Hernaður Fyrrverandi herforingi segir næstu daga skipta öllu máli Rússar eiga í vandræðum. Þá skortir skotfæri og mannafla og geta ekki viðhaldið árásum sínum til lengdar. Hvernig innrás þeirra í Úkraínu heppnast veltur á gengi þeirra næstu tíu daga. Erlent 16.3.2022 15:30 Ný eldflaug sögð hafa sprungið í loft upp yfir Norður-Kóreu Nýtt eldflaugaskot frá Norður-Kóreu virðist hafa misheppnast í morgun og er eldflaugin sögð hafa sprungið í loft upp. Talið er að um sé að ræða eldflaug sem geti borið kjarnorkuvopn en þetta er í tíunda sinn á þessu ári sem eldflaug er skotið á loft frá einræðisríkinu einangraða. Erlent 16.3.2022 09:41 Úr leyniþjónustunni í forsetahöllina Á gamlársdag árið 1999, átta árum eftir fall Sovétríkjanna, tilkynnti þáverandi forseti rússneska sambandsríkisins, Boris Jeltsín, að hann hygðist skyndilega stíga til hliðar. Eftirmaður hans birtist í sjónvarpinu rétt fyrir miðnætti til að ávarpa þjóð sína en hann hafði fæstum verið kunnur þar til fimm mánuðum áður, í ágúst 1999, þegar hann hafði verið skipaður forsætisráðherra af Jeltsín. Erlent 16.3.2022 09:01 Vaktin: „Með svona bandamenn munum við vinna þetta stríð“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur hvatt rússneska hermenn til að gefast upp. Sagði hann í ávarpi seint í gærkvöldi að komið yrði fram við þá eins og manneskjur, ólíkt því hvernig rússneski herinn hefði komið fram við Úkraínumenn. Erlent 15.3.2022 06:52 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar í basli með birgðir og liðsauka Hersveitir Rússlands hafa lítið sótt fram í Úkraínu á undanförnum dögum. Bæði í norðri, í sókn Rússa að Kænugarði, og í suðri, þar sem Rússar hafa setið um Maríupól og reynt að sækja að Odessa, hefur lítið gengið og er það að miklu leyti rekið til birgða- og samskiptavandræða. Erlent 15.3.2022 11:13 Vöknuðu við mestu sprengingarnar í rúma viku Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði og eiginkona hans Mariika vöknuðu við miklar sprengingar og læti klukkan fimm í nótt. Hann segir þetta mestu sprengingarnar í borginni í heila viku. Innlent 15.3.2022 08:18 Bandaríkjamenn telja Kínverja nú þegar hafa ákveðið að koma Pútín til aðstoðar Bandaríkjamenn óttast að Kínverjar séu nú þegar búnir að ákveða að koma Rússum til bjargar efnahags- og fjárhagslega og séu að íhuga að sjá þeim fyrir vopnum, meðal annars vopnuðum drónum. Erlent 15.3.2022 06:31 Stuðningur Finna við inngöngu í NATO aukist um níu prósent frá innrás Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2022 14:42 Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Erlent 14.3.2022 11:47 Móðir og ófætt barn hennar létust í árás Rússa á fæðingarspítalann Þunguð kona og ófætt barn hennar létust á sjúkrahúsi í Mariupol eftir árás Rússa á fæðingar- og barnasjúkrahús í borginni 9. mars síðastliðinn. Þau létust bæði eftir að læknar reyndu að bjarga barninu í keisaraskurði í kjölfar árásarinnar. Erlent 14.3.2022 10:38 Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. Erlent 14.3.2022 06:54 Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. Erlent 13.3.2022 18:26 Missti annað barnið sitt í sprengjuárás Rússa Pútín Rússlandsforseti sýndi engan vilja til að binda enda á stríðið við Úkraínu að sögn franskra yfirvalda en Pútín átti símafund með Frakklandsforseta og kanslara Þýskalands í dag. Árásir Rússa á nokkrar úkraínskar borgir færðust mjög í aukana í morgun. Við vörum við myndefni sem fylgir myndbandinu í fréttinni. Erlent 12.3.2022 23:00 Rússar verði háðir Kínverjum eftir nýjustu efnahagsþvinganir Evrópusambandið ætlar að meina Rússum aðgang að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem myndi gera þá algerlega háða Kínverjum eða Indverjum þegar efnahagur landsins hrynur. Þetta er á meðal þess sem kynnt var í fjórða pakka þvingunaraðgerða gegn Rússlandi í gær. Erlent 12.3.2022 20:30 Líður öruggari með hverjum deginum sem líður: „Ég veit ekki hvað ég taldi margar hríðskotabyssur“ Íslendingur sem búsettur er í Kænugarði óttast ekki að Rússar séu að undirbúa áhlaup á borgina. Hann segir tilraunir Rússa til að ná úkraínskum borgum á sitt vald hafa misheppnast hrapalega. Næstu tveir dagar komi til með að segja mikið um framhald stríðsins. Erlent 12.3.2022 12:09 Reyna að koma upp flóttaleiðum en segja árásir Rússa linnulausar Sautjándi dagur innrásar Rússa í Úkraínu hófst með látum í morgun þar sem loftvarnasírenur ómuðu í flestum borgum Úkraínu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að koma upp öruggum flóttaleiðum í dag en yfirvöld segja árásir Rússa gera þeim erfitt fyrir og stofna lífi flóttamanna í hættu. Erlent 12.3.2022 11:08 Vaktin: Rússar nálgast Kænugarð og beita stórskotavopnum á íbúasvæði Rússar hófu árásir á borgirnar Lutsk og Dnipro snemma í morgun en þetta er í fyrsta sinn sem innrásarsveitirnar beina sjónum sínum að borgunum tveimur. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 11.3.2022 06:49 Telja Úkraínumenn geta haldið aftur af Rússum við Kænugarð Þó þeir hafi sótt lítillega fram í dag er sókn Rússa að Kænugarði talin vera strand, ef svo má að orði komast. Hugveitan Institute for the Study of War segir auknar líkur á því að Úkraínumenn geti varist sókn Rússa að höfuðborginni, áður en þeim tekst að umkringja hana. Erlent 10.3.2022 23:55 „Við erum að fara lengra og lengra út af brautinni“ Utanríkisráðherra segist ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna. Stríðið sýni skýrt að hægt sé að brjóta niður þau kerfi og réttindi, sem byggð hafa verið upp áratugum saman, á svipstundu. Innlent 10.3.2022 22:33 Fundi ráðherranna lokið: Lavrov heitir því að Rússar verði aldrei aftur háðir Vesturlöndum Fundi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, er lokið. Viðræður ráðherranna skiluðu ekki teljandi árangri en ekki er útilokað að þeir muni funda á ný á næstunni. Erlent 10.3.2022 10:36 Utanríkisráðherrarnir hittast í Tyrklandi til að ræða varanlegt vopnahlé Utanríkisráðherrar Rússlands og Úkraínu munu funda í Tyrklandi í dag en Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segist vonast til að á fundinum verði „dyrnar opnar“ fyrir varanlegu vopnahléi. Erlent 10.3.2022 06:36 Segir árásina á barnaspítalann til marks um þjóðarmorð Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sendi leiðtogum Vesturlanda tóninn í kvöld. Það gerði hann í nýju ávarpi, sem hann birti á netinu þar sem hann sagði Rússa hafa sannað að þeir ætluðu sér að fremja þjóðarmorð gagnvart Úkraínumönnum. Erlent 9.3.2022 23:44 Vaktin: Selenskí sendir vestrinu tóninn Úkraínumenn segjast hafa komið um fjörutíu þúsund manns úr nokkrum borgum Úkraínu sem Rússar sitja um í dag. Tímabundið vopnahlé náðist í morgun og lauk því klukkan sjö að íslenskum tíma. Erlent 9.3.2022 06:55 Óskar segir Rússa ráðast vísvitandi á flóttafólk Óskar Hallgrímsson sem býr með úkraínskri eiginkonu sinni Mariiku í Kænugarði sá í fyrsta skipti í dag þar sem flugskeyti var skotið frá borginni. Hann segir loftvarnir Kænugarðs hafa verið efldar til muna en í morgun hrukku þau hjónin upp við sprengjugný. Innlent 9.3.2022 22:00 Líf milljóna manna í algerri upplausn og neyð Líf milljóna manna er í algerri upplausn og að minnsta kosti hundruð þúsunda eru í algerri neyð vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Í dag voru gerðar tilraunir til að flytja þúsundir manna frá umkringdum borgum víðs vegar um landið. Nú hafa um 2,2 milljónir manna flúið Úkraínu. Erlent 9.3.2022 20:01 Sprengjum varpað á barnaspítala í Mariupol Barnaspítali og meðgöngudeild í úkraínsku borginni Mariupol er nú í rústum eftir að sprengjum var varpað á borgina í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir rússneska hermenn hafa verið að verki. Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að brjóta gegn vopnahléi sem komið var á í dag. Erlent 9.3.2022 16:49 Ísraelar segja viðræður um vopnahlé þokast í rétta átt Axios hefur eftir háttsettum ísraelskum embættismönnum að viðræður milli Rússa og Úkraínumanna um vopnahlé þokist í rétta átt. Báðir eru sagðir hafa slakað á í afstöðu sinni en utanríkisráðherrar ríkjanna funda í Tyrkalandi á morgun. Erlent 9.3.2022 13:30 Sprengingar heyrast í Kænugarði: Í fyrsta sinn sem hann verður var við átökin, segir ljósmyndari Nú fyrir stundu heyrðust tvær miklar sprengingar í miðborg Kænugarðs. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem býr í borginni, segist sjá reyk liggja upp frá miðbænum og hvíta rák eins og eftir flugskeyti. Erlent 9.3.2022 11:58 Óvíst hvort Úkraínumenn fá MiG-þoturnar en Bandaríkjamenn senda Patriot-kerfi til Póllands Algjör óvissa ríkir um það hvort Úkraínumenn fái MiG-29 herþotur frá Póllandi eftir nokkurn vandræðagang bandarískra og pólskra stjórnvalda. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, mun heimsækja Pólland í dag þar sem málið verður líklega á dagskrá. Erlent 9.3.2022 07:41 Vaktin: Pepsi, Coca-Cola, McDonalds og fleiri loka í Rússlandi Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gasútflutning til Evrópu en Evrópuríkin, Bandaríkin og Japan íhuga nú að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu. Erlent 8.3.2022 06:46 « ‹ 40 41 42 43 44 45 46 47 48 … 53 ›
Fyrrverandi herforingi segir næstu daga skipta öllu máli Rússar eiga í vandræðum. Þá skortir skotfæri og mannafla og geta ekki viðhaldið árásum sínum til lengdar. Hvernig innrás þeirra í Úkraínu heppnast veltur á gengi þeirra næstu tíu daga. Erlent 16.3.2022 15:30
Ný eldflaug sögð hafa sprungið í loft upp yfir Norður-Kóreu Nýtt eldflaugaskot frá Norður-Kóreu virðist hafa misheppnast í morgun og er eldflaugin sögð hafa sprungið í loft upp. Talið er að um sé að ræða eldflaug sem geti borið kjarnorkuvopn en þetta er í tíunda sinn á þessu ári sem eldflaug er skotið á loft frá einræðisríkinu einangraða. Erlent 16.3.2022 09:41
Úr leyniþjónustunni í forsetahöllina Á gamlársdag árið 1999, átta árum eftir fall Sovétríkjanna, tilkynnti þáverandi forseti rússneska sambandsríkisins, Boris Jeltsín, að hann hygðist skyndilega stíga til hliðar. Eftirmaður hans birtist í sjónvarpinu rétt fyrir miðnætti til að ávarpa þjóð sína en hann hafði fæstum verið kunnur þar til fimm mánuðum áður, í ágúst 1999, þegar hann hafði verið skipaður forsætisráðherra af Jeltsín. Erlent 16.3.2022 09:01
Vaktin: „Með svona bandamenn munum við vinna þetta stríð“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur hvatt rússneska hermenn til að gefast upp. Sagði hann í ávarpi seint í gærkvöldi að komið yrði fram við þá eins og manneskjur, ólíkt því hvernig rússneski herinn hefði komið fram við Úkraínumenn. Erlent 15.3.2022 06:52
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar í basli með birgðir og liðsauka Hersveitir Rússlands hafa lítið sótt fram í Úkraínu á undanförnum dögum. Bæði í norðri, í sókn Rússa að Kænugarði, og í suðri, þar sem Rússar hafa setið um Maríupól og reynt að sækja að Odessa, hefur lítið gengið og er það að miklu leyti rekið til birgða- og samskiptavandræða. Erlent 15.3.2022 11:13
Vöknuðu við mestu sprengingarnar í rúma viku Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði og eiginkona hans Mariika vöknuðu við miklar sprengingar og læti klukkan fimm í nótt. Hann segir þetta mestu sprengingarnar í borginni í heila viku. Innlent 15.3.2022 08:18
Bandaríkjamenn telja Kínverja nú þegar hafa ákveðið að koma Pútín til aðstoðar Bandaríkjamenn óttast að Kínverjar séu nú þegar búnir að ákveða að koma Rússum til bjargar efnahags- og fjárhagslega og séu að íhuga að sjá þeim fyrir vopnum, meðal annars vopnuðum drónum. Erlent 15.3.2022 06:31
Stuðningur Finna við inngöngu í NATO aukist um níu prósent frá innrás Meira en sextíu prósent Finna eru hlynnt inngöngu í Atlantshafsbandalagið, NATO, og aðeins sextán prósent þeirra eru mótfallnir því. Stuðningur við innöngu hefur aukist gríðarlega frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 14.3.2022 14:42
Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. Erlent 14.3.2022 11:47
Móðir og ófætt barn hennar létust í árás Rússa á fæðingarspítalann Þunguð kona og ófætt barn hennar létust á sjúkrahúsi í Mariupol eftir árás Rússa á fæðingar- og barnasjúkrahús í borginni 9. mars síðastliðinn. Þau létust bæði eftir að læknar reyndu að bjarga barninu í keisaraskurði í kjölfar árásarinnar. Erlent 14.3.2022 10:38
Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. Erlent 14.3.2022 06:54
Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. Erlent 13.3.2022 18:26
Missti annað barnið sitt í sprengjuárás Rússa Pútín Rússlandsforseti sýndi engan vilja til að binda enda á stríðið við Úkraínu að sögn franskra yfirvalda en Pútín átti símafund með Frakklandsforseta og kanslara Þýskalands í dag. Árásir Rússa á nokkrar úkraínskar borgir færðust mjög í aukana í morgun. Við vörum við myndefni sem fylgir myndbandinu í fréttinni. Erlent 12.3.2022 23:00
Rússar verði háðir Kínverjum eftir nýjustu efnahagsþvinganir Evrópusambandið ætlar að meina Rússum aðgang að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem myndi gera þá algerlega háða Kínverjum eða Indverjum þegar efnahagur landsins hrynur. Þetta er á meðal þess sem kynnt var í fjórða pakka þvingunaraðgerða gegn Rússlandi í gær. Erlent 12.3.2022 20:30
Líður öruggari með hverjum deginum sem líður: „Ég veit ekki hvað ég taldi margar hríðskotabyssur“ Íslendingur sem búsettur er í Kænugarði óttast ekki að Rússar séu að undirbúa áhlaup á borgina. Hann segir tilraunir Rússa til að ná úkraínskum borgum á sitt vald hafa misheppnast hrapalega. Næstu tveir dagar komi til með að segja mikið um framhald stríðsins. Erlent 12.3.2022 12:09
Reyna að koma upp flóttaleiðum en segja árásir Rússa linnulausar Sautjándi dagur innrásar Rússa í Úkraínu hófst með látum í morgun þar sem loftvarnasírenur ómuðu í flestum borgum Úkraínu. Vonir eru bundnar við að hægt verði að koma upp öruggum flóttaleiðum í dag en yfirvöld segja árásir Rússa gera þeim erfitt fyrir og stofna lífi flóttamanna í hættu. Erlent 12.3.2022 11:08
Vaktin: Rússar nálgast Kænugarð og beita stórskotavopnum á íbúasvæði Rússar hófu árásir á borgirnar Lutsk og Dnipro snemma í morgun en þetta er í fyrsta sinn sem innrásarsveitirnar beina sjónum sínum að borgunum tveimur. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 11.3.2022 06:49
Telja Úkraínumenn geta haldið aftur af Rússum við Kænugarð Þó þeir hafi sótt lítillega fram í dag er sókn Rússa að Kænugarði talin vera strand, ef svo má að orði komast. Hugveitan Institute for the Study of War segir auknar líkur á því að Úkraínumenn geti varist sókn Rússa að höfuðborginni, áður en þeim tekst að umkringja hana. Erlent 10.3.2022 23:55
„Við erum að fara lengra og lengra út af brautinni“ Utanríkisráðherra segist ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna. Stríðið sýni skýrt að hægt sé að brjóta niður þau kerfi og réttindi, sem byggð hafa verið upp áratugum saman, á svipstundu. Innlent 10.3.2022 22:33
Fundi ráðherranna lokið: Lavrov heitir því að Rússar verði aldrei aftur háðir Vesturlöndum Fundi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, er lokið. Viðræður ráðherranna skiluðu ekki teljandi árangri en ekki er útilokað að þeir muni funda á ný á næstunni. Erlent 10.3.2022 10:36
Utanríkisráðherrarnir hittast í Tyrklandi til að ræða varanlegt vopnahlé Utanríkisráðherrar Rússlands og Úkraínu munu funda í Tyrklandi í dag en Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segist vonast til að á fundinum verði „dyrnar opnar“ fyrir varanlegu vopnahléi. Erlent 10.3.2022 06:36
Segir árásina á barnaspítalann til marks um þjóðarmorð Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sendi leiðtogum Vesturlanda tóninn í kvöld. Það gerði hann í nýju ávarpi, sem hann birti á netinu þar sem hann sagði Rússa hafa sannað að þeir ætluðu sér að fremja þjóðarmorð gagnvart Úkraínumönnum. Erlent 9.3.2022 23:44
Vaktin: Selenskí sendir vestrinu tóninn Úkraínumenn segjast hafa komið um fjörutíu þúsund manns úr nokkrum borgum Úkraínu sem Rússar sitja um í dag. Tímabundið vopnahlé náðist í morgun og lauk því klukkan sjö að íslenskum tíma. Erlent 9.3.2022 06:55
Óskar segir Rússa ráðast vísvitandi á flóttafólk Óskar Hallgrímsson sem býr með úkraínskri eiginkonu sinni Mariiku í Kænugarði sá í fyrsta skipti í dag þar sem flugskeyti var skotið frá borginni. Hann segir loftvarnir Kænugarðs hafa verið efldar til muna en í morgun hrukku þau hjónin upp við sprengjugný. Innlent 9.3.2022 22:00
Líf milljóna manna í algerri upplausn og neyð Líf milljóna manna er í algerri upplausn og að minnsta kosti hundruð þúsunda eru í algerri neyð vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Í dag voru gerðar tilraunir til að flytja þúsundir manna frá umkringdum borgum víðs vegar um landið. Nú hafa um 2,2 milljónir manna flúið Úkraínu. Erlent 9.3.2022 20:01
Sprengjum varpað á barnaspítala í Mariupol Barnaspítali og meðgöngudeild í úkraínsku borginni Mariupol er nú í rústum eftir að sprengjum var varpað á borgina í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir rússneska hermenn hafa verið að verki. Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að brjóta gegn vopnahléi sem komið var á í dag. Erlent 9.3.2022 16:49
Ísraelar segja viðræður um vopnahlé þokast í rétta átt Axios hefur eftir háttsettum ísraelskum embættismönnum að viðræður milli Rússa og Úkraínumanna um vopnahlé þokist í rétta átt. Báðir eru sagðir hafa slakað á í afstöðu sinni en utanríkisráðherrar ríkjanna funda í Tyrkalandi á morgun. Erlent 9.3.2022 13:30
Sprengingar heyrast í Kænugarði: Í fyrsta sinn sem hann verður var við átökin, segir ljósmyndari Nú fyrir stundu heyrðust tvær miklar sprengingar í miðborg Kænugarðs. Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem býr í borginni, segist sjá reyk liggja upp frá miðbænum og hvíta rák eins og eftir flugskeyti. Erlent 9.3.2022 11:58
Óvíst hvort Úkraínumenn fá MiG-þoturnar en Bandaríkjamenn senda Patriot-kerfi til Póllands Algjör óvissa ríkir um það hvort Úkraínumenn fái MiG-29 herþotur frá Póllandi eftir nokkurn vandræðagang bandarískra og pólskra stjórnvalda. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, mun heimsækja Pólland í dag þar sem málið verður líklega á dagskrá. Erlent 9.3.2022 07:41
Vaktin: Pepsi, Coca-Cola, McDonalds og fleiri loka í Rússlandi Rússar hafa hótað að skrúfa fyrir gasútflutning til Evrópu en Evrópuríkin, Bandaríkin og Japan íhuga nú að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu. Erlent 8.3.2022 06:46