Danir klófestu fimmta sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2015 17:46 Guðmundur Guðmundsson þjálfar danska liðið. Vísir/Eva Björk Danmörk vann Króatíu, 28-24, í leik um fimmta sætið á HM í handbolta í Katar í dag. Danir leiddu allan tímann en Króatar gerðu harða atlögu að forystu þeirra á lokamínútum leiksins. Óljóst er hversu mikilvægt það var að landa fimmta sætinu þar sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur ekki enn gefið út hvort að sama fyrirkomulag verði á undankeppni ÓL 2016 og síðustu ár.Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um Danmörk tapaði aðeins einum leik allt mótið en það var fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðið gerði þó tvö jafntefli í riðlakeppninni. Eftir jafnar upphafsmínútur í dag tóku Danir yfirhöndina með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 4-4 í 8-4. Króatar virtust fremur áhugalausir um leikinn en staðan að loknum fyrri hálfleik var 15-11. En í síðari hálfleik leit út fyrir að Danir væru ekki með hugann við leikinn. Liðið tapaði óvenjumörgum boltum og Króatar voru búnir að minnka muninn í tvö mörk, 18-16, áður en langt var um liðið. Danir vöknuðu þá til lífsins áður en Króatar náðu enn og aftur að koma til baka. Þeir síðarnefndu fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark þegar um tíu mínútur voru eftir en þá kom Niklas Landin í mark Dana og sá til að það kom aldrei til þess. Hann var frábær þessar síðustu tíu mínútur leiksins. Mikkel Hansen átti stórleik í sókninni og skoraði átta glæsileg mörk fyrir danska liðið. Mads Christiansen kom næstur með þrjú mörk. HM 2015 í Katar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira
Danmörk vann Króatíu, 28-24, í leik um fimmta sætið á HM í handbolta í Katar í dag. Danir leiddu allan tímann en Króatar gerðu harða atlögu að forystu þeirra á lokamínútum leiksins. Óljóst er hversu mikilvægt það var að landa fimmta sætinu þar sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur ekki enn gefið út hvort að sama fyrirkomulag verði á undankeppni ÓL 2016 og síðustu ár.Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um Danmörk tapaði aðeins einum leik allt mótið en það var fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðið gerði þó tvö jafntefli í riðlakeppninni. Eftir jafnar upphafsmínútur í dag tóku Danir yfirhöndina með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 4-4 í 8-4. Króatar virtust fremur áhugalausir um leikinn en staðan að loknum fyrri hálfleik var 15-11. En í síðari hálfleik leit út fyrir að Danir væru ekki með hugann við leikinn. Liðið tapaði óvenjumörgum boltum og Króatar voru búnir að minnka muninn í tvö mörk, 18-16, áður en langt var um liðið. Danir vöknuðu þá til lífsins áður en Króatar náðu enn og aftur að koma til baka. Þeir síðarnefndu fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark þegar um tíu mínútur voru eftir en þá kom Niklas Landin í mark Dana og sá til að það kom aldrei til þess. Hann var frábær þessar síðustu tíu mínútur leiksins. Mikkel Hansen átti stórleik í sókninni og skoraði átta glæsileg mörk fyrir danska liðið. Mads Christiansen kom næstur með þrjú mörk.
HM 2015 í Katar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira