Spánverjar í vandræðum með Brasilíu | Gajic skoraði 15 mörk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2015 15:40 Antonio Garcia reynir skot að marki Brasilíu í dag. vísir/getty Heimsmeistarar Spánverja unnu torsóttan tveggja marka sigur, 27-29, á Brasilíu í A-riðli á HM í handbolta í Katar í dag. Spánn er með fullt hús stiga eftir tvo leiki en liðið lagði Hvíta-Rússland að velli í gær. Brasilíumenn, sem töpuðu fyrir Katar í opnunarleik mótsins, héldu í við Spánverja í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 14-15. Cesar Almeida, markvörður Brasilíu, var í miklu stuði í fyrri hálfleik og varði 13 skot, en botninn datt algjörlega úr sóknarleik Spánverja seinni hluta hálfleiksins. Brassarnir héldu áfram að þjarma að Spánverjum í seinni hálfleik og náðu loks að jafna í 18-18 þegar Felipe Ribero skoraði eftir hraðaupphlaup. Skömmu síðar komust Brasilíumenn yfir, 19-18, eftir annað hraðaupphlaupsmark frá Joao Silva. En um miðjan seinni hálfleik sprungu Brasilíumenn á limminu. Spánn breytti stöðunni úr 23-23 í 25-29 og heimsmeistararnir unnu að lokum tveggja marka sigur, 27-29. Joan Canellas var markahæstur í liði Spánar með átta mörk, en Valero Rivera kom næstur með sjö. Þá átti José Manuel Sierra flottan leik í markinu en hann varði um 20 skot. Ribero og Guilherme de Toledo skoruðu fimm mörk hvor fyrir Brasilíu. Slóvenar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Hvíta-Rússlandi að velli í sama riðli. Slóvenar voru níu mörkum yfir í hálfleik, 8-17, og þann mun náðu Hvít-Rússar aldrei að brúa. Lokatölur 29-34, Slóvenum í vil sem eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki líkt og Spánverjar. Dragan Gajic, hornamaðurinn frábæri, skoraði 15 mörk fyrir Slóveníu en hann hefur farið mikinn í upphafi móts og skoraði níu mörk í sigrinum á Chile í gær. Maxim Babichev skoraði fimm mörk fyrir Hvít-Rússa sem eru enn án stiga.Gajic skorar eitt af 15 mörkum sínum gegn Hvít-Rússum í dag.vísir/getty HM 2015 í Katar Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira
Heimsmeistarar Spánverja unnu torsóttan tveggja marka sigur, 27-29, á Brasilíu í A-riðli á HM í handbolta í Katar í dag. Spánn er með fullt hús stiga eftir tvo leiki en liðið lagði Hvíta-Rússland að velli í gær. Brasilíumenn, sem töpuðu fyrir Katar í opnunarleik mótsins, héldu í við Spánverja í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 14-15. Cesar Almeida, markvörður Brasilíu, var í miklu stuði í fyrri hálfleik og varði 13 skot, en botninn datt algjörlega úr sóknarleik Spánverja seinni hluta hálfleiksins. Brassarnir héldu áfram að þjarma að Spánverjum í seinni hálfleik og náðu loks að jafna í 18-18 þegar Felipe Ribero skoraði eftir hraðaupphlaup. Skömmu síðar komust Brasilíumenn yfir, 19-18, eftir annað hraðaupphlaupsmark frá Joao Silva. En um miðjan seinni hálfleik sprungu Brasilíumenn á limminu. Spánn breytti stöðunni úr 23-23 í 25-29 og heimsmeistararnir unnu að lokum tveggja marka sigur, 27-29. Joan Canellas var markahæstur í liði Spánar með átta mörk, en Valero Rivera kom næstur með sjö. Þá átti José Manuel Sierra flottan leik í markinu en hann varði um 20 skot. Ribero og Guilherme de Toledo skoruðu fimm mörk hvor fyrir Brasilíu. Slóvenar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Hvíta-Rússlandi að velli í sama riðli. Slóvenar voru níu mörkum yfir í hálfleik, 8-17, og þann mun náðu Hvít-Rússar aldrei að brúa. Lokatölur 29-34, Slóvenum í vil sem eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki líkt og Spánverjar. Dragan Gajic, hornamaðurinn frábæri, skoraði 15 mörk fyrir Slóveníu en hann hefur farið mikinn í upphafi móts og skoraði níu mörk í sigrinum á Chile í gær. Maxim Babichev skoraði fimm mörk fyrir Hvít-Rússa sem eru enn án stiga.Gajic skorar eitt af 15 mörkum sínum gegn Hvít-Rússum í dag.vísir/getty
HM 2015 í Katar Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Bestu NFL tilþrifin: Bakarameistarinn með Bosa í annarri og boltann í hinni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Sjá meira