EM 2024 í handbolta Richardson ekki með Frökkum í úrslitaleiknum Frakkar verða án lykilmanns gegn Danmörku í úrslitaleik Evrópumótsins í dag. Handbolti 28.1.2024 11:20 Aganefnd EHF sagði dómara ekki skylduga til að skoða atvik aftur Aganefnd evrópska handboltasambandsins, EHF, hefur úrskurðað dómgæslu í leik Svíþjóðar og Frakklands löglega og sagði fullkomnlega farið eftir reglum. Handbolti 27.1.2024 11:05 Segja að mark Prandi hafi aldrei átt að standa: „Algjör skandall“ Sænskir handboltaunnendur eru í sárum eftir að Svíar misstu af sæti í úrslitum Evrópumótsins er liðið mátti þola fjögurra marka tap gegn Frökkum í framlengdum leik í gær, 34-30. Handbolti 27.1.2024 09:02 Sjáðu markið: Bomban sem tryggði Frökkum framlengingu Frakkar eru komnir í úrslit Evrópumótsins í handbolta eftir fjögurra marka sigur gegn Svíum í lygilegum leik. Handbolti 26.1.2024 22:46 Danir elta Frakka í úrslit en lærisveinar Alfreðs leika um brons Danmörk tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Evrópumótsins í handbolta er liðið vann þriggja marka sigur gegn Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans í þýska landsliðinu, 26-29. Handbolti 26.1.2024 21:04 Frakkar í úrslit eftir framlengingu Frakkar eru komnir í úrslit Evrópumótsins í handbolta eftir fjögurra marka sigur gegn Svíum í framlengdum leik undanúrslitum í dag, 34-30. Handbolti 26.1.2024 18:43 Ungverjar tryggðu sér fimmta sætið á EM eftir endurkomu Ungverjaland, lið sem var með íslenska landsliðinu í riðli, tryggði sér fimmta sætið á Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi með eins marks sigri á Slóvenum, 23-22, í leiknum um fimmta sætið. Handbolti 26.1.2024 15:53 „Aldrei á mínum handboltaferli verið jafn svekktur og sár“ Bjarki Már Elísson er tilnefndur sem einn af bestu vinstri hornamönnum Evrópumótsins í handbolta en hann sjálfur er ekki sáttur með frammistöðu sína á mótinu. Handbolti 26.1.2024 14:31 Hafa aldrei klúðrað svo mörgum vítum á einu EM en einn toppar Ómar Það kemur kannski ekki mörgum á óvart en íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur aldrei verið með verri vítanýtingu á einu Evrópumóti en einmitt á mótinu í Þýskalandi sem kláraðist hjá íslenska landsliðinu á miðvikudaginn. Handbolti 26.1.2024 13:01 Reiknuðu út að dauðafærin hefðu átt að skila Íslandi í undanúrslitin á EM Íslenska handboltalandsliðið hefði ekki aðeins komist í umspilið um sæti á næstu Ólympíuleikum heldur hefði líklegast einnig spilað um verðlaun á Evrópumótinu ef liðið hafði nýtt dauðafærin sín á mótinu í Þýskalandi. Handbolti 26.1.2024 11:01 EHF heldur áfram að koma á óvart: Bjarki líka tilnefndur í lið mótsins Bjarki Már Elísson var einn af sex bestu vinstri hornamönnum Evrópumótsins í handbolta en hann er tilnefndur í úrvalsliðið af EHF, evrópska handboltasambandinu. Handbolti 26.1.2024 10:01 „Ætla ekki að segja að geimverurnar í Space Jam hafi komið og tekið þetta frá þeim“ Ísland lauk í gær keppni á Evrópumóti karla í handbolta. Niðurstaðan er 10. sæti, sem þykja vonbrigði. Handbolti 25.1.2024 21:00 Ómar Ingi tilnefndur sem besta hægri skytta Evrópumótsins Íslendingar eru kannski ekki sáttir með frammistöðu Ómars Inga Magnússonar með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í handbolta en hæstráðendur hjá evrópska sambandinu sjá hlutina ekki alveg með sömu augum. Handbolti 25.1.2024 14:32 „Sá á öllu fasi hans hvað þetta skipti hann ógeðslega miklu máli“ Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, átti flott fyrirliðamót og leiddi íslenska liðið á Evrópumótinu í handbolta. Aron fékk líka hrós frá strákunum í Besta sætinu. Handbolti 25.1.2024 13:31 EM í dag: Hundfúlir með niðurstöðuna Þátttöku strákanna okkar á EM 2024 er lokið. Árangurinn var ekki góður og frammistaða liðsins langt frá þeim væntingum sem voru gerðar. Þátttöku strákanna okkar á EM 2024 er lokið. Árangurinn var ekki góður og frammistaða liðsins langt frá þeim væntingum sem voru gerðar. Handbolti 25.1.2024 11:01 Danskur sérfræðingur gagnrýnir Elliða Danski handboltasérfræðingurinn Peter Bruun Jørgensen gagnrýndi Elliða Snæ Viðarsson eftir sigur Íslands á Austurríki á EM í gær og sakaði hann um óíþróttamannslega hegðun. Handbolti 25.1.2024 10:30 Bjarni gaf Ómari Inga ráð eftir „glatað mót“ Ómar Ingi Magnússon á ekki aðeins að vera besti leikmaður íslenska liðsins heldur einn besti handboltamaður heims. Hann var hins vegar langt frá því á Evrópumótinu sem endaði hjá íslenska handboltalandsliðinu í gær. Handbolti 25.1.2024 10:01 Segir að Bjarki hafi skipt sjálfum sér út af Frammistaða Bjarka Más Elíssonar var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, og menn veltu fyrir sér hvort hann hefði skipt sjálfum sér út af í leiknum gegn Austurríki. Handbolti 25.1.2024 08:00 Myndasyrpa frá síðasta leik mótsins Íslenska landsliðið vann tveggja marka sigur í síðasta leik Evrópumótsins gegn Austurríki í gær. Eftir úrslit gærdagsins er mótinu lokið hjá Íslandi og draumur liðsins um að komast á Ólympíuleikana er úti. Handbolti 25.1.2024 06:31 Króatasigur í lokaleiknum gegn þreyttum Þjóðverjum Króatía vann Þýskaland , 30-24, í síðasta leik milliriðilsins á Evrópumótinu í handbolta. Þýskaland hafði þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum eftir að Ungverjalandi mistókst að vinna Frakkland í dag. Handbolti 24.1.2024 21:02 Skýrsla Sindra: Þeir voru svo sannarlega veikir Á einhvern ótrúlegan hátt enn með góða von um að komast á Ólympíuleika, langt yfir á móti bensínlausum Austurríkismönnum, undirstrikuðu strákarnir okkar það sem komið hefur í ljós á EM. Að það er eitthvað stórkostlega mikið að og í dag er Ísland veikt lið. Handbolti 24.1.2024 19:02 Umfjöllun: Frakkland - Ungverjaland 35-32 | Engin hjálp í Ungverjum og Ólympíudraumurinn úr sögunni Íslenska karlalandsliðið í handbolta á ekki lengur möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París. Þetta var ljóst eftir sigur Frakklands á Ungverjalandi, 35-32, í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag. Handbolti 24.1.2024 16:33 Viktor með tárin í augunum eftir leik: „Þetta er ógeðslega svekkjandi“ Viktor Gísli Hallgrímsson varði frábærlega í fyrri hálfleiknum á móti Austurríki en náði ekki að fylgja því eftir í þeim síðari. Þrátt fyrir tveggja marka sigur var íslenski markvörðurinn með tárin í augunum eftir leikinn. Handbolti 24.1.2024 17:02 „Ég á helling inni og þarf að gera betur“ Ómar Ingi Magnússon var niðurlútur þrátt fyrir tveggja marka sigur Íslands gegn Austurríki í lokaleik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á Evrópumótinu í Þýskalandi þetta árið, 26-24. Handbolti 24.1.2024 17:02 Einkunnir Strákanna okkar á móti Austurríki: Sigvaldi góður en Bjarki brást Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann tveggja marka sigur á Austurríki, 24-26, í lokaleik sínum í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag. Afleit byrjun á seinni hálfleik gerði úti um vonir Íslands á að vinna nógu stóran sigur til að komast beint í forkeppni Ólympíuleikanna. Handbolti 24.1.2024 17:01 „Algjör viðbjóður og ógeðslegt að kyngja því“ „Við vorum bara með þetta fyrsta hálftíman,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta eftir tveggja marka sigur liðsins gegn Austurríki í dag, 26-24. Handbolti 24.1.2024 16:44 Tölfræðin á móti Austurríki: Skoruðu ekki mark í rúmar þrettán mínútur Íslenska landsliðið hefur átt marga slæma kafla á Evrópumótinu í ár en fáir voru þó verri en byrjunin á seinni hálfleiknum í dag. Handbolti 24.1.2024 16:38 Samfélagsmiðlar um leik Íslands gegn Austurríki: Seinni hálfleikur vonbrigði Íslenska landsliðið vann tveggja marka sigur gegn Austurríki 24-26 í síðasta leik í milliriðli á EM karla í handbolta. Aðdáendur íslenska landsliðsins fóru yfir leikinn og létu skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum. Sport 24.1.2024 16:34 „Við getum alveg kallað þetta vonbrigði“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var vægast sagt svekktur eftir tveggja marka sigur gegn Austurríki í lokaleik liðsins á EM í handbolta í dag. Hann segir að mótið hafi að vissu leyti verið vonbrigði. Handbolti 24.1.2024 16:34 Umfjöllun: Austurríki - Ísland 24-26 | Sigur en þurfum að treysta á önnur úrslit Ísland vann tveggja marka sigur gegn Austurríki 24-26. Eftir frábæran fyrri hálfleik byrjaði Ísland síðari hálfleik skelfilega. Lokamínúturnar voru æsispennandi en Ísland vann að lokum með tveimur mörkum. Handbolti 24.1.2024 13:00 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 … 15 ›
Richardson ekki með Frökkum í úrslitaleiknum Frakkar verða án lykilmanns gegn Danmörku í úrslitaleik Evrópumótsins í dag. Handbolti 28.1.2024 11:20
Aganefnd EHF sagði dómara ekki skylduga til að skoða atvik aftur Aganefnd evrópska handboltasambandsins, EHF, hefur úrskurðað dómgæslu í leik Svíþjóðar og Frakklands löglega og sagði fullkomnlega farið eftir reglum. Handbolti 27.1.2024 11:05
Segja að mark Prandi hafi aldrei átt að standa: „Algjör skandall“ Sænskir handboltaunnendur eru í sárum eftir að Svíar misstu af sæti í úrslitum Evrópumótsins er liðið mátti þola fjögurra marka tap gegn Frökkum í framlengdum leik í gær, 34-30. Handbolti 27.1.2024 09:02
Sjáðu markið: Bomban sem tryggði Frökkum framlengingu Frakkar eru komnir í úrslit Evrópumótsins í handbolta eftir fjögurra marka sigur gegn Svíum í lygilegum leik. Handbolti 26.1.2024 22:46
Danir elta Frakka í úrslit en lærisveinar Alfreðs leika um brons Danmörk tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum Evrópumótsins í handbolta er liðið vann þriggja marka sigur gegn Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans í þýska landsliðinu, 26-29. Handbolti 26.1.2024 21:04
Frakkar í úrslit eftir framlengingu Frakkar eru komnir í úrslit Evrópumótsins í handbolta eftir fjögurra marka sigur gegn Svíum í framlengdum leik undanúrslitum í dag, 34-30. Handbolti 26.1.2024 18:43
Ungverjar tryggðu sér fimmta sætið á EM eftir endurkomu Ungverjaland, lið sem var með íslenska landsliðinu í riðli, tryggði sér fimmta sætið á Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi með eins marks sigri á Slóvenum, 23-22, í leiknum um fimmta sætið. Handbolti 26.1.2024 15:53
„Aldrei á mínum handboltaferli verið jafn svekktur og sár“ Bjarki Már Elísson er tilnefndur sem einn af bestu vinstri hornamönnum Evrópumótsins í handbolta en hann sjálfur er ekki sáttur með frammistöðu sína á mótinu. Handbolti 26.1.2024 14:31
Hafa aldrei klúðrað svo mörgum vítum á einu EM en einn toppar Ómar Það kemur kannski ekki mörgum á óvart en íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur aldrei verið með verri vítanýtingu á einu Evrópumóti en einmitt á mótinu í Þýskalandi sem kláraðist hjá íslenska landsliðinu á miðvikudaginn. Handbolti 26.1.2024 13:01
Reiknuðu út að dauðafærin hefðu átt að skila Íslandi í undanúrslitin á EM Íslenska handboltalandsliðið hefði ekki aðeins komist í umspilið um sæti á næstu Ólympíuleikum heldur hefði líklegast einnig spilað um verðlaun á Evrópumótinu ef liðið hafði nýtt dauðafærin sín á mótinu í Þýskalandi. Handbolti 26.1.2024 11:01
EHF heldur áfram að koma á óvart: Bjarki líka tilnefndur í lið mótsins Bjarki Már Elísson var einn af sex bestu vinstri hornamönnum Evrópumótsins í handbolta en hann er tilnefndur í úrvalsliðið af EHF, evrópska handboltasambandinu. Handbolti 26.1.2024 10:01
„Ætla ekki að segja að geimverurnar í Space Jam hafi komið og tekið þetta frá þeim“ Ísland lauk í gær keppni á Evrópumóti karla í handbolta. Niðurstaðan er 10. sæti, sem þykja vonbrigði. Handbolti 25.1.2024 21:00
Ómar Ingi tilnefndur sem besta hægri skytta Evrópumótsins Íslendingar eru kannski ekki sáttir með frammistöðu Ómars Inga Magnússonar með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í handbolta en hæstráðendur hjá evrópska sambandinu sjá hlutina ekki alveg með sömu augum. Handbolti 25.1.2024 14:32
„Sá á öllu fasi hans hvað þetta skipti hann ógeðslega miklu máli“ Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, átti flott fyrirliðamót og leiddi íslenska liðið á Evrópumótinu í handbolta. Aron fékk líka hrós frá strákunum í Besta sætinu. Handbolti 25.1.2024 13:31
EM í dag: Hundfúlir með niðurstöðuna Þátttöku strákanna okkar á EM 2024 er lokið. Árangurinn var ekki góður og frammistaða liðsins langt frá þeim væntingum sem voru gerðar. Þátttöku strákanna okkar á EM 2024 er lokið. Árangurinn var ekki góður og frammistaða liðsins langt frá þeim væntingum sem voru gerðar. Handbolti 25.1.2024 11:01
Danskur sérfræðingur gagnrýnir Elliða Danski handboltasérfræðingurinn Peter Bruun Jørgensen gagnrýndi Elliða Snæ Viðarsson eftir sigur Íslands á Austurríki á EM í gær og sakaði hann um óíþróttamannslega hegðun. Handbolti 25.1.2024 10:30
Bjarni gaf Ómari Inga ráð eftir „glatað mót“ Ómar Ingi Magnússon á ekki aðeins að vera besti leikmaður íslenska liðsins heldur einn besti handboltamaður heims. Hann var hins vegar langt frá því á Evrópumótinu sem endaði hjá íslenska handboltalandsliðinu í gær. Handbolti 25.1.2024 10:01
Segir að Bjarki hafi skipt sjálfum sér út af Frammistaða Bjarka Más Elíssonar var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, og menn veltu fyrir sér hvort hann hefði skipt sjálfum sér út af í leiknum gegn Austurríki. Handbolti 25.1.2024 08:00
Myndasyrpa frá síðasta leik mótsins Íslenska landsliðið vann tveggja marka sigur í síðasta leik Evrópumótsins gegn Austurríki í gær. Eftir úrslit gærdagsins er mótinu lokið hjá Íslandi og draumur liðsins um að komast á Ólympíuleikana er úti. Handbolti 25.1.2024 06:31
Króatasigur í lokaleiknum gegn þreyttum Þjóðverjum Króatía vann Þýskaland , 30-24, í síðasta leik milliriðilsins á Evrópumótinu í handbolta. Þýskaland hafði þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum eftir að Ungverjalandi mistókst að vinna Frakkland í dag. Handbolti 24.1.2024 21:02
Skýrsla Sindra: Þeir voru svo sannarlega veikir Á einhvern ótrúlegan hátt enn með góða von um að komast á Ólympíuleika, langt yfir á móti bensínlausum Austurríkismönnum, undirstrikuðu strákarnir okkar það sem komið hefur í ljós á EM. Að það er eitthvað stórkostlega mikið að og í dag er Ísland veikt lið. Handbolti 24.1.2024 19:02
Umfjöllun: Frakkland - Ungverjaland 35-32 | Engin hjálp í Ungverjum og Ólympíudraumurinn úr sögunni Íslenska karlalandsliðið í handbolta á ekki lengur möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París. Þetta var ljóst eftir sigur Frakklands á Ungverjalandi, 35-32, í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag. Handbolti 24.1.2024 16:33
Viktor með tárin í augunum eftir leik: „Þetta er ógeðslega svekkjandi“ Viktor Gísli Hallgrímsson varði frábærlega í fyrri hálfleiknum á móti Austurríki en náði ekki að fylgja því eftir í þeim síðari. Þrátt fyrir tveggja marka sigur var íslenski markvörðurinn með tárin í augunum eftir leikinn. Handbolti 24.1.2024 17:02
„Ég á helling inni og þarf að gera betur“ Ómar Ingi Magnússon var niðurlútur þrátt fyrir tveggja marka sigur Íslands gegn Austurríki í lokaleik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á Evrópumótinu í Þýskalandi þetta árið, 26-24. Handbolti 24.1.2024 17:02
Einkunnir Strákanna okkar á móti Austurríki: Sigvaldi góður en Bjarki brást Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann tveggja marka sigur á Austurríki, 24-26, í lokaleik sínum í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag. Afleit byrjun á seinni hálfleik gerði úti um vonir Íslands á að vinna nógu stóran sigur til að komast beint í forkeppni Ólympíuleikanna. Handbolti 24.1.2024 17:01
„Algjör viðbjóður og ógeðslegt að kyngja því“ „Við vorum bara með þetta fyrsta hálftíman,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta eftir tveggja marka sigur liðsins gegn Austurríki í dag, 26-24. Handbolti 24.1.2024 16:44
Tölfræðin á móti Austurríki: Skoruðu ekki mark í rúmar þrettán mínútur Íslenska landsliðið hefur átt marga slæma kafla á Evrópumótinu í ár en fáir voru þó verri en byrjunin á seinni hálfleiknum í dag. Handbolti 24.1.2024 16:38
Samfélagsmiðlar um leik Íslands gegn Austurríki: Seinni hálfleikur vonbrigði Íslenska landsliðið vann tveggja marka sigur gegn Austurríki 24-26 í síðasta leik í milliriðli á EM karla í handbolta. Aðdáendur íslenska landsliðsins fóru yfir leikinn og létu skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum. Sport 24.1.2024 16:34
„Við getum alveg kallað þetta vonbrigði“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var vægast sagt svekktur eftir tveggja marka sigur gegn Austurríki í lokaleik liðsins á EM í handbolta í dag. Hann segir að mótið hafi að vissu leyti verið vonbrigði. Handbolti 24.1.2024 16:34
Umfjöllun: Austurríki - Ísland 24-26 | Sigur en þurfum að treysta á önnur úrslit Ísland vann tveggja marka sigur gegn Austurríki 24-26. Eftir frábæran fyrri hálfleik byrjaði Ísland síðari hálfleik skelfilega. Lokamínúturnar voru æsispennandi en Ísland vann að lokum með tveimur mörkum. Handbolti 24.1.2024 13:00