Umfjöllun: Danmörk - Spánn 24-25 | Cañellas hetja Spánverja gegn Dönum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. janúar 2015 14:13 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins. Vísir/Eva Björk Joan Cañellas var hetja Spánverja þegar þeir slógu Dani út í 8-liða úrslitum á HM í Katar í Lusail Sports Arena í kvöld. Lokatölur 24-25, Spáni í vil. Staðan var jöfn þegar lokamínútan gekk í garð. Valero Rivera kom Spánverjum yfir, 23-24, með sínu tíunda marki í leiknum. Danir brunuðu í sókn og Mads Mensah Larsen jafnaði metin með góðu skoti. Manolo Cadenas, þjálfari Spánar, tók þá leikhlé þegar 19 sekúndur voru eftir. Heimsmeistararnir stilltu upp í sókn sem lauk með því að Cañellas skoraði sigurmarkið, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Spánverjar fögnuðu vel og innilega en þeirra bíður leikur gegn Evrópumeisturum Frakka í undanúrslitum. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu og aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Danir voru á undan að skora framan af leik þar sem hornamaðurinn Anders Eggert fór mikinn en hann skoraði sex mörk í fyrri hálfleik. Í stöðunni 8-7 fyrir Dani kom góður kafli hjá Spánverjum sem skoruðu þrjú mörk í röð og komust tveimur mörkum yfir, 8-10. Þeir skoruðu hins vegar aðeins eitt mark á síðustu átta mínútum fyrri hálfleik á meðan Danir skoruðu þrjú. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og komust þrívegis tveimur mörkum yfir á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins. Mikkel Hansen var öflugur á þessum kafla en þessi mikla skytta skoraði fimm af sjö fyrstu mörkum Dana í seinni hálfleik. Mensah gerði hin tvö en Spánverjum gekk illa eiga við þá félaga. En líkt og í fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá heimsmeisturunum um miðjan seinni hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 18-16 og í 18-20 og voru komnir með gott tak á leiknum. Danir gáfust hins vegar ekki upp og eftir leikhlé Guðmundar skoruðu þeir þrjú mörk í röð og komust yfir, 23-22, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Spánverjar náðu að jafna í 23-23 og við tók sá æsilegi lokakafli sem áður var lýst. Rivera var markahæsti í liði Spánar með tíu mörk en Cañellas kom næstur með fimm mörk. Þá skoraði Rául Entrerríos fjögur mörk. Eggert og Hansen voru markahæstir í liði Danmerkur með sex mörk hvor. Hansen skoraði hins vegar ekki mark síðustu 20 mínútur leiksins. Mensah skoraði fjögur mörk, öll í seinni hálfleik. Danir, sem töpuðu sínum fyrsta leik á HM í kvöld, mæta Slóvenum á föstudaginn í leik um réttinn til að leika um 5. sætið. Lærisveinar Guðmundar leika svo annað hvort um 5. eða 7. sætið á laugardaginn. HM 2015 í Katar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira
Joan Cañellas var hetja Spánverja þegar þeir slógu Dani út í 8-liða úrslitum á HM í Katar í Lusail Sports Arena í kvöld. Lokatölur 24-25, Spáni í vil. Staðan var jöfn þegar lokamínútan gekk í garð. Valero Rivera kom Spánverjum yfir, 23-24, með sínu tíunda marki í leiknum. Danir brunuðu í sókn og Mads Mensah Larsen jafnaði metin með góðu skoti. Manolo Cadenas, þjálfari Spánar, tók þá leikhlé þegar 19 sekúndur voru eftir. Heimsmeistararnir stilltu upp í sókn sem lauk með því að Cañellas skoraði sigurmarkið, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Spánverjar fögnuðu vel og innilega en þeirra bíður leikur gegn Evrópumeisturum Frakka í undanúrslitum. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu og aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Danir voru á undan að skora framan af leik þar sem hornamaðurinn Anders Eggert fór mikinn en hann skoraði sex mörk í fyrri hálfleik. Í stöðunni 8-7 fyrir Dani kom góður kafli hjá Spánverjum sem skoruðu þrjú mörk í röð og komust tveimur mörkum yfir, 8-10. Þeir skoruðu hins vegar aðeins eitt mark á síðustu átta mínútum fyrri hálfleik á meðan Danir skoruðu þrjú. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og komust þrívegis tveimur mörkum yfir á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins. Mikkel Hansen var öflugur á þessum kafla en þessi mikla skytta skoraði fimm af sjö fyrstu mörkum Dana í seinni hálfleik. Mensah gerði hin tvö en Spánverjum gekk illa eiga við þá félaga. En líkt og í fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá heimsmeisturunum um miðjan seinni hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 18-16 og í 18-20 og voru komnir með gott tak á leiknum. Danir gáfust hins vegar ekki upp og eftir leikhlé Guðmundar skoruðu þeir þrjú mörk í röð og komust yfir, 23-22, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Spánverjar náðu að jafna í 23-23 og við tók sá æsilegi lokakafli sem áður var lýst. Rivera var markahæsti í liði Spánar með tíu mörk en Cañellas kom næstur með fimm mörk. Þá skoraði Rául Entrerríos fjögur mörk. Eggert og Hansen voru markahæstir í liði Danmerkur með sex mörk hvor. Hansen skoraði hins vegar ekki mark síðustu 20 mínútur leiksins. Mensah skoraði fjögur mörk, öll í seinni hálfleik. Danir, sem töpuðu sínum fyrsta leik á HM í kvöld, mæta Slóvenum á föstudaginn í leik um réttinn til að leika um 5. sætið. Lærisveinar Guðmundar leika svo annað hvort um 5. eða 7. sætið á laugardaginn.
HM 2015 í Katar Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira