Eldgos og jarðhræringar Fjölmargir björgunarsveitarmenn að störfum Á svæðinu í grennd við Eyjafjallajökul eru meira en 160 björgunarsveitarmenn að störfum frá 12 björgunarsveitum, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Meðal verkefna þeirra hefur meðal annars verið að til að athuga með fólk á bæjum. Innlent 17.4.2010 15:48 Útlendingar vilja komast úr landi með leiguflugi Undanfarna daga hefur mikil eftirspurn verið eftir flugi frá Íslandi með leiguflugi, að sögn Sigurðar Bjarna Jónssonar, stjórnarformanns Mýflugs. Um er að ræða útlendinga sem eru fastir hér á landi og vilja komast til meginlands Evrópu. Mýflug íhugar að fljúga til norðurhluta Noregs. Innlent 17.4.2010 15:21 Aflýsa flugi fram yfir helgi Flugfélagið British Airways hefur aflýst öllu flugi frá London að minnsta kosti fram á mánudag. Um er að ræða áætlað flug frá Heathrow og Gatwic, að fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Vonast er til þess að hægt verði að fljúga eitthvað innanlands í Skotlandi og á Írlandi seinnipartinn í dag. Erlent 17.4.2010 14:36 Þjóðvegi 1 lokað við Hvolsvöll Almannavarnir ítreka að Eyjafjallajökull og hlíðar hans utan jökuls eru bannsvæði. Vindátt þurfi lítið að breytast til að öskufall verði þar. Í öskufalli svo nálægt eldstöðinni og í hæð jökulsins sé, auk mikilla áhrifa af öskunni sjálfri, mikil hætta af eldingum. Almannavarnir vara sterklega við öllum ferðum á Mýrdalsjökul. Jafnframt er enn er í gildi bannsvæði um 1 km. í kringum eldri eldstöðina á Fimmvörðuhálsi. Öll umferð á þessu svæði er bönnuð bæði gangandi og akandi ferðamönnum. Innlent 17.4.2010 12:06 Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur open Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur have been opened for those residents in the areas affected by the ash fall and who wish to temporarily evacuate their homes. The local emergency centre does not consider it necessary to order an evacuation of the area in response to the ash fall at this moment in time, but feels that these services may be useful to some families. Innlent 17.4.2010 11:24 Eldingar yfir Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var staddur í grennd við Eyjafjallajökul í gærkvöldi og í nótt og fylgist með sjónarspilinu þar. Í meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá stórkostlegar myndir af eldingum í gosmökkinum. Innlent 17.4.2010 11:14 Opna fjöldahjálparstöðvar Mikill öskumökkur er til suðurs yfir byggð undir Eyjafjöllum frá Sauðhúsvöllum austur fyrir Skóga og eins á söndunum þar fyrir austan. Eldingar eru í mekkinum, að fram kemur frá yfirvöldum. Innlent 17.4.2010 11:06 Mikið öskufall frá Núpi og að Vík í Mýrdal Mikið öskufall er frá Núpi undir Eyjafjöllum og að Vík. Líkur eru á að öskufall færist vestar og nái hugsanlega til Vestmannaeyja. Innlent 17.4.2010 09:28 Gosið lamar enn samgöngur í Evrópu Nær allir stærstu flugvellir Evrópu verða áfram lokaðir í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Milljónir flugfarþega er nú strandaglópar en samkvæmt breska ríkisútvarpinu þurfti að aflýsa um 16 þúsund áætlunarferðum vegna öskufallsins í gær. Erlent 17.4.2010 08:26 Icelandair fellir niður allt flug til Evrópu í dag Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, og Amsterdam í dag,17. apríl, verður fellt niður. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu. Innlent 17.4.2010 07:23 Vonar að gosmyndin borgi varnargarðinn Fjölskyldan á Þorvaldseyri má hafa sig alla við að svara fyrirpurnum erlendra fjölmiðla vegna heimsfrægrar ljósmyndar bóndans Ólafs Eggertssonar. Hann kveðst vona að greiðslur fyrir myndina dugi til að byggja nýjan flóðvarnargarð. Innlent 16.4.2010 22:41 Talið að draga verði úr ráðherraræðinu Í siðferðihluta skýrslu rannsóknarnefndar segir að þjálfa þurfi þjóðina í málefnalegri rökræðu og menntamálaráðherra tekur undir það. Vilhjálmur Árnason vill ekki ræða gagnrýni forsetans, sem gerir lítið úr kafla um sig. Styrkja þarf siðferðisvitund stjórnmálamanna og auka virðingu þeirra fyrir góðum stjórnarháttum. Þeir eiga að setja sér siðareglur. Þá þarf að draga úr ráðherraræði og auka eftirlitshlutverk Alþingis. Innlent 16.4.2010 22:42 Tugmilljarða tap á dag Annan daginn í röð var nánast ekkert flogið í Norður-Evrópu. Mat samtaka áætlunarflugfélaga er að tap flugfélaga sé 200 milljónir dollara á dag. Meira en helmingur fluga í evrópskri lofthelgi var felldur niður. Innlent 16.4.2010 22:42 Slógu upp veislu eftir rýmingu Hópur fjörutíu breskra skólakrakka þurfti að rjúka frá heitu lambalærinu á kvöldverðarborðinu á Hellishólum í Fljótshlíð á fimmtudagskvöld þegar kallið kom um rýmingu. Maturinn fór þó ekki til spillis heldur var slegið upp veislu í fjöldahjálparmiðstöðinni á Hellu. Innlent 16.4.2010 22:41 Verðmat eigna hærra en lánin Skuldir Ólafar Nordal Sjálfstæðisflokki og eiginmanns hennar, Tómasar Más Sigurðssonar, sem námu 113 milljónum króna árið 2007 eru tilkomnar vegna fasteignakaupa. Innlent 16.4.2010 22:39 Svartur loðinn tuddi og augun öll á floti Margar sagnir eru til um berdreymi, allt aftur til Íslendingasagnanna. Ef marka má Svein Runólfsson landgræðslustjóra, lifa þær góðu lífi í nútímanum. „Þetta er orðinn fullorðinn maður og kominn á eftirlaun og hann dreymdi draum í vetur, áður en goshrinan hófst. Þegar gosið hófst á Fimmvörðuhálsi sagði hann mér frá þessu,“ segir Sveinn. Innlent 16.4.2010 22:40 Flúorið yfir hættumörkum „Nú vitum við að þetta er yfir hættumörkum,“ segir Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir á Kirkjubæjarklaustri, um flúormengunina í öskunni sem fallið hefur úr gosinu. Innlent 16.4.2010 22:39 Komust ekki í sjóbirtingsveiði „Vegna eldgoss í Eyjafjallajökli verða þeir sem eiga veiðileyfi eystra líklegast að sitja heima nema veiðidellan sé svo mikil að farin sé norðurleiðin,“ sagði á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur í gær. Þá voru einmitt hollaskipti í Tungufljóti í Skaftárhreppi. Innlent 16.4.2010 22:39 Getur valdið lungnaskaða Heilbrigðisyfirvöld mæla eindregið með því að þeir sem búa á svæðum þar sem öskufalls gætir geri viðeigandi varúðarráðstafanir. Askan er afar fínkornótt og á greiða leið niður í öndunarfæri og það getur valdið fólki lungnaskaða. Fólk sem á við öndunarfærasjúkdóma að stríða ætti að fara sérstaklega varlega. Það sama á við um börn. Innlent 16.4.2010 22:42 Mörg tonn af ferskum fiski bíða eftir flugi „Við eigum ein sjö tonn af ferskum flökum á Keflavíkurflugvelli sem bíða þess að komast í flug en staðan er vægast sagt mjög óljós. Við erum í stöðugu sambandi við viðskiptavini okkar í Evrópu. Innlent 16.4.2010 22:41 Stjórnar Noregi í gegnum smátölvu vegna eldgossins Öskufallið úr Eyjafjallajökli hefur gríðarlega víðtæk áhrif en fjölmiðlar vestan hafs hafa undanfarið fjallað um hremmingar Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, en hann situr fastur í New York vegna öskufallsins. Erlent 16.4.2010 21:53 Enn seinkar flugi Icelandair hefur tilkynnt að flug félagsins til London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Amsterdam í fyrramálið, að morgni 17. apríl, verði seinkað til klukkan 12.00 á hádegi að íslenskum tíma. Innlent 16.4.2010 20:11 Rofar til á Eyjafjallajökli Það er að rofa til yfir Eyjafjallajökli en á þessari mynd má sjá gosmökkinn yfir jöklinum vegna eldgossins. Mökkurinn hefur ekki sést undanfarna daga vegna veðurs. Myndin sem fylgir með fréttinni er tekin rétt fyrir utan Hvolsvöll. Innlent 16.4.2010 19:09 Útlendingar kvíða Kötlugosi Öngþveiti ríkir í samgöngum í Evrópu. Flugmálayfirvöld gera ekki ráð fyrir að flug komist í eðlilegt horf fyrr en eftir helgina í fyrsta lagi. Menn eru þegar farnir að kvíða fyrir Kötlugosi. Innlent 16.4.2010 18:56 Hverfandi líkur á að vatnsból mengist vegna öskufalls Hverfandi hætta er á að vatnsból spillist komi til öskufalls á þau, jafnvel þó þau séu opin samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Vatnsveita OR á höfuðborgarsvæðinu hefur um áratugaskeið eingöngu sótt vatn í borholur. Innlent 16.4.2010 18:33 Markarfljót hækkar Um klukkan sex í kvöld mældist 50 sentímetra hækkun vatnsyfirborðs við gömlu Markarfljótsbrúna. Innlent 16.4.2010 18:29 Ráðherra boðaði til fundar um fæðuöryggi Jón Bjarnason Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði til fundar í ráðuneytinu í dag um möguleg áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á landbúnað og sjávarútveg og viðbrögð við því. Innlent 16.4.2010 17:01 Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex Flugvél frá Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex í dag, en flugheimild hefur fengist þangað. Flugið nýtist einkum þeim, sem áttu bókað til London Gatwick eða London Stansted, samkvæmt fréttatilkynningu frá Iceland Express. Innlent 16.4.2010 16:04 Um minniháttar hlaup að ræða Nýtt hlaup hófst úr Eyjafjallajökli laust fyrir klukkan þrjú í dag. Hlaupið var minniháttar að sögn lögreglumanna á Hvolsvelli. Innlent 16.4.2010 15:47 Nýtt flóð að hefjast Það er nýtt flóð á leiðinni úr Eyjafjallajökli, segir Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli. Flóðið er rétt að byrja og ekki ljóst á þessari stundu hversu stórt það er. Innlent 16.4.2010 14:44 « ‹ 120 121 122 123 124 125 126 127 128 … 131 ›
Fjölmargir björgunarsveitarmenn að störfum Á svæðinu í grennd við Eyjafjallajökul eru meira en 160 björgunarsveitarmenn að störfum frá 12 björgunarsveitum, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Meðal verkefna þeirra hefur meðal annars verið að til að athuga með fólk á bæjum. Innlent 17.4.2010 15:48
Útlendingar vilja komast úr landi með leiguflugi Undanfarna daga hefur mikil eftirspurn verið eftir flugi frá Íslandi með leiguflugi, að sögn Sigurðar Bjarna Jónssonar, stjórnarformanns Mýflugs. Um er að ræða útlendinga sem eru fastir hér á landi og vilja komast til meginlands Evrópu. Mýflug íhugar að fljúga til norðurhluta Noregs. Innlent 17.4.2010 15:21
Aflýsa flugi fram yfir helgi Flugfélagið British Airways hefur aflýst öllu flugi frá London að minnsta kosti fram á mánudag. Um er að ræða áætlað flug frá Heathrow og Gatwic, að fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Vonast er til þess að hægt verði að fljúga eitthvað innanlands í Skotlandi og á Írlandi seinnipartinn í dag. Erlent 17.4.2010 14:36
Þjóðvegi 1 lokað við Hvolsvöll Almannavarnir ítreka að Eyjafjallajökull og hlíðar hans utan jökuls eru bannsvæði. Vindátt þurfi lítið að breytast til að öskufall verði þar. Í öskufalli svo nálægt eldstöðinni og í hæð jökulsins sé, auk mikilla áhrifa af öskunni sjálfri, mikil hætta af eldingum. Almannavarnir vara sterklega við öllum ferðum á Mýrdalsjökul. Jafnframt er enn er í gildi bannsvæði um 1 km. í kringum eldri eldstöðina á Fimmvörðuhálsi. Öll umferð á þessu svæði er bönnuð bæði gangandi og akandi ferðamönnum. Innlent 17.4.2010 12:06
Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur open Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur have been opened for those residents in the areas affected by the ash fall and who wish to temporarily evacuate their homes. The local emergency centre does not consider it necessary to order an evacuation of the area in response to the ash fall at this moment in time, but feels that these services may be useful to some families. Innlent 17.4.2010 11:24
Eldingar yfir Eyjafjallajökli - myndir Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var staddur í grennd við Eyjafjallajökul í gærkvöldi og í nótt og fylgist með sjónarspilinu þar. Í meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá stórkostlegar myndir af eldingum í gosmökkinum. Innlent 17.4.2010 11:14
Opna fjöldahjálparstöðvar Mikill öskumökkur er til suðurs yfir byggð undir Eyjafjöllum frá Sauðhúsvöllum austur fyrir Skóga og eins á söndunum þar fyrir austan. Eldingar eru í mekkinum, að fram kemur frá yfirvöldum. Innlent 17.4.2010 11:06
Mikið öskufall frá Núpi og að Vík í Mýrdal Mikið öskufall er frá Núpi undir Eyjafjöllum og að Vík. Líkur eru á að öskufall færist vestar og nái hugsanlega til Vestmannaeyja. Innlent 17.4.2010 09:28
Gosið lamar enn samgöngur í Evrópu Nær allir stærstu flugvellir Evrópu verða áfram lokaðir í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Milljónir flugfarþega er nú strandaglópar en samkvæmt breska ríkisútvarpinu þurfti að aflýsa um 16 þúsund áætlunarferðum vegna öskufallsins í gær. Erlent 17.4.2010 08:26
Icelandair fellir niður allt flug til Evrópu í dag Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, og Amsterdam í dag,17. apríl, verður fellt niður. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu. Innlent 17.4.2010 07:23
Vonar að gosmyndin borgi varnargarðinn Fjölskyldan á Þorvaldseyri má hafa sig alla við að svara fyrirpurnum erlendra fjölmiðla vegna heimsfrægrar ljósmyndar bóndans Ólafs Eggertssonar. Hann kveðst vona að greiðslur fyrir myndina dugi til að byggja nýjan flóðvarnargarð. Innlent 16.4.2010 22:41
Talið að draga verði úr ráðherraræðinu Í siðferðihluta skýrslu rannsóknarnefndar segir að þjálfa þurfi þjóðina í málefnalegri rökræðu og menntamálaráðherra tekur undir það. Vilhjálmur Árnason vill ekki ræða gagnrýni forsetans, sem gerir lítið úr kafla um sig. Styrkja þarf siðferðisvitund stjórnmálamanna og auka virðingu þeirra fyrir góðum stjórnarháttum. Þeir eiga að setja sér siðareglur. Þá þarf að draga úr ráðherraræði og auka eftirlitshlutverk Alþingis. Innlent 16.4.2010 22:42
Tugmilljarða tap á dag Annan daginn í röð var nánast ekkert flogið í Norður-Evrópu. Mat samtaka áætlunarflugfélaga er að tap flugfélaga sé 200 milljónir dollara á dag. Meira en helmingur fluga í evrópskri lofthelgi var felldur niður. Innlent 16.4.2010 22:42
Slógu upp veislu eftir rýmingu Hópur fjörutíu breskra skólakrakka þurfti að rjúka frá heitu lambalærinu á kvöldverðarborðinu á Hellishólum í Fljótshlíð á fimmtudagskvöld þegar kallið kom um rýmingu. Maturinn fór þó ekki til spillis heldur var slegið upp veislu í fjöldahjálparmiðstöðinni á Hellu. Innlent 16.4.2010 22:41
Verðmat eigna hærra en lánin Skuldir Ólafar Nordal Sjálfstæðisflokki og eiginmanns hennar, Tómasar Más Sigurðssonar, sem námu 113 milljónum króna árið 2007 eru tilkomnar vegna fasteignakaupa. Innlent 16.4.2010 22:39
Svartur loðinn tuddi og augun öll á floti Margar sagnir eru til um berdreymi, allt aftur til Íslendingasagnanna. Ef marka má Svein Runólfsson landgræðslustjóra, lifa þær góðu lífi í nútímanum. „Þetta er orðinn fullorðinn maður og kominn á eftirlaun og hann dreymdi draum í vetur, áður en goshrinan hófst. Þegar gosið hófst á Fimmvörðuhálsi sagði hann mér frá þessu,“ segir Sveinn. Innlent 16.4.2010 22:40
