Umfjöllun: Katar - Frakkland 22-25 | Frakkar heimsmeistarar í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2015 15:45 Vísir/Getty Frakkland varð í dag heimsmeistari í handbolta eftir sigur á Katar í úrslitaleik, 25-22. Þar með eru Frakkar ríkjandi heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar. Frakkar leiddu frá upphafsmínútum allt til loka en heimamenn í Katar börðust þó grimmilega fyrir sínu og hleyptu þeim frönsku aldrei of langt fram úr sér. Katar er að mestu skipað aðkeyptum leikmönnum frá Evrópu og Afríku og er með þaulreyndan þjálfara á hliðarlínunni, Spánverjann Valero Rivero, sem gerði Spán að heimsmeisturum fyrir tveimur árum síðan. Liðið hefur æft saman nánast daglega svo mánuðum skiptir og bætt leik sinn með hverjum leiknum á mótinu. Liðið spilaði vel í dag, og enginn betur en markvörðurinn Danijel Saric, en það dugði ekki til gegn gullaldarliði Frakka sem bætti enn einum titlinum í safnið í dag. Staðan í hálfleik var 14-11 en munurinn var aldrei meiri en þrjú mörk í þeim síðari. Þrátt fyrir að Thierry Omeyer hafi átt erfitt uppdráttar framan af varði hann mikilvæg skot í síðari hálfleik auk þess sem að vörn liðsins var gríðarlega öflug og refsuðu Frakkarnir grimmt fyrir hver mistök sem heimamenn gerðu. Niðurstaðan var því sanngjarn sigur en því skal haldið til haga að frammistaða tékkneska dómaraparsins í leiknum var til mikilla sóma og var ekki að sjá að þeir hafi látið umræðu síðustu daga og vikna um heimadómgæslu og jafnvel mútuþægni hafa áhrif á sig. Nikola Karabatic var markahæstur Frakka með fimm mörk en hann skoraði þau öll í fyrri hálfleik. Það var þó franska vörnin fyrst og fremst sem skóp sigur þeirra í dag. Zarko Markovic skoraði sjö mörk fyrir Katar og Rafael Capote sex. Gestgjafarnir skoruðu fyrsta mark leiksins og þegar Svartfellingurinn Goran Stojanovic varði víti frá Frökkum í næstu sókn rann á mann grunur um að þetta yrði kvöld Katars. En annað kom fljótlega á daginn. Leikmenn Katars áttu í stökustu vandræðum með öflugan varnarleik Frakkanna og markvörslu Thierry Omeyer. Frakkar tóku undirtökin í leiknum og komust í 5-3, svo 9-5 og loks 13-7 þegar um átta mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Hassan Mabrouk, egypska varnartröllið í liði Katar, var þar að auki búinn að láta reka sig tvisvar af velli á fyrstu tólf mínútum leiksins og var því útlitið ekki bjart fyrir heimamenn. En kúbverska skyttan Rafael Capote hefur margsinnis sýnt snilli sína í þessu móti og hann kom Katar inn í leikinn með tveimur mörkum langt utan að velli. Nikola Karabatic fékk svo umdeilda brottvísun og Katar minnkaði muninn í þrjú mörk, 13-10. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 14-11, Frökkum í vil, en heimamenn gátu þakkað bosníska markverðinum Danijel Saric að forysta þeirra frönsku var ekki enn meiri. Hann varði sjö skot í fyrri hálfleik, þar af mörg úr dauðafærum. Eftir góða byrjun Omeyer í franska markinu dró af honum og munar um minna. Heimamenn byrjuðu einnig vel í síðari hálfleik og skoruðu fyrstu tvö mörkin, auk þess sem að Saric tók upp þráðinn þaðan sem frá var horfið. Frakkar rönkuðu við sér og héld undirtökunum en það stóð oft tæpt. Eftir því sem leið á leikinn urðu menn heitari og skapbráðari. Omeyer átti enn erfitt með að finna taktinn en á meðan var vörn heimamanna og markvarsla öflug. Katar fékk tækifæri til að jafna metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en þá minnti Omeyer á sig og varði mikilvægt skot. Góð vörn Frakka sá til þess að þeir héldu undirtökunum. Hver mistök sem Katar gerði voru dýr því Frakkar refsuðu umsvifalaust fyrir þau með auðfengnum mörkum. Það var lykilatriði fyrir Frakka sem áttu á köflum í erfiðleikum með að komast í gegnum uppstillta vörn heimamanna. Frakkar héldu sínu allt til loka og gátu leyft sér að fagna áður en leiktíminn var allur. Titillinn var þeirra, enn og aftur, og stendur liðið í efsta þrepi sem verðskuldaður heimsmeistari. HM 2015 í Katar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira
Frakkland varð í dag heimsmeistari í handbolta eftir sigur á Katar í úrslitaleik, 25-22. Þar með eru Frakkar ríkjandi heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar. Frakkar leiddu frá upphafsmínútum allt til loka en heimamenn í Katar börðust þó grimmilega fyrir sínu og hleyptu þeim frönsku aldrei of langt fram úr sér. Katar er að mestu skipað aðkeyptum leikmönnum frá Evrópu og Afríku og er með þaulreyndan þjálfara á hliðarlínunni, Spánverjann Valero Rivero, sem gerði Spán að heimsmeisturum fyrir tveimur árum síðan. Liðið hefur æft saman nánast daglega svo mánuðum skiptir og bætt leik sinn með hverjum leiknum á mótinu. Liðið spilaði vel í dag, og enginn betur en markvörðurinn Danijel Saric, en það dugði ekki til gegn gullaldarliði Frakka sem bætti enn einum titlinum í safnið í dag. Staðan í hálfleik var 14-11 en munurinn var aldrei meiri en þrjú mörk í þeim síðari. Þrátt fyrir að Thierry Omeyer hafi átt erfitt uppdráttar framan af varði hann mikilvæg skot í síðari hálfleik auk þess sem að vörn liðsins var gríðarlega öflug og refsuðu Frakkarnir grimmt fyrir hver mistök sem heimamenn gerðu. Niðurstaðan var því sanngjarn sigur en því skal haldið til haga að frammistaða tékkneska dómaraparsins í leiknum var til mikilla sóma og var ekki að sjá að þeir hafi látið umræðu síðustu daga og vikna um heimadómgæslu og jafnvel mútuþægni hafa áhrif á sig. Nikola Karabatic var markahæstur Frakka með fimm mörk en hann skoraði þau öll í fyrri hálfleik. Það var þó franska vörnin fyrst og fremst sem skóp sigur þeirra í dag. Zarko Markovic skoraði sjö mörk fyrir Katar og Rafael Capote sex. Gestgjafarnir skoruðu fyrsta mark leiksins og þegar Svartfellingurinn Goran Stojanovic varði víti frá Frökkum í næstu sókn rann á mann grunur um að þetta yrði kvöld Katars. En annað kom fljótlega á daginn. Leikmenn Katars áttu í stökustu vandræðum með öflugan varnarleik Frakkanna og markvörslu Thierry Omeyer. Frakkar tóku undirtökin í leiknum og komust í 5-3, svo 9-5 og loks 13-7 þegar um átta mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. Hassan Mabrouk, egypska varnartröllið í liði Katar, var þar að auki búinn að láta reka sig tvisvar af velli á fyrstu tólf mínútum leiksins og var því útlitið ekki bjart fyrir heimamenn. En kúbverska skyttan Rafael Capote hefur margsinnis sýnt snilli sína í þessu móti og hann kom Katar inn í leikinn með tveimur mörkum langt utan að velli. Nikola Karabatic fékk svo umdeilda brottvísun og Katar minnkaði muninn í þrjú mörk, 13-10. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 14-11, Frökkum í vil, en heimamenn gátu þakkað bosníska markverðinum Danijel Saric að forysta þeirra frönsku var ekki enn meiri. Hann varði sjö skot í fyrri hálfleik, þar af mörg úr dauðafærum. Eftir góða byrjun Omeyer í franska markinu dró af honum og munar um minna. Heimamenn byrjuðu einnig vel í síðari hálfleik og skoruðu fyrstu tvö mörkin, auk þess sem að Saric tók upp þráðinn þaðan sem frá var horfið. Frakkar rönkuðu við sér og héld undirtökunum en það stóð oft tæpt. Eftir því sem leið á leikinn urðu menn heitari og skapbráðari. Omeyer átti enn erfitt með að finna taktinn en á meðan var vörn heimamanna og markvarsla öflug. Katar fékk tækifæri til að jafna metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en þá minnti Omeyer á sig og varði mikilvægt skot. Góð vörn Frakka sá til þess að þeir héldu undirtökunum. Hver mistök sem Katar gerði voru dýr því Frakkar refsuðu umsvifalaust fyrir þau með auðfengnum mörkum. Það var lykilatriði fyrir Frakka sem áttu á köflum í erfiðleikum með að komast í gegnum uppstillta vörn heimamanna. Frakkar héldu sínu allt til loka og gátu leyft sér að fagna áður en leiktíminn var allur. Titillinn var þeirra, enn og aftur, og stendur liðið í efsta þrepi sem verðskuldaður heimsmeistari.
HM 2015 í Katar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira