Forsetakjör Þyrlan sótti kjörkassa Landhelgisgæslan kom yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis til hjálpar við að flytja atkvæði frá Vestmannaeyjum á talningarstað á Selfossi. Veður kom að mestu í veg fyrir flug en þyrla Landhelgisgæslunnar komst þangað sem aðrar flugvélar komu ekki og sótti kjörseðla til talningar. Innlent 13.10.2005 14:20 Gömul kaldastríðsblaðamennska Ólafur Ragnar Grímsson segir Morgunblaðið hafa rekið markvissan og hatramman áróður gegn sér og segir blaðið komið í gamla kaldastríðsblaðamennsku. Innlent 13.10.2005 14:20 Fimmti hver skilaði auðu Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands í kosningunum í gær með 85,6 prósentum gildra atkvæða. Ástþór Magnússon hlaut innan við 2 prósent og Baldur Ágústsson 12 og hálft prósent. Fimmti hver kjósandi skilaði auðu, sem á sér engin fordæmi hér á landi. Innlent 13.10.2005 14:20 Andstaðan segir sína skoðun Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn með traustum meirihluta, þrátt fyrir árásir Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Þetta er mat nokkurra stjórnarandstöðuþingmanna. Innlent 13.10.2005 14:20 Yfirlit yfir úrslit kosninga Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands í gær með tæplega 85 prósent gildra atkvæða. Fimmtungur kjósenda skilaði hins vegar auðu og kjörsókn hefur aldrei verið minni í sextíu ára sögu lýðveldisins. Innlent 13.10.2005 14:20 Nýjar tölur úr Suðurkjördæmi Talning er vel á veg komin í Suðurkjördæmi. Talin hafa verið 10.487 atkvæði en alls voru 28.606 á kjörskrá. Innlent 13.10.2005 14:20 Ekki lengur sameiningartákn Ólafi Ragnari Grímssyni hefur mistekist að verða sameiningartákn þjóðarinnar. Þetta segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor. Hannes Hólmsteinn verður seint talinn til aðdáenda Ólafs Ragnars Grímssonar, og túlkun hans á niðurstöðun kosninganna er ljós. Innlent 13.10.2005 14:20 Kjörsókn í sögulegu lágmarki "Þetta er mun minni kjörsókn en skoðanakannanir bentu til og í ljósi þess hvernig umræðan hefur verið síðustu vikur," segir Þórólfur Þórlindsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 14:20 Landið allt - lokatölur forsetakosninganna Talningu atkvæða í forsetakosningunum er nú lokið í öllum kjördæmum. Kjörsókn var rétt tæp 63,0%. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut rúmlega 67% greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20 Hrærður yfir stuðningnum "Ákveðin öfl úr ákveðnu pólitísku litrófi hafa beitt sér mjög gegn mér og hvatt fólk til að skila auðu. Morgunblaðið hefur farið þar fremst í flokki eins og forsíða blaðsins í dag ber með sér. Hlutfall auðra seðla í þessum kosningum er lítil uppskera miðað við það sem á undan hefur gengið," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Innlent 13.10.2005 14:20 Talningu lokið í Reykjavík norður Talningu í Reykjavíkurkjördæmi norður er lokið. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 63,3% greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20 Úrslitin hljóti að vera áfall Davíð Oddsson forsætisráðherra segir úrslit forsetakosningarnar hljóta að vera Ólafi Ragnari áfall. Forsætisráðherra er í Tyrklandi á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins en tal náðist af honum stuttu fyrir fréttir. Hann óskar Ólafi Ragnari Grímssyni þó til hamingju með að hafa verið endurkjörinn forseti Íslands næstu fjögur árin. Innlent 13.10.2005 14:20 Enginn spámaður í eigin föðurlandi Ástþór Magnússon segist hafa fengið fleiri atkvæði upp úr kjörkössunum í gærkvöldi en Kristur átti sér fylgismenn. Hann segir engann vera spámann í eigin föðurlandi. Alls hlaut Ástþór Magnússon 1,89 prósent gildra atkvæða. Hann hefði viljað sjá fleiri koma með mannúð í hjarta á kjörstað til að styðja friðarmálin. Hann sagðist þó alls ekki vera hættur og héldi baráttunni áfram. Innlent 13.10.2005 14:20 Önnur talning Norðvesturkjördæmi Ólafur Ragnar Grímsson hefur hlotið 71% atkvæða í Norðvesturkjördæmi þegar talin hafa verið 1.500 atkvæði eða rúmlega 7%. Innlent 13.10.2005 14:20 Lokatölur úr Reykjavík og Kraga Talningu er lokið í Reykjavíkurkjördæmi suður og í Suðvesturkjördæmi. Í báðum kjördæmum hlaut Ólafur Ragnar Grímsson um 64% atkvæða. Auðir seðlar voru tæpur fjórðungur greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20 Ekki forseti þjóðarinnar "Aðalatriðið er það að samkvæmt þessum tölum er Ólafur Ragnar Grímsson með minnihluta atkvæðisbærra manna á bak við sig. Hann er því ekki forseti þjóðarinnar, heldur forseti vinstrimanna," sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði. Innlent 13.10.2005 14:20 Hefur ótvírætt umboð frá þjóðinni Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að Ólafur Ragnar Grímsson hafi fengið ótvírætt umboð frá þjóðinni til að gegna áfram forsetaembættinu. Hann bendir á að meirihluti þjóðarinnar hafi hafnað þeim málflutningi að forsetinn hefði ekki rétt til að skjóta málum til þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 14:20 Dræm kjörsókn viðvörunarmerki "Ég fór í þessar kosningar vegna þess að ég hafði ákveðna hluti að segja. Ég vonaðist til að þetta færi öðruvísi en það er þjóðin sem ræður," sagði Baldur Ágústsson um úrslit kosninganna. Innlent 13.10.2005 14:20 Traustsyfirlýsing eða áfall Ólafur Ragnar Grímsson, nýkjörinn forseti Íslands, segir kosningaúrslitin afgerandi traustsyfirlýsingu og mjög sterkt umboð. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir úrslitin hins vegar áfall fyrir Ólaf og að hyldýpisgjá hafi myndast á milli hans og þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 14:20 Hefði viljað vinna Baldur Ágústsson, forsetaframbjóðandi, segir niðurstöðuna í forsetakosningunum aðra en hann vonaðist eftir, en kjósendur ráði. Hann segir vaktaskipti á Bessastöðum tímabær og því hafi hann viljað vinna kosningarnar. Innlent 13.10.2005 14:20 Nýjar tölur úr Suðurkjördæmi Öll kjörgögn eru nú komin í hús á talningarstað á Selfossi þar sem talning atkvæða í Suðurkjördæmi fer fram. Búið er að telja tæplega 15.000 atkvæði og hefur Ólafur Ragnar Grímsson hlotið tæp 70% atkvæðanna. Innlent 13.10.2005 14:20 Kjörfundaratkvæði í Kraganum talin Talningu kjörfundaratkvæða í Suðvesturkjrödæmi erlokið. Einungis á eftir að telja 4.400 til 4.500 utankjörfundaratkvæði. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 63,3% greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20 Ástþór gerði ógilt Ástþór Magnússon braut kosningalögin með því að flagga kjörseðlinum sínum og setja hann ekki samanbrotinn í kjörkassann í forsetakosningunum í gær. Þórunn Guðmundsson, oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður segir að með þessu hafi Ástþór ógilt atkvæðið sitt. Innlent 13.10.2005 14:20 Frambjóðendur á kjörstað Forsetakosningar fara fram á Íslandi í dag, í sjötta sinn í sögu lýðveldisins. Þótt allar líkur séu á því að Ólafur Ragnar Grímsson verði endurkjörinn með meirihluta atkvæða verður horft til þess hversu margir kjósendur munu nota tækifærið til að lýsa andstöðu sinni við hann. Innlent 13.10.2005 14:20 Kjörsókn mun minni en 1996 Kjörsókn nú er mun minni en í forsetakosningunum árið 1996 og í alþingiskosningunum í fyrra. Framkvæmd kosninganna hefur víðast hvar gengið mjög vel. Slæmt veður gæti þó sett strik í reikninginn í Suðurkjördæmi, því ekki hefur verið hægt að fljúga með atkvæði frá Vestmannaeyjum og útlitið fyrir kvöldið er slæmt. Innlent 13.10.2005 14:20 Auðir seðlar taldir sér Forsíðufyrirsögn Morgunblaðsins í dag um að auð atkvæði verði birt sérstaklega túlkar Mörður Árnason alþingismaður sem skilaboð blaðsins til lesenda um að skila auðu í forsetakosningunum Innlent 13.10.2005 14:20 Mun dræmari kjörsókn Kjörsókn í forsetakosningunum virðist almennt dræmari nú en áður. Klukkan 13 höfðu 12,17% kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi norður komið á kjörstað. Í forsetakosningunum 1996, þegar Reykjavík var eitt kjördæmi, var kjörsókn á sama tíma 18,53%. Innlent 13.10.2005 14:20 Eiginkonur kjósa ekki Forsetaframbjóðendurnir þrír hafa auðvitað ekki hugmynd um hverjir kjósa þá og hverjir ekki. Eitt geta þeir þó allir verið vissir um, og það er að eiginkonur þeirra greiða þeim ekki atkvæði. Það er forvitinlegt að allar eiginkonur frambjóðendanna eru útlendingar og enginn þeirra hefur kosningarétt á Íslandi. Innlent 13.10.2005 14:20 Kosningar í dag Íslendingar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér forseta. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu í morgun og loka víðast hvar klukkan tíu í kvöld. 213.553 eru á kjörskrá, og er það hátt í 19 þúsund fleiri en voru á kjörskrá í síðustu forsetakosningum fyrir átta árum. Innlent 13.10.2005 14:20 Fylgi Ólafs 70% í Suðurkjördæmi Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar er rúm 70% samkvæmt fyrstu tölum, úr Suðurkjördæmi. Það breytir þó litlu um fylgi hans á landsvísu, það er rúm 85%. Innlent 13.10.2005 14:20 « ‹ 1 2 3 4 … 4 ›
Þyrlan sótti kjörkassa Landhelgisgæslan kom yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis til hjálpar við að flytja atkvæði frá Vestmannaeyjum á talningarstað á Selfossi. Veður kom að mestu í veg fyrir flug en þyrla Landhelgisgæslunnar komst þangað sem aðrar flugvélar komu ekki og sótti kjörseðla til talningar. Innlent 13.10.2005 14:20
Gömul kaldastríðsblaðamennska Ólafur Ragnar Grímsson segir Morgunblaðið hafa rekið markvissan og hatramman áróður gegn sér og segir blaðið komið í gamla kaldastríðsblaðamennsku. Innlent 13.10.2005 14:20
Fimmti hver skilaði auðu Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands í kosningunum í gær með 85,6 prósentum gildra atkvæða. Ástþór Magnússon hlaut innan við 2 prósent og Baldur Ágústsson 12 og hálft prósent. Fimmti hver kjósandi skilaði auðu, sem á sér engin fordæmi hér á landi. Innlent 13.10.2005 14:20
Andstaðan segir sína skoðun Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn með traustum meirihluta, þrátt fyrir árásir Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Þetta er mat nokkurra stjórnarandstöðuþingmanna. Innlent 13.10.2005 14:20
Yfirlit yfir úrslit kosninga Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands í gær með tæplega 85 prósent gildra atkvæða. Fimmtungur kjósenda skilaði hins vegar auðu og kjörsókn hefur aldrei verið minni í sextíu ára sögu lýðveldisins. Innlent 13.10.2005 14:20
Nýjar tölur úr Suðurkjördæmi Talning er vel á veg komin í Suðurkjördæmi. Talin hafa verið 10.487 atkvæði en alls voru 28.606 á kjörskrá. Innlent 13.10.2005 14:20
Ekki lengur sameiningartákn Ólafi Ragnari Grímssyni hefur mistekist að verða sameiningartákn þjóðarinnar. Þetta segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor. Hannes Hólmsteinn verður seint talinn til aðdáenda Ólafs Ragnars Grímssonar, og túlkun hans á niðurstöðun kosninganna er ljós. Innlent 13.10.2005 14:20