Flúorið yfir hættumörkum „Nú vitum við að þetta er yfir hættumörkum,“ segir Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir á Kirkjubæjarklaustri, um flúormengunina í öskunni sem fallið hefur úr gosinu. Innlent 16.4.2010 22:39
Komust ekki í sjóbirtingsveiði „Vegna eldgoss í Eyjafjallajökli verða þeir sem eiga veiðileyfi eystra líklegast að sitja heima nema veiðidellan sé svo mikil að farin sé norðurleiðin,“ sagði á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur í gær. Þá voru einmitt hollaskipti í Tungufljóti í Skaftárhreppi. Innlent 16.4.2010 22:39
Getur valdið lungnaskaða Heilbrigðisyfirvöld mæla eindregið með því að þeir sem búa á svæðum þar sem öskufalls gætir geri viðeigandi varúðarráðstafanir. Askan er afar fínkornótt og á greiða leið niður í öndunarfæri og það getur valdið fólki lungnaskaða. Fólk sem á við öndunarfærasjúkdóma að stríða ætti að fara sérstaklega varlega. Það sama á við um börn. Innlent 16.4.2010 22:42
Mörg tonn af ferskum fiski bíða eftir flugi „Við eigum ein sjö tonn af ferskum flökum á Keflavíkurflugvelli sem bíða þess að komast í flug en staðan er vægast sagt mjög óljós. Við erum í stöðugu sambandi við viðskiptavini okkar í Evrópu. Innlent 16.4.2010 22:41
Stjórnar Noregi í gegnum smátölvu vegna eldgossins Öskufallið úr Eyjafjallajökli hefur gríðarlega víðtæk áhrif en fjölmiðlar vestan hafs hafa undanfarið fjallað um hremmingar Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, en hann situr fastur í New York vegna öskufallsins. Erlent 16.4.2010 21:53
Enn seinkar flugi Icelandair hefur tilkynnt að flug félagsins til London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Amsterdam í fyrramálið, að morgni 17. apríl, verði seinkað til klukkan 12.00 á hádegi að íslenskum tíma. Innlent 16.4.2010 20:11
Rofar til á Eyjafjallajökli Það er að rofa til yfir Eyjafjallajökli en á þessari mynd má sjá gosmökkinn yfir jöklinum vegna eldgossins. Mökkurinn hefur ekki sést undanfarna daga vegna veðurs. Myndin sem fylgir með fréttinni er tekin rétt fyrir utan Hvolsvöll. Innlent 16.4.2010 19:09
Útlendingar kvíða Kötlugosi Öngþveiti ríkir í samgöngum í Evrópu. Flugmálayfirvöld gera ekki ráð fyrir að flug komist í eðlilegt horf fyrr en eftir helgina í fyrsta lagi. Menn eru þegar farnir að kvíða fyrir Kötlugosi. Innlent 16.4.2010 18:56
Hverfandi líkur á að vatnsból mengist vegna öskufalls Hverfandi hætta er á að vatnsból spillist komi til öskufalls á þau, jafnvel þó þau séu opin samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Vatnsveita OR á höfuðborgarsvæðinu hefur um áratugaskeið eingöngu sótt vatn í borholur. Innlent 16.4.2010 18:33
Markarfljót hækkar Um klukkan sex í kvöld mældist 50 sentímetra hækkun vatnsyfirborðs við gömlu Markarfljótsbrúna. Innlent 16.4.2010 18:29
Ráðherra boðaði til fundar um fæðuöryggi Jón Bjarnason Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði til fundar í ráðuneytinu í dag um möguleg áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á landbúnað og sjávarútveg og viðbrögð við því. Innlent 16.4.2010 17:01
Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex Flugvél frá Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex í dag, en flugheimild hefur fengist þangað. Flugið nýtist einkum þeim, sem áttu bókað til London Gatwick eða London Stansted, samkvæmt fréttatilkynningu frá Iceland Express. Innlent 16.4.2010 16:04
Um minniháttar hlaup að ræða Nýtt hlaup hófst úr Eyjafjallajökli laust fyrir klukkan þrjú í dag. Hlaupið var minniháttar að sögn lögreglumanna á Hvolsvelli. Innlent 16.4.2010 15:47
Nýtt flóð að hefjast Það er nýtt flóð á leiðinni úr Eyjafjallajökli, segir Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli. Flóðið er rétt að byrja og ekki ljóst á þessari stundu hversu stórt það er. Innlent 16.4.2010 14:44