifði spilinu vel. Tengdi vel við Eið Smára. Þeim leiðist ekki að spila saman.Aron Einar Gunnarsson 7 Var meira með boltann en oft áður. Þurfti að rekja hann langar vegalengdir í fyrri hálfleik sérstaklega þegar Kasakarnir stilltu upp í tíu manna varnarleik. Fór vel með boltann, sendingar góðar og var á réttum stað á okkar vallarhelmingi. Fór meiddur af velli.Birkir Bjarnason 8 Mjög góður leikur hjá Birki sem hljóp úr sér lungun frá fyrstu mínútu. Gerði meira en það; komst vel inn í spilið, skilaði sendingum frábærlega frá sér og skoraði tvö mörk.Eiður Smári Guðjohnsen 8 Það þarf ekkert að taka fram hversu miklir töfrar eru í þessum fótum. Kasakarnir gátu ekki hirt af honum boltann sama hversu margir reyndu í einu. Róaði leik liðsins þegar það þurfti en sprengdi svo upp vörn heimamanna með eitruðum sendingum. Skoraði fyrsta markið með frábærri afgreiðslu.Kolbeinn Sigþórsson 5 Ekki góður leikur hjá framherjanum. Var aldrei í takt við leikinn, fékk boltann í hælana og skilaði varla sendingu frá sér til að byrja með. Sterkur í loftinu en hann getur mun betur.Varamenn:Jón Daði Böðvarsson fyrir Kolbein Sigþórsson (70.) 6 Kom inn á og djöflaðist í framlínunni. Vann nokkur skallaeinvígi en mátti losa boltann fyrr á samherja þegar það bauðst. Átti sendinguna á Birki í þriðja markinu.Emil Hallfreðsson fyrir Aron Einar Gunnarsson (72.) -Alfreð Finnbogason fyrir Eiðs Smára Guðjohnsen (83.) -
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Átján leikir og yfir 2.000 dagar frá síðasta landsliðsmarki Eiðs Smára Markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi bætti 25. landsliðsmarkinu í sarpinn í Astana í dag. 28. mars 2015 16:08 Þrjú mörk og þrjú stig í Astana Ísland komst upp að hlið Tékklands á toppi A-riðils í undankeppni EM 2016 með öruggum 0-3 sigri á Kasakstan í Astana í dag. Birkir Bjarnason skoraði tvö marka Íslands og Eiður Smári Guðjohnsen eitt. 28. mars 2015 17:15 Sjáðu mörkin sem strákarnir okkar skoruðu í Astana Birkir Bjarnason skoraði tvívegis og Eiður Smári Guðjohnsen bætti við markametið sitt. 28. mars 2015 17:02 Twitter logar eftir mark Eiðs Samskiptavefurinn Twitter gjörsamlega logaði eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir gegn Kazakstan, en leikið er ytra. Markið kom eftir tuttugu mínútna leik, en staðan í leiknum er 1-0 þegar þetta er skrifað. 28. mars 2015 15:31 Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira
Átján leikir og yfir 2.000 dagar frá síðasta landsliðsmarki Eiðs Smára Markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi bætti 25. landsliðsmarkinu í sarpinn í Astana í dag. 28. mars 2015 16:08
Þrjú mörk og þrjú stig í Astana Ísland komst upp að hlið Tékklands á toppi A-riðils í undankeppni EM 2016 með öruggum 0-3 sigri á Kasakstan í Astana í dag. Birkir Bjarnason skoraði tvö marka Íslands og Eiður Smári Guðjohnsen eitt. 28. mars 2015 17:15
Sjáðu mörkin sem strákarnir okkar skoruðu í Astana Birkir Bjarnason skoraði tvívegis og Eiður Smári Guðjohnsen bætti við markametið sitt. 28. mars 2015 17:02
Twitter logar eftir mark Eiðs Samskiptavefurinn Twitter gjörsamlega logaði eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir gegn Kazakstan, en leikið er ytra. Markið kom eftir tuttugu mínútna leik, en staðan í leiknum er 1-0 þegar þetta er skrifað. 28. mars 2015 15:31