Evrópudeild UEFA Tottenham getur jafnað met í kvöld Fyrri leikirnir í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni félagsliða fara fram í kvöld. Leikur Sevilla og Tottenham verður sýndur beint á Sýn Extra og þar getur enska liðið jafnað met Parma og Gladbach með níunda sigri sínum í röð í keppninni. Útsending frá leiknum hefst klukkan 18:30. Fótbolti 5.4.2007 14:31 Beiðni Sevilla vísað frá Fyrri leikur Sevilla og Tottenham í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða fer fram fimmta apríl eins og til stóð. Spænska liðið vildi láta færa leikinn til vegna hátíðarhalda í borginni á skírdag, en Knattspyrnusambandið neitaði beiðninni. Fótbolti 22.3.2007 14:14 Sevilla vill ekki spila á skírdag Forráðamenn spænska knattspyrnuliðsins Sevilla hafa farið þess á leit við Knattspyrnusamband Evrópu að fyrri leikur liðsins við Tottenham í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verði færður. Leikurinn er á dagskrá 5. apríl, en það er skírdagur. Fótbolti 21.3.2007 16:49 Tottenham mætir Evrópumeisturunum Í dag var dregið um hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Tottenham mætir Evrópumeisturum Sevilla frá Spáni og Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar fá erfitt verkefni þegar þeir mæta Werder Bremen. Fótbolti 16.3.2007 13:10 Frækinn sigur AZ á Newcastle AZ Alkmaar vann í kvöld góðan 2-0 sigur á Newcastle í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og sendu þar með enska liðið úr keppni þrátt fyrir 4-2 tap í fyrri leiknum á Englandi. Grétar Rafn Steinsson var á sínum stað í vörninni hjá hollenska liðinu sem er greinilega til alls líklegt í keppninni. Shota Arveladze og Danny Koevermans skoruðu mörk AZ í kvöld, en liðið hefði vel geta unnið stærri sigur. Fótbolti 15.3.2007 22:12 Tottenham í 8-liða úrslit Tottenham tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með sigri á portúgalska liðinu Braga á heimavelli 3-2. Heimamenn lentu undir snemma leiks með sjálfsmarki Tom Huddlestone, en hinn magnaði Dimitar Berbatov kom Tottenham í 2-1í hálfleik með frábærum mörkum. Gestirnir náðu að jafna leikinn á 61. mínútu en það var svo Steed Malbranque sem tryggði Tottenham samtals 6-4 sigur með marki á 76. mínútu. Fótbolti 14.3.2007 21:51 Tottenham í góðum málum Tottenham hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Braga þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hefur enska liðið haft algjöra yfirburði og er yfir 5-3 samanlagt. Sjálfsmark Tom Huddlestone kom Braga yfir en hinn magnaði Dimitar Berbatov hefur síðan skorað tvö lagleg mörk og komið Tottenham yfir. Fótbolti 14.3.2007 21:01 Tottenham - Braga í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Tottenham og Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 20:05. Enska liðið vann fyrri leikinn í Portúgal 3-2 og er því í ágætri stöðu fyrir þann síðari, en mikil meiðsli eru í herbúðum heimamanna. Fótbolti 14.3.2007 15:52 UEFA Cup: Góður sigur Tottenham í Portúgal Tottenham er í góðri stöðu eftir fyrri leik sinn við portúgalska liðið Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld eftir 3-2 útisigur. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í kvöld. Fótbolti 8.3.2007 23:51 Newcastle lagði AZ - Grétar skoraði sjálfsmark Newcastle lagði AZ Alkmaar 4-2 í æsilegum fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Grétar Rafn Steinsson kom enska liðinu á bragðið á 8. mínútu þegar hann skoraði sjálfsmark og þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer tryggðu Newcastle 4-1 stöðu í hálfleik. Shota Arveladze og Danny Koervermans (víti) skoruðu mörk AZ sem gætu reynst dýrmæt fyrir síðari leikinn. Fótbolti 8.3.2007 21:43 Newcastle leiðir 4-1 í hálfleik Newcastle hefur farið á kostum í fyrri hálfleik gegn AZ Alkmaar í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Grétar Rafn Steinsson varð fyrir því óláni að koma heimamönnum yfir með sjálfsmarki í byrjun leiks og síðan hafa þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer komið Newcastle í 4-1 eftir að Shota Arveladze minnkaði muninn í 3-1 með glæsilegu marki. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 8.3.2007 20:19 Newcastle að sundurspila AZ Alkmaar Newcastle er komið í 3-0 eftir aðeins 23 mínútur gegn AZ Alkmaar í Evrópukeppni félagsliða. Leikmenn Newcastle fara á kostum í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. Grétar Rafn Steinsson skoraði sjálfsmark eftir 8 mínútur og þeir Kieron Dyer og Obafemi Martins skoruðu svo annað og þriðja markið með stuttu millibili. Fótbolti 8.3.2007 19:54 Grétar Rafn skoraði sjálfsmark Það er ekki hægt að segja að Grétar Rafn Steinsson byrji vel með AZ Alkmaar í leiknum gegn Newcastle í Evrópukeppni félagsliða sem sýndur er beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Grétar skoraði sjálfsmark á áttundu mínútu leiksins og því hefur enska liðið fengið draumabyrjun. Fótbolti 8.3.2007 19:41 Grétar Rafn í byrjunarliði AZ gegn Newcastle Grétar Rafn Steinsson verður í byrjunarliði AZ Alkmaar á ný þegar liðið sækir Newcastle heim á St. James Park í Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Þetta er fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 19:30. Grétar gat ekki spilað með liðinu vegna meiðsla þegar það mætti Utrecht um helgina, en er nú klár í slaginn. Fótbolti 8.3.2007 19:01 Newcastle í 16-liða úrslit Enska liðið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem á heimavelli. Það var Obafemi Martins sem skoraði sigurmark Newcastle, sem mætir Grétari Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í næstu umferð. AZ gerði 2-2 jafntefli við Fenerbahce í kvöld og fór áfram á útimörkum. Fótbolti 22.2.2007 21:48 Blackburn úr leik í Evrópukeppninni Enska liðið Blackburn er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 0-0 jafntefli gegn Leverkusen í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar á Ewood Park í kvöld. Leverkusen vann fyrri leikinn 3-2 og er komið í 16-liða úrslit. Blackburn fékk nokkur ágæt færi í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta þau og er fallið úr leik. Fótbolti 22.2.2007 19:56 Markalaust á Ewood Park í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leik Blackburn og Bayer Leverkusen á Ewood Park, en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og hefur þýska liðið 3-2 forystu frá fyrri leiknum. Blacburn nægir því 1-0 sigur á heimavelli til að komast áfram í keppninni. Fótbolti 22.2.2007 18:54 Blackburn - Leverkusen í beinni á Sýn Fjöldi leikja er á dagskrá í Evrópukeppni félagsliða í kvöld en þar verða spilaðir síðari leikirnir í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikur Blackburn og Bayer Leverkusen verður sýndur beint á Sýn klukkan 18 en þar hefur þýska liðið 3-2 forskot úr fyrri leiknum í Þýskalandi. Fótbolti 22.2.2007 16:48 Newcastle í góðri stöðu Newcastle fór langt með að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld með 3-1 útisigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark heimamanna og þeir Obafemi Martins og Antonie Sibierski gerðu út um leikinn. Fótbolti 15.2.2007 21:46 Öruggur sigur Bremen Nokkrir leikir voru á dagskrá í UEFA bikarnum í kvöld. Bremen vann sannfærandi 3-0 sigur á Ajax á heimavelli, AZ Alkmaar þurfti að sætta sig við 3-3 jafntefli við Fenerbahce í Tyrklandi eftir að hafa komist í 3-1, þar sem Grétar Rafn Steinsson spilaði 90 mínútur fyrir AZ. Fótbolti 14.2.2007 22:23 Leverkusen lagði Blackburn Þýska liðið Bayern Leverkusen lagði enska liðið Blackburn 3-2 í fjörugum leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Ramelöw, Callsen-Bracker