Kjörsókn í sögulegu lágmarki "Þetta er mun minni kjörsókn en skoðanakannanir bentu til og í ljósi þess hvernig umræðan hefur verið síðustu vikur," segir Þórólfur Þórlindsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 14:20
Landið allt - lokatölur forsetakosninganna Talningu atkvæða í forsetakosningunum er nú lokið í öllum kjördæmum. Kjörsókn var rétt tæp 63,0%. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut rúmlega 67% greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20
Hrærður yfir stuðningnum "Ákveðin öfl úr ákveðnu pólitísku litrófi hafa beitt sér mjög gegn mér og hvatt fólk til að skila auðu. Morgunblaðið hefur farið þar fremst í flokki eins og forsíða blaðsins í dag ber með sér. Hlutfall auðra seðla í þessum kosningum er lítil uppskera miðað við það sem á undan hefur gengið," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Innlent 13.10.2005 14:20
Talningu lokið í Reykjavík norður Talningu í Reykjavíkurkjördæmi norður er lokið. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 63,3% greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20
Úrslitin hljóti að vera áfall Davíð Oddsson forsætisráðherra segir úrslit forsetakosningarnar hljóta að vera Ólafi Ragnari áfall. Forsætisráðherra er í Tyrklandi á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins en tal náðist af honum stuttu fyrir fréttir. Hann óskar Ólafi Ragnari Grímssyni þó til hamingju með að hafa verið endurkjörinn forseti Íslands næstu fjögur árin. Innlent 13.10.2005 14:20
Enginn spámaður í eigin föðurlandi Ástþór Magnússon segist hafa fengið fleiri atkvæði upp úr kjörkössunum í gærkvöldi en Kristur átti sér fylgismenn. Hann segir engann vera spámann í eigin föðurlandi. Alls hlaut Ástþór Magnússon 1,89 prósent gildra atkvæða. Hann hefði viljað sjá fleiri koma með mannúð í hjarta á kjörstað til að styðja friðarmálin. Hann sagðist þó alls ekki vera hættur og héldi baráttunni áfram. Innlent 13.10.2005 14:20
Önnur talning Norðvesturkjördæmi Ólafur Ragnar Grímsson hefur hlotið 71% atkvæða í Norðvesturkjördæmi þegar talin hafa verið 1.500 atkvæði eða rúmlega 7%. Innlent 13.10.2005 14:20
Lokatölur úr Reykjavík og Kraga Talningu er lokið í Reykjavíkurkjördæmi suður og í Suðvesturkjördæmi. Í báðum kjördæmum hlaut Ólafur Ragnar Grímsson um 64% atkvæða. Auðir seðlar voru tæpur fjórðungur greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20
Ekki forseti þjóðarinnar "Aðalatriðið er það að samkvæmt þessum tölum er Ólafur Ragnar Grímsson með minnihluta atkvæðisbærra manna á bak við sig. Hann er því ekki forseti þjóðarinnar, heldur forseti vinstrimanna," sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði. Innlent 13.10.2005 14:20
Hefur ótvírætt umboð frá þjóðinni Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að Ólafur Ragnar Grímsson hafi fengið ótvírætt umboð frá þjóðinni til að gegna áfram forsetaembættinu. Hann bendir á að meirihluti þjóðarinnar hafi hafnað þeim málflutningi að forsetinn hefði ekki rétt til að skjóta málum til þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 14:20
Dræm kjörsókn viðvörunarmerki "Ég fór í þessar kosningar vegna þess að ég hafði ákveðna hluti að segja. Ég vonaðist til að þetta færi öðruvísi en það er þjóðin sem ræður," sagði Baldur Ágústsson um úrslit kosninganna. Innlent 13.10.2005 14:20
Traustsyfirlýsing eða áfall Ólafur Ragnar Grímsson, nýkjörinn forseti Íslands, segir kosningaúrslitin afgerandi traustsyfirlýsingu og mjög sterkt umboð. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir úrslitin hins vegar áfall fyrir Ólaf og að hyldýpisgjá hafi myndast á milli hans og þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 14:20
Hefði viljað vinna Baldur Ágústsson, forsetaframbjóðandi, segir niðurstöðuna í forsetakosningunum aðra en hann vonaðist eftir, en kjósendur ráði. Hann segir vaktaskipti á Bessastöðum tímabær og því hafi hann viljað vinna kosningarnar. Innlent 13.10.2005 14:20
Nýjar tölur úr Suðurkjördæmi Öll kjörgögn eru nú komin í hús á talningarstað á Selfossi þar sem talning atkvæða í Suðurkjördæmi fer fram. Búið er að telja tæplega 15.000 atkvæði og hefur Ólafur Ragnar Grímsson hlotið tæp 70% atkvæðanna. Innlent 13.10.2005 14:20
Kjörfundaratkvæði í Kraganum talin Talningu kjörfundaratkvæða í Suðvesturkjrödæmi erlokið. Einungis á eftir að telja 4.400 til 4.500 utankjörfundaratkvæði. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 63,3% greiddra atkvæða. Innlent 13.10.2005 14:20
Ástþór gerði ógilt Ástþór Magnússon braut kosningalögin með því að flagga kjörseðlinum sínum og setja hann ekki samanbrotinn í kjörkassann í forsetakosningunum í gær. Þórunn Guðmundsson, oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður segir að með þessu hafi Ástþór ógilt atkvæðið sitt. Innlent 13.10.2005 14:20
Frambjóðendur á kjörstað Forsetakosningar fara fram á Íslandi í dag, í sjötta sinn í sögu lýðveldisins. Þótt allar líkur séu á því að Ólafur Ragnar Grímsson verði endurkjörinn með meirihluta atkvæða verður horft til þess hversu margir kjósendur munu nota tækifærið til að lýsa andstöðu sinni við hann. Innlent 13.10.2005 14:20
Kjörsókn mun minni en 1996 Kjörsókn nú er mun minni en í forsetakosningunum árið 1996 og í alþingiskosningunum í fyrra. Framkvæmd kosninganna hefur víðast hvar gengið mjög vel. Slæmt veður gæti þó sett strik í reikninginn í Suðurkjördæmi, því ekki hefur verið hægt að fljúga með atkvæði frá Vestmannaeyjum og útlitið fyrir kvöldið er slæmt. Innlent 13.10.2005 14:20
Auðir seðlar taldir sér Forsíðufyrirsögn Morgunblaðsins í dag um að auð atkvæði verði birt sérstaklega túlkar Mörður Árnason alþingismaður sem skilaboð blaðsins til lesenda um að skila auðu í forsetakosningunum Innlent 13.10.2005 14:20
Mun dræmari kjörsókn Kjörsókn í forsetakosningunum virðist almennt dræmari nú en áður. Klukkan 13 höfðu 12,17% kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi norður komið á kjörstað. Í forsetakosningunum 1996, þegar Reykjavík var eitt kjördæmi, var kjörsókn á sama tíma 18,53%. Innlent 13.10.2005 14:20
Eiginkonur kjósa ekki Forsetaframbjóðendurnir þrír hafa auðvitað ekki hugmynd um hverjir kjósa þá og hverjir ekki. Eitt geta þeir þó allir verið vissir um, og það er að eiginkonur þeirra greiða þeim ekki atkvæði. Það er forvitinlegt að allar eiginkonur frambjóðendanna eru útlendingar og enginn þeirra hefur kosningarétt á Íslandi. Innlent 13.10.2005 14:20
Kosningar í dag Íslendingar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér forseta. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu í morgun og loka víðast hvar klukkan tíu í kvöld. 213.553 eru á kjörskrá, og er það hátt í 19 þúsund fleiri en voru á kjörskrá í síðustu forsetakosningum fyrir átta árum. Innlent 13.10.2005 14:20
Fylgi Ólafs 70% í Suðurkjördæmi Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar er rúm 70% samkvæmt fyrstu tölum, úr Suðurkjördæmi. Það breytir þó litlu um fylgi hans á landsvísu, það er rúm 85%. Innlent 13.10.2005 14:20