Náttúruhamfarir Þúsundir flýja fellibylinn Idu sem eflist hratt Tugir þúsunda manna hafa flúið heimili sín í Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna áður en fellibylurinn Ida gengur þar á land síðar í dag. Ida hefur safnað styrk hratt og telst nú fjórða stigs fellibylur. Erlent 29.8.2021 09:25 Fellibylurinn Ida ógnar íbúum Lúisíana Íbúar við strendur Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir að fellibylurinn Ida gangi á land um helgina. Varað er við því að fellibylurinn muni „breyta lífi“ fólks sem er óviðbúið hamförunum. Erlent 28.8.2021 08:45 Þúsundir án rafmagns og milljónir í viðbragðsstöðu Rúmlega 120 þúsund heimili í norðausturhluta Bandaríkjanna eru án rafmagns eftir að hitabeltisstormurinn Henri gekk yfir Rhode Island. Erlent 23.8.2021 07:43 Minnst 22 látnir eftir flóð í Tennessee Minnst 22 hafa látist í flóðum eftir fordæmalausar rigningar í Humphrey-sýslu í miðju Tennessee-fylki í Bandaríkjunum. Margra er enn saknað en flóðin fóru víða yfir vegi og felldu síma- og fjarskiptamöstur í gær. Í mörgum tilfellum hefur fólk því ekki náð sambandi við ástvini sína til að athuga hvort sé í lagi með þá. Erlent 22.8.2021 22:12 Minnst átta látnir vegna fellibyls í Mexíkó Minnst átta hafa látist svo vitað sé í fellibylnum Grace í austurhluta Mexíkó. Miklar hitabeltisrigningar og vindar hafa orðið til þess að víða er rafmagnslaust og flóð eru víða. Erlent 22.8.2021 09:40 Örvæntingin eykst á Haítí en stjórnvöld afþakka aðstoð Stjórnvöld á Haítí afþökkuðu aðstoð alþjóðlegra hjálparsamtaka vegna jarðskjálftans um helgina þrátt fyrir að erlendir hjálparstarfsmenn í landinu segi sjúkrahús á hamfarasvæðinu að mestu óstarfhæf og að skortur sé á lækningatækjum. Erlent 19.8.2021 09:20 Mikil flóð eftir úrhelli í sænsku Dölunum Skemmdir hafa orðið á vegum og brúm og flætt hefur inn í íbúðarhús í miklum flóðum í kjölfar úrhellisúrkomu í Gävleborg og Dölunum í austanverðri Svíþjóð. Íbúar á svæðinu eru varaðir við því að vera á ferðinni nema alger nauðsyn krefji. Erlent 18.8.2021 11:22 Tæplega tvö þúsund manns hafi látist á Haítí Tala látinna og slasaðra eftir öflugan jarðskjálfta á Haíti á laugardag hækkar stöðugt. Nú er talið að tæplega tvö þúsund manns hafi látist og hefur sú tala hækkað um fimm hundruð á einum degi. Þá er eru tíu þúsund manns slasaðir. Erlent 18.8.2021 06:48 Fundu mörg hundruð látna til viðbótar í dag Staðfestum dauðsföllum eftir skjálftann sem reið yfir Haítí á laugardag fjölgaði mjög í dag. Opinberar tölur frá Haítí yfir fjölda látinni fóru úr 1.419 í morgun upp í 1.941 nú í kvöld. Ekki er ljóst hve margra er enn saknað. Erlent 17.8.2021 23:32 Þúsundir flýja gróðurelda á Frönsku rivíerunni Þúsundir manna, þeirra á meðal mikill fjöldi erlendra ferðamanna á tjaldsvæðum, hafa þurft að flýja af hluta Frönsku rivíerunni vegna gróðurelda sem hafa þar blossað upp. Erlent 17.8.2021 13:16 Úrhelli og yfirvofandi aurskriður gera björgunarliði erfitt fyrir Talsmenn haítískra yfirvalda segja tölu látinna vegna skjálftans mikla sem reið yfir á laugardag nú vera komna í 1.419 og þá er vitað um 6.900 manns sem hafi slasast. Ekki er vitað um nákvæman fjölda þeirra sem enn er saknað. Erlent 17.8.2021 10:48 Stormur í kjölfar jarðskjálfta Hitabeltisstormurinn Grace skall á Haítí í gærkvöldi