og Schneider skoruðu mörk heimamanna en þeir Bentley og Nonda skoruðu fyrir enska liðið, sem er í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn á Englandi. Fótbolti 14.2.2007 21:09 Tottenham fer beint í 16-liða úrslit Nú hefur Knattspyrnusamband Evrópu staðfest að Tottenham muni sitja hjá í 32-liða úrslitum UEFA keppninnar eftir að hollenska liðinu Feyenoord var vísað úr keppni vegna óláta stuðningsmanna liðsins fyrr í keppninni. Svo gæti farið að niðurstöðunni verði áfrýjað, en Tottenham mætir að öllu óbreyttu Braga eða Parma í næstu umferð. Fótbolti 25.1.2007 12:56 Feyenoord vísað úr Evrópukepninni Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að hollenska liðinu Feyenoord hafi verið vísað úr keppni í Evrópukeppni félagsliða í kjölfar óláta stuðningsmanna liðsins í leik gegn Nancy þar í landi í nóvember í fyrra. Þá hefur félagið verið sektað um 100 þúsund evrur og bendir allt til þess að Tottenham sitji jafnvel hjá í 32 liða úrslitum UEFA cup. Fótbolti 19.1.2007 16:24 Spilar Tottenham fyrir luktum dyrum? Svo gæti farið að stuðningsmenn Tottenham misstu alveg af útileik liðsins gegn hollenska liðinu Feyenoord í Evrópukeppni félagsliða, en hollenska liðið á yfir höfði sér heimaleikjabann vegna óláta stuðningsmanna þess í keppninni fyrir skömmu. Úrskurðar er ekki að vænta í málinu fyrr en í næsta mánuði, en liðin eiga ekki að leika fyrr en í febrúar. Fótbolti 15.12.2006 16:26 Tottenham mætir Feyenoord Í dag var dregið í 32-liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Enska liðið Tottenham mætir hollenska liðinu Feyenoord í næstu umferð, en þessi lið léku til úrslita í keppninni árið 1974 og þá hafði hollenska liðið betur. Leikið verður heima og úti og leikirnir verða háðir 14. og 22. febrúar. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið lentu saman. Fótbolti 15.12.2006 13:25 Auðvelt hjá Tottenham Tottenham tryggði sér í kvöld efsta sætið í riðli sínum í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið vann auðveldan sigur á Dinamo Búkarest frá Rúmeníu 3-1. Jermain Defoe skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Dimitar Berbatov eitt, en gestirnir náðu að minnka muninn í lokin þó leikurinn hafi verið eign heimamanna frá fyrstu mínútu. Fótbolti 14.12.2006 21:40 Tottenham - Dinamo Búkarest í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá leik Tottenham og Dinamo Búkarest í Evrópukeppni félagsliða í kvöld og hefst útsending klukkan 19:40. Tottenham nægir jafntefli á heimavelli sínum til að tryggja sér efsta sætið í riðlinum og losnar þar með við að mæta liði sem féll úr riðlakeppni Meistaradeildar í 32-liða úrslitum. Fótbolti 14.12.2006 15:37 Newcastle tryggði sér toppsætið Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle tryggði sér í kvöld toppsætið í H-riðli í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Frankfurt á útivelli. Þetta var síðasti leikur liðsins í riðlinum, en Newcastle hefur gengið ágætlega í Evrópukeppninni til þessa líkt og hinum ensku liðunum sem leika í sömu keppni. Fótbolti 30.11.2006 21:55 Grétar Rafn skoraði mark Grétar Rafn Steinsson skoraði annað mark hollenska liðsins AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með því að gera 2-2 jafntefli við Liberec frá Tékklandi. Jóhannes Karl Guðjónsson var einnig í liði Alkmaar í kvöld. Fótbolti 29.11.2006 22:22 Newcastle og Blackburn áfram Ensku úrvalsdeildarliðin Newcastle og Blackburn tryggðu sér bæði sæti í 32-liða úrslitum Evrópumóts félagsliða í kvöld. Newcastle sigraði spænska liðið Celta Vigo 2-1 á heimavelli með mörkum Antoine Sibierski og Steven Taylor eftir að spænska liðið hafði náð forystu í leiknum. Blackburn gerði markalaust jafntefli við hollenska liðið Feyenoord á útivelli. Fótbolti 23.11.2006 22:25 « ‹ 74 75 76 77 78 ›
Tottenham getur jafnað met í kvöld Fyrri leikirnir í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni félagsliða fara fram í kvöld. Leikur Sevilla og Tottenham verður sýndur beint á Sýn Extra og þar getur enska liðið jafnað met Parma og Gladbach með níunda sigri sínum í röð í keppninni. Útsending frá leiknum hefst klukkan 18:30. Fótbolti 5.4.2007 14:31
Beiðni Sevilla vísað frá Fyrri leikur Sevilla og Tottenham í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða fer fram fimmta apríl eins og til stóð. Spænska liðið vildi láta færa leikinn til vegna hátíðarhalda í borginni á skírdag, en Knattspyrnusambandið neitaði beiðninni. Fótbolti 22.3.2007 14:14
Sevilla vill ekki spila á skírdag Forráðamenn spænska knattspyrnuliðsins Sevilla hafa farið þess á leit við Knattspyrnusamband Evrópu að fyrri leikur liðsins við Tottenham í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verði færður. Leikurinn er á dagskrá 5. apríl, en það er skírdagur. Fótbolti 21.3.2007 16:49
Tottenham mætir Evrópumeisturunum Í dag var dregið um hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Tottenham mætir Evrópumeisturum Sevilla frá Spáni og Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar fá erfitt verkefni þegar þeir mæta Werder Bremen. Fótbolti 16.3.2007 13:10
Frækinn sigur AZ á Newcastle AZ Alkmaar vann í kvöld góðan 2-0 sigur á Newcastle í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og sendu þar með enska liðið úr keppni þrátt fyrir 4-2 tap í fyrri leiknum á Englandi. Grétar Rafn Steinsson var á sínum stað í vörninni hjá hollenska liðinu sem er greinilega til alls líklegt í keppninni. Shota Arveladze og Danny Koevermans skoruðu mörk AZ í kvöld, en liðið hefði vel geta unnið stærri sigur. Fótbolti 15.3.2007 22:12
Tottenham í 8-liða úrslit Tottenham tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með sigri á portúgalska liðinu Braga á heimavelli 3-2. Heimamenn lentu undir snemma leiks með sjálfsmarki Tom Huddlestone, en hinn magnaði Dimitar Berbatov kom Tottenham í 2-1í hálfleik með frábærum mörkum. Gestirnir náðu að jafna leikinn á 61. mínútu en það var svo Steed Malbranque sem tryggði Tottenham samtals 6-4 sigur með marki á 76. mínútu. Fótbolti 14.3.2007 21:51
Tottenham í góðum málum Tottenham hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Braga þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hefur enska liðið haft algjöra yfirburði og er yfir 5-3 samanlagt. Sjálfsmark Tom Huddlestone kom Braga yfir en hinn magnaði Dimitar Berbatov hefur síðan skorað tvö lagleg mörk og komið Tottenham yfir. Fótbolti 14.3.2007 21:01
Tottenham - Braga í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Tottenham og Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 20:05. Enska liðið vann fyrri leikinn í Portúgal 3-2 og er því í ágætri stöðu fyrir þann síðari, en mikil meiðsli eru í herbúðum heimamanna. Fótbolti 14.3.2007 15:52
UEFA Cup: Góður sigur Tottenham í Portúgal Tottenham er í góðri stöðu eftir fyrri leik sinn við portúgalska liðið Braga í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld eftir 3-2 útisigur. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í kvöld. Fótbolti 8.3.2007 23:51
Newcastle lagði AZ - Grétar skoraði sjálfsmark Newcastle lagði AZ Alkmaar 4-2 í æsilegum fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Grétar Rafn Steinsson kom enska liðinu á bragðið á 8. mínútu þegar hann skoraði sjálfsmark og þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer tryggðu Newcastle 4-1 stöðu í hálfleik. Shota Arveladze og Danny Koervermans (víti) skoruðu mörk AZ sem gætu reynst dýrmæt fyrir síðari leikinn. Fótbolti 8.3.2007 21:43
Newcastle leiðir 4-1 í hálfleik Newcastle hefur farið á kostum í fyrri hálfleik gegn AZ Alkmaar í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Grétar Rafn Steinsson varð fyrir því óláni að koma heimamönnum yfir með sjálfsmarki í byrjun leiks og síðan hafa þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer komið Newcastle í 4-1 eftir að Shota Arveladze minnkaði muninn í 3-1 með glæsilegu marki. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 8.3.2007 20:19
Newcastle að sundurspila AZ Alkmaar Newcastle er komið í 3-0 eftir aðeins 23 mínútur gegn AZ Alkmaar í Evrópukeppni félagsliða. Leikmenn Newcastle fara á kostum í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. Grétar Rafn Steinsson skoraði sjálfsmark eftir 8 mínútur og þeir Kieron Dyer og Obafemi Martins skoruðu svo annað og þriðja markið með stuttu millibili. Fótbolti 8.3.2007 19:54
Grétar Rafn skoraði sjálfsmark Það er ekki hægt að segja að Grétar Rafn Steinsson byrji vel með AZ Alkmaar í leiknum gegn Newcastle í Evrópukeppni félagsliða sem sýndur er beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Grétar skoraði sjálfsmark á áttundu mínútu leiksins og því hefur enska liðið fengið draumabyrjun. Fótbolti 8.3.2007 19:41
Grétar Rafn í byrjunarliði AZ gegn Newcastle Grétar Rafn Steinsson verður í byrjunarliði AZ Alkmaar á ný þegar liðið sækir Newcastle heim á St. James Park í Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Þetta er fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 19:30. Grétar gat ekki spilað með liðinu vegna meiðsla þegar það mætti Utrecht um helgina, en er nú klár í slaginn. Fótbolti 8.3.2007 19:01
Newcastle í 16-liða úrslit Enska liðið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem á heimavelli. Það var Obafemi Martins sem skoraði sigurmark Newcastle, sem mætir Grétari Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í næstu umferð. AZ gerði 2-2 jafntefli við Fenerbahce í kvöld og fór áfram á útimörkum. Fótbolti 22.2.2007 21:48
Blackburn úr leik í Evrópukeppninni Enska liðið Blackburn er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 0-0 jafntefli gegn Leverkusen í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar á Ewood Park í kvöld. Leverkusen vann fyrri leikinn 3-2 og er komið í 16-liða úrslit. Blackburn fékk nokkur ágæt færi í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta þau og er fallið úr leik. Fótbolti 22.2.2007 19:56
Markalaust á Ewood Park í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leik Blackburn og Bayer Leverkusen á Ewood Park, en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og hefur þýska liðið 3-2 forystu frá fyrri leiknum. Blacburn nægir því 1-0 sigur á heimavelli til að komast áfram í keppninni. Fótbolti 22.2.2007 18:54
Blackburn - Leverkusen í beinni á Sýn Fjöldi leikja er á dagskrá í Evrópukeppni félagsliða í kvöld en þar verða spilaðir síðari leikirnir í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikur Blackburn og Bayer Leverkusen verður sýndur beint á Sýn klukkan 18 en þar hefur þýska liðið 3-2 forskot úr fyrri leiknum í Þýskalandi. Fótbolti 22.2.2007 16:48
Newcastle í góðri stöðu Newcastle fór langt með að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld með 3-1 útisigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark heimamanna og þeir Obafemi Martins og Antonie Sibierski gerðu út um leikinn. Fótbolti 15.2.2007 21:46
Öruggur sigur Bremen Nokkrir leikir voru á dagskrá í UEFA bikarnum í kvöld. Bremen vann sannfærandi 3-0 sigur á Ajax á heimavelli, AZ Alkmaar þurfti að sætta sig við 3-3 jafntefli við Fenerbahce í Tyrklandi eftir að hafa komist í 3-1, þar sem Grétar Rafn Steinsson spilaði 90 mínútur fyrir AZ. Fótbolti 14.2.2007 22:23
Leverkusen lagði Blackburn Þýska liðið Bayern Leverkusen lagði enska liðið Blackburn 3-2 í fjörugum leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Ramelöw, Callsen-Bracker og Schneider skoruðu mörk heimamanna en þeir Bentley og Nonda skoruðu fyrir enska liðið, sem er í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn á Englandi. Fótbolti 14.2.2007 21:09
Tottenham fer beint í 16-liða úrslit Nú hefur Knattspyrnusamband Evrópu staðfest að Tottenham muni sitja hjá í 32-liða úrslitum UEFA keppninnar eftir að hollenska liðinu Feyenoord var vísað úr keppni vegna óláta stuðningsmanna liðsins fyrr í keppninni. Svo gæti farið að niðurstöðunni verði áfrýjað, en Tottenham mætir að öllu óbreyttu Braga eða Parma í næstu umferð. Fótbolti 25.1.2007 12:56
Feyenoord vísað úr Evrópukepninni Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að hollenska liðinu Feyenoord hafi verið vísað úr keppni í Evrópukeppni félagsliða í kjölfar óláta stuðningsmanna liðsins í leik gegn Nancy þar í landi í nóvember í fyrra. Þá hefur félagið verið sektað um 100 þúsund evrur og bendir allt til þess að Tottenham sitji jafnvel hjá í 32 liða úrslitum UEFA cup. Fótbolti 19.1.2007 16:24
Spilar Tottenham fyrir luktum dyrum? Svo gæti farið að stuðningsmenn Tottenham misstu alveg af útileik liðsins gegn hollenska liðinu Feyenoord í Evrópukeppni félagsliða, en hollenska liðið á yfir höfði sér heimaleikjabann vegna óláta stuðningsmanna þess í keppninni fyrir skömmu. Úrskurðar er ekki að vænta í málinu fyrr en í næsta mánuði, en liðin eiga ekki að leika fyrr en í febrúar. Fótbolti 15.12.2006 16:26
Tottenham mætir Feyenoord Í dag var dregið í 32-liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Enska liðið Tottenham mætir hollenska liðinu Feyenoord í næstu umferð, en þessi lið léku til úrslita í keppninni árið 1974 og þá hafði hollenska liðið betur. Leikið verður heima og úti og leikirnir verða háðir 14. og 22. febrúar. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið lentu saman. Fótbolti 15.12.2006 13:25
Auðvelt hjá Tottenham Tottenham tryggði sér í kvöld efsta sætið í riðli sínum í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið vann auðveldan sigur á Dinamo Búkarest frá Rúmeníu 3-1. Jermain Defoe skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Dimitar Berbatov eitt, en gestirnir náðu að minnka muninn í lokin þó leikurinn hafi verið eign heimamanna frá fyrstu mínútu. Fótbolti 14.12.2006 21:40
Tottenham - Dinamo Búkarest í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá leik Tottenham og Dinamo Búkarest í Evrópukeppni félagsliða í kvöld og hefst útsending klukkan 19:40. Tottenham nægir jafntefli á heimavelli sínum til að tryggja sér efsta sætið í riðlinum og losnar þar með við að mæta liði sem féll úr riðlakeppni Meistaradeildar í 32-liða úrslitum. Fótbolti 14.12.2006 15:37
Newcastle tryggði sér toppsætið Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle tryggði sér í kvöld toppsætið í H-riðli í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Frankfurt á útivelli. Þetta var síðasti leikur liðsins í riðlinum, en Newcastle hefur gengið ágætlega í Evrópukeppninni til þessa líkt og hinum ensku liðunum sem leika í sömu keppni. Fótbolti 30.11.2006 21:55
Grétar Rafn skoraði mark Grétar Rafn Steinsson skoraði annað mark hollenska liðsins AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með því að gera 2-2 jafntefli við Liberec frá Tékklandi. Jóhannes Karl Guðjónsson var einnig í liði Alkmaar í kvöld. Fótbolti 29.11.2006 22:22
Newcastle og Blackburn áfram Ensku úrvalsdeildarliðin Newcastle og Blackburn tryggðu sér bæði sæti í 32-liða úrslitum Evrópumóts félagsliða í kvöld. Newcastle sigraði spænska liðið Celta Vigo 2-1 á heimavelli með mörkum Antoine Sibierski og Steven Taylor eftir að spænska liðið hafði náð forystu í leiknum. Blackburn gerði markalaust jafntefli við hollenska liðið Feyenoord á útivelli. Fótbolti 23.11.2006 22:25