aðeins tveimur dögum eftir öflugan jarðskjálfta sem kostað hefur rúmlega fjórtán hundruð manns lífið. Um sex þúsund manns slösuðust og þúsundir bygginga eyðilögðust. Erlent 17.8.2021 06:34 Í kapphlaupi við tímann að ná til nauðstaddra Hjálparstarfsmenn etja nú kapphlaup við tímann til að ná til nauðstaddra eftir jarðskjálftann mikla á Haíti áður en hitabeltisstormur gengur á land í kvöld. Forsætisráðherra landsins segir engan tíma mega missa. Erlent 16.8.2021 14:47 Haítar búa sig undir komu hitabeltisstormsins Grace Búist er við að hitabeltisstormurinn Grace skelli á Haíti í kvöld. Almannavarnir þar í landi vara við miklum stormi og rigningu, mikilli ölduhæð á hafi úti, aurskriðum og flóðum. Erlent 16.8.2021 07:48 Minnst 1.297 eru látin á Haítí Tala látinna eftir öflugan jarðskjálfta á Haítí í gær er komin í 1.297. Erlent 15.8.2021 23:31 Tala látinna á Haítí er komin í 304 Minnst 304 hafa látist eftir að öflugur jarðskjálfi varð á Haítí fyrr í dag. Hundruðir eru særðir og mikils fjölda er enn saknað. Erlent 14.8.2021 23:02 Minnst 44 eru látin í flóðum í Tyrklandi Gríðarleg flóð hafa verið í Tyrklandi síðustu daga. Tala látinna er komin í 44. Erlent 14.8.2021 19:52 Telja hundruð til viðbótar hafa látist í hitabylgju Þrefalt fleiri dauðsföll urðu þegar öflug hitabylgja gekk yfir norðvesturríki Bandaríkjanna í júní en yfirvöld hafa hafa rakið til hitans. Líklegt er að mannfallið í hitabylgjunni hafi því verið enn meira en greint hefur verið frá. Erlent 12.8.2021 15:39 Stærstu gróðureldar á jörðinni loga í Síberíu Gróðureldar sem nú loga á þúsundum ferkílómetra lands í Síberíu eru stærri en allir aðrir gróðureldar sem loga á jörðinni. Rússnesk yfirvöld berjast nú við fleiri en 190 skógarelda en tugir annarra elda fá að loga óáreittir fjarri mannabyggð. Erlent 11.8.2021 14:53 Minnst 65 fórust í umfangsmiklum eldum í Alsír Minnst 65 dóu vegna umfangsmikilla skógarelda í Alsír í gær. Þar á meðal voru 28 hermenn sem voru að hjálpa við slökkvistarf og brottflutning íbúa í Kabylie-héraði. Smærri eldar loga í minnst sextán öðrum héruðum landsins. Erlent 11.8.2021 10:59 Þúsundir flýja heimili sín vegna eldanna og losun koltvísýrings afar mikil Mörg þúsund hafa flúið heimili sín á grísku eyjunni Evia í gær og í dag þar sem ekkert lát er á einhverjum verstu gróðureldum í manna minnum. Eldar loga enn í Síberíu, Tyrklandi og Kaliforníu. Veðurfræðingur segir losun koltvísýrings vegna eldanna afar mikla. Erlent 9.8.2021 12:20 Tveir handteknir fyrir að kveikja vísvitandi elda á Grikklandi Sumrinu á Grikklandi hefur verið líkt og martröð af forsætisráðherra landsins. Gróðureldar hafa leikið landið grátt í einhverri verstu hitabylgju sem gengið hefur yfir Grikkland á síðustu áratugum. Erlent 8.8.2021 12:45 Hamfararigningar í kjölfar hitabylgju og þurrks í Norður-Kóreu Hamfararigningar og flóð hafa valdið miklu tjóni í Norður-Kóreu. Minnst ellefu hundruð heimili hafa skemmst og þúsundir hafa þurft að flýja undan flóðum. Þá hafa miklar skemmdir orðið á ræktunarlandi, vegum og brúm. Erlent 6.8.2021 11:03 Náðu naumlega að bjarga fornum Ólympíuleikvangi frá gróðureldum Miklir gróðureldar hafa brunnið í Tyrklandi og Grikklandi undanfarna daga og hafa þúsundir þurft að yfirgefa heimili sín. Minnst átta hafa farist í eldunum í Tyrklandi síðan eldarnir hófust í síðustu viku og þúsundir hektara hafa orðið eldunum að bráð. Erlent 5.8.2021 10:44 Tala látinna í Kína er komin í þrjú hundruð Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag að tala látinna í flóðunum sem riðu yfir Henanhérað í júlí væri komin í 302. Þá er minnst fimmtíu enn saknað. Erlent 2.8.2021 18:32 Átta hafa farist í gróðureldum í Tyrklandi Átta hafa farist í gróðureldum sem hafa brunnið undanfarna fimm daga í suðurhluta Tyrklands. Tíu eru á sjúkrahúsi vegna eldanna. Erlent 2.8.2021 09:54 Gróðureldar í Tyrklandi eru þeir heitustu í sögunni Gríðarlegir gróðureldar geisa í Tyrklandi um þessar mundir. Gögn úr gervitunglum benda til þess að hiti eldanna sé fjórum sinnum hærri en hefur nokkurn tímann mælst í landinu. Erlent 31.7.2021 20:31 Flóðbylgjuviðvörun í gildi eftir að jarðskjálfti að stærð 8,2 skók Alaska Jarðskjálfti að stærð 8,2 mældist við strendur Alaska í morgun, samkvæmt tölum frá bandarísku jarðvísindastofnuninni. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út fyrir hluta ríkisins. Erlent 29.7.2021 07:19 Gróðureldar brenna í Suður-Evrópu Miklir gróðureldar brenna nú víða í Suður-Evrópu og hafa hvassir vindar og mikill hiti ekki hjálpað til í baráttunni gegn eldtungunum. Á sama tíma heyja ríki í norðurhluta Evrópu enn baráttu við úrhellisrigningar og flóð. Erlent 26.7.2021 14:12 Flæðir inn á sjúkrahús og lestarkerfi í Lundúnum Miklar rigningar í suðurhluta Englands og í Wales hafa orðið þess valdandi að flóðaviðvaranir hafa verið gefnar út á fimm svæðum, þar á meðal í höfuðborginni Lundúnum. Erlent 26.7.2021 08:03 « ‹ 14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 22 ›
Þúsundir flýja fellibylinn Idu sem eflist hratt Tugir þúsunda manna hafa flúið heimili sín í Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna áður en fellibylurinn Ida gengur þar á land síðar í dag. Ida hefur safnað styrk hratt og telst nú fjórða stigs fellibylur. Erlent 29.8.2021 09:25
Fellibylurinn Ida ógnar íbúum Lúisíana Íbúar við strendur Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir að fellibylurinn Ida gangi á land um helgina. Varað er við því að fellibylurinn muni „breyta lífi“ fólks sem er óviðbúið hamförunum. Erlent 28.8.2021 08:45
Þúsundir án rafmagns og milljónir í viðbragðsstöðu Rúmlega 120 þúsund heimili í norðausturhluta Bandaríkjanna eru án rafmagns eftir að hitabeltisstormurinn Henri gekk yfir Rhode Island. Erlent 23.8.2021 07:43
Minnst 22 látnir eftir flóð í Tennessee Minnst 22 hafa látist í flóðum eftir fordæmalausar rigningar í Humphrey-sýslu í miðju Tennessee-fylki í Bandaríkjunum. Margra er enn saknað en flóðin fóru víða yfir vegi og felldu síma- og fjarskiptamöstur í gær. Í mörgum tilfellum hefur fólk því ekki náð sambandi við ástvini sína til að athuga hvort sé í lagi með þá. Erlent 22.8.2021 22:12
Minnst átta látnir vegna fellibyls í Mexíkó Minnst átta hafa látist svo vitað sé í fellibylnum Grace í austurhluta Mexíkó. Miklar hitabeltisrigningar og vindar hafa orðið til þess að víða er rafmagnslaust og flóð eru víða. Erlent 22.8.2021 09:40
Örvæntingin eykst á Haítí en stjórnvöld afþakka aðstoð Stjórnvöld á Haítí afþökkuðu aðstoð alþjóðlegra hjálparsamtaka vegna jarðskjálftans um helgina þrátt fyrir að erlendir hjálparstarfsmenn í landinu segi sjúkrahús á hamfarasvæðinu að mestu óstarfhæf og að skortur sé á lækningatækjum. Erlent 19.8.2021 09:20
Mikil flóð eftir úrhelli í sænsku Dölunum Skemmdir hafa orðið á vegum og brúm og flætt hefur inn í íbúðarhús í miklum flóðum í kjölfar úrhellisúrkomu í Gävleborg og Dölunum í austanverðri Svíþjóð. Íbúar á svæðinu eru varaðir við því að vera á ferðinni nema alger nauðsyn krefji. Erlent 18.8.2021 11:22
Tæplega tvö þúsund manns hafi látist á Haítí Tala látinna og slasaðra eftir öflugan jarðskjálfta á Haíti á laugardag hækkar stöðugt. Nú er talið að tæplega tvö þúsund manns hafi látist og hefur sú tala hækkað um fimm hundruð á einum degi. Þá er eru tíu þúsund manns slasaðir. Erlent 18.8.2021 06:48
Fundu mörg hundruð látna til viðbótar í dag Staðfestum dauðsföllum eftir skjálftann sem reið yfir Haítí á laugardag fjölgaði mjög í dag. Opinberar tölur frá Haítí yfir fjölda látinni fóru úr 1.419 í morgun upp í 1.941 nú í kvöld. Ekki er ljóst hve margra er enn saknað. Erlent 17.8.2021 23:32
Þúsundir flýja gróðurelda á Frönsku rivíerunni Þúsundir manna, þeirra á meðal mikill fjöldi erlendra ferðamanna á tjaldsvæðum, hafa þurft að flýja af hluta Frönsku rivíerunni vegna gróðurelda sem hafa þar blossað upp. Erlent 17.8.2021 13:16
Úrhelli og yfirvofandi aurskriður gera björgunarliði erfitt fyrir Talsmenn haítískra yfirvalda segja tölu látinna vegna skjálftans mikla sem reið yfir á laugardag nú vera komna í 1.419 og þá er vitað um 6.900 manns sem hafi slasast. Ekki er vitað um nákvæman fjölda þeirra sem enn er saknað. Erlent 17.8.2021 10:48
Stormur í kjölfar jarðskjálfta Hitabeltisstormurinn Grace skall á Haítí í gærkvöldi aðeins tveimur dögum eftir öflugan jarðskjálfta sem kostað hefur rúmlega fjórtán hundruð manns lífið. Um sex þúsund manns slösuðust og þúsundir bygginga eyðilögðust. Erlent 17.8.2021 06:34
Í kapphlaupi við tímann að ná til nauðstaddra Hjálparstarfsmenn etja nú kapphlaup við tímann til að ná til nauðstaddra eftir jarðskjálftann mikla á Haíti áður en hitabeltisstormur gengur á land í kvöld. Forsætisráðherra landsins segir engan tíma mega missa. Erlent 16.8.2021 14:47
Haítar búa sig undir komu hitabeltisstormsins Grace Búist er við að hitabeltisstormurinn Grace skelli á Haíti í kvöld. Almannavarnir þar í landi vara við miklum stormi og rigningu, mikilli ölduhæð á hafi úti, aurskriðum og flóðum. Erlent 16.8.2021 07:48
Minnst 1.297 eru látin á Haítí Tala látinna eftir öflugan jarðskjálfta á Haítí í gær er komin í 1.297. Erlent 15.8.2021 23:31
Tala látinna á Haítí er komin í 304 Minnst 304 hafa látist eftir að öflugur jarðskjálfi varð á Haítí fyrr í dag. Hundruðir eru særðir og mikils fjölda er enn saknað. Erlent 14.8.2021 23:02
Minnst 44 eru látin í flóðum í Tyrklandi Gríðarleg flóð hafa verið í Tyrklandi síðustu daga. Tala látinna er komin í 44. Erlent 14.8.2021 19:52
Telja hundruð til viðbótar hafa látist í hitabylgju Þrefalt fleiri dauðsföll urðu þegar öflug hitabylgja gekk yfir norðvesturríki Bandaríkjanna í júní en yfirvöld hafa hafa rakið til hitans. Líklegt er að mannfallið í hitabylgjunni hafi því verið enn meira en greint hefur verið frá. Erlent 12.8.2021 15:39
Stærstu gróðureldar á jörðinni loga í Síberíu Gróðureldar sem nú loga á þúsundum ferkílómetra lands í Síberíu eru stærri en allir aðrir gróðureldar sem loga á jörðinni. Rússnesk yfirvöld berjast nú við fleiri en 190 skógarelda en tugir annarra elda fá að loga óáreittir fjarri mannabyggð. Erlent 11.8.2021 14:53
Minnst 65 fórust í umfangsmiklum eldum í Alsír Minnst 65 dóu vegna umfangsmikilla skógarelda í Alsír í gær. Þar á meðal voru 28 hermenn sem voru að hjálpa við slökkvistarf og brottflutning íbúa í Kabylie-héraði. Smærri eldar loga í minnst sextán öðrum héruðum landsins. Erlent 11.8.2021 10:59
Þúsundir flýja heimili sín vegna eldanna og losun koltvísýrings afar mikil Mörg þúsund hafa flúið heimili sín á grísku eyjunni Evia í gær og í dag þar sem ekkert lát er á einhverjum verstu gróðureldum í manna minnum. Eldar loga enn í Síberíu, Tyrklandi og Kaliforníu. Veðurfræðingur segir losun koltvísýrings vegna eldanna afar mikla. Erlent 9.8.2021 12:20
Tveir handteknir fyrir að kveikja vísvitandi elda á Grikklandi Sumrinu á Grikklandi hefur verið líkt og martröð af forsætisráðherra landsins. Gróðureldar hafa leikið landið grátt í einhverri verstu hitabylgju sem gengið hefur yfir Grikkland á síðustu áratugum. Erlent 8.8.2021 12:45
Hamfararigningar í kjölfar hitabylgju og þurrks í Norður-Kóreu Hamfararigningar og flóð hafa valdið miklu tjóni í Norður-Kóreu. Minnst ellefu hundruð heimili hafa skemmst og þúsundir hafa þurft að flýja undan flóðum. Þá hafa miklar skemmdir orðið á ræktunarlandi, vegum og brúm. Erlent 6.8.2021 11:03
Náðu naumlega að bjarga fornum Ólympíuleikvangi frá gróðureldum Miklir gróðureldar hafa brunnið í Tyrklandi og Grikklandi undanfarna daga og hafa þúsundir þurft að yfirgefa heimili sín. Minnst átta hafa farist í eldunum í Tyrklandi síðan eldarnir hófust í síðustu viku og þúsundir hektara hafa orðið eldunum að bráð. Erlent 5.8.2021 10:44
Tala látinna í Kína er komin í þrjú hundruð Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag að tala látinna í flóðunum sem riðu yfir Henanhérað í júlí væri komin í 302. Þá er minnst fimmtíu enn saknað. Erlent 2.8.2021 18:32
Átta hafa farist í gróðureldum í Tyrklandi Átta hafa farist í gróðureldum sem hafa brunnið undanfarna fimm daga í suðurhluta Tyrklands. Tíu eru á sjúkrahúsi vegna eldanna. Erlent 2.8.2021 09:54
Gróðureldar í Tyrklandi eru þeir heitustu í sögunni Gríðarlegir gróðureldar geisa í Tyrklandi um þessar mundir. Gögn úr gervitunglum benda til þess að hiti eldanna sé fjórum sinnum hærri en hefur nokkurn tímann mælst í landinu. Erlent 31.7.2021 20:31
Flóðbylgjuviðvörun í gildi eftir að jarðskjálfti að stærð 8,2 skók Alaska Jarðskjálfti að stærð 8,2 mældist við strendur Alaska í morgun, samkvæmt tölum frá bandarísku jarðvísindastofnuninni. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út fyrir hluta ríkisins. Erlent 29.7.2021 07:19
Gróðureldar brenna í Suður-Evrópu Miklir gróðureldar brenna nú víða í Suður-Evrópu og hafa hvassir vindar og mikill hiti ekki hjálpað til í baráttunni gegn eldtungunum. Á sama tíma heyja ríki í norðurhluta Evrópu enn baráttu við úrhellisrigningar og flóð. Erlent 26.7.2021 14:12
Flæðir inn á sjúkrahús og lestarkerfi í Lundúnum Miklar rigningar í suðurhluta Englands og í Wales hafa orðið þess valdandi að flóðaviðvaranir hafa verið gefnar út á fimm svæðum, þar á meðal í höfuðborginni Lundúnum. Erlent 26.7.2021 08:03